Nauðsynlegt og nauðsynlegra
Benedikt Jóhannesson, sem skrifaði nýverið grein um nauðsyn þess að sækja sem allra fyrst um aðild að Evrópusambandið, ætlar að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Hann og Guðrún Pétursdóttir spjölluðu við Sölva á Skjá einum nú fyrir stundu og virðast sammála um að fara verði í aðildarviðræður strax, það megi ekki bíða til haustsins — en samt styðja þau Sjálfstæðisflokkinn, sem lýsti því yfir á nýliðnum landsfundi að aðild að Evrópusambandinu þjóni ekki hagsmunum íslensku þjóðarinnar!
Benedikt hóf grein sína á eftirfarandi orðum:
Eftir nokkra daga verður kosið til Alþingis. Því miður virðist sem stjórnmálaflokkarnir geri sér enga grein fyrir því, að ef ekki er gripið til ráðstafana nú þegar er líklegt að yfir þjóðina dynji annað stóráfall og þjóðin verði um langa framtíð föst í fátæktargildru.
Þrátt fyrir þetta telur hann vænlegra að halda áfram að afla málstað sínum stuðnings innan Sjálfstæðisflokksins, sem að öllum líkindum verður í stjórnarandstöðu næsta kjörtímabil, en að kjósa annan flokk sem setur aðildarumsókn í hæsta forgang.
Aðildarumsókn er sumsé nauðsynleg að hans mati, framtíð þjóðarinnar veltur á því að hún verði sem allra fyrst — en samt virðist enn nauðsynlegra að greiða Sjálfstæðisflokknum atkvæði sitt.
Benedikt fær fullt hús stiga fyrir flokkshollustu.
Ég veit það eitt að ég veit ekki neitt. En ég held ýmislegt. Sumt af því sem ég held skrifa ég um hér.