Svipuhögg og handjárnahringl í Valhöll
Daginn eftir að þingmenn Sjálfstæðisflokksins lýstu í litríku myndmáli samúð sinni með þingmönnum VG fyrir það harðræði sem þeir væru beittir þá berast fréttir af því úr Valhöll að Þorgerður Katrín hafi fengið allnokkur vandarhögg fyrir það agabrot að sitja hjá í stað þess að hafna þingsályktunartillögu sem hún er efnislega sammála.
Ætli hún hefði verið grýtt ef hún hefði lagt í að fylgja sannfæringu sinni?
Ég veit það eitt að ég veit ekki neitt. En ég held ýmislegt. Sumt af því sem ég held skrifa ég um hér.
Nákvæmlega,- það hringlaði aldeilis í hlekkjunum þar….
Ummæli eftir Þórhildur Helga — 17. júlí 2009 @ 23.56
þetta kemur ekkert á óvart þar sem sjálfstæðisflokkurinn er einn af stærri kommónistaflokkum í evrópu, ekki satt?
Ummæli eftir peturh — 18. júlí 2009 @ 0.01
Ég held það sé nú lítið tilefni til að kalla hann kommúnistaflokk. En hann var ráðandi stjórnmálaafl nánast frá því að ég fékk kosningarétt, og því eðlilegt að það almenna hrun trausts sem fylgdi bankahruninu bitni ekki síst á þeim flokki. Ég kaus hann við hvert tækifæri allar götur fram að hruni og því var úr háum söðli að detta frá mínum bæjardyrum. Eftir styrkjahneykslið sagði Bjarni Benediktsson að nú væri verkefnið að endurvekja traust á Sjálfstæðisflokknum. Ég get ekki sagt að það verkefni gangi vel. Ég er tortryggnari en nokkru sinni, ekki bara á flokkinn heldur stjórnkerfið allt og viðskiptalífið.
Ummæli eftir Gunnar J Briem — 18. júlí 2009 @ 13.38