Gylfi

Meðlæti í mótlætinu.

  • Dagatal

    apríl 2008
    S M Þ M F F L
    « mar   maí »
     12345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    27282930  
  • Heimsóknir

    Í dag: 114 Alls: 205188

  • Flettingar

    Í dag: 327 Alls: 867321

  • Vísa vikunnar

    Nú er liðið nokkurt fár......... níddri þjóð til ama.............. nú er komið annað ár.......... og allt er við það sama.......
  • Geðorðin 10

    ● 1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara ● 2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um ● 3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir ● 4. Lærðu af mistökum þínum ● 5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina ● 6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu ● 7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig ● 8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup ● 9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína ● 10. Setttu þér markmið og láttu drauma þína rætast
  • Gullmolar

    ● Þér líður eins og þú hugsar. ● Ánægja gerir fátækan mann ríkan, óánægja gerir ríkan mann fátækan. ● Það er engin leið að hamingjunni - hamingjan er leiðin. ● Taktu það með þér úr fortíðinni sem þú getur lært af. Gerðu hitt upp og skildu það eftir. ● Þú getur ekki bætt árum við líf þitt. Þú getur hins vegar bætt lífi við árin þín. ● Betri er kona í rúmi en köttur úti á túni. ● Bekkur án kvenna er eins og höfuð án verkja. ● Of mikið af húsverkum geta valdið heilaskaða. ● Auðvelt er að komast hjá gagnrýni með því að segja ekkert, gera ekkert og vera ekkert.

Færslur apríl 11th, 2008

Megrun fyrir fullhrausta karlmenn, eingöngu!

Fært af Gylfi þann 11. apríl 2008

 

Maður hringir í fyrirtæki og pantar hjá þeim “misstu 5 kg á 5 dögum” pakkann. Daginn eftir er barið á dyrnar hjá honum og fyrir utan stendur íturvaxin 19 ára snót í engu nema Nike hlaupaskóm. Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur “Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig”.

Hann lætur ekki segja sér það tvisvar og stekkur á eftir henni. Eftir nokkra kílómetra er hann orðinn móður og másandi og gefst upp. Sama stúlkan mætir á þröskuldinn hjá honum næstu 4 dagana og það sama gerist í hvert skipti. Á fimmta degi vigtar félaginn sig, og viti menn, hann hefur misst 5 kg.

Hæstánægður með árangurinn hringir maðurinn aftur í fyrirtækið og pantar hjá þeim “misstu 10kg á 5 dögum” pakkann.

Næsta dag er bankað á dyrnar og fyrir utan stendur einhver sú fallegasta og kynþokkafyllsta kona sem hann hefur á ævinni séð. Hún er eingöngu klædd í Reebok hlaupaskó. Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur “Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig”.

Eins og elding tekur hann á rás á eftir skvísunni. Hún er auðvitað í fantaformi og þó hann reyni sitt besta nær hann henni ekki. Næstu fjóra daga heldur þessi rútína áfram og hann kemst smám saman í betra form. Á fimmta degi vigtar hann sig og sér til ómældrar gleði hefur hann misst 10 kg.

Hann ákveður að leggja allt í sölurnar og hringir og pantar “misstu 25 kg á
7 dögum” pakkann. “Ertu alveg viss?”spyr sölumaðurinn ” Þetta er erfiðasta prógrammið okkar”
“Ekki spurning” svarar félaginn, “mér hefur ekki liðið svona vel í mörg ár”.

Daginn eftir er barið á dyrnar, og þegar hann opnar stendur risastór, helmassaður karlmaður fyrir utan í engu nema bleikum hlaupaskóm. Um hálsinn á honum hangir skilti sem á stendur “Ef ég næ þér, er rassinn á þér MINN!”

Félaginn missti 32 kg í þeirri viku.

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »

Ljóskan sem fór á hárgreiðslustofuna.

Fært af Gylfi þann 11. apríl 2008

 

Ljóskan fór á hárgreiðslustofu og sagði hárgreiðsludömunni (rauðhærðri) að hún mætti alls ekki taka iPod eyrnatólin úr eyrunum á henni, alls ekki ,…  endurtók hún.

Þessar ljóskur, hugsaði hárgreiðsludaman og fór að klippa hana. Hún var náttúrulega í sífelldum vandræðum með að komast að hárinu fyrir snúrunum ….  svo á endanum ákvað hún bara að taka eyrnatólin af henni og sjá hvað hún gerði.

Hún hélt áfram að klippa,… en viti menn ljóskan fer að roðna öll í framan og svo verður hún öll blá og fellur að lokum meðvitundarlaus á gólfið.

Hárgreiðsludaman skildi ekkert í þessu og var auðvitað brugðið, en ákvað þó að vita hvað hún hefði verið að hlusta á svo hún smellti á sig eyrnatólunum: “anda inn”,… ” anda út”,… “anda inn”,… “anda út”..

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »

Eru sumir svona ýkt vitgrannir?

Fært af Gylfi þann 11. apríl 2008

 sannleikur.jpg

Leiðbeiningar aftan á þekktri “meik” tegund:
“Do not use on children under 6 months old.”
(auðvitað byrjar maður ekki að mála börnin sín fyrr en þau eru orðin 7 mánaða!!!)

Leiðbeiningar á Sears hárblásurum:
“Do not use while sleeping”
(Einmitt þegar mér finnst skemmtilegast að dúlla í hárinu á mér)

Þetta stóð á umbúðum utan af Dial sápu:
“Use like regular soap”
(Og hvernig á aftur að nota svoleiðis?)

Á umbúðum af SWANN frystimat:
“Serving suggestion: Defrost”
(Mundu samt…þetta er bara uppástunga)

Hótel lét baðhettu í boxi fylgja með hverju herbergi, og á boxinu stóð:
“Fits one head.”
(Sérðu ekki fyrir þér…einhverja tvo vitleysinga… með eina baðhettu…)

Á botninum af Tiramisu dessertinum frá Tesco stendur:
“Do not turn upside down.”
(Úps, of seinn)

Þetta stendur á búðing frá Marks & Spencer:
“Product will be hot after heating.”
(Það er nefnilega það)

Á pakkningum af Rowenta straujárni:
“Do not iron clothes on body.”
(En myndi það nú ekki spara mikinn tíma!)

Á hóstameðali fyrir börn frá Boots:
“Do not drive car or operate machinery”
(Þannig að Gunni litli fær ekkert að leika sér á lyftaranum þegar hann kemur heim)

Á flösku af “Nytol sleep aid” má sjá þetta:
“Warning: may cause drowsiness”
(Maður skyldi nú rétt vona það!)

Hnífasett frá Kóreu var merkt þannig:
“Warning keep OUT OF children”
(okí dókí!!!)

Jólasería frá Kína var merkt á eftirfarandi hátt:
“For indoor or outdoor use only”
(En ekki hvar…???)

Matarvinnsluvél frá Japan var merkt svona:
“Not to be used for the other use.”
(Ok…núna er ég orðinn mjög forvitin)

Hnetupoki frá Sainsburys: “Warning:contains nuts”
(Jamm… ég fer mjög varlega)

Á poka af hnetum frá Amerísku flugfélagi stóð þetta:
“Instructions: open packet, eat nuts”
(Imbafrítt eða hvað?)

Leiðbeiningar sem voru á miða með blá, hvít og rauðköflóttri skyrtu segir:
“Munið að þvo liti aðskilda”
(Ehhh…já…áttu nokkuð skæri)

Leiðbeiningar á ónefndri örbylgju popp tegund segir manni að “taka plastið af áður en sett er í örbylgju”
Málið er, að til að geta lesið leiðbeingarnar verður þú að vera búinn að taka plastið af og fletta pokanum í sundur…

Framan á kassa af “Töfradóti” fyrir krakka, er mynd af strák sem er klæddur eins og töframaður. Aftan á kassanum stendur:
“Notice, little boy not included”
(Ohhhhh…….ég sem var farin að hlakka svo til að eignast vin)

Ég keypti svona kisunammi fyrir köttinn minn. Á pokanum stendur “new and improved shapes”
(Aaaa…einmitt það sem kötturinn minn er búinn að vera að nöldra út af)

Lítill miði var festur á “Superman” búning, á honum stóð:
“Warning: This cape will not make you fly”
(Núúúúú…þá kaupi ég hann ekki)

Á keðjusögum stendur oft viðvörunin “Do NOT touch the rotating chain”
(Er það ekki nú nokkuð ljóst..haaaa??)

Eitt sem ég skil ekki “Waterproof” maskarar…á þeim stendur:
“Washes off easily with water”
(Hmmm…hver er þá tilgangurinn?)

Fært undir Alþjóðamál, Bull og vitleysa, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Sannar lygasögur, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning