Get a life!

2. ágúst 2008

Lof sé Ra!

Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur, Hugarreik, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan — Gunnar J Briem @ 1.34

Allir sem ráðið hafa krossgátu í lesbókinni þekkja þennan guðÞað blandast vænti ég fáum hugur um að við lifum á áhugaverðum tímum. Það er víst forn kínversk bölvun að óska manni þess að lifa slíka tíma, en ég lít á það sem forréttindi þangað til annað kemur í ljós. Fyrir rúmu einu ári las ég bók með þeim hógværa titli The Meaning of the 21st Century: A Vital Blueprint for Ensuring Our Future. Mér fannst hún í meira lagi áhugaverð samantekt á þeim verkefnum sem við og næstu tvær eða þrjár kynslóðir þurfum að glíma við. Allnokkur hluti bókarinnar fjallar um þörfina á sjálfbærum og lítt mengandi orkugjöfum í stað olíu og kola.

Nú virðist mikilvægum áfanga hafa verið náð í rannsóknum á nýtingu sólarorku. Daniel Nocera, prófessor við MIT, stýrir umræddri rannsókn. Hann orðar það svo:

Sólarorka hefur alltaf verið takmörkuð, fjarlæg lausn. Nú getum við raunverulega farið að líta á hana sem ótakmarkaða og skammt undan.

Þetta hljómar vel. Nánast of vel. Pínulítið auglýsingastofulegt. Kannski er rétt að heyra hvað einhver sérfræðingur sem ekki tengist þessari rannsókn hefur um hana að segja. Víkur þá sögunni að James Barber, sérfræðingi í ljóstillífun og prófessor við Imperial College í London. Hann segir um rannsóknina:

Þetta er stór uppgötvun sem hefur mikla þýðingu fyrir velferð mannkyns. […] Mikilvægi uppgötvunar þeirra verður trauðla ofmetið þar sem hún opnar nýjar leiðir til orkuframleiðslu, sem dregur úr þörf okkar á olíu og kolum og er þar með mikilvægt framlag í glímunni við loftslagsbreytingar.

Ekki fer hann sparlegar með stóru orðin. Ég veit sosum ekki hversu mikið á að ráða í þessar yfirlýsingar og sel þær ekki dýrara en ég keypti þær. En Nocera gerir sér vonir um að þetta leiði til almennrar hagnýtingar sólarorku innan tíu ára. Ef rétt reynist eru þetta stórkostleg tíðindi.

Lof sé Ra !

Eða öllu heldur Nocera.

Knúið með WordPress

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning