Afturgenginn eða enn lifandi ?
Fært af Gylfi þann 15. ágúst 2008
Sælt veri fólkið.
Til að fullvissa meðbloggara, vini, kunningja, kærustur, fjölskyldu og annað samferðafólk um að ég er enn heill heilsu, tel ég rétt að láta eins og eitt blogg flakka, svona til að fólk haldi ró sinni, í bili a.m.k.
Ég á eftir að segja frá ferðalaginu norður og fleiri viðburðum, en ég mun gera það smátt og smátt þar sem allur sannleikurinn, í einni bloggfærslu, er of stór biti fyrir venjulegt fólk að kyngja. En ég mun segja sannleikann og ekkert nema sannleikann og frá öllu sem á daga mína hefur drifið og ekkert draga undan nema það sem telst óðsiðsamlegt samkvæmt siðareglum bloggsamfélagsins.
Í bili ætla ég að láta nægja að vísa í bloggfærslur dúllanna minna þeirra: Skandölu, Brussulínu og Minnu. Þær skýra ýmis atriði varðandi “hvarf” mitt af sjónarsviðinu, sem þær eiga vissulega þátt í, en eins og allir vita þá gerist ekkert hérlendis (eða yfirleitt hvergi) án þeirrar vitundar. Þær hafa þó stillt sig og gæta meðalhófs og lofuðu mér að særa ekki blygðunarsemi fólks með skrifum sínum.
Minn tími kemur!!!, en þangað til gef ég þeim orðið, ásamt ummælum:
(Smellið á nöfnin)
27.6.2008
Minna
28.6.2008
Brussulína
Minna
Skandala
29.6.2008
Brussulína
10.7.2008
Minna
13.8.2008
Skandala
Fært undir Brandarar, Bull og vitleysa, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Sannar lygasögur, Slúður, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 6 ummæli »
Ég heiti Gylfi og er Gunnarsson. Ég er fæddur í Bolungarvík þann 24. september 1946 og því í Vogarmerkinu enda alltaf í fullkomnu jafnvægi. Ég er fæddur snillingur og er Rafeindavirkjameistari að mennt. Meðlimur í flugklúbbnum Sléttunni og gegni starfi formanns innra eftirlits. Einnig meðlimur í Lionsklúbbnum Víðarr þar sem ég verð í stórn klúbbsins árið 2010 og Parísar klúbbnum þar sem ég gegni starfi varaformanns.
