fara í valmynd

Námið hefur skilað sér 30. október 2008

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. bakvísun

Mikið held ég að það sé og hafi verið norrænu þjóðunum dýrmætt að Íslendingar hafi flokkast ókeypis inn í háskóla í Noregi, Svíþjóð og Danmörku - og jafnvel Finnlandi - til að læra á okkar fyrri áratugum. Ég held að þetta hafi eflt norræna samstöðu verulega og hjálpað okkur Íslendingum að ná samstöðu með hinum norrænu þjóðunum. Sjálf hef ég notið góðs af menntun á norðurlöndum. Í mínu tilfelli var skólagangan í Finnlandi og hún hefur aldeilis skilað sér. Ekki er ég aðeins eins og fiskur í vatni í öllum norðurlöndunum heldur get ég talað við og skilið þjóðirnar allar.

Ummæli»

engin ummæli - viltu verða fyrstur?

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning