Nú er liðið nokkurt fár.........
níddri þjóð til ama..............
nú er komið annað ár..........
og allt er við það sama.......
Geðorðin 10
● 1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara
● 2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um
● 3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir
● 4. Lærðu af mistökum þínum
● 5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina
● 6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu
● 7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig
● 8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup
● 9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína
● 10. Setttu þér markmið og láttu drauma þína rætast
Gullmolar
● Þér líður eins og þú hugsar. ● Ánægja gerir fátækan mann ríkan, óánægja gerir ríkan mann fátækan. ● Það er engin leið að hamingjunni - hamingjan er leiðin. ● Taktu það með þér úr fortíðinni sem þú getur lært af. Gerðu hitt upp og skildu það eftir. ● Þú getur ekki bætt árum við líf þitt. Þú getur hins vegar bætt lífi við árin þín. ● Betri er kona í rúmi en köttur úti á túni. ● Bekkur án kvenna er eins og höfuð án verkja. ● Of mikið af húsverkum geta valdið heilaskaða. ● Auðvelt er að komast hjá gagnrýni með því að segja ekkert, gera ekkert og vera ekkert.
Gylfi
Ég heiti Gylfi og er Gunnarsson. Ég er fæddur í Bolungarvík þann 24. september 1946 og því í Vogarmerkinu enda alltaf í fullkomnu jafnvægi. Ég er fæddur snillingur og er Rafeindavirkjameistari að mennt. Meðlimur í flugklúbbnum Sléttunni og gegni starfi formanns innra eftirlits. Einnig meðlimur í Lionsklúbbnum Víðarr þar sem ég verð í stórn klúbbsins árið 2010 og Parísar klúbbnum þar sem ég gegni starfi varaformanns.
Það gerast margir hlutir sem sumum virðist með ólíkindum að geti gerst og eru lýginni líkust.
En í öllum tilvikum er um skýringu að ræða hvort sem hún er einföld eða flókin.
Það eru til mýmörg dæmi um furðulegar tilviljanir og “óútskýranlega” hluti sem mörgum okkar kann að virðast nánast yfirnáttúrulegir. Þar má nefna töfrabrögð og sjónhverfingar allskonar og er með ólíkindum hvernig þessir “töframenn” framkvæma hlutina eins og um raunverulegan atburð sé að ræða. Auðvitað er þetta áhugavert og spennandi og gaman að velta þessu öllu fyrir sér.
Ég hef birt á blogginu hér, eitt myndband sem sýnir þetta og mun birta fleiri í framtíðinni, nema ég hreinlega “gufi upp” og bloggið líka
Það verður svo varla komist hjá því að minnast á hóp fólks, þó svo að ég fari ekki nánar út í það, að þessu sinni, en það er fólk sem hefur það að atvinnu að “hjálpa” okkur í þessum efnum en þar á ég við miðla og dáleiðara. Margoft hefur verið flett ofan af miðlum og var hinn frægi Harry Houdini góður í því. En það er einn einstakur hæfileiki sem miðlar hafa en hann er sá að vera ofurnæmir fyrir umhverfinu og fólki í kringum sig og vinna úr því. Þetta er hæfileiki sem nýst hefur lögreglu vel í samskiptum sínum við afbrotamenn og ekki er neitt nýtt að lögregla er með sérhæfða atferlisfræðinga sem setja sig inn í hugarheim afbrotamann.
Svo að ég víki nú að dáleiðslunni þá er það eitthvað sem er “áþreifanlegra”. Dáleiðsla kemur oft að gagni við að hjálpa fólki en kannski oftar til skemmtunar. Hér eru við að tala um að fá “undirmeðvitundina” upp á yfirborðið en það er einstaklingsbundið hve auðvelt það er.
Jæja, og ég sem ætlaði að tala um ísskápinn!
Þessa furðufrétt barði ég augum í fréttunum áðan og mætti helst ætla að orsökin stafaði af óskiljanlegum eða dulrænum toga, eins og ég hef minnst á að ofan.
Ég sem tæknimaður, get fullyrt að það sé ekki hægt að benda á ísskápinn sem sökudólg í þessu tilfelli. Þetta er ekki brandarablogg að þessu sinni!
Þó svo að það hefði orðið bilun í raf- eða vökvabúnaði gæti það ekki valdið umræddri sprengingu vegna þess að greinilegta sést á myndum að sprengingin kom úr matvælageymslu hans. Þar fyrir utan er allur búnaður undir og aftan á ísskápum og í rauninni ekkert inn í honum nema ljósaperan, hitaskynjari og hitastillir. Sem sagt, það var ljósaperan !!!
Nú langar mig að spyrja: Hvað var maðurinn með inni í ísskápnum ???
Ég var að frétta að Landlæknisembættið ætlaði að gera átak í að koma skikki á alla skráningu þungunartilfella hérlendis. Þetta er mjög þörf aðgerð og kemur eflaust í veg fyrir rangfeðrun og allskonar vesen sem getur hlotist af samræði fólks ekki síst við skyndikynni.
Undirrituðum hefur borist eintak af tilkynningu sem ber að fylla samviskusamlega út þegar við á. Þessi tilkynning er sniðin fyrir maka en önnur, sem ætluð er öðru áhugafólki um kynlíf, er í hönnun. Mælt er með því að fólk sýni ábyrgð og hafi tilkynningu þessa alltaf nærtæka t.d. í náttborðsskúffum og hanskahólfum bifreiða.
Lítill strákur kom morgun einn niður í morgunverð og spurði ömmu sína: “Hvar er mamma og pabbi?
Amman svaraði: “Þau eru ekki komin á fætur.”
Strákurinn fór að flissa og hélt síðan áfram að borða morgunmatinn.
Hann fór síðan út að leika sér.
Þegar hann kom í hádegismat spurði hann ömmu sína aftur: “Hvar er mamma og pabbi?”
Amman svaraði: “Þau eru enn ekki komin á fætur.”
Strákurinn fór aftur að flissa og hélt síðan áfram að borða hádegismatinn.
Hann fór síðan út að leika sér.
Í kvöldmatnum spurði hann ömmu sína enn og aftur: “Hvar er mamma og pabbi?”
Og amma hans svaraði sem fyrr: “Þau eru enn ekki komin á fætur.”
Strákurinn fór nú að skellihlæja og amma hans spurði hann: “Í hvert skipti sem ég segi þér að þau séu ekki komin á fætur, ferðu að hlæja! Hvað er svona fyndið?”
Strákurinn svaraði: “í gærkvöldi kom pabbi inn til mín og spurði mig um Vaselínið og ég rétti honum túbu með superlími.”
Hún: Hvað myndirðu gera ef ég yrði skyndilega bráðkvödd
Hann: Ég myndi syrgja þig mjög mikið
Hún: Hvað lengi?
Hann: Mjögt lengi!
Hún: Af hverju?
Hann: (Mjög alvarlegur á svipinn) Af því að ég elska þig mjög mikið og að missa þig yrði mjög sárt, þessvegna!
Hún: (með smábros á vörum) Æ – en sætt. – Mundirðu gifta þig aftur?
Hann: (svarar hiklaust) Nei.
Hún: (móðguð, „nei“ er nefnilega ekki alveg rétt svar, maður þarf að hugsa sig um og segja svo nei)
Af hverju ekki? Hefurðu almennt eitthvað á móti hjónaböndum?
Hann: Á engan hátt. Við erum gift ekki satt?
Hún: Þú meinar sem sagt að þú mundir gifta þig aftur?
Hann: (Skynjar að samtalið er á leið í ógöngur, ræskir sig lítilsháttar) Hmm, Þegar ég er búinn að syrgja þig lengi og lífið er að öðlast merkingu að nýju þá gæti það kannski hugsast.
Hún: Mundirðu sofa með henni í rúminu okkar?
Hann: Það gæti svo sem verið.
Hún: Mundirðu þá hafa mynd af henni á náttborðinu í staðinn fyrir mynd af mér?
Hann: Ætli ég myndi ekki bara hafa mynd af ykkur báðum.
Hún: Þú myndir þá væntanlega gera það með henni í rúminu okkar
Hann: (sýpur á kaffibollan greinilega hálfóstyrkur, samtalið er greinilega komið í verulegar ógöngur)
Það myndi líklega enda með því, já.
