fara í valmynd

Myndu aldrei senda fréttamenn 19. nóvember 2008

Fært af Guðrún Helga undir Óflokkað. bakvísun

Erlendir fjölmiðlamenn hafa flykkst hingað til lands síðustu vikur og ekkert lát er á því. Nægur virðist vera áhuginn á því sem er að gerast á Íslandi. Mér hefur þó orðið hugsað til þess síðustu daga þegar ég hef hitt fjölmiðlamenn frá Japan og Rússlandi og fjarlægustu löndum að fjölmiðlar þessara þjóða senda fulltrúa sína hingað til lands til að fjalla um ástandið og þróunina en íslenskir fjölmiðlar myndu aldrei senda fréttamenn, aðra en íþróttamenn, neitt þangað sem eitthvað er að gerast á sinn kostnað. Ekki einu sinni í góðæri. Það er sorglegt.

Ummæli»

engin ummæli - viltu verða fyrstur?

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning