Sagan af svörtum Lamborghini 11. október 2008
Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. Stikkorð: Bæta við nýju stikkorði. bakvísunUngur íslenskur karlmaður var á unglingafundi í kirkjusöfnuði í Bandaríkjunum. Hann var spurður að því hvað hann myndi gera ef hann ynni eina milljón dollara í happdrætti. Hann sagðist myndu kaupa sér svartan Lamborghini. Krakkarnir í söfnuðinum áttu erfitt með að skilja þetta. Þau vildu frekar nota peningana til að malbika bílastæðið við kirkjuna og sögðu að ungi Íslendingarinn færi til helvítis. Hann var ekki alveg dús við það. Og það skilja Íslendingar allir. Maður fer ekkert til helvítis þó maður kaupi svartan Lamborghini.
En hugsunarháttur unga Íslendingsins - sem þó er bara venjulegur íslenskur unglingur - er dæmigerður fyrir það hvernig Íslendingar hafa hugsað á síðustu árum. Þeir hafa verið nýríkir og viljað eignast flottar merkjavörur og fínerí. Þeir hafa ekki kunnað með peninga að fara. Þeir hafa gleymt sér í neyslufylleríi og gegndarlausum lántökum. Og þeir hafa skellt skollaeyrum við öllum varnaðarorðum, innlendum sem erlendum, og farið flatt á ungu karlmönnunum úr viðskiptalífinu sem þóttu svo klárir og fólk á öllum aldri horfði upp til.
Því miður hefur það gríðarlegar afleiðingar fyrir þjóðina alla.
Það er alveg ljóst eftir umræðu undanfarinnar viku hverjum maður treystir og hverjum ekki. Og það er ekki endilega þeim sem hæst lætur í eða eru mest áberandi. Maður spyr: Eiga til dæmis ungu “fínu” athafnamennirnir að taka þátt í uppbyggingunni framundan? Eiga þeir sem hafa leitt útrásina síðustu árin að hafa eitthvert burðarhlutverk í framtíðinni? Ég svara neitandi. Nú er komið að öðrum.
Ég vona að það verði kynslóðaskipti og jafnari kynjaskipti í uppbyggingarstarfinu framundan eins og ýmislegt bendir reyndar til að verði. Svafa Grönfeldt segir í Fréttablaðinu í dag að í uppbyggingarstarfinu felist tækifæri fyrir unga fólkið. Það er rétt. Um leið og fara þarf varlega þarf að vinna af dugnaði og forsjálni. Það má ekki rasa um ráð fram. Og það má ekki gera mistök. Unga fólkið þarf skynsamlega og hæfa leiðsögn. Ég vona því - og efast reyndar ekki um - að fólk á öllum aldri komi fram og leggi hönd á plóginn til að byggja Ísland upp aftur.

Ummæli»
engin ummæli - viltu verða fyrstur?