Færslur febrúar, 2008
Fært af Gylfi þann 29. febrúar 2008
Lýsing tekin af einkamál.is:
Frekar stór á alla kanta. Eiginlega jafnstór í allar áttir. ….. Þá meina ég auðvitað sama hvort um er að ræða hversu skemmtileg og eftirsóknarverð ein manneskja getur verið… Auðvitað er ég hérna mér til skemmtunnar. Og auðvitað er ég AÐAL-DÍSIN …þið sem eruð að leita að einnar nætur gamni ekki reyna að senda mér skilaboð….Giftir menn eða í sambúð, vinsamlega reynið að standa ykkur í eigin bóli…..Littlir strákar sem eru með móðurduld. Ég nenni ekki að ala upp fleirri börn…. Ef þú ert sáttur við sjálfan þig og hefur gaman af því að spjalla um heima og geima ……
Þessi auglýsing er styrkt af….. BELGJAGERÐINNI,
SEGLAGERÐINNI ÆGI. Meyndýraeyði og mengunnarvörnum ríkisins.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »
Fært af Gylfi þann 29. febrúar 2008

Lausn síðustu gátu: Á tannhjólinu eru 24 tennur.
Hvaða tvær tölur áttu að margfalda saman til þess að útkoman verði 89 ?
Tekið skal fram að um heilar tölur er að ræða.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 29. febrúar 2008

Lögregluþjónn stöðvaði eitt sinn bíl og tilkynnti ökumanninum að hann hefði unnið 20.000 krónur í bílbeltahappdrættinu.
“Hvað ætlarðu að gera við peningana?” spurði lögregluþjónninn.
“Ja, ætli ég byrji ekki á því að taka bílpróf,” ansaði ökumaðurinn.
Þá heyrðist í konu hans við hliðina: “Blessaður vertu, trúðu honum ekki. Hann lýgur alltaf þegar hann er svona útúrdrukkinn.”
Þá heyrðist í krakkagrislingi í aftursætinu: “Ég vissi að við kæmumst aldrei langt á stolnum bíl.”
Í því er bankað upp undir skottlokið og síðan kallað: “Erum við komin yfir landamærin?”
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 29. febrúar 2008

Dómarinn: “Af hverju viljið þér skilnað, Friðrik?”
Friðrik: “Ég fæ aldrei að ráða neinu á mínu heimili.”
Við þessi orð grípur eiginkona Friðriks fram í og segir: “Þetta er bölvuð lygi í honum Frissa. Það má vel vera að ég ráði því hvernig peningum heimilisins er ráðstafað og hvert farið er í sumarfrí, en hann Frissi fær sko að ráða í öllum stórmálunum, eins og afstöðunni til Nató og þess háttar.”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 29. febrúar 2008
“Elskan,” sagði eiginmaðurinn við konu sína, “ég bauð vini mínum í mat í kvöld.”
“Hvað? ertu orðinn vitlaus. Húsið er allt í óreiðu, ég hef ekkert komist til að kaupa inn, allir diskarnir eru óhreinir og mig langar ekki til þess að verða þér til skammar.” segir eiginkonan.
“Ég veit það allt.” svarar eiginmaðurinn.
“Hvers vegna í ósköpunum ertu þá að bjóða vini þínum í mat núna?” spurði eiginkonan.
“Vegna þess,” svaraði eiginmaðurinn “að aumingja maðurinn er að fara að gifta sig…”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Fjölmiðlar, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 28. febrúar 2008

Lausn síðustu gátu: Á 14 dögum ætti betlarinn að fá 4095,75 krónur.
Á tannhjóli einu er ákveðinn fjöldi tanna. Til skilningsauka númerum við þessar tennur frá númer 1 og upp úr. Nú vill svo til, að tönn númer 8 stendur beint andspænis tönn númer 20.
Hvað eru þá margar tennur á hjólinu öllu?
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 28. febrúar 2008
Lýsing tekin af einkamál.is:
hellú :O) leita að manni einfalt mál. eða nei það er það ekki en pikkaðu til mín nokkrar línur og spjöllum ;O) ég er ekki að leita mér að skyndikynnum verða viðhald og nei mér langar ekki að sjá bibban á ykkur í cam.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »
Fært af Gylfi þann 28. febrúar 2008
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 28. febrúar 2008
Lítill drengur var á göngu með pabba sínum þegar þeir sjá tvo hunda eðla sig.
Drengurinn snýr sér að pabba sínum og spyr: “Hvað eru þeir að gera pabbi?”
“Sá fremri er blindur,” segir pabbinn rólega, “og sá aftari er að ýta honum á spítalann.”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Fjölmiðlar, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 27. febrúar 2008

Lausn síðustu gátu: Kunningjarnir voru 17.
“Bíssness” beiningamanns.
Betlari einn fékk dag nokkurn 25 aura. Næsta dag fékk hann 50 aura og þriðja daginn vildi svo til að hann náði saman einni krónu.
Hann sá nú að það var mikill vöxtur og uppgangur í “atvinnurekstrinum” og fór að leggja framkvæmdaáætlun of reikna út, hvað tekjurnar yrðu miklar á 14 dögum ef þær tvöfölduðust á hverjum degi.
Hvað verða tekjurnar eftir 14 daga?
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 27. febrúar 2008

Feðgar voru úti í búð þegar sonurinn kom auga á hillu fulla af smokkapökkum. Sonurinn spyr hvers vegna það væru til mismunandi pakkningar.Pabbinn svaraði: “Sko, sjáðu þennan hér, 3 í pakka? Það er fyrir menntaskólann. Tveir á föstudagskvöld og einn á laugardagskvöld”.
“Til hvers eru þá 6 í pakka?” spyr sonurinn.
“Það er notað þegar þú ert í háskóla. Tveir á föstudagskvöld, tveir á laugardagskvöld og tveir á sunnudagsmorgun” svaraði pabbinn.“En til hvers eru þá 12 í pakka?” spyr sonurinn.
“Það er fyrir gifta menn” svaraði pabbinn. “Einn í janúar, einn í febrúar, einn í mars…..”
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 27. febrúar 2008

-Tveir veiðimenn eru á veiðum í skógi þegar annar fellur niður og virðist hætta að anda. Félagi hans grípur farsímann og hringir í neyðarlínuna.
“Félagi minn er dauður. Hvað á ég að gera?” æpir hann í símann.
Viðmælandin biður hann að róa sig niður.
“Gakktu fyrst úr skugga um að hann sé örugglega látinn”.
Þá kemur þögn og svo skothvellur.
“Og hvað svo,” segir maðurinn svo í símann.”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 27. febrúar 2008
Fært undir Brandarar, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 3 ummæli »
Fært af Gylfi þann 27. febrúar 2008
Lýsing tekin af einkamál.is:
Hvar er þessi gæji? ——- ert það þú?
I wanna make you smile,
whenever you’re sad.
Carry you around when your arthritis is bad.
Oh, all i wanna do, is grow old with you.
I’ll get your medicine when your tummy aches,
Build you a fire if the furnace breaks.
Oh, it could be so nice, growin’ old with you.
I’ll miss you, kiss you,
Give you my coat when you are cold,
need you, feed you.
I’ll even let you hold the remote control.
So let me do the dishes in our kitchen sink,
put you to bed when you’ve had too much to drink.
Oh I could be the man who grows old with you.
I wanna grow old with you…
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 26. febrúar 2008

Lausn síðustu gátu: 999 9/9
Nokkrir vinir og kunningjar hittumst á veitingahúsi og pöntuðu allir nákvæmlega það sama. Samtals hljóðaði reikningurinn upp á 4913 krónur.
Hvað voru kunningjarnir margir sem komu saman ?
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Menning og listir, Nám, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 2 ummæli »
Fært af Gylfi þann 26. febrúar 2008
Lýsing tekin af einkamál.is:
Ég er klár karl í leit að tilbreytingu. Þegar veðrið er gott flagga ég aldrei í hálfa stöng.
Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »
Fært af Gylfi þann 26. febrúar 2008

Það voru einu sinni hjón sem fóru á hótel til að halda upp á 50 ára brúðkaupsafmælið sitt.Fengu þau sér gott að borða og fóru svo upp í rúm til að endurupplifa brúðkaupsnóttina.
Eitthvað fannst þeim gamli vinurinn vera slappur og linur, svo hann laumaðist afsíðis og batt við hann reglustiku. Fór hann við svo búið upp í rúm til sinnar gömlu og sinnti sínu hlutverki og var konan hæstánægð með gamla sinn.
Daginn eftir synti annar eggjastokkurinn til hins og sagði: “Já, margir hafa nú komið við hér um dagana en aldrei hafa þeir fyrr komið á líkbörum!”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Ferðalög, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 26. febrúar 2008
Lýsing tekin af einkamál.is:
Ég lýsi hér eftir hinum hlutanum af parinu sem mig langar að verða. Pant vera konan. Þessi helmingur á ekki að vera betri en ég, bara jafn góður. Hlýr og heiðarlegur sem talar, hlær og hlustar. Ekki væri nú verra ef hann læsi stöku sinnum eitthvað annað en textann á sjónvarpsskjánum eða bíótjaldinu. Hann er á mínum aldri, plús nokkur ár, eða mínus nokkrir dagar. (Og þessu er sérstaklega beint til ykkar ungu herranna hér: ég ítreka; ég hef ekki áhuga á yngri mönnum. Punktur.) Hann er að sjálfsögðu ókvæntur og er ekki í leit að skyndikynnum eða viðhaldi. Hann langar heldur ekki að binda mig eða kefla, enda kýs ég að tjá mig og hreyfa óhindrað. Hreint út sagt þá langar mig ekki til þess að vera einhleyp lengur, þótt ég hafi ekki í hyggju að drösla hinum helmingnum upp að altarinu. En bara ein spurning: Finni ég hinn helminginn og verð ekki lengur einhleyp, er ég þá orðin tvíhleyp?
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 26. febrúar 2008

Hannes var óforbetranlegur hrekkjalómur. Hann átti sér uppáhalds brellu sem hann notaði hvenær sem hann borðaði á nógu fínum og vinsælum veitingastað. Hannes beið þar til falleg kona var komin á staðinn og hafði verið fylgt til borðs.
Hann kallaði þá á þjón og bað hann fyrir miða á borð konunnar. Hann sagði þjóninum að láta ekki uppi frá hverjum miðinn var heldur bíða eftir svari.
Þjónninn fór svo með miðann frá Hannesi til dömunnar sem opnaði hann og las: “Ég veit að ég er bara þjónn hérna en trúðu mér ég get látið gjósa úr fleiru en flöskum! Ef þú vilt fá drátt lífs þíns er ég þinn maður. Hvernig líst þér á elskan?”
Fært undir Brandarar, Ferðalög, Fjölmiðlar, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »
Fært af Gylfi þann 26. febrúar 2008
Mundu að kynlíf er ekki svarið. Kynlíf er spurningin. Svarið er “já”.
Af hverju vilja menn giftast hreinum meyjum ? Þeir þola ekki gagnrýni.
Fært undir Brandarar, Ferðalög, Fjölmiðlar, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 25. febrúar 2008
Lausn síðustu gátu: Rauða fjöður hitti 14 sinnum í mark.
Þegar Binni bandítt fer að sækja sér þúsund kall í bankann finnst honum leiðinlegt að vera að burðast með öll þessi núll í þúsund tölunni. Næst þegar hann sækir sér þúsund kall hefur hann ekkert núll í tölunni.
Hvernig fer hann að því ? Tekið skal fram að hann notar ekki bókstafi, heldur tölur.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Tækni og vísindi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 25. febrúar 2008
Lýsing tekin af einkamál.is:
Hæ langar til að prófa að gá hvort hér séu einvherjir sem hefðu gaman af að spjalla á léttu nótunum, Þætti vænt um að þeir sem hefðu ekkert að segja myndu þá bara sleppa því. Hér kemur spurning til þeirra sem vita um veiði, veist þú um staði þar sem hægt er að veiða, ég veiði eingöngu á flugu, , Mig langar í lax, silung og sjóbirtingsveiði. Vinsamlega látið mig vita, Það er allt uppselt hjá Stangveiðifélaginu, Með fyrirfram þakklæti. bæ
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 25. febrúar 2008

Síðasta vetur, þegar hráslagalegt hafði verið um hríð, ákváðu hjón ein að flýja vetur konung í viku og pöntuðu sér ferð suður í höf.
Þannig atvikaðist að konan þurfti að fljúga degi síðar en ætlað var en eiginmaðurinn flaug á undan..
Þegar kallinn er kominn á hótelið rífur hann upp ferðatölvuna og skrifar strax tölvupóst til konu sinnar. Ekki vildi betur til en svo að hann misritaði einn staf í netfanginu og lenti pósturinn hjá ekkju einni sem nýbúin var að jarðsetja sinn heittelskaða.
Ekkjan sem rétt var búin að jafna sig eftir athöfnina, var í þann mund að líta eftir samúðarkveðjum þegar tölvupósturinn barst……
Þegar sonur ekkjunnar kom heim lá hún í yfirliði fyrir framan tölvuna og þetta stóð ritað á skjáinn:
Til: Konu minnar sem varð eftir
Frá: Manninum þínum sem fór á undan
Efni: Er kominn á áfangastað
Elskan,
Er kominn heill á húfi. Er búinn að kynna mér allar aðstæður og gera allt klárt fyrir komu þína á morgun.
Óska þér góðrar ferðar og bíð þín með óþreyju.
P.S. Fjandi heitt hérna niður frá.
Ástarkveðjur,
Þinn eiginmaður.
Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Slúður, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 25. febrúar 2008

Samkvæmt nýlegum rannsóknum falla þeir menn sem ekki skilja konur í tvo hópa: piparsveina og eiginmenn.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 24. febrúar 2008
Lausn síðustu gátu: Það eru 4 km. á milli.
Indíáninn Rauða fjöður er hin mesta bogaskytta, svo að Hrói höttur má fara að vara sig.
Rauða fjöður samdi við annan indíána Gula snák um að fara í svolitla keppni. Í hvert skipti sem Rauða fjöður hitti í mark skyldi Guli snákur borga honum 4 dollara, en í hvert skipti sem skot geigaði átti Rauða fjöður að borga hinum til baka 5 dollara.
Þetta fór svo að Rauða fjöður skaut 20 örvum og vann 26 dollara.
Hvað margar örvar skyldu hafa hitt í mark?
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »
Fært af Gylfi þann 24. febrúar 2008

Gunnar ákvað að fá sér smá andlitslyftingu fyrir afmælisdaginn sinn.
Hann eyddi 500.000 kr. í aðgerðina, og var bara mjög sáttur við árangurinn.
Á leiðinni heim stoppar hann hjá blaðasala, og kaupir DV. Áður en hann yfirgaf blaðasalann, segir hann við hann: “ég vona að þér sé sama, þó ég spyrji, en hvað heldur þú að ég sé gamall?”. “Svona ca. 35 ára”, segir blaðasalinn. “Ég er nú raunverulega 47 ára”, segir Gunnar, mjög stoltur.
Hann kom við á McDonalds á heimleiðinni, og spurði afgreiðslustúlkuna sömu spurningar. Hún svaraði að bragði: “þú ert örugglega ekki degi eldri en 29 ára”. ”Ég er nú samt 47 ára”, og nú leið okkar manni virkilega vel.
Á meðan hann beið eftir strætó, spurði hann gamla konu sömu spurningar.
Hún sagði: “ég er nú orðin 85 ára gömul, og sjónin er aðeins farin að gefa sig”. ”En þegar ég var yngri, kunni ég pottþétta aðferð til að segja til um aldur manna”.
“Ef ég set höndina niður í nærbuxurnar, og leik mér að eistunum í tíu/ellefu mínútur, þá get ég sagt nákvæmlega hvað þú ert gamall”.
Gunnar leit í kringum sig, og sá engan, svo hann hugsaði með sér, ætli maður hafi ekki einhvern tíman gert eitthvað verra en þetta”.
Sú gamla rennir hendinni niður í nærbuxurnar. Tíu/ellefu mínútum seinna, segir sú gamla: “OK ég er tilbúinn, þú ert 47 ára”.
Stynjandi segir Gunnar “þetta er frábært, hvernig fórstu að þessu?”.
Sú gamla horfði rólega á hann og svaraði: “Ég var fyrir aftan þig á McDonalds”.
Fært undir Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 24. febrúar 2008

Lýsing tekin af einkamál.is:
Harmoniskur, vinnusamur og sanhorthur kona lita eftir kunningi med hugsandi karlsmadur. Eg likur vinna mikith og likur vitsnunalegur tala. Minn hobby drekka kaffi.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »
Fært af Gylfi þann 24. febrúar 2008
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 5 ummæli »
Fært af Gylfi þann 24. febrúar 2008
Þorvaldur starði sorgmæddur á typpið á sér og sönglaði:
“Við fæddumst saman. Við urðum fullorðnir saman. Við giftum okkur saman. Hví, ó hví þurftir þú að deyja á undan mér?”.
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 23. febrúar 2008
Lausn síðustu gátu: Hann Jón er 66 ára og átta mánuðum betur.
Hún Marta fékk sér hjól um daginn af því að hún nennir ekki að vera alltaf að leita að bílastæði. Það er líka svo gott fyrir línurnar.
Þegar hún fer í vinnuna á morgnana, hjólar hún með 15 km. hraða á klst. En á kvöldin er hún orðin þreytt og hjólar þá með 10 km. hraða, en þá er hún líka 8 mínútum lengur á leiðinni heim.
Hve langt er á milli vinnu og heimilis Mörtu ?
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 3 ummæli »
Fært af Gylfi þann 23. febrúar 2008
Lýsing tekin af einkamál.is:
Ég er að leita af einhverjum sem kann að njótta lífsins og drekkur kaffi.
Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »
Fært af Gylfi þann 23. febrúar 2008

Verður lífið ekki dásamlegt og einfalt þegar búið er að tölvuskrá ALLAR upplýsingar um okkur og samtengja þær síðan og setja út á Internetið
SÍMASTÚLKA: Pizza 101!
Viðskiptavinur: Halló, ég ætla að panta pizzu hjá ykkur…
SÍMASTÚLKA: Sjálfsagt, ég þarf að fá kennitöluna þína.
VIÐSKIPTAVINUR: Kennitöluna, já hún er 180869-4859.
SÍMASTÚLKA: Já, Jón Jónsson, heimilisfang Fálkagata 17, símanúmer 5809957. Þú vinnur í herbergi nr. 23 hjá Landsvirkjun og GSM númerið þitt er 8794138. Og þú ert að hringja úr heimasímanum.
VIÐSKIPTAVINUR: Ha, ég? Heimasímanum. Hvar náðirðu í allar þessar upplýsingar
SÍMASTÚLKA: Við erum tengd við Netið.
VIÐSKIPTAVINUR: (andvarpar) Já, ég ætla að fá tvær lúxuspizzur með kjötáleggi…
SÍMASTÚLKA: Ég held þú ættir að sleppa því, Jón.
VIÐSKIPTAVINUR: Hvað meinarðu?
SÍMASTÚLKA: Jón, í sjúkraskýrslunni þinni stendur að þú hafir mjög háan blóðþrýsting og allof hátt kólesteról. Líftryggingafélagið þitt leyfir þé ekki að borða svona óhollan mat.
VIÐSKIPTAVINUR: Hverju mælirðu þá með?
SÍMASTÚLKA: Þú ættir að prófa fituskertu sojabaunapizzuna okkar með jógúrtsósunni. Ég er viss um að þér þykir hún góð.
VIÐSKIPTAVINUR: Hvernig dettur þér í hug að ég mundi vilja eitthvað svoleiðis?
SÍMASTÚLKA: Nú, þú tókst “Gæðauppskriftir með sojabaunum” á bókasafninu í síðustu viku. Þessvegna stakk ég upp á þessu.
VIÐSKIPTAVINUR: Ókey, ókey. Sendu mér tvær í fjölskyldustærð. Hvað kostar þetta svo?
SÍMASTÚLKA: Það ætti að nægja þér, konunni og börnunum fjórum. Kostnaðurinn er 4.589 krónur.
VIÐSKIPTAVINUR: Ég ætlað að borga með kreditkortinu. Númerið er…
SÍMASTÚLKA: (grípur fram í) Því miður, en þú verður að borga út í hönd. Þú ert kominn yfir á kortinu.
VIÐSKIPTAVINUR: Ég hleyp þá bara í næsta hraðbanka með debetkortið og tek út pening áður en bílstjórinn ykkur kemur.
SÍMASTÚLKA: Það gengur ekki heldur. Þú er búinn með yfirdráttinn á tékkareikningnum.
VIÐSKIPTAVINUR: Jæja, jæja, sendu bara pizzurnar og ég hef peningana tilbúna. Hvað tekur það langan tíma?
SÍMASTÚLKA: Við erum aðeins í seinni kantinum, gæti verið um 45 mínútur. Ef þér liggur á gætirðu sótt þær, en það er auðvitað frekar erfitt að flytja pizzur á mótorhjóli…
VIÐSKIPTAVINUR: Hverning veistu að ég er á mótorhjóli?
SÍMASTÚLKA: Það stendur hérna að bíllinn hafi verið gerður upptækur vegna vangreiðslna á bílaláninu. En Hondan er fullgreidd svo ég gerði ráð fyrir að þú mundir koma á henni.
VIÐSKIPTAVINUR: @#%/$@&?#!
SÍMASTÚLKA: Gættu þín á orðalaginu, Jón. Þú er þegar búinn að fá á þig einn dóm fyrir að blóta í návist lögreglumanns, í júlí 2006.
VIÐSKIPTAVINUR: (orðlaus)
SÍMASTÚLKA: Var það eitthvað fleira?
VIÐSKIPTAVINUR: Nei, ekkert. Jú annars, hvað með þessa tvo lítra af kók sem fylgja frítt með pizzunum frá ykkur?
SÍMASTÚLKA: Því miður, Jón, en í smáa letrinu í auglýsingunni frá okkur stendur skýrum stöfum að við sendum ekki ókeypis gosdrykki til sykursjúkra.
Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Matur og drykkur, Nám, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »
Fært af Gylfi þann 23. febrúar 2008

Lítil stúlka sá sinn fyrsta getnaðarlim:
“Mamma, er það ekki mikil mildi að þeir eru ekki með þá framan í sér?”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Ferðalög, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 3 ummæli »
Fært af Gylfi þann 22. febrúar 2008
Mér er alveg sama þó þið smellið á myndina.
Lausn síðustu gátu: Í brunastiganum voru 19 þrep.
Ef aldur hans Jóns í dag, væri tvöfaldaður, þá væri hann jafnmikið yfir 100 ára aldri og hann er nú undir 100 ára aldri.
Hvað er hann Jón gamall?
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 22. febrúar 2008

Athugasemd: námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt hvert námskeið. Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:
FYRRI DAGUR:
HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT
Skref fyrir skref með glærusýningu
KLÓSETTRÚLLUR - VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM? Hringborðsumræður
MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel)
DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?
Pallborðsumræður - nokkrir sérfræðingar
AÐ TAPA GETUNNI
Að missa fjarstýringuna til makans - Stuðningshópar
LÆRA AÐ FINNA HLUTI
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi - Opin umræða
SEINNI DAGUR:
TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?
Hópvinna og hlutverkaleikir
HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM
PowerPoint kynning
SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar
ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?
Ökuhermir
AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA
Fyrirlestur og hlutverkaleikir
HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni
AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR
Komdu með dagatalið þitt í tímann
AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR
Einstaklingsráðgjöf og samtöl.
Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 22. febrúar 2008
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 22. febrúar 2008

Jón bóndi í Útnára hafði aldrei verið giftur, en var í gær að fá til sín eina Thælenska úr póstlistanum “Einn með öllu”. Hann veit ekki alveg hvernig hann á að umgangast dömuna og ákveður að hringja í póstlistann, en fyrir slysni ruglast hann á símanúmerum og fær samband við tölvubúðina “Ein með öllu”.
Heyrum nú hvað þeim fór á milli:
Sölumaður (S)
Jón bóndi (J)
RING RING
S: “Ein með öllu” góðan daginn,
J: Já, góðan daginn. Ég fékk hjá ykkkur “Eina” núna um daginn og ég er í helvítis brasi með hana. Ég kann bara ekkert á hana. Ég held að hún sé tælensk…..
S: Neiii…. Það getur ekki verið. Ef þú hefur fengið hana nýlega þá hlýtur hún að vera frá Kóreu. Hvað heitir hún annars?
J: Hún heitir Hí un Dæ, held ég. Hún er allavega með merki framan á sér sem á stendur. Hí un Dæ.
S: Já, Hyundai, það getur passað. En hvaða vandræði eru með hana?
J: Ég er búin að vera að berjast við að reyna að koma henni af stað í allan dag en ekkert gengið.
S: Ertu búinn að taka hana úr umbúðunum?
J: Já, hún stendur hérna alveg “nettó “fyrir framan mig og ég bara veit ekkert hvað ég á að gera næst.
S: Mér finnst nú alltaf best að hafa þær uppi á borði þegar ég nota þær. Annars þreytist maður svo fljótt í bakinu.
J: Jááá þú segir nokkuð. Ég skelli henni þá upp á borð!
S: Gott, svo sestu framan við hana og athugar hvort hún sé orðin heit.
J: Ég er búin að þreifa aðeins á henni og hún er bara sæmilega volg víðast hvar…
S: Hvernig týpa er þetta annars? 486?
J: Tja- 6 og ekki 6…Það sem ég var með í huga var bara svona venjulegt sex allaveganna til að byrja með. Það er aldrei að vita hvað maður gerir svona seinna meir…
S: Þú segir að hún sé orðin volg, já Þá skaltu grípa um músina, og færa hana rólega þangað til að “bendillinn” er kominn þangað sem þú vilt.
J: Grípa um músina? Er það nú ekki svolítið ruddalegt svona rétt á meðan við erum að kynnast?
S: Nei nei. Það er alveg nauðsynlegt að vera liðugur á músina þannig að þú fáir það sem þú vilt.
J: Jæja , það skal þá þannig vera, en heyrðu, það er allt fullt af hárum á músinni !
S: Klikkaðu undir hana og blástu svo á hana. Það ætti að duga. Hvernig er annars minnið í henni?
J: Tja, það hefur nú lítið reynt á það ennþá hún kom nú bara í gær
S: Þú ert náttúrulega með harðan? Er það ekki?
J: Harðan. Jú, og ég er búinn að vera með hann lengi. Loksins er ég búinn að fá eitthvað til að setja hann í!!!
S: Hvað er hann stór?
J: Stór??? Hann er svona í góðu meðallagi! ! ! !
S: O.K. gott, þeim mun stærri því meiru getur þú hlaðið á hann. Segðu mér annað, hvernig drif er á henni?
J: Hvað meinar þú með drif??????
S: Sérðu ekki rifu framan á henni? Það er drif…
J: Já, ég sé smá rifu en ég er vanur að kalla hana allt öðrum nöfnum
S: Já, rifan er til þess að bæta í hana einu og öðru. Þú stingur bara floppinum inn og svo er það bara “run” og “enter”.
J: Run? Þarf það???? Ég er nú ekki með það stórt herbergi að ég geti verið að hlaupa mikið en ENTER það get ég! ! !
S: Svo veistu að þú getur tekið pásu hvenær sem er því að sá harði geymir allt saman eins lengi og þú vilt, nema náttúrulega að hún krassi á þig !!!
J: Krassi á mig? Eiga þær það til líka? Ég get nú bara ekki hugsað þá hugsun til enda.
S: Ef hún krassar þá getur sá harði skemmst.
J: Það hlítur að vera ósköp sárt! ! ! ! !
S: Enn hvað ætlar þú að gera við hana? Í hvað ætlar þú að nota hana?
J: Ég var nú aðallega að hugsa um að leika mér að henni meðan ég er að kynnast henni. Svo fer ég að nota hana í eitt og annað nytsamlegt.
S: Það er upplagt að láta hana sjá um bókhaldið. Það er um að gera að nýta möguleika hennar á öllum sviðum eins og maður getur.
J: Segðu mér eitt, er ekki óhætt að treysta þeim?
S: Jú, jú, þær eru nokkuð öruggar.
J: Hvað finnst þér um hana? Heldur þú að hún sé ekki bara nokkuð góð? Hún Hí un Dæ???
S: Jú, ég er búinn að skoða þær margar, og þessi er örugglega þrælgóð. Þú þarft náttúruleg að vita að þær úreldast fljótt. Þú kemur bara með hana niðureftir og uppfærir í eina nýja. Við tökum þá gömlu uppí! ! !
J: Það er ekki að spyrja að því. Toppþjónusta sem þið veitið…..
S: Já, við leggjum okkur fram við að veita kúnnanum góða þjónustu. Margir skipta á svona tveggja ára fresti…
J: Heyrðu, ég þakka þér bara kærlega fyrir hjálpina. Nú er ég tilbúinn til þess að hjóla í hana….
S: Gott hjá þér, og ef þú lendir í frekari vandræðum þá skal ég koma á staðinn og hjálpa þér.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 22. febrúar 2008
Ekki smella á myndina
Hvers vegna verða karlmenn skynsamari á meðan þeir stunda kynlíf?
Vegna þess að þeim er stungið í samband við snillinga!
Fært undir Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Slúður, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. febrúar 2008

Mér er alveg sama þó þið smellið á myndina.
Nýr spennandi þáttur hefur nú göngu sína á blogginu mínu. Ég, heppinn !!!
Þetta mun vera í fyrsta (og sennilega eina) skiptið sem þáttur sem þessi birtist á bloggsíðu frá upphafi bloggsins.
Daglega, ef ég hef nennu til og hvattur óspart til dáða, mun ég birta þraut eða heilabrot á síðunni. Lesendum mínum gefst kostur á að taka þátt í henni með því að skrá lausnina í ummæli hennar. Birting og lausn síðustu þrautar frá deginum áður verður um kl. 22:00 hvert kvöld.
Vegna tæknilegra örðugleika er ekki hægt að velja annan tíma og vil ég, fyrirfram, biðja fréttastofu sjónvarpsins innilegrar afsökunar vegna minnkandi áhorfs og röskunar á öllum skoðanakönnunum (sem að vísu bitnar á öllum stöðvunum). Einnig má búast við að tölvukerfi visis.is leggist tímabundið á hliðina vegna mikils álags á sama tíma.
Ég vil að lokum hvetja alla vitiborna lesendur mína til að taka óspart þátt í þessari keppni vegna hinnar glæsilegu verðlauna sem í boði eru.

Hér kemur fyrsta þrautin:
Slökkviliðsmaður var að berjast við eld.
Fyrst stóð hann í miðþrepi brunastigans.
Hann fór upp um 4 þrep, en þá braust fram reykjarmökkur, svo hann varð að hörfa 6 þrep niður.
Næst ruddist hann upp 9 þrep, en var of bráður á sér og varð aftur að hörfa 3 þrep niður.
Loksins dró úr eldinum og með því að hlaupa 5 þrep, komst slökkviliðsmaðurinn alveg upp.
Hvað voru mörg þrep í stiganum ?
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 7 ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. febrúar 2008
Lýsing tekin af einkamál.is:
Hæ stelpur, er að leita að viðhaldi fyrir kallinn, vantar bara eina og kanski fær hann bara að leita annað einu sinni, hann þarf mun meira en ég svo ákvað að prufa hvað kemur út úr þessu, ekkert ennþá ákveðið en ef það er einhver þarna úti sem vantar meira kynlíf þá getið þið prufa að senda mér línu og segja mér aðeins frá ykkur áður en ég sendi kallinn.
Hann er xxxcm á hæð xxkg æfir xxxxxx svo hann er í fínu formi.
Kv, Ein sem þarf hjálp
Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. febrúar 2008
Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. febrúar 2008
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. febrúar 2008
.jpg)
Á eyðieyju einni fjarri allri mannabyggð (auðvitað) strandaði skip en á skipinu var fólk samankomið af ólíkum þjóðernum. En það var ekki fyrr en mánuði síðar sem greyið fólkið fannst og hafði þá ýmislegt á daga þeirra drifið…
Strandaglóparnir voru:
2 ítalskir menn og ein ítölsk kona.
2 franskir menn og ein frönsk kona.
2 þýskir menn og ein þýsk kona.
2 grískir menn og ein grísk kona.
2 breskir menn og ein bresk kona.
2 búlgarskir menn og ein búlgörsk kona.
2 japanskir menn og ein japönsk kona.
2 kínverskir menn og ein kínversk kona.
2 bandarískir menn og ein bandarísk kona.
2 írskir menn og ein írsk kona.
2 íslenskir karlmenn og ein íslensk kona.
Mánuði síðar á þessari sömu eyju höfðu eftirfarandi atburðir átt sér stað:
Annar Ítalinn drap hinn vegna ítölsku konunnar.
Frönsku mennirnir og franska konan lifa í sátt og samlyndi.
Þjóðverjarnir hafa komið sér upp mjög stífu vikulegu fyrirkomulagi um að heimsækja þýsku konuna.
Grikkirnir sofa hjá hverjum öðrum á meðan gríska konan þrífur og eldar handa þeim.
Bretarnir bíða enn eftir að einhver kynni þá fyrir ensku konunni.
Búlgararnir horfðu lengi á sjóndeildarhringinn og svo á búlgörsku konuna og stungu sér síðan til sunds.
Japanirnir sendu símbréf til Tokýó og bíða enn leiðbeininga.
Kínverjarnir hafa komið upp apóteki, vínbúð, veitingastað og þvottahúsi og kínverska konan er barnshafandi af völdum “þeirra” því starfsmenn vantar.
Bandaríkjamennirnir eru á barmi taugaáfalls því bandaríska konan kvartar í sífellu yfir líkamsvextinum sínum; yfir eðli konunnar; hvernig hún er fær um að gera hvaðeina sem þeir geta; nauðsyn þess að lifa fullnægjandi lífi; jafnri skiptingu á heimilisverkum; hvernig sandurinn og pálmatrén valda því að hún virðist feitari; hvernig síðasti kærastinn virti skoðanir hennar og kom betur fram við hana en þeir tveir; hve samband hennar við móður sína verður betra með degi hverjum og að lokum hve skattarnir eru lágir og að það skuli aldrei rigna.
Írarnir tveir hafa skipt eyjunni í norður og suður og sett upp landamæri. Þeir minnast ekki hvort til kynlífs hafi komið því það er allt í móðu eftir fyrstu lítrana af kókosviskíinu. En þeir eru sáttir því Bretarnir eru ekki að njóta sín.
Íslendingarnir eru orðnir stórskuldugir við verslanir og veitingahús Kínverjanna og brugghús Íranna. Íslenska konan er búin að sofa hjá ítölsku, frönsku og amerísku karlmönnunum á meðan íslensku karlmennirnir eru búnir að reikna út að þeir væru fallegastir, sterkastir, gáfaðastir og fjölmennastir miðað við höfðatölu.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. febrúar 2008
Krumpaður og eldgamall karl gengur inn í Lúthersku kirkjuna og segir við einkaritara prestsins: Ég vil ganga í þessa helvítis kirkju.
Einkaritarinn sem er kona er bæði forviða og hneyksluð á orðbragði mannsins: Fyrirgefðu herra, ég hlýt að hafa misskilið þig. Hvað sagðirðu?
Hlustaðu á mig andskotinn hafi það, gólar karlinn. Ég sagði að ég vildi ganga í þessa helvítis kirkju.
Mér þykir það leitt maður minn, en svona orðbragð verður ekki liðið hér í þessari kirkju. Og einkaritarinn stormar inn á skrifstofu prestsins til að láta hann vita af ástandinu. Presturinn er hjartanlega sammála einkaritaranum sínum. Hún á alls ekki að þurfa að sitja undir svona hræðilegu orðbragði.
Þau ganga saman fram aftur og presturinn spyr gamla karlfauskinn: Herra minn, hvað er vandamálið?
Það er ekkert fjandans vandamál, segir karlinn, sýnu skapverri en áður. Ég bara vann 200 milljónir í helvítis lottóinu og ég vil ganga í þessa helvítis kirkju til að losna við eitthvað af þessum helvítis peningum.
Ég skil, sagði presturinn rólega. Og er þessi kerlingartík hér að valda þér vandræðum?
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Óflokkað | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. febrúar 2008

Ekki smella á myndina
Gamall maður kom til læknis með vandræðamál.
“Læknir, þú verður að lækka hjá mér kynþörfina.”
“Láttu nú ekki svona Gunnar, kynþörfin er öll í höfðinu á þér.” sagði læknirinn
“Það er það sem ég meina, þú verður að lækka hana aðeins.”
Fært undir Brandarar, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 20. febrúar 2008

Lyfjafræðingur var dag einn með elsta son sinn í versluninni, þegar síminn hringdi og hann þurfti nauðsynlega að bregða sér frá. Hann bað því strákinn að gæta verslunarinnar fyrir sig en bannaði honum að afgreiða lyfseðilskyld lyf.
“Ekki málið” sagði stráksi fullur sjálftrausts og ætlaði sko að sýna þeim gamla hvað hann væri flottur “dealer”.
Eftir skamma stund kemur lyfsalinn aftur og spyr strákinn hvernig hafi gengið.
“Þetta var ekkert mál, það kom bara einn kall með alveg geðveikan hósta” sagði stráksi
“Nú! og hvað léstu hann fá?” spurði lyfsalinn.
“Ég lét hann hafa Laxerolíu” sagði stráksi hróðugur.
“Ertu alveg snarvitlaus drengur, hvernig heldur þú að laxerolía geti læknað HÓSTA!?” sagði lyfsalinn titrandi röddu.
“Nú, þú getur séð það sjálfur, hann stendur þarna úti og styður sig við ljósastaurinn og þorir ekki fyrir sitt litla líf að hósta”.
Fært undir Brandarar, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 20. febrúar 2008

Allir krakkarnir náðu prófinu,
nema Sara- hún neitaði að svara.
Allir krakkarnir voru með verk í bakinu,
nema Drífa- hún var með hnífa.
Allir krakkarnir fóru í feluleik,
nema Þór- hann var of stór.
Allir krakkarnir fengu sér tattú,
fyrir utan Finn- hann hafði ekkert skinn.
Allir krakkarnir voru með freknur,
nema Gvendur- hann var með rendur.
Allar stelpurnar voru hreinar meyjar,
nema Fríða- hún nennti ekki að bíða.
Allir krakkarnir kunnu að flauta,
fyrir utan Finn- hann hafði enga kinn.
Allir krakkarnir léku sér með keðjusögina,
nema Marta- hún var komin í parta.
Allir krakkarnir tipluðu á tánum,
nema Snær- hann er ekki með neinar tær.
Allir strákarnir fóru á kallaklósettið eftir aðgerðina,
fyrir utan Kára- því nú heitir hann Bára.
Öllum krökkunum var starsýnt út um gluggana á þotunni,
nema Knúti- því hann var úti.
Allir krakkarnir horfðu á örbylgjuofninn,
nema Binni- hann var þar inni.
Allir krakkarnir forðuðust káf kennarans,
fyrir utan Sverri- því hann var perri.
Allir krakkarnir komust yfir laugina,
nema Linda- því hún kunni ekki að synda.
Allir krakkarnir vinkuðu,
nema Gvendur- hann hafði engar hendur.
Allir krakkarnir höfðu hausinn upp úr lauginni,
nema Binni- því hann var aðeins minni.
Allir krakkarnir eru lifandi,
fyrir utan Kötu- hún hafði verið að leika sér úti á götu.
Allir krakkarnir náðu yfir hraðbrautina,
nema Petra- hana vantaði metra.
Allir krakkarnir stoppuðu við hengiflugið,
nema Tindur- hann var blindur.
Allir krakkarnir biðu eftir að bílarnir stoppuðu,
nema Fríða- hún vildi ekki hlýða.
Allir krakkarnir nutu ásta,
nema Kim- hann hafði engan lim.
Allir krakkarnir voru í vatni upp að hálsi,
nema Þór- hann var ekki nógu stór.
Allir krakkarnir voru með reiðhjólahjálma,
nema Þráinn- og nú er hann dáinn.
Allir krakkarnir fóru í bíó,
fyrir utan Laugu- hana vantaði augu.
Allir krakkarnir sluppu úr ljónabúrinu,
nema Teitur- hann var of feitur.
Allir krakkarnir fóru úr lauginni þegar hákarlinn kom,
nema Linda blinda- hún hélt áfram að synda
Fært undir Brandarar, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 20. febrúar 2008

Andlitslyfting:
Hin sígilda fegrunaraðgerð þar sem skurðlæknirinn sker skurð í skjóli hársins, strekkir húðina, brettir upp á og sker afganginn af.
Ef hún er framkvæmd of oft gæti sjúklingurinn endað með naflann upp í nefinu.
Augnpokafjarlæging:
Aðgerðin sem losar þig við pokana undir augunum svo þú getir betur glennt upp glyrnurnar yfir reikningnum sem fylgir á eftir.
Efnahúðmeðferð:
Aðferð til að brenna hrukkurnar af andlitinu á þér og sem fær hárin til að rísa á hnakkanum á þér (svo ekki sé talað um áhrifin á húðina).
Sterk eiturefni eru notuð eða mögulega vírbursti á hringsnúningi fyrir þá sem vilja að húðin sé eins og múrsteinsveggur á litinn.
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Nám, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Óflokkað | Engin ummæli »