fara í valmynd

Grænmeti á síðasta snúningi 29. febrúar 2008

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæli

Mér fannst merkilegt að hlusta á stelpu, sem hafði búið í Kirkenes, allra nyrst í Noregi, í sjö ár á tíunda áratgnum, lýsa því hvernig matarvenjurnar voru öðruvísi en sunnar í Noregi.

Kirkenesbúar, sagði hún, hrúga á diskinn sinn kjöti og fiski en taka lítið af meðlæti, grænmeti og ávöxtum. Og það væri vegna þess hversu dýrt grænmeti og ávextir væru, langan tíma tæki að flytja þessar vörur sjóleiðina norður á hjara veraldar á veturna og vegna þess hve léleg gæðin væru þegar grænmetið fína, eða ávextirnir, loksins væru komnir í Kirkenes.

Þetta minnti mig á Ísland. Ég sagði henni að Íslendingar væru í sömu stöðu. Á Íslandi væri þetta enn þannig að fólk borðaði stóran skammt af kjöti eða fiski og bara smávegis grænmeti með því grænmetið væri svo dýrt og svo lélegt að það tæki engu tali. Við borðuðum líka lítið af ávöxtum af sömu ástæðu. Hefðum hreinlega vanið okkur á þetta. Ávextir og ber væru iðulega á síðasta snúningi þegar maður væri í búðinni. Og þannig væri þetta enn árið 2008.

Skömm að því.

Sama stelpa sagði líka frá því að í Kirkenes væri skammt í að það væri bjart stærstan hluta sólarhringsins. Þar væri ekki hægt að búa án þess að nota myrkvunargluggatjöld því birtan væri svo mikil allan ársins hring. Þar væru líka vegalengdir lítið mál. Hún hefði til dæmis eitt sinn keyrt til Kiruna, sex klukkstunda leið, til að fara með krakkana á hamborgarastað. Og svo heim aftur sama daginn. Ferðin tók samtals tólf tíma - bara til að fá sér hamborgara.

Þetta minnti mig líka á Ísland. Hér eru vegalengdir ekki mikið mál.

P.S.:
Það gleður mig ákaflega hversu jákvæð viðbrögð ég fæ frá fólki út af norðurslóðaverkefninu mínu. Takk kærlega fyrir það. :)

Líflegar umræður í Skandinavíu 26. febrúar 2008

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæli

Komin heim eftir einkar vel heppnaða tíu daga ferð um norðurslóðir. Slappaði af síðustu dagana í Osló en átti reyndar gott viðtal í morgun við samíska leikstjórann Nils Gaup. Það var mjög skemmtilegt að hitta hann.

Ég hef fylgst talsvert með umræðunni í Noregi og Svíþjóð þessa daga sem ég hef verið á ferðalagi. Þannig fannst mér skemmtilegt að fylgjast með umræðunni í Noregi um tillögur um að taka upp svipað kerfi og hér varðandi fæðingarorlof pabba, þ.e. kerfi a la Islande. Sú hugmynd virðist falla í grýttan jarðveg hjá mörgum Norðmönnum.

Norska sjónvarpið tók fæðingarorlofsmálið meðal annars til umræðna í útvarpsþætti í sjónvarpi. Mjög fínar umræður en sem fjölmiðlamanni fannst mér athyglisvert að þeir skuli gera einmitt þetta, það er að vera með kamerur í útvarpsstúdíói og sýna útsendinguna þaðan. :)

Í þriðja lagi fannst mér einkar áhugavert að fylgjast með því hvernig Svíarnir tækluðu Kúbu-málið þegar Castro sagði af sér. Þeir buðu þá meðal annars til umræðna í sjónvarpssal þar sem tónlistarmaðurinn Dogge Doggelito sagði frá því hvernig Kúba blasir við honum sem gesti og listamanni þar í heimsókn. Í salnum voru svo Svíar, sem eiga uppruna sinn á Kúbu, til að ræða málin ásamt meðal annars femíniska leiðtoganum Gudrun Schyman. Það var ágætur pottur, mjög líflegt.

Ferðin heim til Íslands gekk vel í dag. Vélin var hálftóm svo það var frábært næði og gott pláss. Á næstunni kemur maður sér í gang aftur í vinnunni og auðvitað í ræktinni. Hún hefur setið á hakanum síðustu daga og ég hlakka bara til að hrökkva í gang aftur, mæta í spinning og svona… :)

Létum veðrið ekki á okkur fá 24. febrúar 2008

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæli

Ég er nýkomin til Oslóar frá Stafangri þar sem ég var í heimsókn hjá vinafólki mínu úr Árósum, Mariu og Willy. Flaug þangað á föstudagskvöldið og var yfir helgina. Flaug til Oslóar í dag. Maria og Willy dekruðu við mig á alla lund og sýndu mér Stafangur í úrhellisrigningu. Mjög skemmtilegt og auðvitað létum við veðrið ekki á okkur fá en þó var ekki farið á ströndina, maður hefði orðið svo holdvotur í skóna. Næs samt að skoða sig um í Stafangri… :)

Í dag hef ég tekið því rólega enda sunnudagur í dag og þeir sem þekkja til Noregs vita að þá er allt hér í hægagangi og maður má þakka fyrir ef kaffihús hafa opið. Á morgun er meiningin að taka viðtal og fara í heimsókn/heimsóknir svo að það er nóg að gera. En mér þykir ósköp indælt að taka því rólega í dag.

Hef ekki komið til Oslóar í ein fjögur eða fimm ár, þ.e. svo að nokkru nemi. Var hérna síðast í stoppi til að taka viðtal við eiganda og stofnanda Operu fyrir Frjálsa verslun. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þá. Hef samt komið hingað talsvert oft í gegnum tíðina. Ein minnisstæðasta heimsóknin er frá námsárunum þegar við hjónin heimsóttum vinafólk hér um áramót. Þá vorum við boðin í norskt áramótapartí með hefðbundnum norskum mat og drykk og nýárshátíðarhöldum. Svoleiðis gefur mest. Virkilega skemmtilegt. :)

Datt í lukkupottinn

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæli

Datt aldeilis í lukkupottinn hér í Tromsö. Ég eyddi stórum hluta af gærdeginum í háskólanum og fékk margar gagnlegar upplýsingar. Mjög áhugavert. Hitti meira að segja háskólamann sem er giftur íslenskri konu, á íslensk börn og hefur sjálfur búið á Íslandi. Hefði getað tekið viðtal við hann á íslensku þess vegna.

Ég er eins og fiskur í vatni hérna. Eins og ég er reyndar alltaf á norðurlöndunum. Mér finnst svo gaman að nota tungumálakunnáttuna mína og ná svona góðu sambandi við fólk. :)

Í gær hitti ég reyndar ungan Sama sem talaði við mig á norsku en hann hefði allt eins getað talað sænskuna því mamma hans er sænsk að uppruna. Þessi strákur talar reiprennandi samísku, norsku, sænsku og svo náttúrulega ensku. Kannski fleiri tungumál. Smart!

Þessi pistill var skrifaður föstudaginn var en birtist ekki fyrr en nú af tæknilegum orsökum. ;)

Hér er sko vetur! 20. febrúar 2008

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. 4 ummæli

Lenti í Tromsö eftir hádegi í dag. Byrjaði á því að koma mér á hótelið og síðan lá leiðin í Háskólann í Tromsö. Til mikillar lukku hafði ég náð sambandi við yfirmann samísku deildarinnar þar, Per Hætta, og átti þar gott samtal við hann. Sé fram á að verja morgundeginum í háskólanum. Held ég græði mikið á þessari heimsókn. :)

Það er magnað fyrir Íslending að koma hingað á norðurslóðir á þessum árstíma. Ég hélt að ég væri vön vetri en það hefur svo sem ekki verið vetur heima síðustu árin, ekki í líkingu var þegar ég var að alast upp, ekki fyrr en síðustu vikurnar. En hér er sko vetur, virkilega jólalegt á kvöldin með götuljós og ljós í húsum og snjó á greinum grenitrjánna. Og skítkalt.

Skil mjög vel að Norðmenn séu svona sportlegir, þ.e. í vetraríþróttum, því hér er aðstaðan til þess. Hér er dagleg sjón að sjá fólk á gönguskíðum en svo sér maður líka kappklædda hlaupara öðru hvoru.

Allir íbúarnir Samar 19. febrúar 2008

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæli

Komin til baka til Alta eftir túr til Kautokeino og Karasjok sem gefur ágætis uppskeru. Mjög fróðlegt að koma til þessara bæja. Kautokeino er búsettur Sömum að níutíu prósentum, nánast alsamískur bær en hlutfallið er eitthvað aðeins minna í Karasjok. Það er ekki oft sem maður kemur í bæ þar sem íbúarnir eru nánast allir Samar enda ekki um marga slíka að ræða. ;)

Ræddi við mikið af ungu fólki sem hefur harðar meiningar um samfélag Samanna og hvað það er að vera Sami. Það var mjög ánægjulegt að sjá hvað þau eru hörð á sínu. Um leið sorglegt að heyra muninn á stöðu Sama í Finnlandi, Svíþjóð og Noregi þar sem hún er langsterkust. Samar eru mun færri í hinum löndunum og hafa um leið mun verri stöðu lagalega séð.

Samar eru merkilegt fólk. Ekki er almennilega vitað hvaðan þeir hafa komið en ég hitti í dag mann sem hélt því fram að þeir væru komnar frá Asíu í gegnum Síberíu, hugsanlega alla leið frá Japan. Það væri ýmislegt í menningu þeirra sem benti til þess og sömuleiðis að þeir væru skyldir þjóðunum í Síberíu. Það var athyglisvert.

Vænt um að koma til Lapplands 18. febrúar 2008

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæli

Keyrði frá Alta til Kautokeino og þaðan yfir til Enontekiö í Finnlandi í dag. Mjög vel lukkuð ferð. Ekkert mál að keyra þetta, stuttar vegalengdir og góðar merkingar. Leiðin reyndar einföld.

Í Enontekiö fór ég á samasafnið, það var mjög ánægjulegt en annað sem ég hafði á prjónunum gekk ekki eftir. Mér þótti vænt um að koma til Lapplands því ég hef aldrei komið þangað áður. Byrjaði á því að fara inn á bensínstöð eins og dæmigerður Íslendingur til að spyrjast til vegar. Hitti þar Sama og reyndi að tala finnsku við hann en skildi bara ekki bofs. Hann talaði pottþétt einhverja mállýsku. Eða samísku. Ég skildi bara afgreiðslukonuna og það var svo sem nóg. :)

Fór að hugsa um það hvað það væri skrítið hvernig tungumál breytast eftir landamærum. Það getur munað bara örfáum metrum eða kílómetrum og þá er fólk farið að tala allt annað tungumál. Mjög skondið. Annars sýnist mér að Samar tali nánast alltaf tvö tungumál, þ.e. móðurmál sitt, norsku eða finnsku, sumir jafnvel þrjú tungumál. Það virðist reyndar ekki vera algilt. Hitti til dæmis konur í samíska háskólanum hér í Kautokeino sem ekki virtut skilja finnlandssænskuna mína. Og þær svöruðu ekki á norsku.

Til Enontekiö á morgun?

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæli

Ástandið á flugvellinum í Tromsö var eins og á Reykjavíkurflugvelli þegar það er hvað verst. Eða verra. Snjókoman seinkaði öllu flugi og að lokum var flugvellinum lokað. Og svo opnað skömmu síðar. Um tíma var útlit fyrir að mannskapurinn yrði kyrrsettur í Tromsö yfir nóttina en það varð nú ekki. Þrjár vélar hófu sig til flugs til Oslóar á mettíma. Farþegarnir í síðustu vélinni klöppuðu þegar tilkynnt var að þeirra vél færi líka. :)

Ég er komin til Alta. Það er um 18 þúsund manna bær með engan miðbæ. :S Það sagði mér konan sem sótti mig á flugvöllinn. Hún rekur gistiheimilið sem ég bý á, allt alveg ljómandi snyrtilegt og fínt. Þau hafa bara verið með það í rekstri hér í eitt ár. Allt mjög nýtt, snyrtilegt og strokið. Ég er hæstánægð með aðstöðuna.

Á morgun ætla ég að byrja á því að sækja bílaleigubílinn og bruna svo af stað. Er að spá í að keyra til Enontekiö í Finnlandi á morgun, heimsækja þar útibú samaþingsins og keyra svo jafnvel um kvöldið til baka til Kautokeino. Það væri gott að hafa góðan tíma þar á þriðjudaginn því að þar á ég viðtöl plönuð. Held ég slaufi Inari í Finnlandi, það er of langt þangað í þessari atrennu en annars ætla ég að sjá til hvað fólkið á bílaleigunni segir á morgun.

Upplifi Tromsö sterkar 17. febrúar 2008

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæli

Komin til Tromsö og búin að rifja upp gömul kynni. Kom hingað fyrir rúmlega fjórum árum síðan og var hér í nokkra daga með kúrsinum mínum í Árósum. Við löbbuðum þá yfir brúna og yfir í Íshafskirkjuna og það gerði ég líka í dag. Rölti svo um gamla bæinn og fór í Pólsafnið til að lesa um Nansen og Amundsen og fleiri kappa. Mátti til úr því það var opið. Það er ekki mikið um það á sunnudögum í Tromsö eins og ég vissi.

Flýg í kvöld áfram til Alta. Fyrir fjórum árum horfði ég á kort og vissi að ég var norðarlega en nú upplifi ég það öðruvísi. Einhvern veginn sterkar. Gaman að koma hingað aftur.

Komin til Noregs 16. febrúar 2008

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæli

Er komin til Noregs og búin að parkera sjálfri mér á hóteli við Gardermoen-flugvöllinn. Skrepp niður í miðbæ á eftir til að kíkja á lífið. Eldsnemma í fyrramálið flýg ég síðan til Tromsö og þaðan áfram til Alta nyrst í Noregi, alveg upp við landamærin að Rússlandi, Finnlandi og Svíþjóð. Þar verð ég á bílaleigubíl á flækingi í nokkra daga til að kynna mér málefni Sama í norðri.

Veðurútlitið mætti vera betra. Í dag var það frábært, heiðríkja og stillt frost. En ég sé á veðurvef NRK að það er spáð snjókomu í Tromsö á morgun og svo er víst veruleg hætta á snjóflóðum í nyrst í Noregi. Þeir eru allavega að vara við því. Hm… Kannski ekki nógu gott. Ég verð greinilega að sjá aðeins til og vera á vaktinni.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning