Grámóra

Fáfróð sveitakerling sem pælir í hinu og þessu.

  • gramora


  • Flettingar

    Í dag: 13 Alls: 534939

  • Heimsóknir

    Í dag: 11 Alls: 100796

  •  

    maí 2012
    S M Þ M F F L
    « júl    
     12345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    2728293031  

Rétt skal vera rétt.

gramora 18. júlí 2009

www.visir.is Himnar loga og hús nötra á Þingvöllum

Meira hvað fólk talar og skrifar vitlaust.  Svo virðist vera að allir sumarbústaðir við Þingvallavatn séu á Þingvöllum.  Miðfell hefur aldrei verið á Þingvöllum og mun aldrei verða. 

 “stödd er á Þingvöllum í sumarbústað í landi Miðfells”  ætti að vera “stödd er í sumarbústað í landi Miðfells við Þingvallavatn”

Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Fjölmiðlar, Umhugsunarefni, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »

Hræðilegt !

gramora 10. júlí 2009

www.visir.is Stórbruni á Valhöll - reykjamökkurinn sést í kílómetra fjarlægð

Ég er gráti næst að heyra þessar fréttir.  Og vekur þetta hjá mér mikla depurð sem Þingvellingi.

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Matur og drykkur, Umhverfi, Vinir og fjölskylda | 3 ummæli »

Gulrótarkaka.

gramora 1. júlí 2009

Jæja var víst búin að lofa þessu fyrir löngu svo það er víst betra að fara að standa við það :)

Gulrótarkaka.

300 gr. Púðursykur

4 stk. egg

250 gr. hveiti

2 tsk. lyftiduft

1 tsk. matarsóti

1/2 tsk. salt

2 tsk. kanill

1/2 tsk múskat

2 tsk. vanillusykur

100 gr. valhnetur (saxaðar)

300 gr (ca) rifnar gulrætur

2 dl. matarolía

Sumir setja 1/2 dós af kurluðum ananas líka en mér finnst það ekki gott svo ég sleppi því eins dregur það úr geymsluþolinu.

Þeyta egg og púðursykur vel.  Svo er öllu nema gulrótum og hnetum bætt útí og hrært saman.  Að lokum bætið hnetum og gulrótum og hrærið með sleif.  Bakað í 1 klst. á 160°C  (passar í stórt springform eða ferkantað og 2föld er passleg í heila ofnskúffu)

Ostakrem.

375 gr. rjómaostur hreinn

750 gr. flórsykur

1 tsk. vanilludropar

1 msk. sítrónusafi (ef vill)

Gott er að henda kökunni í frost til að fá kremið til að stífna svo þarf að geyma hana í kæli.

 

Verði ykkur að góðu :)

Fært undir Heilbrigði, Matur og drykkur, Pælingar, Umhugsunarefni, Umhverfi, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Gleðilegt ár allir.

gramora 2. janúar 2009

Langar að benda á síðu hjá frænku minni en hún er að sauma og selja barnaföt.

Hér til hliðar Árún design.

Endilega að kíkja.

Fært undir Efnahagur, Vinir og fjölskylda, Óflokkað | 3 ummæli »

Er fylleríið þess virði ????

gramora 29. nóvember 2008

Fært undir Heilbrigði, Umhugsunarefni, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »

Nunna í golfi

gramora 26. nóvember 2008

Nunna nokkur gekk til skrifta. Fyrirgefðu mér faðir, því ég notaði alveg hræðilegt orðbragð núna um helgina.
Haltu áfram, sagði presturinn, frekar áhugalaus.
Sko, ég var úti á golfvelli og náði þessu svakalega góða drævi á fjórðu braut, sem er par sex, en kúlan lenti í símalínu sem lá yfir völlinn og datt niður eftir aðeins um þrjátíu metra.
Og þá blótaðirðu náttúrulega, sagði presturinn.
Nei, sagði nunnan. Því skyndilega kom íkorni hlaupandi og stal kúlunni minni.
Varð það þá sem þú blótaðir, góða mín?
Nei, ekki þá, því allt í einu kom örn fljúgandi og læsti klónum í íkornann og þar sem hann flaug í burtu með feng sinn þá missti íkorninn kúluna.
Þá hefurðu auðvitað blótað, sagði presturinn, orðinn nokkuð áhugasamur.
Nei, nei, sagði nunnan. Sko, kúlan datt niður á stærðar grjót og endurkastaðist aftur inn á brautina og þaðan inn á grínið og stoppaði síðan aðeins innan við hálfan meter frá holunni.
Presturinn þagði um stund og fitlaði við krossinn sem hann bar um hálsinn. Svo sagði hann með fullvissu í röddinni: Kona, þú hefur þá klikkað á helvítis púttinu.

Fært undir Spaug, Trúarbrögð | 1 ummæli »

Langar að benda ykkur á …….>

gramora 25. nóvember 2008

Langar að benda ykkur á heimasíðu frænku minnar en hún er að hanna og sauma barnaföt.

www.arun-design.com

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Í takt við tíðarandann…..:)

gramora 24. nóvember 2008

Íslenskur lýtalæknir var staddur á ráðstefnu erlendis með kollegum sínum. Eftir langa og stranga dagskrá ráðstefnunnar héldu ráðstefnugestir á öldurhús og gerðu sér glaðan dag. Eftir því sem líða fór á kvöldið og nóttina þynntist hópurinn og lokst sátu einungis þeir þaulsetnustu eftir.
Þegar þeir höfðu ekkert meira að tala um fóru þeir að segja hetjusögur af þeim afrekum sem þeir höfðu unnið á skurðborðinu.

Einn Bretinn sagði sögu af því að hann ásamt teymi sínu hafi tekið á móti sjúklingi sem missti hendina í prentsmiðju. Á sjúklinginn græddu þeir nýjan handlegg, lófa og fingur og eftir að hann kom til starfa aftur varð hann svo góður og öflugur verkmaður að hann vann á við 4 og því fóru þrír á atvinnuleysisskrá sem áður störfuðu hjá fyrirtækinu.

Rússnenskum lækni fannst ekki mikið til þess koma og sagði frá manni sem lent hafði inní kjarnaofni. Þeir fengu ekkert annað en hárið inná skurðborðið til sín, græddu á það höfuð, búk og útlimi. Þessi maður varð svo góður verkmaður þegar hann snéri aftur til starfa að hægt var að segja upp heilli vakt í kjarnorkuverinu, 9 manns fóru á atvinnuleysisskrá.

Íslenski læknirinn sagði iss við þessari sögu. “Ég var einu sinni staddur niðrí Austurstræti og fann rosalega vonda prumpulykt. Ég veiddi hana í poka og brunaði með hana uppá Borgarspítala og skellti henni á skurðborðið. Við græddum á þetta búk, höfuð, útlimi og enduðum með að setja krullur ofaná þetta allt saman. Úr þessu varð Davíð Oddsson og hann er á góðri leið með að setja alla þjóðina á atvinnuleysisskrá”.

Fært undir Alþjóðamál, Heilbrigði, Slúður, Spaug, Stjórnmál, Umræðan | 1 ummæli »

Tríóið mitt

gramora 23. nóvember 2008

Fært undir Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Jæja nú er ég alveg úti á túni ……!

gramora 21. nóvember 2008

Finn ekki með nokkru móti út hvernig ég set inn myndband ??? Já svona er að vera fáfróður.  En þetta var lítð mál í gamla kerfinu en nú er ég ekki að kveikja.  Kannski er einhver sem vill vera svo indæll að segja mér til ????

kv……..!

Fært undir Nám, Umhugsunarefni, Umræðan, Óflokkað | 1 ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning