fara í valmynd

Draumar og væntingar 31. desember 2007

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. 3 ummæli

Uppgjör er mér alltaf ofarlega í huga í lok hvers árs. Uppgjör varð mér þó ofarlega í huga óvenju snemma á þessu ári, eiginlega strax í haust fór mig að klæja í fingurna að skrifa áramótayfirlit, jafn fyndið og það er. Það var kannski vegna þess hversu mikið átti sér stað í lífi mínu á árinu.

Fyrri hluta ársins var mamma mér efst í huga og hennar veikindi. Ég bar gæfu til þess með góðra manna ráðum að fresta endurmenntun minni (ferðalögum) fram á haust og vetur til að geta átt með henni tíma síðustu vikurnar. Það var góður tími sem ég er þakklát fyrir.

Ég fór óvenjuoft til útlanda á árinu, alls þrisvar sinnum á eigin vegum. Fyrir utan stutt ferðalög til Frakklands og Bretlands fór ég í haust í stóra endurmenntunarferðalagið mitt til Kákasus (Georgíu, Armeníu og Aserbaídsjan). Það var lærdómsríkt og heillandi. Ég er stórhrifin af þessum löndum og hef haldið áfram að lesa mér til um þau, sérstaklega Georgíu sem heillar mig mest. Í þessu ferðalagi kom ég í framkvæmd markmiði sem ég var búin að vinna að frá haustinu 2006 þegar ég fékk hugmyndina fyrst.

Í upphafi næsta árs mun ég svo klára þetta verkefni mitt endanlega og uppfylla þannig endanlega skuldbindingar sem ég hef tekið að mér og ég varð að fresta í sumar.

Á árinu sem er að líða hafa orð eða hugmyndir festst í kolli mér, sérstaklega hefur orðið “tækifæri” verið ofarlega í huga mér og þá í þeim skilningi sem markaðsmenn og sölumenn, ungu viðskiptafræðingarnir nota, ekki við blaðamenn. :)

Ég hef margt á prjónunum fyrir næsta ár, margar hugmyndir og væntingar og markmiðin eru á sínum stað. Í augnablikinu er að gerjast í mér forgangsröðin og hvernig ég ætla að koma þessu í framkvæmd. Ferðalög eru á planinu, sennilega að minnsta kosti tvö, þar af eitt á afskaplega framandi slóðir. Mig langar líka til að koma gömlum draumum í framkvæmd.

Þetta verður viðburðaríkt og spennandi ár.

Flugeldar fyrir 1,8 milljarða? 28. desember 2007

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæli

Þegar ég horfði á auglýsingabækling vegna flugeldasölu í anddyrinu hjá mér í morgun datt mér allt í einu í hug að fara í stærðfræðiæfingu, nefnilega: Ef 120 þúsund fjölskyldur í landinu kaupa flugelda fyrir 15 þúsund krónur hver þá gerir það veltu upp á 1,8 milljarða króna fyrir áramótin. Ætli það geti ekki verið nærri lagi? Eða að minnsta kosti hóflega áætlað.

Tala þau ensku? 20. desember 2007

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. 3 ummæli

Ætli Kólumbíumennirnir tali ensku? Eða ætli þeir verði að læra ensku til að orðabækurnar nýtist þeim? Þetta er kannski bara ætlað börnunum? Hm… Spyr sú sem ekki veit.

Íslenskir siðir? 10. desember 2007

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæli

Horfði á ágætis umræður um málefni fólks af erlendum uppruna í Mannamáli á netinu í kvöld og hafði gaman af. Fór svo að vafra og fann þetta. Það útleggst nokkurn veginn svona:

Íslenskir siðir

Á Íslandi eru gestir oft boðnir heim eða á veitingastað. Makar eru yfirleitt með og gjarnan er komið fram við þá á jafnréttisgrundvelli við mismunandi tækifæri. Veitingastaðir eru frekar dýrir og heimsins dýrasti bjór er á Íslandi. Á veitingastöðum er boðið ríkulega upp á lambakjöt eða fisk. Með matnum er drukkinn snafs sem er sterkasti drykkurinn á Íslandi.
Á Íslandi er gjarnan talað um fiskveiðar og menningu. Einn þekktasti Íslendingurinn er kannski Halldór Kiljan Laxness. Íslendingar tala ekki um vinnuna yfir matnum. Ekki eru allir Íslendingar jafn hrifnir af bandarísku herstöðinni í Keflavík.

He, he. Mér fannst þetta soldið fyndið. “Íslendingar tala ekki um vinnuna yfir matnum”…

Veit ekki hvað þetta er gamalt en finnst þetta óneitanlega minna á alhæfingar eða eitthvað slíkt…

Ættu að þakka Skagamanninum 7. desember 2007

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. 6 ummæli

Ég held bara svei mér þá að Bandaríkjamenn ættu að þakka unga Skagamanninum sem hringdi um daginn í forseta Bandaríkjanna til að láta vita af öryggisveilunni í kerfinu þeirra. Ef maður horfir á þetta með jákvæðum hætti þá er þetta auðvitað stórfínt fyrir Hvíta húsið. Ég er eiginlega mest hissa á að þeir séu ekki þegar búnir að hringja en sjálfsagt eru þeir ekki kátir með þetta. Að einhver ætli að hafa forsetann þeirra að fífli.

Verra er það með forseta Íslands. Ég velti því fyrir mér hvort forsetaembættið þurfi ekki að taka á þessu máli með einhverjum hætti. Það gengur ekki upp í sambandi við virðingu fyrir forsetanum og forsetaembættinu að einhver og einhver úti í bæ hringi í þjóðhöfðingja annarra landa og segist vera forseti Íslands. Það kallast að villa á sér heimildir og yrði í flestum tilfellum tekið óstinnt upp, að minnsta kosti í blaðamennsku.

Það heyrist ekkert í forsetaembættinu eða starfsmönnum þess en maður veltir fyrir sér hvaða lög gætu átt við í þessu tilfelli.

90 ára afmæli í dag 6. desember 2007

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. 1 ummæli fram að þessu

Finnar eiga afmæli í dag. Níutíu ár eru liðin síðan þeir fengu sjálfstæði. Á þessum tímamótum ræða þeir stöðu finnlandssænskunnar í landinu sínu en fyrirhugað er að leggja niður sjálfstæða sænskumælandi fréttastofu YLE, finnska ríkisútvarpsins, og færa yfir í finnsku fréttirnar í sparnaðarskyni. Á sama tíma og þetta vekur miklar umræður í finnsku þjóðfélagi birtir Hufvudstadsbladet viðtal við Vigdísi okkar:

http://epaper.hbl.fi/index.php?s=627&p=26335

5.000 í fangelsi 5. desember 2007

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæli

Ritstjóri eins stærsta dalblaðsins í Aserbaídsjan sagði að 5.000 þarlendir blaðamenn væru í fangelsi eins og ég hef bloggað um hér áður. Það passar ekki alveg við 127 blaðamenn í fangelsi.

Sprengmontin af Finnum 4. desember 2007

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. 2 ummæli

Var alveg sprengmontin í dag. Af Finnum. Þeir standa sig svo vel í að mennta krakkana sína að þau glansa í öllum alþjóðlegum rannsóknum, trekk í trekk. PISA rannsóknin er ágætis dæmi um það.

Tók þetta líka til mín. Ég er nefnilega menntuð í Finnlandi. (Soldið langsótt samt, var nottla í háskóla, ekki 15 ára bekk… :D Kom samt upp í mér stoltið! ;) )

Man alltaf hvað einn kennarinn í soc&kom var hrifinn þegar hann spurði yfir stóran og fjölmennan fyrirlestrasal hversu margir hefðu lært latínu í menntaskóla. Við vorum tvær/tvö eða þrjár/þrjú sem réttu upp hendi. Honum fannst ástæða til að benda á það sigri hrósandi að í þessum hópi væri einn Íslendingur. Eins og það væri svo fínt. :)

Honum fannst það sko toppurinn að maður hefði lært latínu! Það væri merki um gott menntakerfi. :)

Ásakanir um kosningasvindl 3. desember 2007

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæli

Móðurafi Pútíns var kokkur Stalíns og reyndar forvera hans. Mátti bara til að nefna það að ganni… :)

Sé á erlendum fjölmiðlum að þeim verður tíðrætt um ásakanir um kosningasvindl í Rússlandi en einhvern veginn finnst mér sú umræða ekki skila sér nógu mikið hingað til lands. Bóndi minn sagði í gærkvöldi að það væri sennilega vegna þess að fjölmiðlar hefðu engan fulltrúa þarna austur frá. Ætli það geti verið málið?

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning