Færslur apríl 21st, 2008
Fært af Gylfi þann 21. apríl 2008

Ósköp venjulegt samtal við morgunverðarborðið:
Hún: Hvað myndirðu gera ef ég yrði skyndilega bráðkvödd
Hann: Ég myndi syrgja þig mjög mikið
Hún: Hvað lengi?
Hann: Mjögt lengi!
Hún: Af hverju?
Hann: (Mjög alvarlegur á svipinn) Af því að ég elska þig mjög mikið og að missa þig yrði mjög sárt, þessvegna!
Hún: (með smábros á vörum) Æ – en sætt. – Mundirðu gifta þig aftur?
Hann: (svarar hiklaust) Nei.
Hún: (móðguð, „nei“ er nefnilega ekki alveg rétt svar, maður þarf að hugsa sig um og segja svo nei)
Af hverju ekki? Hefurðu almennt eitthvað á móti hjónaböndum?
Hann: Á engan hátt. Við erum gift ekki satt?
Hún: Þú meinar sem sagt að þú mundir gifta þig aftur?
Hann: (Skynjar að samtalið er á leið í ógöngur, ræskir sig lítilsháttar) Hmm, Þegar ég er búinn að syrgja þig lengi og lífið er að öðlast merkingu að nýju þá gæti það kannski hugsast.
Hún: Mundirðu sofa með henni í rúminu okkar?
Hann: Það gæti svo sem verið.
Hún: Mundirðu þá hafa mynd af henni á náttborðinu í staðinn fyrir mynd af mér?
Hann: Ætli ég myndi ekki bara hafa mynd af ykkur báðum.
Hún: Þú myndir þá væntanlega gera það með henni í rúminu okkar
Hann: (sýpur á kaffibollan greinilega hálfóstyrkur, samtalið er greinilega komið í verulegar ógöngur)
Það myndi líklega enda með því, já.
Hún: Mundirðu líka spila golf með henni?
Hann: Ja, það gæti svo sem alveg verið
Hún: Fengi hún þá að nota kylfurnar mínar?
Hann: Nei, Hún er örfhent.
Hún: ??????
ÚPS!

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 2 ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. apríl 2008

Blindur maður gekk inn á bar og sest við barborðið.
Hann gefur sig á tal við manninn sem sat við hliðina á honum og segir: “Heyrðu, viltu heyra ljóskubrandara?”
Maðurinn svarar honum og segir: “Kunningi, ég er ljóshærður. Maðurinn á bak við mig er 150 kílóa fjölbragðaglímumaður og hann er ljóshærður. Útkastarinn er ljóshærður. Og maðurinn sem situr hinu megin við þig er einnig ljóshærður. Hefur þú enn áhuga á að segja brandarann?”
Eftir smá þögn segir blindi maðurinn: “Ne, ég held ekki, ég nenni ekki að útskýra hann, fjórum sinnum.”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Sannar lygasögur, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. apríl 2008
Gripið hefur um sig mikið æði meðal katta í Borginni en svo virðist vera að þeir hafi uppgötvað og “fíli” allskonar tónlist alveg í botn.
Þessi er í rapp og hip hop:

Þessi er allur í þungarokkinu:

Þessi er meira fyrir rólegri músik eins og t.d. Gospel:

Þessi kunni best við Jazz:

Þessir eru brjálaðir í rokkinu:

Það er ekki vitað hvað þessi var að hlusta á, það náðist ekkert samband við hann:

Kannski meindýraeyðir hafi einhverja skýringu á þessu.

Fært undir Alþjóðamál, Bull og vitleysa, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. apríl 2008

Konur hafa löngum verið þekktar fyrir það hve duglegar þær eru að spreða peningunum sínum í fín föt, skart og aðrar munaðarvörur.
Þær láta verðbólgu og slæmt gengi krónunnar ekkert á sig fá og spreða og spreða, skreppa út í verslunarferðir með vinkonunum, detta í hádegismat á fínum veitingarstöðum ofl ofl.
Eyðslugenið virðist blunda meðal þeirra allra og þrátt fyrir að fjárhagur leyfi það ekki þá er erfitt að ganga fram hjá fallegum stígvélunum út í búðarglugga án þess að eignast þau, sérstaklega þar sem nú er hægt að taka allt á raðgreiðslum.
Hér er aftur á móti ágætis tillögur sem gæti fengið dömurnar til að passa betur uppá seðlana sína.



Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. apríl 2008

Bóndi keypti nýjan Mercedes af E-gerðinni hjá umboðinu.
Verðið á aukabúnaðinum fór í taugarnar á honum. Fannst að fleira mætti vera innifalið sem staðalbúnaður.
Skömmu síðar kaupir forstjóri umboðsins hross hjá sama bónda, vegna frístunda-búskapar frúarinnar.
Bóndinn skrifar svohljóðandi reikning:
Reikningur:
1 hestur (staðalútfærsla) grunnverð kr 240.000
Tvílitur (rauður/grár) extra kr 43.000
Leðuráklæði kr 38.000
Hlífðarhár vegna vetrarkulda kr 3.000
Sjálfskipting 4 gangstig 80.000 hvert kr 320.000
Matic sítengt aldrif kr 117.000
Hemlalæsivörn með spólvörn kr 61.000
Flugnafæla, semi automatic kr 4.000
Augu (fram) HALOGEN m. Augnlokum kr 6.000
Vistvænt útblásturskerfi ( catalyst ) kr innif.
Fjölbrennslukerfi (Multiple fuel use possibility) kr 63.000
Kostnaður vegna breytinga:
Aðlögun stjórntölvu (Tamning + gelding) kr 188.000
Vetrar-/Torfæruhófar (+ negling og ásetning ) kr 14.000
INNLAGT: Hreðjar ( 2 eistu) kr - 2.000
Samtals fyrir hestinn útbúinn skv. pöntun kr 1.095.000
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. apríl 2008
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. apríl 2008
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »