Gylfi

Meðlæti í mótlætinu.

  • Dagatal

    nóvember 2008
    S M Þ M F F L
    « okt   des »
     1
    2345678
    9101112131415
    16171819202122
    23242526272829
    30  
  • Heimsóknir

    Í dag: 194 Alls: 206327

  • Flettingar

    Í dag: 467 Alls: 870343

  • Vísa vikunnar

    Nú er liðið nokkurt fár......... níddri þjóð til ama.............. nú er komið annað ár.......... og allt er við það sama.......
  • Geðorðin 10

    ● 1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara ● 2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um ● 3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir ● 4. Lærðu af mistökum þínum ● 5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina ● 6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu ● 7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig ● 8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup ● 9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína ● 10. Setttu þér markmið og láttu drauma þína rætast
  • Gullmolar

    ● Þér líður eins og þú hugsar. ● Ánægja gerir fátækan mann ríkan, óánægja gerir ríkan mann fátækan. ● Það er engin leið að hamingjunni - hamingjan er leiðin. ● Taktu það með þér úr fortíðinni sem þú getur lært af. Gerðu hitt upp og skildu það eftir. ● Þú getur ekki bætt árum við líf þitt. Þú getur hins vegar bætt lífi við árin þín. ● Betri er kona í rúmi en köttur úti á túni. ● Bekkur án kvenna er eins og höfuð án verkja. ● Of mikið af húsverkum geta valdið heilaskaða. ● Auðvelt er að komast hjá gagnrýni með því að segja ekkert, gera ekkert og vera ekkert.

Færslur nóvember, 2008

Frjósemispillan Viagra.

Fært af Gylfi þann 28. nóvember 2008

Í landi elda og ísa

Er nánast hver kvenmaður skvísa

En nú gamall er limur

Sem áður var fimur

Hann fæst ekki til þess að rísa.

 

Fyrir fyrrum ungmennin gröðu

sem léku sér oft úti í hlöðu.

Nú komin er pilla

til aðstoðar Lilla

að ná sér í upprétta stöðu.

 

Hér áður þau skemmtu sér saman

svo kafrjóð og broshýr í framan.

En eftir örlitla bið

nú Lillinn rís við

og þá verður aftur svo gaman.

 

Svo eldhressir og allir á lífi

þó eflaust þeir bakinu hlífi,

þeir biðja um fátt

en nú vilja þeir drátt

það held ég að konurnar svífi.

 

Með auman og ónýtan tilla

sem með réttu má kalla Lilla.

Nú þarf ekki bíða

bara að fá sér að ….

Hún er góð þessi dásemdar pilla.

 

Góða helgi.

Fært undir Brandarar, Heilbrigði, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Illa brugðið.

Fært af Gylfi þann 27. nóvember 2008

 

 

Maður nokkur var í leigubíl og pikkar í öxlina á bílstjóranum til þess að spyrja hann spurningar. Leigubílstjórinn öskrar upp yfir sig, missir stjórn á bílnum, næstum því búinn að keyra í veg fyrir strætó, fer upp á gangstétt og stoppar örfáum sentímetrum frá búðarglugga.

 

Í nokkrar sekúndur er allt hljótt í bílnum.

 

Síðan segir bílstjórinn: “Heyrðu félagi, þetta skaltu aldrei gera aftur. Þú hræddir næstum úr mér líftóruna!”

 

Farþeganum er illa brugðið en segir að lokum: “Fyrirgefðu ég vissi ekki að smá pikk í öxlina myndi valda þessum viðbrögðum.”

 

“Æi, fyrirgefðu” segir bílstjórinn, “þetta er nú reyndar ekki þín sök. Í dag er fyrsti dagurinn minn sem leigubílstjóri, ég er búinn að vera að keyra líkbíl í 25 ár.”

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Gáta dagsins.

Fært af Gylfi þann 27. nóvember 2008

Arnold Schwarzenegger er með stórt.

Michael J. Fox er með lítið.

Madonna er ekki með neitt.

Páfinn er með það, en notar það ekki.

Listamaðurinn Prince viðurkennir ekki að vera með það.

Bill Clinton notar sitt mikið.

 

Hvað er þetta?

 

Svarið birtist neðar á síðunni.

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

…Eftirnafn.

 

Varstu með eitthvað annað í huga?

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Foringinn og IceSave.

Fært af Gylfi þann 26. nóvember 2008

Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Stjórnmál, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Einn úr fluginu.

Fært af Gylfi þann 25. nóvember 2008

 

Flugvél var nýkomin í loftið frá Keflavík og flugstjórinn var að ávarpa farþegana: “Góðir farþegar, velkomin í flug númer FI1512 til Alicante. Þetta er flugstjórinn sem talar. Nú, flugskilyrði eru góð. Við fáum meðvind og komum til með að fljúga í 33.000 feta hæð og… AAAAAARRGG, GUÐ MINN GÓÐUR, HVAÐA…”

 

Löng þögn…

 

Síðan kemur flugstjórinn aftur í kallkerfið: “Góðir farþegar. Þetta er flugstjórinn sem talar. Mér þykir leitt ef ég hef hrætt ykkur áðan, en aðstoðarflugstjórinn missti kaffibolla sinn yfir mig. Þið ættuð bara að sjá framaná buxurnar mínar…”

“Það er ekkert,” kallar einn farþeginn, “hann ætti að sjá aftan á mínar!”

 

Fært undir Ferðalög, Flug, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Bjóráhrif.

Fært af Gylfi þann 22. nóvember 2008

Eins og allir vita þá hefur bjór áhrif á fólk með margvíslegum hætti. Sum þessara áhrifa eru til langtíma sem lýsir sér í vaxtarlaginu en önnur eru skammtímaáhrif sem hafa áhrif á dómgreind og skynjun fólks.

Það er ekki ný staðreynd að neysla bjórs og annarra áfengra drykkja virkar mjög svo kynörvandi á karlmenn eins og fréttin, Reyndi að nauðga átta konum á 90 mínútum, ber vitni um. Það er svo önnur saga hversu vel karlmenn STANDA sig þrátt fyrir aukinn áhuga en það verður ekki farið út í hér.

Til að reyna að útskýra þetta algenga háttarlag karlmanna, fyrir kvenfólki og karlmönnum sem ekki neyta áfengis, vil ég benda á eftirfarandi og vona að það varpi einhverri ljósglætu á það hugarástand sem karlmenn komast í.
Skoðið þetta hér.

Enn og aftur, góða helgi.

Fært undir Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Tækni og vísindi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Draugagangur í bílaauglýsingu.

Fært af Gylfi þann 21. nóvember 2008

EKKI FYRIR HJARTVEIKA. Ég ber enga ábyrgð :)
ALLS EKKI horfa á þetta ef þið eruð slæm fyrir hjarta.

Ekki gleyma að hafa hljóðið á.

Þetta er bílaauglýsing frá Nýja Sjálandi.
Þegar myndin var tekin upp varð vart við hvítan streng sem er á eftir bílnum og undarlegt hljóð…

Auglýsingin var aldrei birt út af þessu draugafyrirbæri.

Þegar myndin er hálfnuð keyrir bíllinn á bakvið nokkur tré, ef þú skoðar vel þá sérðu að hvíti strengurinn er kominn fram fyrir bílinn…..

Smelltu á myndina, ef þú þorir:

Góða helgi.

 

Fært undir Vinir og fjölskylda | 3 ummæli »

Auglýsing.

Fært af Gylfi þann 20. nóvember 2008

Birtist Fréttablaðinu í dag, 20. nóvember 2008

Fært undir Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Orsakir aukins atvinnuleysis.

Fært af Gylfi þann 20. nóvember 2008

 

Íslenskur lýtalæknir var staddur á ráðstefnu erlendis með kollegum sínum.

Eftir langa og stranga dagskrá ráðstefnunnar héldu ráðstefnugestir á öldurhús og gerðu sér glaðan dag. Eftir því sem líða fór á kvöldið og nóttina þynntist hópurinn og lokst sátu einungis þeir þaulsetnustu eftir.

Þegar þeir höfðu ekkert meira að tala um fóru þeir að segja hetjusögur af þeim afrekum sem þeir höfðu unnið á skurðborðinu.

 

Einn Bretinn sagði sögu af því að hann ásamt teymi sínu hafi tekið á móti sjúklingi sem missti hendina í prentsmiðju. Á sjúklinginn græddu þeir nýjan handlegg, lófa og fingur og eftir að hann kom til starfa aftur varð hann svo góður og öflugur verkmaður að hann vann á við 4 og því fóru þrír á atvinnuleysisskrá sem áður störfuðu hjá fyrirtækinu.

 

Rússnenskum lækni fannst ekki mikið til þess koma og sagði frá manni sem lent hafði inní kjarnaofni. Þeir fengu ekkert annað en hárið inná skurðborðið til sín, græddu á það höfuð, búk og útlimi. Þessi maður varð svo góður verkmaður þegar hann snéri aftur til starfa að hægt var að segja upp heilli vakt í kjarnorkuverinu, 9 manns fóru á atvinnuleysisskrá.

 

Íslenski læknirinn sagði “iss” við þessari sögu. “Ég var einu sinni staddur niðrí Austurstræti og fann rosalega vonda prumpulykt. Ég veiddi hana í poka og brunaði með hana uppá Borgarspítala og skellti henni á skurðborðið. Við græddum á þetta búk, höfuð, útlimi og enduðum með að setja krullur ofaná þetta allt saman. Úr þessu varð Davíð Oddsson og hann er á góðri leið með að setja alla þjóðina á atvinnuleysisskrá”.

 

 

Fært undir Brandarar, Efnahagur, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »

Góð ráð.

Fært af Gylfi þann 19. nóvember 2008

 
Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana  til að fá kalíum. Líka eina appelsínu, útaf C-vítamíninu og einn bolla af grænu te án sykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót. Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það). Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.
 
Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi. Og annað hvítt fyrir taugakerfið. Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera. Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þá búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því.
 
Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar heilli peysu.  Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum. Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða. Ó, og síðan  má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.
Á eftir jógúrtinu og  trefjunum, tannbursta; á eftir eplinu, tannbursta; á eftir banananum, tannbursta…
Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli. Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín,  því  þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar, tennurnar…
 
Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn. Samkvæmt  könnunum  eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp… og ekki gleyma  tölvunum!!!  En þú hefur engan tíma í svoeiðis, því daglega áttu að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð í frí. Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.
 
Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi. Þetta tekur sinn tíma!!!  Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!! Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?!
 
Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar.
Var ein hendi laus? Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!
Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir, sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm)  um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir…
 
En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið. Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.
 
Ef ég er að birta þetta í annað sinn, er það vegna þess að þrátt fyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með alzheimer.

Fært undir Heilbrigði, Matur og drykkur, Nám, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 3 ummæli »

Hafnfirskur flatskjár.

Fært af Gylfi þann 19. nóvember 2008

Fært undir Brandarar, Tækni og vísindi, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Heitasta ósk Íra.

Fært af Gylfi þann 17. nóvember 2008

Íri sem hafði verið strand á eyðieyju í meira en 10 ár lenti svo í því einn daginn að hann sá eitthvað reka að landi rétt úti við sjóndeildarhringinn.

Hann hugsaði með sjálfum sér: “Þetta er örugglega ekki skip”, og eftir því sem fyrirbærið kom nær og nær þá byrjaði hann að útiloka möguleikann á það, þetta gæti verið lítill bátur eða fleki.

 

Skyndilega birtist vera klædd svörtum blautbúningi úr briminu. Þegar veran hafði lagt frá sér köfunargræurnar og tekið hettuna á blautbúningnum niður sá hann að þetta var glæsilegasta ljóska sem hann hafði á ævinni séð!

 

Glæsilega ljóskan gekk upp að Íranum sem nú var alveg orðlaus og sagði við hann: “Jæja, segðu mér, hversu langt er síðan þú fékkst þér sígarettu?”

“Tíu ár”, svaraði Írinn hissa. Og með það sama þá opnaði ljóskan vatnsheldan vasa á vinstri erminni á blautbúningnum og náði í skraufaþurran pakka af sígarettum. Hann fær sér eina, kveikir á henni  og tekur góðan smók.

“Góður Guð” sagði hann, “Þetta er svo gott… ég var næstum búinn að gleyma hvað það var gott að fá sér að reykja!”

“Og hvað er langt síðan þú fékkst þér gott írsk viskýtár?” Spurði blondínan.

Titrandi svaraðið strandaglópurinn, “tíu ár”.

 

Þegar hún heyrði það, þá teygði blondínan sig í hægri ermina og opnaði vasa þar og dró upp flösku og rétti honum. Hann opnar flöskuna og fékk sér gúlsopa. “Þvílíkar guðaveigar!” sagði hann. “Þetta er algjört kraftaverk!!!”

 

Þegar hér var komið við sögu byrjaði glæsilega ljóskan að renna hægt og rólega niður blautbúningnum… niður að mitti. Hún leit titrandi á manninn og spurði, ” og svo… hversu langt er síðan þú hefur “leikið” þér aðeins???”

Með tár í augunum, féll Írinn niður á hné og snökti…

“Jesús Kristur… ekki segja mér að þú sért með golfkylfur þarna líka!”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Auglýsing.

Fært af Gylfi þann 16. nóvember 2008

Birtist Fréttablaðinu í dag, 16. nóvember 2008

Fært undir Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Jólagjöfin í ár.

Fært af Gylfi þann 14. nóvember 2008

Fært undir Efnahagur, Stjórnmál, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Auglýsing.

Fært af Gylfi þann 10. nóvember 2008

Birtist Fréttablaðinu laugardaginn 8. nóvember 2008

Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Í dag er ég …

Fært af Gylfi þann 7. nóvember 2008

Í dag er ég glaður — í dag vil ég syngja, og dansa til morguns við hverja sem er.

Við flakkarann allt eins og kóng vil ég klingja — ég kæri mig ekkert um nafnið á þér.

Þú ert vinur minn víst

eins og veröldin snýst —

á víxla ég skrifa nú eins og þér líst.

 

Í dag er ég ríkur - í dag vil ég gefa

demanta, perlur og skínandi gull.

Gakk þú í sjóðinn og sæktu þér hnefa,

uns sál þín er mettuð og barmafull.

Það er ókeypis allt

og með ánægju falt -

og ekkert að þakka, því gullið er valt!

 

Í dag er ég reiður - í dag vil ég brjóta,

drepa og brenna hér allt nið’r í svörð;

hengja og skjóta’ alla helvítis þrjóta.

Hræki nú skýin á sökkvandi jörð!

Farðu’ í heitasta hel!

Skaki hörmungarél

hnöttinn af brautinni’, og þá er vel!

 

Í dag er ég snauður og á ekki eyri,

ölmusumaður á beiningaferð.

Einasta vonin að himnarnir heyri —

þó hanga’ um mig tötrarnir, eins og þú sérð.

Gef mér aflóa fat

eða fleygðu í mig mat!

Því forðastu’ að tylla þér þar sem ég sat.

 

Góða helgi.

 

Fært undir Brandarar, Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Sönn ást.

Fært af Gylfi þann 7. nóvember 2008

Hjónin sátu og ræddu um lífið og dauðann.

 

Þar kom að eiginmaðurinn sagði að

hann vildi ekki að sér væri haldið lifandi með tækjum og fljótandi næringu.

 

Eiginkonan brást skjótt við, slökkti á sjónvarpinu og hellti niður bjórnum

hans.

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Auglýsing.

Fært af Gylfi þann 6. nóvember 2008

Birtist Fréttablaðinu í dag, 6. nóvember 2008

Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Rússakreppa.

Fært af Gylfi þann 6. nóvember 2008

Datt í hug að deila með ykkur einu af ráðunum sem komið hafa fram í kreppuástandinu - kom frá Rússlandi ;-)  

 

ЛИЧНО Я ВКЛАДЫВАЮ ДЕНЬГИ В ВОДКУ! ГДЕ ЕЩЕ МОЖНО ПОЛУЧИТЬ 75%?

 

Þýðing ;-)

 

Persónulega, þá set ég alla mína peninga í vodka!  Hvar annarsstaðar getur maður fengið 75%

 

 

Fært undir Brandarar, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Ný tekjuöflun.

Fært af Gylfi þann 5. nóvember 2008

Einu sinni var gömul kona að ganga niður götu með tvo troðfulla ruslapoka.

Lögreglumaður stóð þarna rétt hjá og tók eftir því að það var gat á öðrum pokanum og 10000 kr seðlar flugu úr pokanum endrum og eins.

 

Eitthvað fannst honum þetta dularfullt og gekk upp að konunni

“góðan daginn væna mín” sagði hann “hefur þú tekið eftir því að það eru 10000 kr seðlar fjúkandi úr pokanum þínum?”

konan stoppar og lítur bak við sig og sér seðlana á víð og dreif um götuna

“Æ þakka þér fyrir væni minn” stundi í konunni “Ég ætti nú að drífa mig í að taka þá upp”

En þegar hún ætlar að leggja af stað að týna upp seðlana stöðvar lögregluþjónninn hana “Engan asa væna mín, hvernig stendur eiginlega á því að þú ert með fullann ruslapoka af tíu þúsund köllum? varstu að ræna banka?”

 

Gamla konan brosti “Nei það gerði ég nú ekki en það vill svo til að bak við garðinn minn er stór fótboltavöllur og alltaf þegar mikilvæg mót eru í gangi að þá koma oft ungir menn og míga í blómabeðin hjá mér svo ég tók upp á því að standa þarna með garðklippurnar og segja 10000 kr. eða ég klippi hann af”

 

“Jahá.. þetta er áhugaverð hugmynd! sagði lögregluþjóninn hugsi !..en hvað ertu með í hinum pokanum?”

“Það eru ekki allir sem borga…”

 

Fært undir Brandarar, Efnahagur, Slúður, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Hjálp!

Fært af Gylfi þann 3. nóvember 2008

Maður í loftbelg sá að hann var að missa hæð.

Hann tók eftir konu á jörðinni, lækkaði flugið aðeins meira og kallaði til hennar: Afsakið,geturðu hjálpað mér? Ég lofaði að hitta vin minn fyrir klukkutíma,
en veit ekki hvar ég er.
Konan svaraði: Þú ert í loftbelg sem svífur í 10 metra hæð, milli 40.og 41. norðlægrar breiddargráðu og milli 59. og 60. vestlægrar lengdargráðu.

Þú hlýtur að vinna við tölvur, sagði loftbelgsmaðurinn.
Það geri ég, svaraði konan. Hvernig vissirðu það ?
Nú, svaraði maðurinn, allt sem þú sagðir mér er tæknilega rétt, en ég hef ekki hugmynd um hvaða gagn er af þeim upplýsingum, og reyndar er ég enn villtur.
Satt að segja þá hefur ekki verið mikil hjálp frá þér. 
Ef eitthvað er þá hefurðu helst tafið ferð mína.

Konan svaraði: Þú hlýtur að vinna við stjórnun.
Já, sagði maðurinn. En hvernig vissir þú það?
Nú, sagði konan, þú vissir hvorki hvar þú ert né hvert þú ert að fara.
Eintómt loft hefur komið þér þangað upp sem þú ert.
Þú gafst loforð sem þú hefur ekki hugmynd um hvernig á að efna og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan þig leysi þín vandamál.
Reyndar ertu í sömu stöðu og þegar við hittumst, en nú er það einhvern veginn mín sök.

Fært undir Brandarar, Flug, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning