Boðsundsveitin syndir á morgun 19. júlí 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. 3 ummæliBoðsundsveit landsliðsins í sjósundi á að synda yfir Ermarsund á morgun. Það verður spennandi að fylgjast með þeim en því miður er spáin víst ekki nógu góð. En við Íslendingar vitum að það getur breyst…
Styð markaðssetningu Esjunnar 18. júlí 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. 7 ummæliSkrapp langleiðina upp á Esjuna í dag. Þegar ég renndi upp að henni fór ég að velta fyrir mér af hverju í ósköpunum svæðið er ekki markaðssett fyrir erlenda ferðamenn og af hverju ekki er búið að setja upp þarna söluskála (þó ekki hamborgara og pylsur) með sölu á vatni, powerade og öðrum nauðsynjum ferðamanna og gjaldtöku fyrir klósettin. Held að það væri alveg upplögð tekjulind fyrir þá sem vinna í þágu Esjunnar sem náttúru og útivistarsvæðis.
Ótrúlega spennandi gærkvöld 17. júlí 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæliGærkvöldið var ótrúlega spennandi og lærdómsríkt. Ég hef satt að segja aldrei tekið þátt í beinni lýsingu á íþróttaviðburði á borð við afrek Benedikts Hjartarsonar í gegnum texta sem er stöðugt uppfærður á netinu og samvinnu fjölmiðla, netsins og þeirra sem taka þátt í ævintýrinu. Það var alveg ótrúlegt að upplifa þetta, spennuna þó maður sæti heima. Það var ótrúlega skemmtilegt!!!
Benedikt lagður í hann 16. júlí 2008
Fært af Guðrún Helga undir Ferðalög. 1 ummæli fram að þessuBenedikt Hjartarson sundmaður er lagður í hann yfir Ermarsundið áleiðis til Frakklands. Veðrið er gott en ekkert spes veðurspá fyrir seinni partinn, að sögn Grétu Ingþórsdóttur sem er um borð í bátnumsem fylgir Benedikt yfir sundið. Í Ermarsundinu geta aðstæður verið erfiðar, mikill straumur og mikil skipaumferð, eftir því sem siglingamaðurinn minn segir mér, og því ekki á færi hvers sem eins að fara syndandi þarna yfir. Hér er hægt að fylgjast með sundinu í beinni.
Engin ráðgjöf hjá Decodeme fyrir norska pressu 9. júlí 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. 2 ummæliBlaðamaður norsku heilsusíðunnar klikk.no, Nina Lödemel, segir að enginn hjá Decodeme hafi verið til staðar til að veita sér ráðgjöf, hvorki fyrir né eftir að hún lét rannsaka erfðaefni sín hjá fyrirtækinu, og enginn hafi tekið sig í skilningsríkt fangið eftir að niðurstöðurnar bárust og hjálpað sér að túlka þær. Ekki heldur þó að hún hafi tekið fram að hún væri norskur blaðamaður að vinna grein um málið.
Nina tók sig til um daginn og lét skoða genin sín hjá Decodeme til að láta kanna hvaða erfðasjúkdóma hún gæti átt á hættu að fá síðar í lífinu. Hún sendi genapróf til Íslands og skoðunin leiddi í ljós að hún gæti átt á hættu að fá fimm af þeim 25 erfðasjúkdómum sem voru prófuð, sumsé blóðtappa í fótinn, astma, brjóstakrabbamein, Crohns-sjúkdóm og eitthvað sem heitir Cöliaki á norskunni sem ég ekki veit hvernig útleggst.
“En enginn í fyrirtækinu Decodeme var þar til að veita mér ráðgjöf hvorki fyrir né eftir að ég hafði fengið niðurstöðurnar,” segir Nina á fréttasíðunni. “Enginn var þar til að taka mig í sterkt og skilningsfullt fangið ef það liði yfir mig eða ég félli saman. Það var heldur ekki neinn í Decodeme sem varaði mig við því að túlka niðurstöður prófsins sjálf,” segir hún.
Ermarsundið á blogginu 7. júlí 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. 2 ummæliÉg er viðloðandi sundið, eins og margir vita, og nú hef ég tekið að mér að koma Ermarsundi Benedikts Hjartarsonar og boðsundi landsliðsins í sjósundi yfir Ermarsundið á framfæri. Ég má því til með að benda þessa bloggsíðu. Öll í því að styðja við áhugamálin sín…
Viðtal á Álandseyjum 3. júlí 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. 1 ummæli fram að þessuÞessi kona var formaður í Suomi-félaginu, vináttufélagi Finna og Íslendinga á Íslandi, um það leyti sem ég var þar hvað virkust. Varð svo glöð að sjá viðtalið við hana að ég mátti til með að setja hér link inn á það. Þarna er meðal annars réttmæt gagnrýni á okkur Íslendinga og alla efnishyggjuna hér sem við höfum örugglega gott af að heyra.
Stjórnmálamennirnir sleppa of vel 2. júlí 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. 2 ummæliÉg átti gott samtal við mann úti á landi í dag. Hann talaði um að það ætti að friða íbúa landsbyggðarinnar því að þetta væru bara nokkrar hræður eftir og þær væru í útrýmingarhættu, svo mikið hefði verið gengið á hlut þeirra síðustu árin.
Maðurinn sagði að stjórnmálamenn segðust skilja; “Ég skil hvað þú meinar”, “ég skil við hvað þú átt” þegar rætt væri um vandamálin á landsbyggðinni. Raunin væri hinsvegar sú að þeir skildu ekki neitt. Það skildi enginn hvað íbúar á landsbyggðinni hefðu gengið í gegnum nema að reyna það á eigin skinni.
Og það get ég skilið.
Svo fór hann út í aðferðafræðina. Sagði að það þyrfti að ganga betur á stjórnmálamennina þegar þeir kæmu með yfirlýsingar í opinberri umræðu, spyrja þá nákvæmlega hvað þeir skildu, af hverju þeir skildu það, hvernig þeir ætluðu að bregðast við því. Og láta þá ekki sleppa.
Það er blaðamennska. Og í þessum orðum fólst gagnrýni á okkur blaðamenn. Við látum stjórnmálamennina sleppa alltof létt. Því miður. Kannski erum við ekki nógu vel þjálfuð í því að fylgja hlutunum eftir, pikka upp það sem máli skiptir fyrir almenning í landinu og krefjast svara við því.
Það er svo auðvelt að “taka komment” og láta það duga.
En er það alvöru blaðamennska?
