Get a life!

29. september 2008

Skjótt skipast veður…

Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Stjórnmál, Umræðan — Gunnar J Briem @ 22.24

Þann 21. september var Lárus Welding, forstjóri Glitnis, gestur Egils Helgasonar í Silfri Egils. Þar kom eftirfarandi fram:

Egill:  Í Bandaríkjunum hafa menn verið að þjóðnýta banka og bankar sem hafa verið að riða til falls. Telur þú að það sé einhver hætta á að þetta gerist hérna?
Lárus:  Alls ekki. Ég held þó vissulega að þetta séu búnir að vera mjög áhugaverðir atburðir sem hafa verið að gerast í Bandaríkjunum undanfarna viku og út um allan heim. Við erum náttúrulega í mikilli fjármálakrísu allstaðar í heiminum — líklega sem á sér engan líka nema fara til baka til 1929. Það er kannski skemmtilegt frá því að segja að núna er í raun og veru hlutfallsleg staða íslensku bankanna að batna og þessi vika á margan hátt verið mjög áhugaverð fyrir okkur. Margir þeirra eru svosem að ganga í gegnum það sem að við — ástand sem við erum búin að vera að búa við í íslensku bönkunum í svolítinn tíma. Við erum orðnir nokkuð vanir að fást við þetta umhverfi — að vera með há skuldatryggingarálög og berjast í þessu umhverfi — en ég tel að við stöndum bara mjög vel. Við erum að sjá það aftur og aftur að sveigjanleikinn í kerfinu — hvernig við höfum undirbúið okkur fyrir þetta — er að skapa okkur verulega sterka stöðu.
Egill:  Þannig að þú telur ekki nokkra hættu á því að bankar eins og þinn gætu riðað til falls?
Lárus:  Alls ekki.

Síðan líður vika.

Já, skjótt skipast veður í lofti.

Knúið með WordPress

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning