Furðufrétt og dulræn fyrirbrygði.
Fært af Gylfi þann 26. apríl 2008
Ísskápur sprakk í Vesturbænum Það gerast margir hlutir sem sumum virðist með ólíkindum að geti gerst og eru lýginni líkust.
En í öllum tilvikum er um skýringu að ræða hvort sem hún er einföld eða flókin.
Það eru til mýmörg dæmi um furðulegar tilviljanir og “óútskýranlega” hluti sem mörgum okkar kann að virðast nánast yfirnáttúrulegir. Þar má nefna töfrabrögð og sjónhverfingar allskonar og er með ólíkindum hvernig þessir “töframenn” framkvæma hlutina eins og um raunverulegan atburð sé að ræða. Auðvitað er þetta áhugavert og spennandi og gaman að velta þessu öllu fyrir sér.
Ég hef birt á blogginu hér, eitt myndband sem sýnir þetta og mun birta fleiri í framtíðinni, nema ég hreinlega “gufi upp” og bloggið líka
Það verður svo varla komist hjá því að minnast á hóp fólks, þó svo að ég fari ekki nánar út í það, að þessu sinni, en það er fólk sem hefur það að atvinnu að “hjálpa” okkur í þessum efnum en þar á ég við miðla og dáleiðara. Margoft hefur verið flett ofan af miðlum og var hinn frægi Harry Houdini góður í því. En það er einn einstakur hæfileiki sem miðlar hafa en hann er sá að vera ofurnæmir fyrir umhverfinu og fólki í kringum sig og vinna úr því. Þetta er hæfileiki sem nýst hefur lögreglu vel í samskiptum sínum við afbrotamenn og ekki er neitt nýtt að lögregla er með sérhæfða atferlisfræðinga sem setja sig inn í hugarheim afbrotamann.
Svo að ég víki nú að dáleiðslunni þá er það eitthvað sem er “áþreifanlegra”. Dáleiðsla kemur oft að gagni við að hjálpa fólki en kannski oftar til skemmtunar. Hér eru við að tala um að fá “undirmeðvitundina” upp á yfirborðið en það er einstaklingsbundið hve auðvelt það er.
Jæja, og ég sem ætlaði að tala um ísskápinn!
Þessa furðufrétt barði ég augum í fréttunum áðan og mætti helst ætla að orsökin stafaði af óskiljanlegum eða dulrænum toga, eins og ég hef minnst á að ofan.
Ég sem tæknimaður, get fullyrt að það sé ekki hægt að benda á ísskápinn sem sökudólg í þessu tilfelli. Þetta er ekki brandarablogg að þessu sinni!
Þó svo að það hefði orðið bilun í raf- eða vökvabúnaði gæti það ekki valdið umræddri sprengingu vegna þess að greinilegta sést á myndum að sprengingin kom úr matvælageymslu hans. Þar fyrir utan er allur búnaður undir og aftan á ísskápum og í rauninni ekkert inn í honum nema ljósaperan, hitaskynjari og hitastillir. Sem sagt, það var ljósaperan !!!
Nú langar mig að spyrja: Hvað var maðurinn með inni í ísskápnum ???
Góðar stundir.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Ég heiti Gylfi og er Gunnarsson. Ég er fæddur í Bolungarvík þann 24. september 1946 og því í Vogarmerkinu enda alltaf í fullkomnu jafnvægi. Ég er fæddur snillingur og er Rafeindavirkjameistari að mennt. Meðlimur í flugklúbbnum Sléttunni og gegni starfi formanns innra eftirlits. Einnig meðlimur í Lionsklúbbnum Víðarr þar sem ég verð í stórn klúbbsins árið 2010 og Parísar klúbbnum þar sem ég gegni starfi varaformanns.