Gylfi

Meðlæti í mótlætinu.

  • Dagatal

    apríl 2008
    S M Þ M F F L
    « mar   maí »
     12345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    27282930  
  • Heimsóknir

    Í dag: 105 Alls: 206433

  • Flettingar

    Í dag: 282 Alls: 870626

  • Vísa vikunnar

    Nú er liðið nokkurt fár......... níddri þjóð til ama.............. nú er komið annað ár.......... og allt er við það sama.......
  • Geðorðin 10

    ● 1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara ● 2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um ● 3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir ● 4. Lærðu af mistökum þínum ● 5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina ● 6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu ● 7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig ● 8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup ● 9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína ● 10. Setttu þér markmið og láttu drauma þína rætast
  • Gullmolar

    ● Þér líður eins og þú hugsar. ● Ánægja gerir fátækan mann ríkan, óánægja gerir ríkan mann fátækan. ● Það er engin leið að hamingjunni - hamingjan er leiðin. ● Taktu það með þér úr fortíðinni sem þú getur lært af. Gerðu hitt upp og skildu það eftir. ● Þú getur ekki bætt árum við líf þitt. Þú getur hins vegar bætt lífi við árin þín. ● Betri er kona í rúmi en köttur úti á túni. ● Bekkur án kvenna er eins og höfuð án verkja. ● Of mikið af húsverkum geta valdið heilaskaða. ● Auðvelt er að komast hjá gagnrýni með því að segja ekkert, gera ekkert og vera ekkert.

Færslur apríl 3rd, 2008

Óviðjafnanleg kyngeta.

Fært af Gylfi þann 3. apríl 2008

 

Hjón fóru á nautgripasýningu og skoðuðu meðal annars naut til undaneldis.

Hjá fyrsta nautinu var þessi áletrun: Þessi boli gagnaðist 50 sinnum á síðasta ári.
Þá klípur konan í síðuna á manni sínum og segir: “Sérðu þetta, 50 sinnum á ári!“

Þau gengu að næsta nauti og þar stóð: Þessi boli gagnaðist 120 sinnum á síðasta ári!
Þá gefur konan manni sínum óþægilega fast olnbogaskot og segir:
“Sérðu þetta, meira en tvisvar á viku! Þú getur lært eitthvað af þessum!“

Hjá þriðja nautinu stóð með stórum stöfum:
ÞETTA NAUT GAGNAÐIST 365 SINNUM Á SÍÐASTA ÁRI!
Nú nánast brýtur konan á sér olnbogann á rifbeinum mannsins: “Það er bara á hverjum einasta degi segir konan! Þú ættir að taka þér þennan til fyrirmyndar!“

Þá lítur maðurinn á konu sína og segir:
“Spurðu hann, hvort þetta hafi alltaf verið sama beljan!“

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »

Dýrt símtal - fyrir einhvern.

Fært af Gylfi þann 3. apríl 2008

  

Ég er byrjaður í ræktinni. Ég fór í fyrsta sinn í dag. Þegar ég var búinn í sturtunni hringdi GSM síminn. Ég svaraði símanum. “Halló” “Hæ, ástin mín þetta er ég. Ertu enn í ræktinni.” “Já ég var að koma úr sturtunni.” Allt í lagi, ég ætla ekki að trufla þig lengi. Ég er niðri í bæ. Mig langaði bara að spyrja þig hvort ég mætti kaupa pelsinn sem ég sýndi þér um daginn. Hann kostar ekki nema 450.000,-” “Jæja ástin mín, fyrst þér líkar hann svona vel skaltu bara kaupa hann” “Æi krúttið mitt þú ert svo góður við mig. Ég set hann þá á kortið. Heyrðu og svo var það þetta með bílinn, ætlarðu að koma við og skoða bílinn sem við vorum að spá í.” “Æi nei, nú vil ég að þú farir og gangir frá kaupum á nýjum bíl. Ég hugsa meira að segja að við ættum að leyfa okkur að kaupa nýjan Porsche frá Bílabúð Benna. Komdu mér á óvart og vertu búin að ganga frá því þegar ég kem heim, og hafðu hann með öflugum aukahlutum.” “Ohh ástin mín þetta er aldeilis ólíkt þér. Þú sem ert alltaf að leggja áherslu á að spara, en ég geri þetta. Heyrðu fyrst þú ert í svona miklu stuði. Ég sá að húsið sem okkur langaði svo í á Arnarnesinu er enn til sölu. Það eru settar á það 45 milljónir. Ættum við kannski bara að slá þessu upp í kæruleysi og kaupa það.” “Æi hjartað mitt, ég hef ekki tíma í það, getur þú gengið frá því. Við þyrftum reyndar að taka 100% lán fyrir því en það er nú í góðu lagi. Bjóddu 42 milljónir og vittu hvað kemur út úr því.” “Ohhhh spennó, ég er alveg viss um að við fáum húsið, það er búið að vera svo lengi á sölu. Sjáumst svo í kvöld ástin mín. Bless” “Bless”, sagði ég og lagði á.
Að þessu loknu ákvað ég að hegða mér heiðarlega, veifaði símanum og spurði viðstadda,
“Á einhver ykkar þennan síma.”

Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Sannar lygasögur, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Einkamál.is

Fært af Gylfi þann 3. apríl 2008

hjarta.jpg

Lýsing tekin af einkamál.is:  

Sælir, ég er hér til að spjalla við hressa og myndarlega menn, er aðallega í vinir og spjall ! Svo ekki senda mér pósta um skyndikynni og bdsm. Að þú sért opin og hreinskilinn er eina skilyrðið sem ég set, hef lítið gaman af samræðum við sjálfa mig :D

Ég er rétt að kíkka hér við, stoppa stutt, þessi vefur hræðir mig :D
ég reyki, drekk ekki, og á barn. Er einhver þarna á sama róli til í spjall?

Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning