Get a life!

17. október 2008

Heia Norge!

Flokkað undir Efnahagur, Hugarreik, Landráð, Stjórnmál, Umræðan — Gunnar J Briem @ 1.04

Ágætu Norðmenn,

Fyrir allnokkru fékk landi ykkar þá flugu í höfuðið að sigla til eyju þeirrar sem í dag er kölluð Ísland. Ekki nóg með það heldur fékk hann það einhvern veginn út að það væri gáfulegt að setjast að á eyjunni.  Í kjölfarið fylgdu fleiri ævintýragjarnir Norðmenn. Þeir komust hingað á þrjóskunni, og afkomendur þeirra skrimtu hérna á þrjóskunni í rúm 1100 ár. Mestan hluta þessa tíma hefur Ísland verið undir stjórn ykkar eða Dana. En með þrjóskunni tókst okkur að knýja fram sjálfstæði fyrir 64 árum. Eftir að hafa ráðið okkur sjálf í tæpan mannsaldur er svo komið að ævintýramennskan sem er okkur í blóð borin hefur gert okkur slypp og snauð.

Nú erum við köld og hrakin, bláfátæk, útskúfuð og fyrirlitin af flestum.

Nú vilja týndir synir og dætur ykkar koma heim.  Megum við náðarsamlegast biðja um að þið takið við okkur? Landið með öllum gögnum og gæðum (og skuldum) fylgir að sjálfsögðu með. Þið þurfið ekkert að slátra besta alikálfinum og halda veislu. Við skulum bara reyna að láta lítið fara fyrir okkur,  læra norsku og hætta að þykjast vera eitthvað merkileg.

Umfram allt biðjum við um að þið hafið vit fyrir okkur. Ekki láta okkur komast upp með neina sjálfstæðistilburði framar.

Við stöndum ekki undir því.

5. október 2008

Veðjað á örvæntingu

Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Umræðan — Gunnar J Briem @ 23.11

Á blaðsíðu 9 í sunnudagsmogganum var heilsíðuauglýsing frá fjárhættuspilavefsíðunni Betsson.

Fyrir suma leynast sóknarfæri í hörmungum.

1. október 2008

Engar breytingar

Flokkað undir Efnahagur, Umræðan — Gunnar J Briem @ 8.38

Lárus Welding, forstjóri Glitnis, sagði í fyrradag (nokkuð afdráttarlaust):

Viðskiptavinir okkar munu ekki finna fyrir breytingum.

Í tilkynningu frá Glitni sem birt var í gærkvöld kemur í ljós að ávöxtun Sjóðs 9 hjá Glitni hefur lækkað um 7%. Þar segir líka:

Glitnir harmar jafnframt þá erfiðleika sem þetta hafði í för með sér fyrir viðskiptavini bankans.

Í Morgunblaðinu í dag segir Lárus Welding:

Ég er mjög ánægður með að þessari óvissu hefur verið eytt.

Eftir stendur samt nokkur óvissa um hvenær skuli taka mark á yfirlýsingum bankans og hvenær ekki.

Knúið með WordPress

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning