Fækkunin hjá RÚV 30. júní 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. 1 ummæli fram að þessuSlæmar fréttir frá RÚV að það eigi að fækka stöðugildum um tuttugu. Það þýðir að starfsfólki fækkar um meira en tuttugu einstaklinga. Spurning hvernig þeir ætla að gera það, hvort ekki er ráðið í stað þeirra sem hætta eða hvort kemur til uppsagna. Ég hef ekkert heyrt um það. Einnig hvernig dreifingin verður. Hvar ætli þetta komi niður? Þetta hljóta að vera spurningar sem starfsfólk hefur spurt um á starfsmannafundinum með Páli Magnússyni.
Er þetta virkilega hægt? 29. júní 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. 2 ummæliÉg skil ekki alveg þessa ákvörðun borgaryfirvalda að senda 500 borgarbúum í miðborginni bréf og skikka þá að gera endurbætur á húsi sínu og lóð fyrir 1. ágúst og hóta þeim jafnvel dagsektum ella. Er þetta virkilega hægt? Aðstæður fólks eru allaveganna og menn hafa kannski ekki gert ráð fyrir því að fara í (fjárfrekar) endurbætur. Er þetta í samræmi við rétta stjórnsýslu? Ég bara spyr.
Ég bý til allrar hamingju í Hafnarfirði og þar fóru menn allt öðruvísi að tiltektinni og snyrtingu bæjarins í vor og sumar.
Langar að sjá mælingu 28. júní 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæliMér finnst magnað að sjá sjónvarpsumfjöllun um boltann í Vestmannaeyjum, myndir og viðtöl í fréttatímum, ár eftir ár. Ætli öðrum íþróttagreinum barna sé gert jafn hátt undir höfði? Það væri fróðlegt að sjá mælingu á þessu.
Byggingaverslanir í megrun 25. júní 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæliÉg fæ ekki betur séð en að byggingatengdar verslanir á höfuðborgarsvæðinu hafi verið í hressilegri megrun upp á síðkastið. Það er nánast ekkert til á lager af almennilegum flísum (sem eru mitt aðaláhugamál um þessar mundir) og þær sem eru að koma nýjar inn hækka í verði um heila dobíu!
Ráðist á íþróttafréttamanninn Mamuka 23. júní 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæliÉg varð reið um helgina, ösku-, ösku-, öskureið! Tamuna, konan hans Mamuka í Georgíu, sendi mér nefnilega tölvupóst að hans beiðni. Þau vildu láta mig vita af því að ráðist hefði verið á Mamuka vin minn og gengið í skrokk á honum. Fyrir hvað? Fyrir að segja skoðun sína.
Mamuka er hlýr og yndislegur náungi, opinn og ræðinn og liggur ekkert á skoðunum sínum. Hann er gríðarlegur áhugamaður um knattspyrnu og lætur skoðanir sínar óspart í ljós á þeim vettvangi. Hann bauð sig fram til forseta knattspyrnusambandsins í Georgíu í fyrrasumar en varð að lúta í lægra haldi. Hann segir að spilling hafi grasserað í þessu kjöri, forseti landsins og hans fylgismenn hafi kippt í spotta til að koma sínum manni að. Sem by the way hafði lotið í lægra haldi fyrir þeim frambjóðanda sem síðan dró sig til baka til að hleypa þeirra manni að.
Allavega.
Mamuka var að fara að sækja rússneskan blaðamann, vin sinn, á flugvöllinn í Tíbilísi þegar jeppi ók í veg fyrir hann, fjórir grímuklæddir menn stukku út, bundu á höndum og fótum og gengu í skrokk á honum og rændu hann. Hann lá á gjörgæsludeild í fjóra eða fimm daga, hefur verið á sjúkrahúsi síðan og verður rúmliggjandi næstu tvær til þrjár vikur.
Ekki er vitað hvers vegna árásin var gerð en Mamuka telur að það sé vegna skoðana sinna og þess að hann segi skoðanir sínar og beiti sér í knattspyrnuheiminum í Georgíu.
Ég varð öskureið við að lesa frásögn þeirra hjóna. Hvernig er þetta hægt? Af hverju í ósköpunum gera menn svona?
Þetta er auðvitað samt lýsandi fyrir ástandið í Georgíu núna. Georgía er lítið land sem hefur verið undir járnhæl Rússa í tæpa öld og jafnvel lengur. Georgíumenn eru náttúrulega bara nýfrjálsir og maður fær á tilfinninguna að þeir kunni ekki enn almennilega á lýðræði og mannréttindi og slíka hluti. Þetta er auðvitað villimennska af verstu gerð.
Hér má sjá frásögn og myndir af Mamuka á sjúkrahúsinu.
Frísklegir vindar 20. júní 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæliÁgætis hressileiki á dagblöðunum núna, mér finnst eins og frísklegir vindar og margar góðar fréttahugmyndir séu að koma inn með sumarstarfsmönnunum. Það er gaman.
Batnandi mönnum best að lifa 17. júní 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæliNú er ég ánægð með mitt fólk. Loksins bregðast með við af yfirvegun og skynsemi þegar ísbjörn sést í landinu, skoða hvaða kostir eru í stöðunni og reyna að komast hjá því að taka hann af lífi. Ég vona bara að þetta gangi sem best og ísbjörninn komist til heimkynna sinna. Batnandi mönnum er best að lifa.
Hengdu pylsur neðan í veiðistangir 16. júní 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæliÚr því að ísbirnir eru mál málanna núna má ég til með að benda á þessa grein:
Vinkona mín ein hefur búið á afskekktum slóðum í Kanada. Hún sagði mér áðan þá skemmtilegu sögu að grábirnir, sem eru víst mun hættulegri en hvítabirnir, hefðu haldið sig nærri byggðinni þegar laxaskortur var í ánum og börnin hefðu þá gert sér að leik að hengja pylsur neðan í veiðistangir og haldið þeim út um gluggana svo birnirnir gætu náð í þær.
Góð, sönn saga.
Kurteisi við stjórnmálamenn 15. júní 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæliStjórnmálamenn ætla seint að læra að það er þeim aldrei til framdráttar að segja við blaðamenn að þeir séu dónalegir, samanber orð Geirs H. Haarde við Sindra Sindrason fyrir helgina. Sem eru alveg fáránleg.
Ég hef verið að virða fyrir mér kurteisi og eða meinta ókurteisi blaðamanna á blaðamannafundum upp á síðkastið og ég verð að viðurkenna að mér finnast blaðamenn yfirleitt frekar vera ofur kurteisir við stjórnmálamenn frekar en ókurteisir. Yfirleitt spyrjum við blaðamenn mjög víðra spurninga og buktum okkur og beygjum í orðum frekar en hitt.
Mér finnst eðlilegt að spyrja: Af hverju skyldu blaðamenn líka þurfa að nálgast stjórnmálamenn, jafnvel þó þeir séu forsætisráðherrar, eins og þeir séu einhverjar guðlegar verur? Það hlýtur að mega ávarpa þá og spyrja þá spurninga eins og alla aðra.
Ég held það sé miklu frekar hægt að gagnrýna okkur fyrir að vera ofur kurteis frekar en að vera dónaleg. Og það er regla.
Málið hlýtur að vera að finna milliveginn, ekki vera dónaleg en það er heldur engin ástæða til að vera of kurteis og bukta sig og beygja. Það má ávarpa fólk og spyrja spurninga.
Noregur hefur færst nær 13. júní 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæliNoregur hefur færst nær mér, manneskjunni sem alltaf hefur verið sérstakur unnandi austurhluta norðurlandanna. Ég hef auðvitað sérhæft mig í Finnlandi og færst nær og nær Svíþjóð á síðustu árum þó að ég hafi aldrei búið þar eða dvalið um lengri tíma.
Þó ég hafi oft komið til Noregs þá hef ég aldrei þekkt norskt samfélag. Ekki fyrr en kannski núna. Ég upplifði nefnilega sterka tengingu við Noreg og Norðmenn á ferð minni um Samaland í vetur og nú þegar ég fylgist með norskum fréttamiðlum til jafns við finnska og sænska þá finn ég hvað Noregur og Norðmenn standa okkur Íslendingum nærri, meira en Svíar og Finnar. Og það eru ekki bara boltamennirnir. Við eigum nefnilega marga sameiginlega hagsmuni.
Þetta skilar sér í fréttaflutningi, ekki síst í Noregi. Ég sé hvað Ísland og Íslendingar eru miklu oftar til umfjöllunar í Noregi en í hinum löndunum.
En hvernig ætli fréttaflutningurinn frá Noregi sé hér á landi? Ég er ekki viss um að hann sé nógu öflugur.