Hún: Mundirðu líka spila golf með henni?
Hann: Ja, það gæti svo sem alveg verið
Hún: Fengi hún þá að nota kylfurnar mínar?
Hann: Nei, Hún er örfhent.
Hún: ??????
ÚPS!
Blindur maður gekk inn á bar og sest við barborðið.
Hann gefur sig á tal við manninn sem sat við hliðina á honum og segir: “Heyrðu, viltu heyra ljóskubrandara?”
Maðurinn svarar honum og segir: “Kunningi, ég er ljóshærður. Maðurinn á bak við mig er 150 kílóa fjölbragðaglímumaður og hann er ljóshærður. Útkastarinn er ljóshærður. Og maðurinn sem situr hinu megin við þig er einnig ljóshærður. Hefur þú enn áhuga á að segja brandarann?”
Eftir smá þögn segir blindi maðurinn: “Ne, ég held ekki, ég nenni ekki að útskýra hann, fjórum sinnum.”
Konur hafa löngum verið þekktar fyrir það hve duglegar þær eru að spreða peningunum sínum í fín föt, skart og aðrar munaðarvörur.
Þær láta verðbólgu og slæmt gengi krónunnar ekkert á sig fá og spreða og spreða, skreppa út í verslunarferðir með vinkonunum, detta í hádegismat á fínum veitingarstöðum ofl ofl.
Eyðslugenið virðist blunda meðal þeirra allra og þrátt fyrir að fjárhagur leyfi það ekki þá er erfitt að ganga fram hjá fallegum stígvélunum út í búðarglugga án þess að eignast þau, sérstaklega þar sem nú er hægt að taka allt á raðgreiðslum.
Hér er aftur á móti ágætis tillögur sem gæti fengið dömurnar til að passa betur uppá seðlana sína.
Bóndi keypti nýjan Mercedes af E-gerðinni hjá umboðinu.
Verðið á aukabúnaðinum fór í taugarnar á honum. Fannst að fleira mætti vera innifalið sem staðalbúnaður.
Skömmu síðar kaupir forstjóri umboðsins hross hjá sama bónda, vegna frístunda-búskapar frúarinnar.
Bóndinn skrifar svohljóðandi reikning: Reikningur: 1 hestur (staðalútfærsla)grunnverðkr 240.000 Tvílitur (rauður/grár)extra kr43.000
Leðuráklæðikr38.000
Hlífðarhár vegna vetrarkulda kr3.000
Sjálfskipting 4 gangstig 80.000 hvertkr 320.000 Matic sítengt aldrifkr 117.000 Hemlalæsivörn með spólvörnkr61.000
Flugnafæla, semi automatickr4.000 Augu (fram)HALOGEN m. Augnlokumkr6.000
Vistvænt útblásturskerfi ( catalyst )krinnif. Fjölbrennslukerfi (Multiple fuel use possibility)kr63.000
Kostnaður vegna breytinga: Aðlögun stjórntölvu (Tamning + gelding)kr 188.000 Vetrar-/Torfæruhófar (+ negling og ásetning )kr14.000 INNLAGT:Hreðjar ( 2 eistu)kr -2.000 Samtals fyrir hestinn útbúinn skv. pöntunkr 1.095.000
Dr. Phil fékk 55 stig í þessu prófi.
Hann lagði prófið fyrir Oprah Winfrey, sem fékk 38 stig.
Margir borga offjár til að fá þessa greiningu.
Haltu áfram að lesa, því þetta er mjög athyglisvert (Verið samt ekki of viðkvæm fyrir þessu).
Á ca. 2 mínútum getur þú fengið furðu marktæka niðurstöðu.
Svörin eiga við þig eins og þú ert núna…. ekki hvern mann þú hafðir að geyma áður og fyrr.
Hafðu blað og blýant við hendina.
Þetta er alvöru próf, sem er verið að nota við mannauðsstjórnun hjá fjölda stórfyrirtækja.
Það gefur þeim sem þar um fjalla, innsýn í hugarheim starfsmanna og þeirra sem sækja um störf.
Þetta eru bara 10 einfaldar spurningar og þeim fylgja svör sem merkt eru bókstöfum.
Á blaðið þitt skráir þú bókstafinn sem þú velur hjá númeri viðeigandi spurningar. Þannig safnar þú saman svörunum þínum.
Byrjaðu á að tölusetja línurnar á blaðinu þínu frá 1 upp í 10 .
Nú hefst prófið.
1. Hvenær ertu í þínu besta formi?
a) á morgnana
b) eftir hádegi og snemma kvölds
c) síðla kvölds og fram á nótt
2. Yfirleitt gengur þú…
a) fremur hratt, og tekur stór skref
b) fremur hratt, en tekur stutt skref
c) ekki mjög hratt og berð höfuðið hátt
d) ekki mjög hratt og lýtur höfði
e) mjög hægt
3. Þegar þú talar við fólk…
a) stendur þú með krosslaga handleggi
b) spennir þú greipar
c) ertu með aðra hönd eða báðar hendur á mjöðmum eða í vösum
d) snertir þú viðmælandann eða ýtir við honum
e) fitlar þú við eyrað á þér, snertir hökuna eða strýkur á þér hárið
4. Í afslöppun, situr þú…
a) með bogin hné og fótleggi hlið við hlið
b) með krosslagða fætur
c) með beina fætur eða teygir þá frá þér
d) með annan fótinn hnipraðan undir þig
5. Þér finnst eitthvað fyndið eða þér er mikið skemmt og þú…
a) Hlærð, hátt og innilega
b) Hlærð, en ekki mjög hátt
c) Hlærð, niðurbælt og hljóðlega
d) Brosir feimnislega
6. Þegar þú kemur í veislu eða samkvæmi, þá…
a) kemurðu blaðskellandi, svo allir veiti þér eftirtekt
b) læturðu fara lítið fyrir þér og skimar eftir einhverjum sem þú þekkir
c) er markmið þitt ósýnileiki og þú lætur alls ekkert á þér bera
7. þegar þú ert að einbeita þér að einhverju eða leggja þig fram við vinnu, bregst þú við ónæði með…
a) því að fagna hléinu
b) mjög miklum pirringi
c) því að sveiflast milli þessara tveggja öfga
8. Hver eftirtalinna lita fellur þér best?
a) Rauður eða appelsínugulur
b) svartur
c) gulur eða ljósblár
d) grænn
e) dökkblár eða fjólublár
f) hvítur
g) brúnn eða grár
9. Það er kvöld og þú ert að fara að sofa. Síðustu andartökin áður en þú sofnar, liggur þú…
a) á bakinu og teygir úr þér
b) á grúfu og teygir úr þér
c) á hliðinni og í svolitlu hnipri
d) með höfuðið ofan öðrum handleggnum
e) með höfuðið undir sæng
10. Þig dreymir oft að þú sért að…
a) detta
b) basla eða erfiða
c) leita að einhverju eða einhverjum
d) fljúga eða fljóta
e) þegar þú sefur dreymir þig yfirleitt ekki
f) þig dreymir alltaf ljúfa drauma
Yfir 60 STIG: Þú birtist mörgum sem manneskja sem betra sé að gæta sín á. Hégómleg, upptekin af sjálfri sér og yfirþyrmandi. Aðrir dást að þér og langar að líkjast þér, en virðast hika. Þeim hættir til að treysta þér varlega og hika við að eiga of náin kynni við þig.
51 til 60 STIG:
Þú kemur fyrir sem spennandi, óútreiknanleg og fremur hvatvís manneskja - sjálfkjörinn leiðtogi sem tekur skjótar ákvarðanir, þótt ekki séu þær alltaf heppilegar. Talið er að þig skorti ekki kjarkinn, þú viljir prufa allt, takir áhættu og sért spennufíkill. Þeir sem sækjast eftir félagsskap við þig, hrífast af fjörinu og spennunni sem fylgir þér.
41 til 50 STIG: Fólki finnst þú sem ferskur andblær. Lífleg, heillandi, raunsæ og áhugaverð manneskja. Þótt athyglin beinist alltaf að þér, sértu samt í nægilega góðu jafnvægi til þess að það stígi þér ekki til höfuðs. Til viðbótar er talið að í þér búi velviljuð, tillitssöm og skilningsrík sál, sem sé uppörvandi og að þú sért alltaf til taks ef á þarf að halda.
31 til 40 STIG:
Skynsemi, varkárni og raunsæi eru einkennandi í fari þínu. Líka er talið að þú búir yfir gáfum og hæfileikum til munns og handa sem þú kunnir að nýta án þess að miklast af þeim. Þú gleypir ekki við hverjum sem er, en sért traust og vinaföst manneskja, sem væntir gagnkvæmrar tryggðar frá vinum sínum. Mikið þurfi að hafa gengið á áður en nokkur skuggi geti fallið tryggð þína. En bregðist vinur þér, sértu líka lengi að jafna þig á því.
21 til 30 STIG:
Vinir þínir tala um vandvirkni og smámunasemi og í þeirra augum ertu sem ofur varfærinn, gætinn og hægfara traustur jálkur. Ef eitthvað kæmi þeim á óvart, væru það skjót viðbrögð af þinni hálfu eða að þú gerðir eitthvað óyfirvegað í hita leiks. Fáir þú uppástungu, eiga þeir von á því að þú metir vandlega, alla möguleika frá öllum sjónarhornum og hafnir síðan alfarið því sem stungið var uppá. Líklegt er talið að viðbrögð þín megi að sumu leiti rekja til vandvirkninnar.
MINNA EN 21 STIG:
Fólk sér þig sem feimna, taugaveiklaða og óákveðna manneskju, sem þarf að gæta og vernda. Manneskju sem vill alltaf að einhver annar taki ákvarðanirnar, sem vill aldrei blanda sér í neitt eða tengjast neinum, er áhyggjufull, sér skrattann í hverju horni og er eilíft að óttast eitthvað sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Bara þeir sem þekkja þig vel, vita að þú ert ekkert leiðinleg manneskja.
Ef einhver er óánægður með íslenska vegi þá ættu þeir að skoða þessar myndir. Þessir eru slæmir og það meira að segja á verstfirskan mælikvarða. Það mætti kannski bora eitthvað þarna.
Eins og öllum, sem lesa þessar bloggsíður er kunnugt um, þá hefur það komið í ljós að eitthvað af nærbuxum Skandölu hefur verið stolið. Buxur þessar eru af mörgum árgerðum en þó eru sumar ansi gamlar en hafa mikið tilfinningalegt gildi fyrir hana. Einn mikilsvirtur bloggari (Blommi) hefur viðurkennt að hafa tekið sumar þeirra og bætir eflaust fyrir þetta brot sitt. Eitthvað magn er þó ekki komið í leitirnar og er þeirra nú ákaft leitað, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem sýnir Skandölu leita á vegfarendum.
Ég fór í siglingu um Miðjarðarhafið á skemmtiferðaskipi frá Princess.
Á besta stað í matsalnum, hjá stórkostlega “Titanic” stiganum, sat eldri kona gjarnan ein við borð. Ég veitti því athygli að yfirmenn, þjónar, léttadrengir - já eiginlega bara öll áhöfnin virtist þekkja hana.
Sennilega hefði mér ekki brugðið, þótt þjónninn minn hefði staðfest að hún ætti skipafélagið, en allt sem hann vissi var að hún hefði ferðast með skipinu fram og tilbaka, síðustu fjórar ferðinar.
Þegar ég var á leið úr matsalnum eitt kvöldið, vék ég mér að henni og við tókum spjall saman. “Mér skilst að þú sért búin að vera á skipinu síðustu fjórar ferðirnar” sagði ég. “Já, það er rétt” svaraði hún. “Það er ódýrara en elliheimilin”
Mér datt í hug að blessuð konan væri ekki með öllum mjalla og gerði því strax könnun á því sem hún sagði.
Ég komst að því að:
Daggjöld á öldrunarstofnun eru að meðaltali 200 dalir á dag.
Hjá Princess fengi ég bestu kjör fyrir að vera eldriborgari sem ferðast að staðaldri: Verðið er 135 dalir á dag = 65 dölum minna.
Niðurstaða mín er:
Mínar áætlanir gera ekki lengur ráð fyrir öldrunarheimili - vistheimili fyrir aldraða eða hvað þetta heitir.
Þegar ég verð gamall sest ég í helgan stein á Princess Cruise skipi.
Hér eru 9 góðar ástæður fyrir því:
Þakklætisvottur fyrir þjónustu (þjórfé) fer varla yfir $10 á dag.
Mér standa til boða allt að 10 máltíðir á dag ef ég get staulast að matborðinu. Ég gæti líka fengið hann sendan í káetuna, sem þýðir á mannamáli: morgunmatur í rúmið á hverjum degi.
Það eru sundlaugar á Princess skipunum - jafnvel þrjár, líkamsræktarsalir, ókeypis aðstaða til þvotta og þurrkunar og show eða listviðburðir á hverju kvöldi.
Maður greiðir hvorki fyrir tannkrem, rakvélar, sápu né shampoo.
Svo er maður viðskiptavinur en ekki sjúklingur. Allt starfsliðið mun svo leggja sig enn betur fram til að þjónusta mann fyrir örlítið meira örlæti (ca. fimm dala viðbót á þjórféð).
Maður fær stöðugt nýtt samferðarfólk jafnvel vikulega.
Bilað sjónvarp? Þarf að skipta um ljósaperu? Viltu láta skipta um dýnu í rúminu? Ekkert vandamál! Það er bara sjálfsagt og þú ert að auki beðinn afsökunar á óþægindunum.
Á hverjum degi er komið með ný handklæði og skipt á rúmunum.
Dettir þú og mjaðmargrindarbrotnir á elliheimili, ertu á vegum hins opinbera. Ef þú dettur og brýtur mjaðmargrindina á skipi frá Princess færðu viðhafnarbústað fyrirmenna til afnota út lífið.
Hér kemur svo það besta: Langar þig að sjá Suður Ameríku, Panamaskurðinn, Tahiti, Ástralíu, Nýja Sjáland eða Asíu - Nefndu bara hvert þú vilt fara - Princess er með ferðbúið skip!
Þú skalt ekki að leita mín á neinu elliheimili - “Láttu næstu strandstöð ná sambandi við skipið”.
P.S. Ef maður fellur frá, er hin vota gröf rétt handan borðstokksins.
Kona nokkur brjálaðist út í fyrrum atvinnurekanda sinn, en hún vann á veitingastað.
Hún heldur því fram að henni hafi verið lofað nýrri Toyota fyrir að vinna bjórsölukeppni, sem efnt var til af atvinnurekandanum, meðal starfsfólksins.
Þegar henni var sýndur vinnungurinn var bundið fyrir augu hennar og farið með hana út á bílastæði þar sem vinnungurinn beið. Þegar þangað var komið var bindið fjarlægt og vinnungurinn kom í ljós, alveg ný Toy-Yoda!
Hér er mynd af henni með nýju Toy-Yoda dúkkunni sinni.
Hún er ekkert sérlega ánægð með vinninginn, er það?
Ég hef birt hér tvö blogg um aflögun mannslíkamans.
Það læddist samt að mér (og fleiri) sá grunur að um fölsun væri að ræða, þar sem auðvelt er að falsa og breyta myndum með tölvuforritum t.d. Photoshop.
Ég hef fengið ábendingu frá bæði Jónu (Grámóru) og Lindu um að þetta sé ófalsað og rétt. Ég vil þakka þeim fyrir það.
Ég fór að kynna mér þetta betur og komst að ótrúlegum niðurstöðum.
Fyrst um fótaafbökunina:
Þessi hefð hefur verið viðhöfð í Kína í yfir 1000 ár, allt þar til hún var bönnuð um það bil árið 1950 af kommúnistum.
Fætur stúlkubarna voru vafin til að ná fram þessari lögun, allt frá fjögurra ára aldri til tólf ára aldurs. Fyrstu þrjú árin voru mjög sársaukafull fyrir stúlkurnar eða þar til tærnar brotnuðu og voru þær þá beygðar undir ilina. Flestar stúlknanna gátuð þá gengið án teljandi sársauka.
Tilgangur þessa alls var að gera stúlkurnar kynþokkafyllri og jók til muna líkur þeirra á að giftast mönnum í góðum stöðum, en í þeirra augum vó þessi þáttur þyngst.
Meira um þetta hér: http://www.ccds.charlotte.nc.us/History/China/04/hutchins/hutchins.htm
Varðandi ”mittiskonuna”:
Ég fann viðtal við Cathie Jung, í þættinum “This morning”, einnig er hún með heimasíðu þar sem t.d. má sjá vídeó og þar kemur einnig fram að hún er skráð í heimsmetabók Guinnes.
Slóðin er: http://www.cathiejung.com/
En myndbandið úr sjónvarpsþættinum: This Morning, er hér:
Að hugsa sér að báðar þessar “aðgerðir” skulu hafa verið gerðar til þass að gera konur meira aðlaðandi og kynþokkafyllri.
Virkar allavega þveröfugt á mig. Þvílíkur viðbjóður!
Þegar ég hætti að vinna gat ég vart beðið þeirrar stundar að geta snúið mér alfarið að áhugamáli mínu sem eru veiðar. Ég keypti mér lítinn kvótalausan fiskibát og reyndi að fá konu mína með mér en hún hafði bara engan áhuga fyrir fiskveiðum.
Dag einn þegar ég var að gera mig kláran fyrir veiðiferð hitti ég Siggu sem einnig hefur mjög mikinn áhuga á veiðum. Við urðum fljótlega bestu vinir og við fórum oft út að veiða saman.
Eins og ég sagði þá vildi konan mín alls ekki koma með okkur, þó ég byði henni það, og sagði að ég eyddi olltof miklum tíma í þetta áhugamál mitt.
Fyrir nokkrum vikum fórum við Sigga í okkar besta veiðitúr til þessa, ég veiddi þann stærsta og fallegasta fisk sem ég hef augum litið og til að gera daginn fulkominn veiddi Sigga tvíburabróðir hans.
Ég tók að sjálfsögðu mynd af Siggu með þessa gullfallegu fiska sem við veiddum og sýndi konunni myndina í von um að hún fengi áhuga á þessu sporti.
Í stað þess að fá áhuga á þessu yndislega sporti, brást hún hin versta við og bannaði mér að stunda þetta áhugamál framar og ekki nóg með það, hún heimtaði að ég seldi bátinn hið snarasta.
Ég býst við að henni líki bara alls ekki að ég skuli eiga þessar góðu stundir.Hvað get ég gert?
Segja konunni að gleyma þessu og halda áfram að stunda áhugamálið eða hætta veiðunum og selja bátinn, eins og hún vill
Með von um skjót svör,
Gylfi
———————
Kæri Gylfi,
Losaðu þig strax við þessa þröngsýnu konu.
p.s. Þetta eru fallegustu fiskar sem ég hef séð!
Jón og Jóna eru að halda upp á 50 ára brúðkaupsafmæli sitt. Jón segir við Jónu. “Hefurðu nokkurn tíma haldið fram hjá mér?” Jóna svarar: “Jón! Hvers vegna ertu að spyrja svona spurningar núna”? “Jú, Jóna, ég verð að vita það,” svarar Jón. Jóna segir: “Allt í lagi, ég hef haldið þrisvar fram hjá þér.”“Þrisvar, hvenær var það?” spyr Jón.
Jóna segir: “Manstu Jón þegar þú varðst 25 ára og vildir stofna fyrirtækið og bankastjórinn neitaði þér um lán? Svo kom bankastjórinn sjálfur einn daginn með lánspappírana svo þú gætir skrifað undir.” Jón svarar: “Ó, Jóna, þú gerðir þetta fyrir mig, ég virði þig bara meira en áður. Hvenær var svo annað skiptið?”
Jóna segir: “Manstu þegar þú fékkst hjartaáfallið og enginn læknir vildi skera þig vegna þess að aðgerðin var svo hættuleg? Svo kom allt í einu dr. Bjarni yfirlæknir og framkvæmdi aðgerðina sjálfur og þú náðir þér alveg.”
“Ég trúi þessu ekki,” sagði Jón, “þú gerðir þetta til að bjarga lífi mínu. Ég gæti ekki átt betri konu. Þú hlýtur að elska mig mjög mikið fyrst þú gerir allt þetta fyrir mig. Hvenær var svo þriðja og síðasta skiptið?”
“Jón, þú manst að fyrir nokkrum árum langaði þig til að verða formaður í golfklúbbnum og þig vantaði 18 atkvæði til að ná kjöri..?”