fara í valmynd

Skoðanakönnun orðin tímabær 14. október 2008

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. bakvísun

Ég er búin að bíða í nokkra daga eftir nýrri skoðanakönnun sem sýnir afstöðu landsmanna til stjórnmálaflokkanna, ríkisstjórnarinnar, efnahagsstjórnarinnar, Seðlabankans, aðildar að ESB, upptöku evrunnar og innkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Mér finnst orðið tímabært að taka púlsinn.

Ég sé að norska ríkisútvarpið NRK segir í dag að Íslendingar séu heitari fyrir ESB en áður. Það skiptir auðvitað Norðmenn máli því stundum hefur verið sagt að Norðmenn neyðist með í ESB ef Íslendingar láti slag standa. Í ljósi þess eru það einmitt hagsmunir Norðmanna að styðja Íslendinga í gegnum efnahagskreppuna nú. Enda hafa þeir verið að taka við sér á síðustu dögum.

Ummæli»

engin ummæli - viltu verða fyrstur?

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning