Gylfi

Meðlæti í mótlætinu.

  • Dagatal

    apríl 2008
    S M Þ M F F L
    « mar   maí »
     12345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    27282930  
  • Heimsóknir

    Í dag: 123 Alls: 200138

  • Flettingar

    Í dag: 523 Alls: 840064

  • Vísa vikunnar

    Nú er liðið nokkurt fár......... níddri þjóð til ama.............. nú er komið annað ár.......... og allt er við það sama.......
  • Geðorðin 10

    ● 1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara ● 2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um ● 3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir ● 4. Lærðu af mistökum þínum ● 5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina ● 6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu ● 7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig ● 8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup ● 9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína ● 10. Setttu þér markmið og láttu drauma þína rætast
  • Gullmolar

    ● Þér líður eins og þú hugsar. ● Ánægja gerir fátækan mann ríkan, óánægja gerir ríkan mann fátækan. ● Það er engin leið að hamingjunni - hamingjan er leiðin. ● Taktu það með þér úr fortíðinni sem þú getur lært af. Gerðu hitt upp og skildu það eftir. ● Þú getur ekki bætt árum við líf þitt. Þú getur hins vegar bætt lífi við árin þín. ● Betri er kona í rúmi en köttur úti á túni. ● Bekkur án kvenna er eins og höfuð án verkja. ● Of mikið af húsverkum geta valdið heilaskaða. ● Auðvelt er að komast hjá gagnrýni með því að segja ekkert, gera ekkert og vera ekkert.

Persónuleikapróf dr. Phil.

Gylfi 19. apríl 2008

 phil.jpg

Dr. Phil fékk 55 stig í þessu prófi.
Hann lagði prófið fyrir Oprah Winfrey, sem fékk 38 stig.

Margir borga offjár til að fá þessa greiningu.

Haltu áfram að lesa, því þetta er mjög athyglisvert (Verið samt ekki of viðkvæm fyrir þessu).

Á ca. 2 mínútum getur þú fengið furðu marktæka niðurstöðu.

Svörin eiga við þig eins og þú ert núna…. ekki hvern mann þú hafðir að geyma áður og fyrr.

Hafðu blað og blýant við hendina.

Þetta er alvöru próf, sem er verið að nota við mannauðsstjórnun hjá fjölda stórfyrirtækja.
Það gefur þeim sem þar um fjalla, innsýn í hugarheim starfsmanna og þeirra sem sækja um störf.

Þetta eru bara 10 einfaldar spurningar og  þeim fylgja svör sem merkt eru bókstöfum.  

Á blaðið þitt skráir þú bókstafinn sem þú velur hjá númeri viðeigandi spurningar. Þannig safnar þú saman svörunum þínum.

Byrjaðu á að tölusetja línurnar á blaðinu þínu frá 1 upp í 10 .

Nú hefst prófið.

1. Hvenær ertu í þínu besta formi?
a) á morgnana
b) eftir hádegi og snemma kvölds
c) síðla kvölds og fram á nótt

2. Yfirleitt gengur þú…
a) fremur hratt, og tekur stór skref
b) fremur hratt, en tekur stutt skref
c) ekki mjög hratt og berð höfuðið hátt
d) ekki mjög hratt og lýtur höfði
e) mjög hægt

3. Þegar þú talar við fólk…
a) stendur þú með krosslaga handleggi
b) spennir þú greipar
c) ertu með aðra hönd eða báðar hendur á mjöðmum eða í vösum
d) snertir þú viðmælandann eða ýtir við honum
e) fitlar þú við eyrað á þér, snertir hökuna eða strýkur á þér hárið

4. Í afslöppun, situr þú…
a) með bogin hné og fótleggi hlið við hlið
b) með krosslagða fætur
c) með beina fætur eða teygir þá frá þér
d) með annan fótinn hnipraðan undir þig

5. Þér finnst eitthvað fyndið eða þér er mikið skemmt og þú…
a) Hlærð, hátt og innilega
b) Hlærð, en ekki mjög hátt
c) Hlærð, niðurbælt og hljóðlega
d) Brosir feimnislega

6. Þegar þú kemur í veislu eða samkvæmi, þá…
a) kemurðu blaðskellandi, svo allir veiti þér eftirtekt
b) læturðu fara lítið fyrir þér og skimar eftir einhverjum sem þú þekkir
c) er markmið þitt ósýnileiki og þú lætur alls ekkert á þér bera

7. þegar þú ert að einbeita þér að einhverju eða leggja þig fram við vinnu, bregst þú við ónæði með…
a) því að fagna hléinu
b) mjög miklum pirringi
c) því að sveiflast milli þessara tveggja öfga

8. Hver eftirtalinna lita fellur þér best?
a) Rauður eða appelsínugulur
b) svartur
c) gulur eða ljósblár
d) grænn
e) dökkblár eða fjólublár
f) hvítur
g) brúnn eða grár

9. Það er kvöld og þú ert að fara að sofa. Síðustu andartökin áður en þú sofnar, liggur þú…
a) á bakinu og teygir úr þér
b) á grúfu og teygir úr þér
c) á hliðinni og í svolitlu hnipri
d) með höfuðið ofan öðrum handleggnum
e) með höfuðið undir sæng

10. Þig dreymir oft að þú sért að…
a) detta
b) basla eða erfiða
c) leita að einhverju eða einhverjum
d) fljúga eða fljóta
e) þegar þú sefur dreymir þig yfirleitt ekki
f) þig dreymir alltaf ljúfa drauma

STIG:
1.  (a) 2   (b) 4   (c) 6
2.  (a) 6   (b) 4   (c) 7   (d) 2   (e) 1
3.  (a) 4   (b) 2   (c) 5   (d) 7   (e) 6
4.  (a) 4   (b) 6   (c) 2   (d) 1
5.  (a) 6   (b) 4   (c) 3   (d) 5   (e) 2
6.  (a) 6   (b) 4   (c) 2
7.  (a) 6   (b) 2   (c) 4
8.  (a) 6   (b) 7   (c) 5   (d) 4   (e) 3   (f) 2   (g) 1
9.  (a) 7   (b) 6   (c) 4   (d) 2   (e) 1
10.(a) 4   (b) 2   (c) 3   (d) 5   (e) 6   (f) 1

Jæja, nú skaltu telja saman stigin þín.

Yfir 60 STIG:
Þú birtist mörgum sem manneskja sem betra sé að gæta sín á. Hégómleg, upptekin af sjálfri sér og yfirþyrmandi. Aðrir dást að þér og langar að líkjast þér, en virðast hika. Þeim hættir til að treysta þér varlega og hika við að eiga of náin kynni við þig.

51 til 60 STIG:
Þú kemur fyrir sem spennandi, óútreiknanleg og fremur hvatvís manneskja - sjálfkjörinn leiðtogi sem tekur skjótar ákvarðanir, þótt ekki séu þær alltaf heppilegar. Talið er að þig skorti ekki kjarkinn, þú viljir prufa allt, takir áhættu og sért spennufíkill. Þeir sem sækjast eftir félagsskap við þig, hrífast af fjörinu og spennunni sem fylgir þér.

41 til 50 STIG:
Fólki finnst þú sem ferskur andblær. Lífleg, heillandi, raunsæ og áhugaverð manneskja. Þótt athyglin beinist alltaf að þér, sértu samt í nægilega góðu jafnvægi til þess að það stígi þér ekki til höfuðs. Til viðbótar er talið að í þér búi velviljuð, tillitssöm og skilningsrík sál, sem sé uppörvandi og að þú sért alltaf til taks ef á þarf að halda.

31 til 40 STIG:
Skynsemi, varkárni og raunsæi eru einkennandi í fari þínu. Líka er talið að þú búir yfir gáfum og hæfileikum til munns og handa sem þú kunnir að nýta án þess að miklast af þeim. Þú gleypir ekki við hverjum sem er, en sért traust og vinaföst manneskja, sem væntir gagnkvæmrar tryggðar frá vinum sínum. Mikið þurfi að hafa gengið á áður en nokkur skuggi geti fallið tryggð þína. En bregðist vinur þér, sértu líka lengi að jafna þig á því.

21 til 30 STIG:
Vinir þínir tala um vandvirkni og smámunasemi og í þeirra augum ertu sem ofur varfærinn, gætinn og hægfara traustur jálkur. Ef eitthvað kæmi þeim á óvart, væru það skjót viðbrögð af þinni hálfu eða að þú gerðir eitthvað óyfirvegað í hita leiks. Fáir þú uppástungu, eiga þeir von á því að þú metir vandlega, alla möguleika frá öllum sjónarhornum og hafnir síðan alfarið því sem stungið var uppá. Líklegt er talið að viðbrögð þín megi að sumu leiti rekja til vandvirkninnar.

MINNA EN 21 STIG:
Fólk sér þig sem feimna, taugaveiklaða og óákveðna manneskju, sem þarf að gæta og vernda. Manneskju sem vill alltaf að einhver annar taki ákvarðanirnar, sem vill aldrei blanda sér í neitt eða tengjast neinum, er áhyggjufull, sér skrattann í hverju horni og er eilíft að óttast eitthvað sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Bara þeir sem þekkja þig vel, vita að þú ert ekkert leiðinleg manneskja.

6 ummæli um “Persónuleikapróf dr. Phil.”

  1. Skúli ritaði:

    Hvaða skori eru vinnuveitendur að leita eftir?

  2. Gylfi ritaði:

    Blessaður Skúli,
    Ég hef ekki kynnt mér það hjá doktornum en persónulega finnst mér æskilegasta lýsingin vera fyrir þá sem hljóta 41 til 50 stig.
    Sjálfur er ég á mörkunum með 40 stig eða í sama flokki og vinkona mín Oprah :-)
    Kveðja,
    Gylfi

  3. brussulina ritaði:

    Hummmmmm ég fékk 44 stig. Líklega á ég bara að vera sátt við það .

  4. Gylfi ritaði:

    Brussulína, þú ættir að vera mjög ánægð með þennan stigafjölda sem sýnir að þú ert alger topp manneskja sem getur farið í hvaða starf sem er, að ég tali nú ekki um hverskonar happafengur það yrði fyrir þann, sem yrði þeirra gæfu aðnjótandi að fá þig fyrir konu.
    Kveðja,
    Gylfi

  5. Kjóns ritaði:

    Hmmm?

    Er í smá vanda með síðustu spurninguna, dreymir sjaldan en ef mig dreymir þá eru það ljúfir draumar. Svo það er þá á bilinu 38 ef ég vel það að dreyma yfirleitt ekki eða 43 ef ég vel ljúfu draumana. Hef svosem ekki áhyggjur báðir flokkarnir eru ágætir!

    Finnst samt 31-40 lýsa mér betur.

  6. Gylfi ritaði:

    Sæll KJóns.
    Við erum í sömu stöðu.
    Það er auðveld lausn á þessu. Gerðu bara eins og ég og notaðu það besta úr báðum flokkum :-)
    Kveðja,
    dr. Gylfi

Rita ummæli

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning