Get a life!

30. ágúst 2009

Sjálfsóknarmenn

Flokkað undir Stjórnmál, Umræðan — Gunnar J Briem @ 15.09

Harðir andstæðingar samninga um Icesave innan Sjálfstæðisflokksins hrósa þeim tveimur þingmönnum flokksins sem greiddu atkvæði gegn samningnum en segja alla hina ættu að ganga í Samfylkinguna. Þeir hrósa jafnframt formanni Framsóknarflokksins fyrir hans framgöngu.

Væri ekki nærtækara að þessir tveir þingmenn færu í Framsókn?

3. ágúst 2009

Bankaleynd

Flokkað undir Kvabb, Stjórnmál, Umræðan — Gunnar J Briem @ 13.52

Sagt er að bankaleynd sé nauðsynleg því trausti sem þarf að ríkja á milli banka og viðskiptavina hans. Undir það er hægt að taka almennt og yfirleitt.

En þegar bankarnir hrundu í fyrra þá hvarf allt traust eins og dögg fyrir sólu, þannig að það var ekki af miklu að taka.

Það voru ekki aðeins bankarnir sem misstu traust. Eftir hrunið er skynsamlegt að tortryggja allt og alla. Ef við gætum treyst því að stjórnvöld á öllum stigum rannsökuðu öll mál af festu og hlutleysi og dæmt yrði í þeim algjörlega án tillits til þess hverjir ættu í hlut, þá væri hægt að sætta sig við óbreytta bankaleynd.

En ég er alls ekki viss um að við getum treyst því.

Nú er svo komið að öll leynd er tortryggileg.

31. júlí 2009

Eygló úr pólitík!

Flokkað undir Stjórnmál, Umræðan — Gunnar J Briem @ 14.20

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, kvartar yfir því að Gylfi Magnússon sé með greinaskrifum sínum að taka þátt í pólitík.

Ég verð að segja að ég treysti Gylfa langbest af öllum þeim sem fá að sitja þingfundi. Eða ætti ég kannski að segja, á þessum tortryggnitímum, að ég vantreysti honum langminnst?

Ég myndi frekar vilja 63 Gylfa Magnússyni á þing heldur en einn Framsóknarþingmann.

Og ég vil endilega að hann tjái sig sem mest, vegna þess að ég vil hlusta á orð þeirra öðrum fremur sem ég ber nokkuð traust til. Ég myndi hins vegar lítt sýta það ef Framsóknarmenn færu í langt þagnarbindindi.

Ætli það megi ekki orða það þannig að ég vilji pólitíkusa úr pólitík, en fólk eins og Gylfa Magnússon í hana.

17. júlí 2009

Svipuhögg og handjárnahringl í Valhöll

Flokkað undir Kvabb, Stjórnmál, Umræðan — Gunnar J Briem @ 20.35

Daginn eftir að þingmenn Sjálfstæðisflokksins lýstu í litríku myndmáli samúð sinni með þingmönnum VG fyrir það harðræði sem þeir væru beittir þá berast fréttir af því úr Valhöll að Þorgerður Katrín hafi fengið allnokkur vandarhögg fyrir það agabrot að sitja hjá í stað þess að hafna þingsályktunartillögu sem hún er efnislega sammála.

Ætli hún hefði verið grýtt ef hún hefði lagt í að fylgja sannfæringu sinni?

16. júlí 2009

Áhugaverð tímasetning

Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur, Stjórnmál, Umræðan — Gunnar J Briem @ 21.09

Það er áhugavert að Rússar skuli samþykkja lánveitingu í sama mund og Alþingi samþykkir aðildarumsókn að Evrópusambandinu, og eftir að hafa skoðað sig um á Drekasvæðinu.

Ég er óskaplega miklu hrifnari af því að við höllum okkur upp að Evrópusambandinu en Rússum.

Valdabrölt sjálfstæðismanna

Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur, Kvabb, Landráð, Stjórnmál, Umræðan — Gunnar J Briem @ 18.17

Jæja, þá liggur niðurstaða um aðildarumsóknina fyrir. Af sextán þingmönnum Sjálfstæðisflokksins studdi einn þingmaður aðildarumsókn, einn þingmaður sat hjá en fjórtán voru andvígir. Það voru sumsé 6.25% þingmanna sem studdu aðildarumsókn.

Hversu vel ætli þingflokkur Sjálfstæðisflokksins endurspegli vilja almennra flokksmanna? Mig grunar að tífalt meira en 6.25% flokksmanna styðji aðildarumsókn. Sennilega er hlutfallið meðal kjósenda flokksins í síðustu alþingiskosningum jafnhátt eða hærra. Ást þingmannanna á lýðræði og virðing þeirra fyrir vilja þjóðarinnar hljómar þess vegna svolítið fölsk.

Sjálfstæðisflokkurinn missti traust mitt í október 2008. Hann endurvann það sannarlega ekki í styrkjahneykslinu. Hann endurvann það ekki í dag. Og ég sé ekki fram á að hann endurvinni það í fyrirsjáanlegri framtíð.

Kúgun

Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur, Kvabb, Landráð, Stjórnmál, Umræðan — Gunnar J Briem @ 1.31

Pétur Blöndal ráðlagði Ragnheiði Ríkharðsdóttur að stofna nýjan flokk þegar hún ljáði máls á því að Ísland ætti að sækja um aðild að ESB. Eins og hún væri eini meðlimur Sjálfstæðisflokksins sem væri hlynntur aðildarumsókn.

Ég yrði nú bara ánægður með það ef Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði eftir Evrópulínunni. Þá gæti ég e.t.v. kosið flokk Ragnheiðar með góðri samvisku í næstu kosningum — og ég hugsa að sama gildi um fjölmarga aðra fyrrverandi og núverandi kjósendur Sjálfstæðisflokksins.

Ef Samfylkingin hefði myndað ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum eftir síðustu kosningar, þá verð ég að segja að mér þykir afskaplega ólíklegt að þingmönnum Sjálfstæðisflokksins væri svona óskaplega annt um beint lýðræði eins og þeim virðist vera núna. Ekki töluðu þeir á þann veg á meðan þeir voru enn í ríkisstjórn.

Endemis valdabrölt.

Ef enginn þingmanna Sjálfstæðisflokksins greiðir atkvæði með þingsályktunartillögu um aðildarumsókn á morgun, þá finnst mér í meira lagi hjákátlegt að heyra þau saka aðra flokka um kúgunartilburði.

15. júlí 2009

Tilfinningarök

Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur, Kvabb, Landráð, Stjórnmál, Umræðan — Gunnar J Briem @ 23.45

Þorgerður Katrín segir að hlusta verði á tilfinningarök um ESB. Í beinu framhaldi segir hún að með því einu að fara út í aðildarviðræður gefi þjóðin í skyn að hún sé reiðubúin að afsala sér lýðveldinu.

Ég var að kíkja á wikipediu. Þar virðast menn hafa gleymt að taka tilfinningarökin til athugunar. Eftirfarandi ríki innan ESB eru nefnilega sögð vera lýðveldi:

Þótt 21 ríki af þeim 27 sem eru í ESB séu lýðveldi og ekkert af hinum sex hafi afsalað sér lýðveldi eftir inngöngu í ESB, þá hníga sumsé tilfinningarök til þess að Ísland hætti að vera lýðveldi ef skrímslið nær að sporðrenna okkur.

Ég á satt best að segja svolítið erfitt með að skilja svona tilfinningarök. Þau eru ekki rök heldur svo rennandi blaut að það er ekkert hald í þeim. Ég hallast að því að ekki þurfi að leiðrétta wikipediu, nema þá ef til vill með því að bæta við athugasemd við öll þessi 21 ríki að þó þau séu lýðveldi séu þau alls engin tilfinningalýðveldi. Og þótt öll ríki innan ESB séu lýðræðisríki felist ekki í því hætishót af tilfinningalýðræði.

Og ég efast ekki um að ef Ísland slysast inn í báknið, þá fer hér allt á versta tilfinningaveg — hjá þeim sem hallari eru undir tilfinningarök en þessi venjulegu.

Þótt erfitt sé að færa rök fyrir því að svart sé hvítt, þá er hægur vandi að færa tilfinningarök fyrir því að svart sé tilfinningahvítt.

9. júlí 2009

Rán í óláni

Flokkað undir Efnahagur, Kvabb, Stjórnmál, Umræðan — Gunnar J Briem @ 22.48

Besta leiðin til að ræna banka er að eiga banka. Allra best er að eignast hann með láni úr öðrum banka og komast svo hjá því að greiða lánið að ráni loknu.

1. júlí 2009

Málefnaleg grið

Flokkað undir Efnahagur, Landráð, Stjórnmál — Gunnar J Briem @ 0.09

Formaður Framsóknarflokksins segir að stjórnarandstaðan eigi að gefa ríkisstjórninni grið ef Icesave frumvarpið verður fellt.

Það skín náttúrulega í gegn hversu þunga áherslu hann leggur á málefnalega stjórnarandstöðu. Hinn “nýi” Framsóknarflokkur leggur sig auðvitað ekki niður við gamaldags pólitík, greiða fyrir greiða, tækifærismennsku og popúlisma.

Megi Icesave skuldin leggjast af fullum þunga á okkur frekar en Framsóknarflokkurinn komist til valda aftur.

Next Page »

Knúið með WordPress

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning