Gylfi

Meðlæti í mótlætinu.

  • Dagatal

    mars 2010
    S M Þ M F F L
    « júl    
     123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    28293031  
  • Heimsóknir

    Í dag: 24 Alls: 206157

  • Flettingar

    Í dag: 77 Alls: 869953

  • Vísa vikunnar

    Nú er liðið nokkurt fár......... níddri þjóð til ama.............. nú er komið annað ár.......... og allt er við það sama.......
  • Geðorðin 10

    ● 1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara ● 2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um ● 3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir ● 4. Lærðu af mistökum þínum ● 5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina ● 6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu ● 7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig ● 8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup ● 9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína ● 10. Setttu þér markmið og láttu drauma þína rætast
  • Gullmolar

    ● Þér líður eins og þú hugsar. ● Ánægja gerir fátækan mann ríkan, óánægja gerir ríkan mann fátækan. ● Það er engin leið að hamingjunni - hamingjan er leiðin. ● Taktu það með þér úr fortíðinni sem þú getur lært af. Gerðu hitt upp og skildu það eftir. ● Þú getur ekki bætt árum við líf þitt. Þú getur hins vegar bætt lífi við árin þín. ● Betri er kona í rúmi en köttur úti á túni. ● Bekkur án kvenna er eins og höfuð án verkja. ● Of mikið af húsverkum geta valdið heilaskaða. ● Auðvelt er að komast hjá gagnrýni með því að segja ekkert, gera ekkert og vera ekkert.

Bloggfrí.

Gylfi 12. júlí 2009

Í nóvember á síðasta ári birti ég hér á blogginu skemmtilegar myndir teknar í Færeyjum. Ég ætla nú að skella mér þangað á húsbílnum og taka mínar eigin myndir og kynnast þessum skemmtilegu frændum okkar. Reyndar er ég að fara hringferð um landið okkar með viðkomu í Færeyjum og tekur ferðin um mánuð. Þið munið því ekki sjá neina brandara hér í bráð. Ég vona að þið njótið veðurblíðunnar.

 


Og hér er tilkynning frá yfirvöldum í Færeyjum um notkun nagladekkja:

Frá sunnudegnum 15. oktober er aftur loyvt at brúka píkur. Tað kann hugsast, at sumir verða freistaðir at seta píkurnar upp undir omandi vikuskiftið, en ikki ráðiligt at seta píkarnar undir til dømis fríggjadagin ella leygardagin, bara frá sunnudegnum.

Ætli þeim finnist ekki líka sitthvað fyndið sem við látum út út okkur.

 

 

 

 

Fært undir Ferðalög, Vinir og fjölskylda | 5 ummæli »

Kostir líkamsræktar.

Gylfi 10. júlí 2009

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Golfkennsla.

Gylfi 9. júlí 2009

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Heilsurækt.

Gylfi 8. júlí 2009

Roskin hjón ákváðu að ganga þrjá kílómetra á dag til að viðhalda heilsu og þreki.

 

Þau ákváðu að ganga einn og hálfan kílómetra eftir fáförnum sveitavegi svo þau ættu ekki um annað að velja en að fara sömu leið til baka og gætu þá ekki svindlað.

 

Þegar komið var í eins og hálfs kílómetra markið í fyrstu göngunni spurði maðurinn:

“Heldurðu að þú komist til baka, eða ertu of þreytt?”

 

“Það er allt í lagi með mig, ég er ekkert þreytt,” svaraði frúin.

 

“Gott, þá bíð ég hér meðan þú ferð og sækir bílinn til að ná í mig.”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Þolinmæði.

Gylfi 6. júlí 2009

Gamall bóndi fór í bíó í fyrsta skipti.

 

Hann fylgdist eftirtektasamur með öllu sem fram fór á hvíta tjaldinu.

 

Sérstaklega fannst honum áhugavert atriði þar sem hópur ungra stúlkna hóf að afklæðast áður en þær ætluðu í sund.

 

Á meðan þær voru að afklæðast kom lest akandi og þegar hún var loks farin hjá, voru stúlkurnar komnar út í vatnið.

 

Þessi sýning hafði hafist rétt eftir hádegið og seint um kvöldið tók umsjónamaðurinn eftir því að gamli maðurinn sat þarna enn.

 

Hann gekk til hans og spurði hvers vegna hann sæti kyrr svona margar sýningar:

 

“Ahaaa,” svaraði bóndi dræmt. “Ég held að lestin geti ekki alltaf verið svona stundvís.”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Notkun bílbelta.

Gylfi 3. júlí 2009

Hjúkrunarkona nokkur sem vann á slysavarðstofu, notaði hvert tækifæri sem henni gafst til að leggja áherslu á nauðsyn bílbelta.

 

Dag einn kom slasaður maður á stofuna og hjúkkan spurði strax hvort hann hefði notað öryggisbelti?

 

Maðurinn hristi höfuðið og hjúkkan skellti sér strax út í fyrirlestur um bílbelti og gerði manninum það fullkomlega ljóst að hann hefði sloppið betur ef hann hefði verið með öryggisbelti.

 

Maðurinn hlustaði þolinmóður á hana og sagðist vera hjartanlega sammála en í þetta skipti hefði hann ekki getað notað öryggisbelti.

 

“Hvers vegna ekki?” vildi hjúkrunarkonan fá að vita.

 

“Ja, vegna þess að ég var á hesti,” svaraði maðurinn.

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Lækkun kyngetu.

Gylfi 2. júlí 2009

Gamall maður kom til læknis og sagði áhyggjufullur:

“Heyrðu Tómas læknir, þú verður að lækka kyngetuna hjá mér.”

 

Tómas var alls óviðbúinn þessari ósk mannsins en vildi vera viss um að hann hefði heyrt rétt, svo hann spurði:

“Hvað segirðu, viltu að ég lækki kyngetuna þína?”

 

“Já, nákvæmlega. Hún er öll í hausnum á mér og ég VERÐ að ná henni niður,” sagði sá gamli.

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Í réttarsalnum.

Gylfi 30. júní 2009

Læknirinn var kallaður til vitnis og lögmaðurinn sem talinn var einn af þeim hörðustu í stéttinni, sá um yfirheyrsluna.

 

Lögmaðurinn: “ Læknir, gáðuð þér að hjartslætti áður en þér hófuð krufninguna?”

 

Læknirinn: “ Nei.”

 

Lögmaðurinn: “ Gáðuð þér að öndun eða blóðþrýstingi?”

 

Læknirinn: “ Nei.”

 

Lögmaðurinn: “ Jæja, þá er hugsanlegt að sjúklingurinn hafi verið lifandi þegar þér hófuð að kryfja hann?”

 

Læknirinn: “ Nei, heilinn úr honum var í stórri krukku á borðinu hjá mér.”

 

Lögmaðurinn: “ En gæti sjúklingurinn ekki hafa verið á lífi engu að síður?”

 

Læknirinn: “ Nei, en bíddu nú annars við. Það er ekki útilokað, ef um lögfræðing hefur verið að ræða !”

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Timburmenn.

Gylfi 29. júní 2009

Maður nokkur var á heimleið með slæma timburmenn á sunnudagsmorgni og fann að hann hafði týnt hattinum sínum.

 

Honum kom í hug að auðveldasta leiðin til að bæta sér upp missinn væri að fara í kirkju og stela hatti í anddyrinu.

 

Hann kom inn í kirkjuna og heyrði ræðu, byggða á boðorðunum tíu.

 

Hann beið til loka messunnar og hitti prestinn að máli.

“Þú forðaðir mér frá því að drýgja glæp,” sagði maðurinn. “Ég kom hingað til að stela hatti en hætti við það eftir að hafa hlustað á þig.”

 

“Dásamlegt,” sagði prestur. “Var það kaflinn um að ekki mætti stela sem breytti hugarfari þínu?”

 

“Nei,” sagði maðurinn. “Það var þegar þú komst að boðorðinu – Þú skalt ekki drýgja hór – sem ég mundi hvar ég hafði skilið hattinn eftir.”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Golfraunir.

Gylfi 26. júní 2009

Prestur nokkur var gramur yfir því að einn vina hans sigraði hann alltaf í golfi.

 

Þessi vinur hans sem var töluvert eldri en hann, reyndi að hugga hann og sagði:

“Taktu þetta ekki svona nærri þér. Þú sigrar að lokum. Það líður ekki á löngu þangað til þú jarðar mig.”

 

“Vera má,” andvarpaði presturinn. “en það verður samt þín hola!”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Prestur í fleirtölu.

Gylfi 25. júní 2009

Gamall skoskur prestur var að húsvitja með djákna sínum.

 

Það var kalt í veðri og í hverju húsi fengu þeir eitthvað til að ylja sér á.

 

Eftir áttunda húsið fór prestur ögn að vantreysta sér og sagði:

“Tammas minn, gakktu ögn á eftir mér og gættu að hvort ég gangi sæmilega beint.”

 

Tammas staðnæmdist þegar í stað og þegar hann hafði horft á eftir presti ganga nokkur skref, kallaði hann:

“Allt í lagi prestur minn, þú gengur þráðbeint. En hver er þarna með þér?”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »

Presturinn.

Gylfi 23. júní 2009

Prestur dó og fór til himna.

Næstur á undan honum í röðinni við Gullna hliðið var ungur maður með sólgleraugu, klæddur í gallabuxur og skræpótta skyrtu undir leðurjakka.

 

Sankti Pétur spurði hann:

“Hver ert þú, svo ég megi veita þér aðgang að dýrð himnanna?”

“Ég er Joe Cohen leigubílstjóri frá New York.”

Sankti Pétur leitaði að honum á listanum hjá sér, fann hann, brosti og sagði:

“Taktu þennan silkikufl og silfurslegna staf og gakktu inn í fögnuð herra þíns.”

Leigubílstjórinn tók fúslega við því sem að honum var rétt og gerði það sem fyrir hann var lagt.

 

Þá var röðin komin að prestinum sem sagði borginmannlegur:

“Ég er Joseph Snow og var prestur hjá söfnuði heilagrar Maríu í 43 ár.”

Sankti Pétur leitaði í kladdanum, fann hann og sagði:

“Rétt er nú það. Taktu þessa bómullarskikkju og eikarstaf og gakktu inn í fögnuð herra þíns.”

“Heyrðu góði,” sagði presturinn. “Hér á undan mér var leigubílstjóri frá New York sem fékk silkikufl og silfursleginn staf en ég fæ bara bómull og eikarprik. Hvað er eiginlega að gerast hér?”

“Vinur minn,” sagði Sankti Pétur. “Í himins bók er spurt um hverju menn hafi áorkað. Í 43 ár prédikaðir þú yfir sofandi söfnuði.

Maðurinn á undan þér var aðeins fá ár leigubílstjóri í New York en í hverri ferð hans lágu farþegar á bæn.”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Hreyfing er holl.

Gylfi 22. júní 2009

 

Foreldrafræðslan var í gangi. Salurinn var fullur af ófrískum konum og mökum þeirra.

 

Leiðbeinandinn náði vel eyrum fólksins og sagði:

“Dömur mínar, æfingar eru góðar fyrir ykkur. Ég mæli sérstaklega með því að þið fáið ykkur göngutúra.

 

Og herrar mínir, það myndi alls ekki skaða ykkur að fara út að ganga með konunum ykkar.”

 

Enginn sagði neitt í smástund en svo rétti einn verðandi faðir upp höndina og spurði:

“Er allt í lagi að hún dragi golfkerru á eftir sér á göngunni?”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

P-pilla fyrir ömmu.

Gylfi 19. júní 2009

 

Eldri kona kom til læknis og bað hann um lyfseðil fyrir getnaðarvarnarpillum handa sér.

Læknirinn varð vægast sagt undrandi.

 

“Fyrirgefðu frú mín góð en ertu ekki orðin áttatíu ára gömul? Hvað ættir þú svo sem að gera við getnaðarvarnarpillur?”

 

“Ég reikna með að ég muni sofa betur ef ég fengi þær,” svaraði konan.

 

Læknirinn hélt að konan væri orðin elliær.

“Hvernig í ósköpunum dettur þér í hug að þú munir sofa betur af svona pillum?”

 

“Ég ætla að blanda þeim saman við ávaxtasafann sem ég gef dótturdóttur minni á hverjum morgni og þá er ég viss um að ég sef betur á nóttunni,” svaraði konan.

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Á barnum.

Gylfi 12. júní 2009

Stór og mikill kvenmaður, í ermalausum sumarkjól gekk inn á bar.

 

Hún lyfti hægri handleggnum hátt upp, svo kafloðinn handarkrikinn blasti við,

- benti yfir þéttsetinn barinn og spurði:  “Er hér einhver karlmaður sem vill bjóða konu í glas?”

 

Það sló þögn á mannskapinn, sem reyndi að leiða brussuganginn í henni hjá sér.

 

Lítill sjóari, kófdrukkin og glaseygður sem sat við enda barborðsins, sló í borðið og hrópaði: “Gefðu ballerínunni í glas”

 

Barþjónninn hellti í glasið og skessan þambaði úr því.

 

Hún sneri sér aftur að gestunum og með sama gassaganginum glennti hún loðinn handarkrikann framan í þá og spurði:

 

“Er hér einhver karlmaður sem vill bjóða konu í glas?”

 

Aftur var það litli, fulli sjóarinn sem skellti peningum á barborðið og sagði “Gefðu ballerínunni aftur í glas”

 

Barþjónninn gekk til hans og sagði:  Heyrðu kallinn minn - það er þitt mál ef þú vilt borga vínið fyrir kjellinguna,

- en af hverju kallarðu hana alltaf ballerínu ?

 

“Ég fullyrði”, svaraði fulli sjóarinn - “að kona sem getur lyft fætinum svona hátt, hljóti að vera ballerína” 

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Í miðju Góðærinu.

Gylfi 11. júní 2009

Í miðju Góðærinu:
Ég á minnsta húsið í götunni,
Það er húsið sem stendur hjá Lödunni.
Þegar granninn lætur renna í pottinn hjá sér-
Kólna allir ofnar hjá mér.
Eftir að granninn dubbaði upp garðinn hjá sér
Skín ekki sólin inn í garðinn hjá mér.
Granninn fær ráðherra í grill til sín
og bræluna leggur svo yfir til mín.
Granninn á jeppa af flottustu sort,
En ég á bara ljóta Lödu Sport.
Ég fer í vinuna með rútunni,
en hann fer með einka þyrlunni.
Konan hans eldist ekki hætings hót,
en mín er alltaf bæði feit og ljót.
Granninn er stæltur og með hárið ljóst,
En ég er bæði með ístru og lafandi brjóst.
Aumingja ég.
Þegar graninn er með veizlu hjá sér,
býður hann öllum nema mér.
Elton Jhon skemmti í afmælinu,
en ég hafði bara efni á Breiðbandinu.
Óþolandi er oft granninn minn,
Það trúa því fáir, að þetta sé hann
sonur minn.

 

Kreppan skellur á:
Nú er hann kominn á heimilið mitt,
og fluttur í gamla herbergið sitt.
Í kreppunni hann missti allt sitt fé.
Og nú á hann minni pening en ég.
Það kviknaði í báðum jeppunum,
og konan er farin frá honum.
Nú hangir hann heima rosa down,
og bölvar og ragnar Gordon Brown.
 

 

Fært undir Brandarar, Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Við dauðans dyr.

Gylfi 9. júní 2009

Hjartalínuritið gaf til kynna að hjartað væri hætt að slá og gamli maðurinn missti meðvitund.

 

Eftir endurlífgun í u.þ.b.tuttugu sekúndur fór hjartað í gang aftur og nokkru síðar komst maðurinn til meðvitundar á ný.

 

Þegar sá gamli var orðinn málhress greindi læknirinn honum frá því að hjartað hefði stoppað og spurði, hvort hann gæti munað eftir einhverju sérstöku þá stund.

 

“Ég sá skært ljós og fyrir framan mig stóð hvítklæddur maður,” svaraði sá gamli.

 

Læknirinn var mjög forvitinn að heyra af reynslu mannsins sem staðið hafði við dauðans dyr og spurði:

“Gætir þú nokkuð lýst þessum manni nánar sem þú sást fyrir framan þig?”

 

“Alveg sjálfsagt. Það varst þú!” svaraði gamli maðurinn.

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Magnyl og Viagra fyrir svefninn.

Gylfi 8. júní 2009

Það var með trega sem unga konan fékk inni fyrir föður sinn á hjúkrunarheimilinu.

 

Þegar hún heimsótti hann í fyrsta sinn kom það henni á óvart hversu hress hann var. Hann þreyttist ekki á að bera staðnum  vel söguna og endurtók hvað eftir annað hversu vel hann svæfi.

 

Þegar dóttirin spurði hverju það sætti að hann væri svona ánægður, svaraði gamli maðurinn að læknirinn hefði ákveðið að hann fengi Magnyl og Viagra fyrir nóttina.

 

Dóttirin var handviss um að sá gamli væri eitthvað að misskilja hlutina svo hún spurði læknirinn nánar út í þetta.

 

“Jú, þetta er alveg rétt hjá pabba þínum. Magnylið tekur verkina og bætir þannig svefninn en Viagra kemur í veg fyrir að hann velti fram úr rúminu.”

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Hreyfingarleysi á miðjum aldri.

Gylfi 6. júní 2009

Halldór og Guðrún voru miðaldra hjón sem leituðu til Símonar heimilislæknis, vegna þreytu og óyndis.

 

Eftir að hafa talað við þau og skoðað þau bæði samviskusamlega, sagði læknirinn:

“Það er ekkert annað ykkur en hreyfingarleysi og leti. Það er best að þið takið ykkur tak og farið að hreyfa ykkur úti í guðs grænni náttúrunni. Þið ættuð að finna það fljótlega hvað það kemur til með að hafa góð áhrif á ykkur.”

 

Mánuði seinna kom Halldór aftur á stofuna til Símonar.

 

“Ég fór að ráði þínu, keypti mér golfsett og hef ekki slegið slöku við síðan við hittumst síðast. Mér líður alveg stórkostlega vel.”

 

“Það er ánægjulegt að heyra en hvernig gengur hjá Guðrúnu?” spurði læknirinn.

 

“Æ, því miður hefur ekkert breyst hjá henni. Hún neitar að hreyfa sig.”

 

“Það var leitt að heyra. Ætli sé ekki vænlegast að ég tali við hana aftur,” sagði Símon.

 

“Mikið yrði ég þakklátur fyrir það,” svaraði Halldór.

“Það er náttúrlega mikil sóun að láta sláttuvélina sem ég keypti um daginn fyrir fimmtíu þúsund kall, standa ónotaða í bílskúrnum!”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Hitamælingin.

Gylfi 5. júní 2009

Læknir var gripinn í bólinu hjá húsfreyju í sveitinni.

 

“Ég get útskýrt þetta allt saman,” sagði læknirinn titrandi röddu. “Ég var bara að mæla hitann hjá konunni.”

 

Bóndinn greip til byssunnar.

 

“Ég reikna með að þú vitir hvað þú ert að gera læknir,” sagði hann og tók varlega í gikkinn.

“En þegar þú tekur hitamælirinn út er eins gott að hann sé úr málmi og gleri!”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Lækning við hiksta.

Gylfi 4. júní 2009

Maður nokkur kom hlaupandi inn á bráðamóttökuna.

 

Hann var mjög áhyggjufullur á svip og gekk að fyrsta lækninum sem hann sá og spurði:

“Hver er besta leiðin til að stöðva hiksta?”

 

Eins og hendi væri veifað löðrungaði læknirinn manninn.

 

Maðurinn var að vonum mjög undrandi og greinilega brugðið.

“Hvað á svona háttarlag að þýða?” spurði hann og var hinn argasti.

 

“Eins og þú veist ert þú ekki með hiksta núna,” svaraði læknirinn og reyndi að vera hinn blíðasti.

 

“Það er svo sem rétt,” sagði maðurinn.”Það er hins vegar konan mín sem bíður í bílnum hér fyrir utan sem er með hiksta.”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Karlmenn!!!

Gylfi 3. júní 2009

Ryksugur geta verið hættulegar.

 

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Tveir á typpinu.

Gylfi 3. júní 2009

Rúmlega þrítugur karlmaður kom á heilsugæslustöð og bar sig illa út af inngróinni nögl á hægri stórutá.

 

Hann var ekki fyrr kominn inn en stór og stæðileg hjúkka skipaði honum valdsmannleg á svip að fara inn í skoðunarherbergið og klæða sig úr fötunum.

 

“En mér er bara illt í tánni,” sagði maðurinn.

“Gerðu eins og ég segi,” sagði hjúkkan ákveðin og maðurinn þorði ekki annað en gegna.

 

Í skoðunarherberginu var annar karlmaður hálfstrípaður.

“Þetta er alveg fáránlegt,” sagði maðurinn með tána. “Ég kem hingað með inngróna nögl og er látinn hátta mig.”

 

“Ég skil nú ekki hvað þú ert að fárast yfir því,” sagði hinn maðurinn. “Ég kom bara til að gera við símann.”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 8 ummæli »

Læknir fær sér gleðikonu.

Gylfi 2. júní 2009

Símon læknir var kominn til ára sinna og var þekktur fyrir að vera bæði glöggur og stundum viðutan. Hann þótti reffilegur karl og geislaði af kyntöfrum.

 

Kvöld eitt eftir langan vinnudag kom hann við á barnum, til að fá sér drykk.

Næst honum sat ákaflega fönguleg og leitandi ung kona.

 

Hún bað Símon að bjóða sér eitthvað að drekka honum til samlætis. Símon bauð í glas.

“Ertu kvæntur?”

“Nei,” svaraði Símon.

“Áttu heima hér nálægt?”

“Já,” svarar Símon.

“Gætir þú hugsað þér að ég kæmi heim með þér?”

“Hvað kostar það?” spyr Símon.

“Fimm þúsund fyrir klukkutímann. Átta þúsund fyrir tvo tíma. Tuttugu þúsund fyrir allt kvöldið.”

“Gott og vel, ætli sé þá ekki best að drífa sig af stað,” segir Símon.

 

Þegar heim var komið til Símonar, segir konan undurblítt:

“Hvar viltu að ég byrji?”

Símon leit á konuna og sagði:

“Ætli það sé ekki best að þú byrjir á að þrífa gluggana.”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Fyrir brúðkaupið.

Gylfi 28. maí 2009

 

Jónas 92 ára og Anna Júlía 89 ára búa á Grund og eru upp með sér að hafa ákveðið að gifta sig.

Þau fara í smá gönguferð til að ræða brúðkaupið og á leiðinni fara þau fram hjá Apóteki Austurbæjar.

Jónas stingur upp á því að þau kíki þar inn, sem þau og gera. Jónas heilsar manninum við afgreiðsluborðið og spyr hann hvort hann sé eigandinn. Maðurinn segir svo vera.
 
Jónas: Við erum að fara að gifta okkur.
Selurðu nokkuð hjartalyf? 
Apótekari: Að sjálfsögðu
Jónas: Hvað með blóðrásarlyf?
Apótekari: Allar tegundir
Jónas: Hægðalosandi?
Apótekari: Auðvitað
Jónas: Þarmaflóruleiðréttandi?
Apótekari: allar gerðir
Jónas: Lyf gegn minnistapi, elliglöpum og Alzheimer?
Apótekari: Mesta úrvalið í bænum!
Jónas: Hvað með vítamín, svefntöflur, tannlím og lyf sem slá á Parkinsons?
Apótekari: Jú, vissulega, allt af þessu… þetta er nú apótek.
Jónas: Lyf við brjóstsviða, bakflæði, þvagleka og saurleka?
Apótekari: Jú, allt við þessu
Jónas: En hjólastóla, hækjur, stafi, göngugrindur og svoleiðis?
Apótekari: Jú, allar stærðir og kraftmestu tækin.
Jónas: Fullorðins bleyjur?
Apótekari: Jamm
Jónas: Heyrðu, þá ætlum við að vera með gjafalistann okkar hjá þér…°
 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Það fullnægir konum - alltaf.

Gylfi 27. maí 2009

 

Það
er
bara
5 cm
langt
en
það
FULLNÆGIR
konum
í
HVERT SKIPTI…

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Nokkrar ástæður leiða.

Gylfi 26. maí 2009

Þegar maður er orðinn nógu gamall til að mega vaka eins lengi á næturnar og maður vill og gera það sem maður vill á meðan maður vakir, hefur maður hvorki löngun né afgangs orku til þess.

 

Þegar maður er orðinn nógu efnaður til að geta keypt sér fötin sem mann langaði í á unglingsárunum, þá passa þau ekki á mann lengur.

 

Röðin sem maður velur í stórmarkaðinum er alltaf sú sem liðast hægast áfram.

 

Þegar maður hefur tíma til að taka sér frí á maður ekki pening. Þegar maður á pening til að fara í frí hefur maður ekki tíma.

 

Þegar maður fer loksins í sólarlandaferð sem sparað hefur verið fyrir í háa herrans tíð er sólríkasta sumar í manna minnum, - á Íslandi.

 

Þegar maður er loksins búinn að sannfæra sjálfan sig um að maður eigi að láta það eftir sér að kaupa eitthvað sem mann hefur lengi langað í er það nýlega uppselt.

 

Hvolpafitan sem eltist af þér, mun eldast á þig aftur.

 

Einu skórnir sem mann langar að kaupa í skóbúðinni eru annað hvort einu númeri of litlir eða einu númeri of stórir.

 

Þegar þvotturinn á snúrunni er rétt að verða þurr fer að rigna. Ef maður tekur hann inn styttir upp á stundinni.

 

Þegar bestu útsölurnar eru í gangi og allt sem mann vantar eða langar í fæst á hálfvirði, er maður alltaf blankur.

 

Þegar manni er loksins boðið í leikhúsið eða óperuna, er það vísast sama kvöldið og áttræðis afmælið hennar ömmu.

 

Loksins þegar maður hefur látið verða af því að kaupa sér nýja tölvu, verður gerbylting í tölvutækninni og ný kynslóð heldur innreið sína.

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Nærföt eru nauðsynleg.

Gylfi 25. maí 2009

Það er nauðsynlegt að vera í nærfötum þegar maður er meðal fólks.

 

Hvers vegna?

 

Í Florida USA gerðist það að hjón keyra inn á bílastæðið hjá Wal-Mart og um leið og maðurinn beygir inn á bílastæðið  bilar bíllinn.

 

Farðu bara og verslaðu á meðan ég geri við bílinn segir maðurinn við eiginkonu sína.

 

Þegar konan kemur aftur úr verslunarferðinni  sér hún hóp fólks á bílastæðinu sem greinilega fylgist með einhverju.

 

Þegar hún kemur nær sér hún að það er í kring um bílinn þeirra og að undan honum standa tveir berir karlmannsfætur í stuttbuxum sem hún þykist þekkja sem mannsins síns.

 

Það sem verra er að maðurinn er ekki í nærfötum og blasir því það allra helgasta á honum niður með skálminni og er sýnilegt öllum.

 

Hún stenst ekki mátið, tekur á sig rögg , beygir sig niður, rennir hendinni upp í buxnaskálmina og hagræðir þessum djásnum mannsins á réttan stað svo að þau blasi ekki við öllum.

 

Hún reisir sig upp og horfir djarflega í kring um sig og mætir þá augum manns sín sem stendur meðal fjöldans.

 

Bifvélavirkinn þurfti hins vegar að láta sauma þrjú spor í andlitið á sér.

  

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Minnið í ellinni.

Gylfi 22. maí 2009

Gömul hjón eru í mat hjá kunningja fólki sínu. Eftir matinn fara konurnar inn í eldhús að spjalla en karlarnir sitja áfram í stofunni.

 

“Við fórum á frábæran veitingastað í gærkvöld sem þið verðið að prófa,” segir annar þeirra allt í einu.
“Og hvað heitir hann?” spyr hinn.

 

Hann verður hugsi smá stund og getur bara ekki munað nafnið á veitingastaðnum.

Loks segir hann: “Æj, hvað heita aftur blómin þarna…”

 

“Túlipanar?” spyr hinn.
“Nei,” segir hann, “maður gefur þau oft þeim sem maður elskar.”

 

“Rósir?”
“Hmmm,” hugsar hann, “nei, ekki það. Er ekki eitthvað annað blóm sem maður gefur stundum þeim sem maður elskar?”

 

“Jú,” segir hinn, “Liljur”.
“Akkúrat, það var það. Takk,” segir hann og snýr sér í átt að eldhúsinu:

 

“Lilja mín, hvað hét aftur veitingastaðurinn sem við fórum á í gær?”  

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Heilræði fyrir konur.

Gylfi 21. maí 2009

Ef þú vilt einhvern sem borðar allt sem þú setur á borð fyrir hann og segir aldrei að þetta sé nú ekki jafn gott og hjá mömmu…

 …fáðu þér hund.


Ef þú vilt einhvern sem fer út með þér hvenær sem þú vilt, hvenær sem er og eins lengi og þú vilt… 

…fáðu þér hund.

 

Ef þú vilt einhvern sem aldrei snertir fjarstýringuna, er sama um enska boltann og vill alveg sitja hjá þér á meðan þú ert að horfa á rómantískar bíómyndir… 

…fáðu þér hund.

 
Ef þú vilt einhvern sem nægir að fara í rúmið með þér til að hlýja þér á fótunum og þú getur ýtt niður á gólf ef hann hrýtur…

…fáðu þér hund.


Ef þú vilt einhvern sem gagnrýnir þig aldrei, er slétt sama um hversu lagleg, feit, grönn, gömul eða ung þú ert og virðist hlusta af athygli á hvert orð sem þú segir; og elskar þig skilyrðislaust…

…fáðu þér hund.

 

Hins vegar!

 

Ef þú vilt einhvern sem gegnir þér aldrei, tekur varla eftir því þegar þú kemur heim, skilur óhreinindi eftir sig út um allt, kúgar þig gjörsamlega, er úti langt fram á nótt, kemur heim rétt til að borða og sofa og virðist sannfærður um að þú hafir einungis verið sköpuð til að gera honum til geðs…

…þá skaltu fá þér kött!

 

Þið hélduð að ég ætlaði að segja EIGINMANN?

Ég veit alveg að það passar, en…

 

…eigið góðan dag!!!

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Nokkrar staðreyndir um konur.

Gylfi 20. maí 2009

Af hverju prumpa karlmenn frekar en konur?

Konur geta ekki þagað nógu lengi til að byggja upp nægilegan þrýsting.

 

Hversu marga karlmenn þarf til að opna bjórdós?

Engan, bjórinn á alltaf að vera opinn þegar hún kemur með hann.

 

Af hverju hafa konur nettari fætur en karlmenn?

Þetta er eitt af grunnatriðum þróunarinnar, sem gerir það að verkum að þær geta staðið nær eldhúsvaskinum.

 

Hvernig veistu hvenær kona er að fara að segja eitthvað gáfulegt?

Hún byrjar setninguna á “Vitur maður sagði eitt sinn við mig…”

 

Hvernig gerir þú við kvenmannsúr?

Þú gerir ekki við kvenmannsúr, það er klukka á eldavélinni.

 

Vísindin hafa fundið fæðutegund sem dregur úr kynlöngun kvenna um heil 90% Fæðan er Brúðarterta.

 

Í upphafi skapaði Guð heiminn og hvíldist.

Þá skapaði Guð manninn og hvíldist.

Þá skapaði Guð konuna.

Síðan þá hefur hvorki Guð eða maðurinn getað hvílst.

 

Af hverju deyja menn á undan konunum sínum?

Þá einfaldlega langar til þess.

 

Karlmaður auglýsti í einkamáladálkinum: “Kona óskast”.

Daginn eftir fékk hann tugi bréfa, sem öllu voru á sama veg: “Þú getur fengið mína”.

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Uppskrift.

Gylfi 18. maí 2009

Vegna húsbílaferðar minnar til Færeyja í sumar er ég farinn að stúdera færeysku af fullum krafti.

Ég rakst á þessa bráðskemmtilegu uppskrift sem ég ætla að prófa strax og til Færeyja kemur.

Datt svona í hug að það vildu fleiri prófa uppskriftina, svo hér er hún:

 

Dampað havtaska við piparfruktsós

 

Til 4 fólk

 

Hetta skal nýtast:
600 g havtaskuflak

 

Kókilaki:
¾ litir vatn
1 spsk salt
2 dl hvíttvín
1 lítið stykki turka ingifer

 

Piparfruktsós:
2 stórar búnar reyðar piparfruktir
1 leyk, lítil
20 g smør
2 dl av kókilakanum
4 dl rómi
salt

 

Tilhoyr:
Eplir
grønertrar

 

Soleiðis gjørt tú:
Ger kókilakan við at koyra vatn, salt, hvíttvín og ingifer í eina stórar grýtu. Lat koma uppá kók, koyr síðan havtaskufløkini í , og lat kóka í uml. 15 min. Legg fiskastykkini í eitt fat, og halt tey heit (undir lok ella folie).

 

Set eplini á kók og dampa ertrarnar. Sker piparfruktirnar í tern, og sker leykin í stór stykkir. Brúnka síðan piparfruk og leyk í smør, og stoyt kókilakan omanyvir, og lat smákóka í uml. 5 min. til piparfruktin er moyr. Koyr síðan róma í grýtuna og lat kóka í uml. 15 min. Blendað piparfruktblandingina í einum blendara ella í einum food-processor, og stoyt blandingina aftur í grýtuna. Smakka til við salt, og so er klárt at servera.

Servera eplir og ertrar afturvið.

 

 

Haldi tað er ljótari at prumpa enn at ropa. Oftast luktar tað jú verri. Ein luktandi ropur er tó heldur ikki alt for lekkur.

 

Fært undir Ferðalög, Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Slys.

Gylfi 15. maí 2009

Hún: ”Hafið þér heyrt að Sigurður var fluttur á sjúkrahús?”.

 

Hann: ”Það getur ekki verið. Ég sá hann á Hótel Borg í gærkvöldi og þá var hann að dansa við ljómandi fallega stúlku”.

 

Hún: ”Já, það er rétt. Konan hans sá það líka!”.

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Í óperunni.

Gylfi 14. maí 2009

Tvær frúr í Hafnarfirði komnar af léttasta skeiði, brugðu sér dag einn í óperuna.

 

Uppi á sviðinu stóð tenórinn í níðþröngum brókum og var að enda við aríuna með glæsibrag, þegar önnur frúin snýr sér að hinni og segir í hrifningu:

 

“Mikil er sú náðargjöf sem hann er gæddur.”

 

“Fáðu mér kíkinn,” segir hin og virðir fyrirbrigðið fyrir sér smástund, þangað til hún segir með vonbrigðahreim í röddinni:

 

“Nei, ég held að þetta sé bara felling í buxunum.”

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Til fyrirmyndar.

Gylfi 11. maí 2009

Eiginkona bendir eiginmanni sínum inn um glugga hjá nágrönnunum, þar sem þau kela og kyssast.

 

“Af hverju gerir þú þetta aldrei?” spyr konan.

 

“Ég væri alveg til í að gera þetta, … en ég þekki hana bara ekkert,” svarar maðurinn.

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Sparnaður.

Gylfi 9. maí 2009

 

Framkvæmdastjórinn þurfti að skreppa heim einn morguninn af því að hann hafði gleymt veskinu sínu heima.

Hann labbar tautandi inn um dyrnar, þegar blessuð eiginkonan kemur á móti honum á morgunsloppnum með úfið hárið.

“Nei, nú eru þeir farnir að ganga of langt í sparnaðinum hjá því opinbera góða mín. Hugsaðu þér, þarna rekst ég á póstburðarmanninn úti á tröppunum og hann var bara í nærbuxum einum fata!”

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Einkenni svínaflensu.

Gylfi 8. maí 2009

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Stúdentinn.

Gylfi 7. maí 2009

Þegar Jónas var ungur fékk hann tímabundið starf í kjörbúð.

 

Fyrsta daginn tók verslunarstjórinn á móti honum, heilsaði honum innilega, rétti honum kúst og sagði: “Þitt starf svona til að byrja með, verður að sópa gólfið”.

 

“En ég er nýútskrifaður úr Menntaskóla og hef stúdentspróf” sagði Jónas móðgaður.

 

“Nú, fyrirgefðu”, sagði verslunarstjórinn “Réttu mér kústinn og ég skal sýna þér hvernig á að nota hann”.

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Martröðin.

Gylfi 6. maí 2009

Halli gisti hjá Nönnu vinkonu sinni.

 

Skyndilega hrökk hún upp við það að Halli var farinn að rymja og bylta sér í svefninum.

Hún ákvað að vekja hann og varð hann ekki lítið feginn, því hann hafði fengið martröð.

 

“Þetta var alveg rosalegur draumur. Mig dreymdi að ég hefði hrasað fram af fjallsbrún og var að hrapa niður í hyldýpis gljúfur en náði þá föstu taki á runna á brúninni og hékk þar.”

 

“Slakaðu á! Þú ert úr allri hættu!”

 

“Já, mér er óhætt núna svo þú skalt bara fara að sofa,” sagði Halli.

 

“Það geri ég, um leið og þú sleppir taki á runnanum!”

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

12 eða 13?

Gylfi 5. maí 2009

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Hnefaleikar.

Gylfi 4. maí 2009

Ef nokkur eiginmaður var kúgaður, þá var það svo sannarlega hann Palli.

 

Þess vegna varð hann alveg undrandi þegar konan tilkynnti honum að hún væri farin að æfa hnefaleika.

 

“Ég vil geta varið mig ef einhver ræðst á mig í niðamyrkri og reynir að nauðga mér.”

 

“Það held ég að sé nú alveg óþarfi – svo dimmt getur varla orðið.”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Geðveiki.

Gylfi 3. maí 2009

 

Hrólfur og Erla voru vistmenn á geðsjúkrahúsi.

 

Dag einn, er þau voru á gangi við sundlaugina kastaði Hrólfur sér útí og sökk tilbotns. Erla stakk sér útí laugina og bjargaði Hrólfi frá drukknun.

 

Þegar yfirlæknirinn frétti af björgunarafreki Erlu ákvað hann að útskrifa hana af sjúkrahúsinu, þar sem hún væri greinilega búin að ná snerpu og andlegu jafnvægi á ný.

 

Daginn eftir fór hann til fundar við Erlu til að boða henni fréttirnar og sagði: “Erla mín, ég hef bæði góðar og slæmar fréttir að færa þér! Góða fréttin er að ég ætla að útskrifa þig af spítalanum þar sem þú hefur sýnt merki um bata, sem sýnir sig í því að þú bjargaðir honum Hrólfi frá drukknun. Slæma fréttin er hins vegar sú að hann Hrólfur er dáinn.
Karlgreyið hengdi sig í beltinu sínu í gærkvöldi eftir að þú hafðir bjargað honum”.

 

Þá sagði Erla: “Hrólfur hengdi sig ekki. Ég festi hann upp til þerris í gærkvöldi. En hvenær má ég fara heim sagðirðu” 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Rekinn útaf.

Gylfi 2. maí 2009

 

Maður fór á fótboltaleik á laugardegi.

 

Á meðan hann var þar fékk konan hans heimsókn frá “vini” sínum. Konan átti með honum góðar stundir í sófanum þegar hún skyndilega heyrði í manninum sínum koma inn.

 

Á augnabliki skaust “vinurinn” bakvið sjónvarpið í horninu. Eiginmaðurinn kom inn og sagði: “Það byrjaði að rigna svo ég ákvað að koma heim og horfa á seinni hálfleikinn í sjónvarpinu”.

 

Hann settist niður og kveikti á tækinu og byrjaði að fylgjast með leiknum.

 

Eftir um það bil 20 mínútur byrjaði “vinurinn” að fá krampa í fótinn svo hann gafst upp á feluleiknum og stóð rólega upp og gekk út úr stofunni.

 

Eiginmaðurinn snéri sér að konu sinni og sagði: ”Ég tók ekki eftir þegar dómarinn rak hann út af” 

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Líf á eyðieyju.

Gylfi 1. maí 2009

Eddi ákveður loksins að fara í frí. Hann bókar sig á skemmtiferðaskip um karabíska hafið og skemmtir sér alveg konunglega, þar til að skipið sekkur og honum skolar upp á nálæga eyðieyju, með ekkert sér til aðstoðar.

Ekkert annað fólk, engar birgðir, ekkert… bara bananar og kókoshnetur.

 

Eftir um það  bil fjóra mánuði liggur hann á ströndinni að mygla úr leiðindum þegar gullfalleg  kona kemur á árabát upp að ströndinni.

Hissa spyr hann: “Hvaðan kemur þú? Og  hvernig komst þú hingað?”

“Ég réri frá hinum enda eyjarinnar,” segir hún, “ég lenti þar þegar skemmtiferðaskipið sem ég var á sökk.”

 

“Magnað,” segir hann, “heppin varstu að finna þennan árabát óskemmdan.”

“Ó, þetta?” segir hún. “Ég byggði hann bara úr efni sem ég fann á eyjunni. Árarnar eru úr Gúmmítré. Ég fléttaði botn úr pálmatrágreinum, en hliðarnar og stefnið tálgaði ég út úr Tröllatré.”

“En, það er ómögulegt,” stynur Eddi upp. “Þú hefur varla verið með nein verkfæri. Hvernig fórstu að?”

 

“Það var ekkert mál,” segir konan. “Á suðurhluta eyjunnar berst óvenjuleg bergtegund niður með ánni. Ég  komst að því að ef ég hitaði bergið upp í ákveðið hitastig í brennsluofni, þá bráðnaði það niður í mjög meðfæranlegan málm sem ég gat notað til að smíða ýmis verkfæri.”

Eddi er orðlaus.

“Róum yfir á minn helming eyjunnar,” segir hún.

 

Eftir nokkrar mínútur af róðri, koma þau að lítilli bryggju.

Þegar Eddi lítur upp eftir ströndinni, dettur hann nærri því úr bátnum. Frá bryggjunni er hellulagður gangstígur upp að fallegu einlyftu, bláu og hvítu einbýlishúsi.

 

Á meðan konan bindur bátinn með heimavöfðum kaðli, gat Eddi ekki komið upp orði.

Þegar þau ganga inn í húsið, segir konan ósköp hógvær: “Þetta er nú svo sem ekki merkilegt, en ég er farin að kalla það heimili. Sestu, ekki bjóða þér drykk?”

 

“Nei, nei… takk samt,” segir hann, vandræðalega. “Get ekki hugsað mér að drekka meiri kókosmjólk í dag. Ég er  kominn með rosa leiða á henni.”

“Þetta er ekki kókosmjólk,” segir konan, “má ekki bjóða þér Pina Colada eftirlíkingu sem ég bruggaði?”

 

Eddi reynir að  fela hvað hann er gjörsamlega gáttaður og þiggur drykkinn.

Þau setjast því  næst niður og skiptast á sögum. Þegar farið er að svífa vel á þau af Pina Colada  segir konan:

 “Ég ætla að bregða mér í eitthvað þægilegra. Viltu ekki skreppa í sturtu og raka þig? Það er rakvél í baðherbergisskápnum uppi.”

 

Eddi er hættur að spyrja, heldur fer bara beint upp. Í skápnum er haganlega smíðuð rakvél, með skaft úr beini og á beinið er búið að koma fyrir  flugbeittum skeljum, sem snúast fyrir tilstilli seguls inni í skaftinu.

 

“Vá,” stynur hann, “þessi kona er mögnuð! Hvað næst?”

Þegar  hann kemur niður aftur, tekur hún á móti honum í engu nema nærfötum saumuðum úr  vínviðarblöðum, ilmandi af heimalöguðu ilmvatni sem minnir á ferskan  sumarblæ.

 

“Segðu mér,” byrjar hún og færir sig ögrandi nær honum, “við  höfum verið hérna í margar vikur. Ég er viss um að það er eitthvað sem þig langar virkilega að gera núna. Eitthvað sem þú hefur ekki getað gert lengi… þú  veist…” Hún starir æsandi í augu hans.

 

Hann trúir ekki því sem hann er  að heyra: “Þú meinar að..,” hann kyngir spenntur, “ég geti tékkað á  tölvupóstinum mínum?!”

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Ekki til fyrirmyndar.

Gylfi 30. apríl 2009

Jonni var stöðvaður af útigangsmanni um daginn. Hann lyktaði illa, gekk í lörfum og uppfyllti myndina af slíku fólki á allan hátt.

Vesalingurinn var að sníkja pening af Jonna.

 

Tók Jonni upp veskið, dró úr því tvö þúsund kall og spurði útigangsmanninn hvort hann vildi ekki kaupa sér bjór fyrir þennan pening í staðinn fyrir mat?

“Nei, það geri ég ekki, ég hætti að drekka fyrir mörgum árum,” svaraði hann.

 

“Viltu þá ekki nota þetta smáræði til að fara á veiðar, frekar en kaupa þér mat?” spurði Jonni.

“Nei, ég sólunda ekki tíma mínum í óþarfa,” var svarið.

 

“Viltu þá ekki eyða þessu í reiðtúr?” spurði Jonni.

“Ertu vitlaus maður! Ég hef ekki farið á hestbak í 20 ár!”

 

“Hvað um að kaupa þér kjöltudans eða mellu – eða eitthvað svoleiðis? Ég bæti við pening ef með þarf.”

“Ég fæ nú bara einhverja sjúkdóma út úr svoleiðis vitleysu!” svaraði sá heimilislausi.

 

Þá sagði Jonni þessum ógæfusama manni að hann ætlaði ekki að gefa honum neina peninga, heldur ætlaði hann að bjóða honum með sér heim í dýrindis-kvöldverð hjá konunni sinni.

 

Þá varð flækingurinn frekar hissa og spurði Jonna hvort hann héldi ekki að konan yrði reið yfir því að draga þennan flæking inn í húsið. Hann lyktaði illa og var svo illa til fara að hann væri ekki húsum hæfur?

 

Jonni taldi að það væri hið besta mál, allt í þessu fína!

Það væri mikilvægt fyrir konuna að sjá hvernig maður liti út sem væri hættur að drekka, veiða, ríða út og stunda kynlíf!

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Kæra tölvudeild.

Gylfi 29. apríl 2009

“Prentarinn minn er hættur að virka”

 

“Hvaða villumelding kom á hann?”

 

“Engin villumelding en músin er föst”

 

“Músin föst?”

 

“Það hefur ekkert með prentarann að gera!”

 

“Augnablik, ég ætla að taka mynd og senda þér.”:

 

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Fyrirlestur á Lionsfundi.

Gylfi 27. apríl 2009

Séra Jónas hélt ræðu á Lionsfundi og umræðuefnið var kynlíf. En þegar hann kom heim, þá gat hann ekki viðurkennt fyrir Möggu að hann hefði haldið ræðu um kynlíf, svo hann sagði henni að hann hefði rætt um hestamennsku og útreiðar.

 

Nokkrum dögum seinna hitti Magga nokkra Lionsfélaga út í Bónus og þeir hrósuðu bónda hennar mjög fyrir ræðuna.

Magga sagði: “Já, ég heyrði um þetta. En ég varð nú frekar hissa á þessu, því hann hefur bara reynt þetta tvisvar. Í fyrra skiptið varð hann svo aumur að hann gat ekki gengið í nokkra daga og í seinna skiptið datt hann af baki. 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Hafnfirðingurinn.

Gylfi 24. apríl 2009

Hafnfirðingurinn fluttist til Bandaríkjanna og settist að í suðurríkjunum.

 

Þar passaði hann heldur betur inn í kramið. Hann spurði nágrannana hvað menn gerðu sér helst til skemmtunar þarna og var svarað svona: “Við förum í keiluhöllina og lumbrum á negrunum!”

 

Hafnfirðingurinn dreif sig með strax fyrsta kvöldið.

Þeir voru rétt komnir inn þegar nokkrir negrar birtust og það var strax farið að lumbra á þeim, nema Hafnfirðingurinn. Hann snéri sér umsvifalaust að því að skjóta keilurnar niður.

 

“Hvern fjandann ertu eiginlega að gera mannskratti?” spurði einn nágranninn.

“Slappaðu af vinur. Sjáið þið bara um þá fullorðnu, ég skal sjá um eggin,” svaraði Hafnfirðingurinn.

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Í Hagkaup.

Gylfi 23. apríl 2009

Mjög hávær, óaðlaðandi (ljót og feit) og hreinlega brussuleg kona kom inn í Hagkaup einn daginn með börnin sín tvö, dró þau sitt í hvorri hönd, skammaðist í þeim og var hin versta um leið og hún gekk inn ganginn.

 

Strákur í kerrunum sá hana og heilsaði: “Góðan daginn frú og velkomin í Hagkaup. En yndisleg börn sem þú átt. Eru þetta tvíburar?”

 

Forljóta konan hætti að öskra á börnin og sagði við strákinn: “Held nú síður. Sá eldri er 9 ára og hitt er að verða 7. Hvers vegna í fjandanum heldurðu það. Ertu blindur eða bara svona heimskur!?”

 

“Ég er nú hvorugt, frú mín.” segir strákurinn. “Ég get bara ekki ímyndað mér að þú hafir fengið að sofa hjá tvisvar!!

Hafðu það gott í dag og takk fyrir að versla í Hagkaup”

 

 

Gleðilegt sumar.

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Teboðið.

Gylfi 22. apríl 2009

Mamma var ekki heima og pabbi var að passa mig.

Ég var ekki nema eins og hálfs árs gömul.

Einhver hafði gefið mér tesett sem var eitt af uppáhalds leikföngunum mínum.

Pabbi sat inni í stofu í öðrum heimi við að lesa dagblöðin og bróðir minn var að dunda sér í rólegheitum.

Ég færði pabba te sem auðvitað var bara vatn. Eftir fjöldan allan af tebollum og helling af hrósi frá pabba þá kom mamma heim.

Pabbi sagði henni að bíða og kíkja og sjá hvað þetta væri sætt að sjá mig færa honum te, ég væri bara algjört krútt.

Mamma beið og horfði þegar ég kom enn eina ferðina með tebolla handa pabba.

Hún horfði á hann drekka teið og þegar hann hafði klárað úr bollanum varð henni á orði:

“Gerir þú þér grein fyrir að eini staðurinn sem þetta litla barn getur komist í vatn er beint út klósettinu”

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning