Lán eða glópalán? 26. september 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæliÉg hef stundum verið að hugsa um það hvað ég hafi verið heppin að hafa náð að fara í mánaðarferðalag um Kákasus í fyrrahaust áður en óstöðugleikinn hófst í efnahagsmálum þjóðarinnar.
Þegar ég var í Kákasus var dollarinn rétt rúmar 60 krónur. Í dag er hann tæpar 100 krónur. Það breytir miklu.
Ferðalagið var allt greidd í dollurum, hvort sem þau voru laun bílstjóra og túlka eða hótel. Þegar maður greiðir kannski 750 krónur í laun fyrir túlkinn í hvert sinn skiptir máli hvort dollarinn hefur fengist á 62 krónur eða 98 krónur.
En svo eru það auðvitað smápeningar í stærra samhengi. Það er auðvitað ekkert annað en lán að hafa ekki húsnæðislán í erlendri mynt núna. Nú eða þá bílalán…
Að ræða “off the record” 25. september 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæliÞegar ég var í blaðamennskunámi í Finnlandi á sínum tíma var lítil umræða um hugtakið “off the record”. Manni var bara sagt að þetta tíðkaðist stundum og þá væri það algjör regla að ekki mætti hafa eftir viðkomandi það sem væri “off the record”. Þessu yrði viðmælandinn að geta treyst. Þetta skildi maður og hefur farið eftir í einu og öllu alla tíð síðan.
Þegar ég fór í endurmenntun til Danmerkur fyrir nokkrum árum síðan tók ég eftir því að blaðamenn á hinum norðurlöndunum hafa velt þessu svolítið fyrir sér og sumir mótað sér stefnu í þessu málum. Sumir þeirra segjast ekki tala “off the record” við neina viðmælendur og það sé regla. Rökin séu þau að blaðamenn eigi ekkert með að ræða “off the record”. Þeir verði að geta sagt frá hlutunum og haft allt uppi á borðunum. Þeir verði að geta vitnað í viðmælendur. Annað komi ekki til greina.
Þetta er hugsun sem mér líkar.
Stundum hef ég verið spurð að því hvernig blaðamenn og blaðamennska virka. Þá hef ég sagt: Þegar einhver hringir, segir til nafns og kveðst vera blaðamaður má gera ráð fyrir því - sem reglu - að viðkomandi sé í vinnunni og sé að leita upplýsinga on the record sem hann ætli að segja frá og vitna í. Það er algjör regla.
Blaðamenn sem segja til nafns og kynna sig geta alltaf haft eftir nema sérstaklega sé tekið fram að samtalið eða hluti þess sé “off the record”. Þeir geta annað hvort samþykkt eða hafnað því að ræða við viðkomandi “off the record”. Ef ekki er rætt um að samtalið sé “off the record” þá er það ekki “off the record”.
Þannig virkar þetta.
Annað fjöldamorðið á tíu mánuðum 24. september 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. rita ummæliÞað var sjokkerandi að heyra í vikunni að annar finnskur karlmaður hefði gert árás á skólafélaga sína og myrt átta konur og einn karlmann aðeins tíu mánuðum eftir síðasta fjöldamorð í framhaldsskóla í Finnlandi. Það á ekki af finnsku þjóðinni að ganga þessa dagana.
Þekkjandi Finna veit ég að þetta verður skoðað ofan í kjölinn og eitthvað gert til að þetta endurtaki sig ekki. Sem lesandi finnskra fjölmiðla sé ég að þeir eru þegar farnir að velta fyrir sér að herða öryggisráðstafanir. Og ég er viss um að málið verður rætt í þaula og gripið til viðeigandi ráðstafana.
Eitt vona ég þó að gerist ekki. Í Bandaríkjunum skilst mér að skólarnir séu mjög lokaðir eftir svipaða atburði þar síðustu árin, nemendur komist ekki út í frímínútur og komist ekki á milli álma án þess að hafa til þess sérstakt leyfi. Sem gamall námsmaður í Finnlandi þekkjandi þetta dásamlega land og frábæru þjóð vona ég að Finnar loki ekki skólunum sínum og hefti ekki frelsi nemendanna sinna.
Ekki að þeir séu endilega að velta því fyrir sér, það er ég alls ekki viss um. En menn hljóta að velta upp mörgum möguleikum. Og frelsið er norðurlandabúum mikilvægt. Það hlýtur að vera hægt að halda eðlilegu frelsi um leið og maður upprætir þá meinsemd að fjöldamorð eigi sér stað í skólum landsins. Þarna hlýtur eitthvað annað að þurfa að koma til.
