Komið til móts við að bæta málfar
Úr fréttatilkynningu ríkisstjórnarinnar:
Með samkomulaginu er komið til móts við að eyða óvissu um framvindu íslenskra efnahagsmála á næstu árum.
Það hefði verið betra að segja
Með samkomulaginu er óvissu eytt um framvindu íslenskra efnahagsmála á næstu árum.
eða, ef mönnum finnst það fullmikið sagt:
Með samkomulaginu er stórt skref stigið til að eyða óvissu um framvindu íslenskra efnahagsmála á næstu árum.
Menntamálaráðherrann hefði átt að prófarkalesa þetta.
Ég veit það eitt að ég veit ekki neitt. En ég held ýmislegt. Sumt af því sem ég held skrifa ég um hér.