Jóhanna Sigurðardóttir og Vogarmerkið
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er auðvitað fædd í Voginni, merki sem setur jöfnuð og réttlæti ofar öðrum dyggðum. Fæðingardagurinn er 4. október 1942.

Myndin hér fyrir ofan er eilítið skökk, nokkuð sem ekki ætti að vera þar sem Vogin leggur áherslu á jafnvægi, það að vega og meta hlutina og gæta þess að jafnt sé á báðum vogarskálunum.
Ég ákvað að leyfa myndinni að vera skakkri.
Í fyrsta lagi vegna þess að ég er Hrútur í hugsun og því eðlislægt að láta það fyrsta sem ég geri nægja. Við sem höfum sterkan Hrút í persónuleika okkar erum lítið fyrir að horfa afturábak og endurtaka hlutina. “Ég iðrast einskis” gæti verið mottó Hrútsins.
Í öðru lagi og það sem skiptir máli í vogarferlinu er barátta á milli jafnvægis og ójafnvægis.
Vogin sveiflast til á meðan verið er að setja á skálarnar og leitað er niðurstöðu. Á ég að gera þetta? Eða á ég að gera hitt? Hvað er rétt? Hvað er rangt?
Fyrir vikið eiga Vogir til að vera svolítið brokkgengar, a.m.k. á meðan jafnvægis er leitað.
Ef þú skoðar myndina betur þá sérðu að fyrir neðan aðra skálina stendur ‘ég og mínar þarfir’ og fyrir neðan hina ‘hinir/aðrir og þeirra þarfir’. Í miðjunni er síðan orðið Við. Þetta er kjarni málsins.
Dans Vogarmerkisins er að gæta jafnvægis á milli eigin þarfa og þarfa annarra. Ef of mikil vigt er sett á ‘Ég skálina’ þá fáum við freku Vogina sem valtar yfir aðra. Ef of mikill þungi er á ‘Hinir/aðrir skálinni’ þá fáum við Vogina sem kaupir frið og fórnar eigin þörfum vegna annarra. Þetta er Vogin sem kaupir alltaf í matinn það sem hinir í fjölskyldunni vilja borða.
Jafnvægið er fólgið í því að horfa hvorki of mikið á ‘Ég’ eða of mikið á ‘Hina’. Jafnvægið liggur í ‘við’. Hvað er gott fyrir okkur öll? Hvað er réttlátt fyrir mig og þig?
Með öðrum orðum: Þegar fjórir eru að borða köku þá á hver að fá 25% af kökunni. Það á að skipta henni jafnt. Ég á ekki að fá 75%. Hinir eiga ekki að fá 99%. Ef þessu er snúið á þjóðfélagið þá á ekki að borga einum 200.000 kr. í laun og öðrum 20 milljónir. Ef einhver er veikur þá á þjóðfélagið að gæta hans.Það er þessi jafnvægisleit sem leiðir til þess að Vogin hatar óréttlæti.
Jóhanna Sigurðardóttir, John Lennon og Gandhi, Vogir sem setja og/eða settu réttlætið ofar öðru.
Í sambandi við Jóhönnu þá veit ég ekki klukkan hvað hún er fædd. Einhvern tímann sá ég tíma nálægt hádegi og þar með Sporðdreka Rísandi. Mér finnst það ekki ólíklegt.
Jóhanna er með Tungl í Ljóni sem þýðir að hún er svolítil prímadonna og dramatíker í sér, en um leið logar sterkur hugsjónaeldur í brjósti hennar. Hún er einlæg, en jafnframt því er hún dul, einræn og einbeitt (Tungl/Plútó samstaða / Sporðdreki Rísandi).
Og að lokum: Frábært fyrir heimilin og fólkið í landinu að tími Jóhönnu sé kominn! Húrra!
Birt með leyfi höfundar: Gunnlaugs Guðmundssonar, Stjörnuspekistöðin ehf.