Færslur apríl, 2009
Fært af Gylfi þann 30. apríl 2009

Jonni var stöðvaður af útigangsmanni um daginn. Hann lyktaði illa, gekk í lörfum og uppfyllti myndina af slíku fólki á allan hátt.
Vesalingurinn var að sníkja pening af Jonna.
Tók Jonni upp veskið, dró úr því tvö þúsund kall og spurði útigangsmanninn hvort hann vildi ekki kaupa sér bjór fyrir þennan pening í staðinn fyrir mat?
“Nei, það geri ég ekki, ég hætti að drekka fyrir mörgum árum,” svaraði hann.
“Viltu þá ekki nota þetta smáræði til að fara á veiðar, frekar en kaupa þér mat?” spurði Jonni.
“Nei, ég sólunda ekki tíma mínum í óþarfa,” var svarið.
“Viltu þá ekki eyða þessu í reiðtúr?” spurði Jonni.
“Ertu vitlaus maður! Ég hef ekki farið á hestbak í 20 ár!”
“Hvað um að kaupa þér kjöltudans eða mellu – eða eitthvað svoleiðis? Ég bæti við pening ef með þarf.”
“Ég fæ nú bara einhverja sjúkdóma út úr svoleiðis vitleysu!” svaraði sá heimilislausi.
Þá sagði Jonni þessum ógæfusama manni að hann ætlaði ekki að gefa honum neina peninga, heldur ætlaði hann að bjóða honum með sér heim í dýrindis-kvöldverð hjá konunni sinni.
Þá varð flækingurinn frekar hissa og spurði Jonna hvort hann héldi ekki að konan yrði reið yfir því að draga þennan flæking inn í húsið. Hann lyktaði illa og var svo illa til fara að hann væri ekki húsum hæfur?
Jonni taldi að það væri hið besta mál, allt í þessu fína!
Það væri mikilvægt fyrir konuna að sjá hvernig maður liti út sem væri hættur að drekka, veiða, ríða út og stunda kynlíf!
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 29. apríl 2009
“Prentarinn minn er hættur að virka”
“Hvaða villumelding kom á hann?”
“Engin villumelding en músin er föst”
“Músin föst?”
“Það hefur ekkert með prentarann að gera!”
“Augnablik, ég ætla að taka mynd og senda þér.”:

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 27. apríl 2009

Séra Jónas hélt ræðu á Lionsfundi og umræðuefnið var kynlíf. En þegar hann kom heim, þá gat hann ekki viðurkennt fyrir Möggu að hann hefði haldið ræðu um kynlíf, svo hann sagði henni að hann hefði rætt um hestamennsku og útreiðar.
Nokkrum dögum seinna hitti Magga nokkra Lionsfélaga út í Bónus og þeir hrósuðu bónda hennar mjög fyrir ræðuna.
Magga sagði: “Já, ég heyrði um þetta. En ég varð nú frekar hissa á þessu, því hann hefur bara reynt þetta tvisvar. Í fyrra skiptið varð hann svo aumur að hann gat ekki gengið í nokkra daga og í seinna skiptið datt hann af baki.
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 24. apríl 2009

Hafnfirðingurinn fluttist til Bandaríkjanna og settist að í suðurríkjunum.
Þar passaði hann heldur betur inn í kramið. Hann spurði nágrannana hvað menn gerðu sér helst til skemmtunar þarna og var svarað svona: “Við förum í keiluhöllina og lumbrum á negrunum!”
Hafnfirðingurinn dreif sig með strax fyrsta kvöldið.
Þeir voru rétt komnir inn þegar nokkrir negrar birtust og það var strax farið að lumbra á þeim, nema Hafnfirðingurinn. Hann snéri sér umsvifalaust að því að skjóta keilurnar niður.
“Hvern fjandann ertu eiginlega að gera mannskratti?” spurði einn nágranninn.
“Slappaðu af vinur. Sjáið þið bara um þá fullorðnu, ég skal sjá um eggin,” svaraði Hafnfirðingurinn.
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 23. apríl 2009

Mjög hávær, óaðlaðandi (ljót og feit) og hreinlega brussuleg kona kom inn í Hagkaup einn daginn með börnin sín tvö, dró þau sitt í hvorri hönd, skammaðist í þeim og var hin versta um leið og hún gekk inn ganginn.
Strákur í kerrunum sá hana og heilsaði: “Góðan daginn frú og velkomin í Hagkaup. En yndisleg börn sem þú átt. Eru þetta tvíburar?”
Forljóta konan hætti að öskra á börnin og sagði við strákinn: “Held nú síður. Sá eldri er 9 ára og hitt er að verða 7. Hvers vegna í fjandanum heldurðu það. Ertu blindur eða bara svona heimskur!?”
“Ég er nú hvorugt, frú mín.” segir strákurinn. “Ég get bara ekki ímyndað mér að þú hafir fengið að sofa hjá tvisvar!!
Hafðu það gott í dag og takk fyrir að versla í Hagkaup”
Gleðilegt sumar.
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 22. apríl 2009

Mamma var ekki heima og pabbi var að passa mig.
Ég var ekki nema eins og hálfs árs gömul.
Einhver hafði gefið mér tesett sem var eitt af uppáhalds leikföngunum mínum.
Pabbi sat inni í stofu í öðrum heimi við að lesa dagblöðin og bróðir minn var að dunda sér í rólegheitum.
Ég færði pabba te sem auðvitað var bara vatn. Eftir fjöldan allan af tebollum og helling af hrósi frá pabba þá kom mamma heim.
Pabbi sagði henni að bíða og kíkja og sjá hvað þetta væri sætt að sjá mig færa honum te, ég væri bara algjört krútt.
Mamma beið og horfði þegar ég kom enn eina ferðina með tebolla handa pabba.
Hún horfði á hann drekka teið og þegar hann hafði klárað úr bollanum varð henni á orði:
“Gerir þú þér grein fyrir að eini staðurinn sem þetta litla barn getur komist í vatn er beint út klósettinu”
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. apríl 2009

Heyrnarlaust par var að gifta sig, þau reka sig strax á nokkur vandamál í kynlífinu, því eftir að ljósin eru orðin slökkt á kvöldin, þá sjá þau ekki lengur táknmál hvors annars.
Eftir nokkrar nætur af káfi og misskilningi kemur konan með uppástungu. “Elskan, segir hún á táknmáli, við ættum að nota sérstök svefnherbergistákn. Til dæmis, ef þú vilt gera það, þá kreistirðu bara vinstra brjóstið á mér einu sinni. Ef þú vilt ekki gera það, þá kreistirðu það hægra einu sinni.”
Manninum finnst þetta frábær hugmynd og sendir táknmál aftur til baka: “Góð hugmynd. Nú, ef þú vilt gera það, þá teygirðu þig bara yfir og togar einu sinni í typpið á mér. En ef þú vilt ekki gera það, þá togarðu svona 50 sinnum í það.”
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 20. apríl 2009

Blindur maður gengur inn á veitingastað og sest niður.
Þjónninn, sem einnig er eigandi staðarins, gengur til blinda mannsins og réttir honum matseðilinn.
“Afsakaðu mig, herra, en ég er blindur og get ekki lesið á matseðilinn. Réttu mér bara skítugan gaffal frá öðrum viðskiptavini, ég skal þefa af honum og svo skal ég panta.”
Eigandinn fer undrandi að hrúgu af skítugum göflum og nær í fitugan gaffal. Hann snýr aftur til blinda mannsins og réttir honum gaffalinn. Blindi maðurinn þefar stíft af gafflinum og segir svo:
“Ah, já, mig langaði einmitt í þetta, kjöthleif og stappaðar kartöflur.”
“Ótrúlegt”, segir eigandinn við sjálfan sig á meðan hann röltir inn í eldhúsið. Kokkurinn reyndist vera eiginkona þjónsins og hann segir henni hvað hafði skeð. Blindi maðurinn lýkur við máltíðina og fer.
Nokkrum dögum síðar kemur blindi maðurinn aftur á veitingastaðinn og þjónninn færir honum óvart matseðilinn.
“Herra, manstu ekki eftir mér? Ég er blindi maðurinn” - “Fyrirgefðu, ég þekkti þig ekki, ég skal sækja skítugan gaffal handa þér.” Sagði þjónninn og náði í skítugan gaffal og rétti blinda manninum. Eftir að hafa þefað vel af gafflinum segir blindi maðurinn:
“Þetta ilmar unaðslega, Ég ætla að fá makkaróní og ost með spergilkáli.” Aftur gengur þjónninn inn í eldhús vantrúaður og hugsar með sér að sá blindi væri að fíflast í honum og segir konunni sinni að næst þegar blindi maðurinn kæmi inn, myndi hann gera örlítið próf. Sá blindi borðar og fer.
Sá blindi kemur aftur á veitingastaðinn ekki svo löngu seinna, en í þetta skiptið sér þjónninn hann koma og hleypur inn í eldhúsið.
Hann segir Maríu, konunni sinni að nudda gaffli við nærbuxurnar sínar áður en að hann færi með gaffalinn til blinda mannsins. María gerir svo og skilar þjóninum gafflinum. Þegar blindi maðurinn sest niður, er þjónninn kominn í viðbragðsstöðu.
“Góða kvöldið, herra, í þetta sinn man ég eftir þér og ég hef hérna tilbúinn gaffal handa þér”
Blindi maðurinn þefar mikið af honum og segir loksins:
“Hey, ég vissi ekki að María ynni hér!?”
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 18. apríl 2009

Gunnar sá son nágrannans vera að moka í holu um daginn og spurði drenginn í hvers konar framkvæmdum hann stæði í.
Drengurinn svaraði með ekka: “Ég er að jarða hamsturinn minn.”
Gunnar er raunsær maður og spurði því: “Er þetta ekki nokkuð stór gröf fyrir einn hamstur?”
Um leið og drengurinn mokaði síðustu moldinni yfir svaraði hann: “Nei, alls ekki, hamsturinn er inní kettinum þínum.”
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 17. apríl 2009

Maður var búinn að búa í nokkuð mörg ár í sama húsinu þegar ljóska flutti inn í næsta hús.
Hann sá hana fara og kíkja í póstkassann en í honum var ekkert og hún varð pirruð.
Svo fór hún aftur og kíkti í póstkassann en þar var ekkert og þá varð hún ennþá pirraðari.
Síðan kom hún út í þriðja skiptið.
Þá fannst honum þetta vera orðið svolítið skrítið svo hann fór og spurði hana hvað væri að.
Þá svaraði hún: “Helvítis tölvan er alltaf að segja: You’ve got mail!”
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 16. apríl 2009

Ef ske kynni að þú myndir einhvern tíman rugla þessum tveimur
stöðum saman, þá vildi ég bara gera greinarmun á þeim.
Í fangelsi … yrðir þú mestum tíma þínum í klefa sem er 10×10 fet
Í vinnunni … eyðir þú mestum tíma þínum í bás sem er 8×8 fet
Í fangelsi … færðu þrjár máltíðir á dag frítt
Í vinnunni … færð þú pásu fyrir eina máltíð og þú verður að borga fyrir hana sjálf(ur)
Í fangelsi … færðu að sleppa fyrr út ef þú ert dugleg(ur) og þæg(ur)
Í vinnunni … færðu meiri vinnu ef þú ert dugleg(ur) og þæg(ur)
Í fangelsi … opna og loka verðirnir öllum dyrum fyrir þig
Í vinnunni … þarftu að ganga um með lykla og opna allt sjálf(ur)
Í fangelsi … geturðu horft á sjónvarpið og spilað leiki eftir eigin hentisemi
Í vinnunni … ertu rekin(n) fyrir að horfa á sjónvarpið og spila leiki
Í fangelsi … færðu þitt eigið klósett
Í vinnunni … þarftu að deila klósetti með samstarfsfólki sem mígur á setuna
Í fangelsi … mega fjölskyldan og vinir koma í heimsókn
Í vinnunni … máttu ekki einu sinni tala við fjölskylduna né vinina
Í fangelsi … splæsa skattgreiðendur öllu fyrir þig og þú þarft ekkert að gera í staðinn
Í vinnunni … þarftu að borga fyrir allan kostnað og þeir draga skatt af laununum þínum til að borga undir fangana
Í fangelsi … verðurðu að þola sadista verði
Í vinnunni … eru þeir kallaðir yfirmenn…
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 15. apríl 2009

- Það tekur matinn 7 sekúndur að fara frá munni og ofan í maga.
- Hár af höfði manns getur haldið þrem kílóum.
- Lengdin á lim mannsins er jöfn lengd þumalsins, margfaldaðri með þremur.
- Lærbeinið er hart sem steinsteypa.
- Hjörtu kvenna slá hraðar en hjörtu karla.
- Á hverjum fæti höfum við þúsundir baktería.
- Konur blikka augunum tvöfalt oftar en maðurinn.
- Við notum 300 vöðva, bara til að halda jafnvægi meðan við stöndum.
- Konur eru nú búnar að lesa allan þennan póst.
- Karlar eru enn að skoða á sér þumalinn!.
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 14. apríl 2009
Eru þetta lýsingar á lengd…???


Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 13. apríl 2009

Dómarinn við þann ákærða fyrir rétti: “Þú ert ákærður fyrir rán.”
Sá kærði svarar: “Því get ég varla trúað.”
Dómarinn: “Hvert er nafn þitt?”
“Sófus, Pétur,Narfi, Axel Hanssen.”
“Og fæddur?”
“Já, að sjálfsögðu.”
“Ég meina, hvar ertu fæddur?”
“Nú já, - ég er fæddur í vesturbænum, skírður í miðbænum, fermdur í austurbænum og giftur í Breiðholtinu.”
“Og hverjum giftur?”
“Það er kona.”
“Jú, ekki er hægt að vera giftur karlmanni.”
“Ja, hún frænka mín getur það. Hún er gift karlmanni.”
“Hvað er faðir þinn?”
“Dáinn.”
“Hvað var hann áður en hann dó?”
“Lifandi.”
“Já, en hvað VAR hann?”
“Hann var með lungnabólgu.”
“Hvað gerði hann?”
“Hann hóstaði gríðarlega.”
“Ekki gat hann lifað af því, eða hvað?”
“Nei, enda dó hann mjög snögglega.”
“Réttinum er slitið,” tilkynnir dómarinn hátíðlega. - “Þú dæmist saklaus og ert frjáls ferða þinna.”
“Þýðir þetta þá að ég megi halda öllu þýfinu?”
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 12. apríl 2009

Bisnessmaður sendi konu sinni fax :
“Til elskulegrar eiginkonu minnar:
Þar sem þú ert 54 ára og skilur væntanlega, eftir 30 ár í hjónabandi, þá eru ákveðnar þarfir sem þú getur ekki lengur uppfyllt. Ég er mjög hamingjusamur með þér og virði þig sem góða eiginkonu. Þess vegna vona ég að eftir að hafa lesið þetta fax, munir þú ekki gera mikið úr þeirri staðreynd að ég mun eyða kvöldinu með 18 ára gömlum ritara mínum á Hótel Borg. Góða mín farðu nú ekki í uppnám yfir þessu. Ég mun verða kominn heim fyrir miðnætti”.
Þegar maðurinn kom heim, fann hann eftirfarandi skilaboð á borðstofuborðinu:
“Minn kæri eiginmaður :
Ég hef mótttekið faxið frá þér og þakka hreinskilnina. Ég vil nota tækifærið og minna þig á að þú ert líka 54 ára. Í leiðinni langar mig að segja þér að þegar þú lest þetta verð ég á Hótel Holti með tenniskennaranum mínum honum Mikhael, sem eins og ritarinn þinn er líka 18 ára.
Sem gamalreyndur bisnessmaður og með þína frábæru þekkingu í stærðfræði, muntu sjá að við erum í samskonar málum … þó með einum smá mun :
18 gengur oftar (upp) í 54 heldur en 54 í 18 …. og því verð ég ekki komin heim fyrr en um hádegi á morgun!
Koss og knús frá eiginkonu þinni, sem virkilega skilur þig …”
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 11. apríl 2009

Hjón í sumarfríi fóru í bústað við Þingvallavatn.Eiginmanninum fannst best að veiða við sólarupprás. Konunni fannst gaman að lesa. Einn morgunn snýr eiginmaðurinn aftur eftir nokkurra klukkastunda veiðar og ákveður að leggja sig. Þó konan þekkti ekki vel til á Þingvöllum ákveður hún samt að fara á bátnum út á vatnið. Hún siglir stutta vegalengd, setur út akkerið, kemur sér vel fyrir og fer að lesa bók.Stuttu seinna kemur veiðivörður siglandi á bát sínum og leggur við hlið konunnar.
“Góðan daginn frú, hvað ert þú að gera?” spyr hann.
“Ég er að lesa bók,” svarar hún.( hugsar með sér, hvort það sé ekki augljóst!)
“Þú ert á lokuðu veiðisvæði,” segir vörðurinn.
“Fyrirgefðu, ég er ekki að veiða. Ég er að lesa,” segir konan.
“Já,” svarar vörðurinn.”En þú ert með allar græjur, hvað veit ég nema þú farir að veiða eftir skamma stund. Ég verð að fá þig í land svo ég geti gert skýrslu um þetta”.
“Ef þú gerir það verð ég að kæra þig fyrir nauðgun”, svarar konan þá.
“En ég hef ekki snert þig!” segir vörðurinn forviða.
“Það er rétt en þú hefur allar græjur og hvað veit ég nema þú byrjir eftir skamma stund?”
“Hafðu það gott í dag frú,” sagði vörðurinn og sigldi burt.
(Boðskapur sögunnar er: Aldrei rífast við konu sem er að lesa. Það er mjög líklegt að hún geti hugsað um leið!)
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 10. apríl 2009

Jóhann gamli kom á sjúkrahús í fyrsta sinn á ævinni. Það átti að rannsaka hann.
Þegar hann kom inn í móttökuherbergið tók á móti honum ung og falleg hjúkrunarkona.
Hún benti honum á einn básinn og sagði:
“Svo háttum við okkur hér inni”.
Jóhann gamli horfði lengi á hana en sagði svo:
“Þorum við því?”.
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 9. apríl 2009

Simmi reiknar ekki með að arðgreiðslur fyrir árið 2008 verði nema kannski helmingur af arði ársins 2007.
Eigandi Söluturns Simma greiddi sjálfum sér arð af rekstri félagsins á síðasta ári, 10 milljarða króna, þrátt fyrir að söluturninn hafi ekki skilað nema 5.000 króna hagnaði.
„Þetta var nú bara tala sem ég áætlaði. Ég var ekkert að reikna þetta í drep. Ég hafði rosalega góða tilfinningu fyrir rekstrinum, var með margar mjög sterkar spólur í leigu, Spædermann þrjú og svona – þannig að ég ákvað bara að tríta mig aðeins,“ segir Simmi, en viðurkennir um leið að hann hafi aðeins farið fram úr sér.
„Ég vona bara að stjórnvöld sýni þessu skilning og komi með pening inn í reksturinn. Það hefur aldrei verið jafn mikilvægt og nú að halda þessum litlu vídeóleigum gangandi.“
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 8. apríl 2009

Nonni litli er í sjötta bekk grunnskóla.
Dag einn var samfélagsfræði og þá spurði kennarinn hvað feður þeirra störfuðu.
Börnin svöruðu eins og þeim er lagið: Pabbi minn er lögga, brunaliðsmaður, skrifstofumaður, vinnur í verslun og svo framvegis.
En kennarinn tók eftir því að Nonni litli var óvenju hljóður og lét lítið fara fyrir sér.
“Hvað gerir svo pabbi þinn”, spurði kennarinn Nonna litla.
“Hann dansar nakinn fyrir framan karla á öllum aldri á veitingastað á kvöldin og á næturnar.
Svo græðir hann fullt á því að fara með þeim áhorfendum sem best bjóða út í portið á bak við veitingastaðinn þar sem hann dansar einkadans fyrir þá í nokkrar mínútur”.
Kennarinn varð eðlilega mjög undrandi yfir svari Nonna litla og í miklu fáti skipaði hann hinum krökkunum að fara að lita, en Nonna litla tók hann afsíðis.
“Er þetta alveg satt sem þú sagðir um hann pabba þinn … Dansinn og allt það?”
“Nei, nei” sagði Nonni litli feiminn.
“Pabbi vinnur hjá einum af bönkunum en ég þorði sko alls ekki að segja það fyrir framan hina krakkana”.
Fært undir Brandarar | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 7. apríl 2009

Rummungsþjófur nokkur var fallinn í hendur lögreglunnar.
Lögregluþjónn einn fékk skipun um að fylgja honum í varðhaldið.
Á leiðinni kom vindkviða og tók hattinn af þjófnum.
Segir hann þá við lögregluþjóninn: “Leyfið mér að hlaupa eftir hattinum mínum”.
“Nei, góði minn! Slík viðbrögð þekki ég nú vel. Í stað þess að sækja hattinn, hleypur þú leiðar þinnar. Stattu bara kyrr hérna, ég skal sækja hattinn!”.
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 6. apríl 2009

Maður nokkur var þekktur fyrir sitt siðavanda líferni og auðvitað var presturinn besti vinur hans og kom oft í heimsókn.
Nú, einn daginn keypti maðurinn sér tvo páfagauka. Á heimleiðinn rann það upp fyrir honum að hann hafði gleymt að spyrja hvor væri karlfugl og hvor væri kvenfugl en auðvitað skipti þetta manninn miklu máli.
Þegar heim kom setti hann gaukana í sama búr, slökkti ljósið og gekk út.
Eftir nokkra stund kemur maðurinn aftur inn í herbergið og sjá, karlfuglinn er kominn upp á kerlinguna svo enginn vafi leikur á hvor er hvað.
Maðurinn tekur karlinn og hefur ekki önnur ráð en að setja hvítan kraga um hálsinn á honum svo hann þekki hann örugglega aftur og setur hann að því loknu í annað búr.
Daginn eftir kemur prestur í heimsókn og um leið og hann birtist í dyrunum sér karlfuglinn hann.
Þá gargar sá fiðraði glaðklakkalega: “Jæja, karlinn. Þú hefur þá verið staðinn að verki líka!”
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 5. apríl 2009

Þrír menn voru á gangi þegar þeir komu allt í einu að djúpri, straumharðri og vatnsmikilli á. Þeir urðu að komast yfir á hinn bakkann en vissu ekki hvernig þeir ættu að fara að því.
Sá fyrsti bað til Guðs “Kæri Guð veittu mér styrk til að komast yfir ána!” Og búmm! Guð gaf honum sterka vöðva svo hann gat synt yfir ána. Þetta þrekvirki tók hann tvo klukkutíma og hann var nokkrum sinnum nær dauða en lífi.
Þá sagði sá næsti “Kæri Guð, gefðu mér styrk og verkfæri til að ég geti komist yfir ána” Og búmm! Guð gaf hónum árabát og hann var um klukkustund að róa yfir á hinn bakann. Oft var báturinn mjög nærri því að velta.
Sá þriðji hafði fylgst með svaðilför hinna og lagðist á bæn. ”Kæri Guð, gefðu mer styrk, verkfæri og gáfur svo ég geti komist yfir ána” Og búmm! Guð gerði mannin að konu. Hún skoðaði kortið, gekk upp með ánni nokkur hundruð metra og fór svo yfir brúna.
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 4. apríl 2009

Þetta er alveg rosalegt…
Nýjar rannsóknir hafa leitt í ljós að bjór inniheldur kvenhormón og er því hættulegur fyrir karlmenn.
Karlmenn sem drekka bjór taka upp hegðunarmynstur kvenna og ef drykkjunni er haldið áfram geta þeir átt á hættu að breytast í konur.
100 karlmenn voru látnir drekka bjór og eftir aðeins sex bjóra voru áhrifin orðin sýnileg á öllum mönnunum (100%).
Þeir:
þyngdust, fóru að blaðra tóma vitleysu, gerðust alltof tilfinninganæmir, gátu ekki keyrt, gátu ekki hugsað rökrétt, rifust útaf engu og neituðu að biðjast afsökunar þótt þeir hefðu rangt fyrir sér.
Að teknu tilliti til ofangreindra þátta er sterklega varað við bjórdrykkju meðal karlmanna.
.
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 3. apríl 2009

Ég og kærastan mín vorum búin að vera saman í meira en ár svo við ákváðum að gifta okkur.
Foreldrar okkar hjálpuðu okkur á allan hátt. Vinir mínir hvöttu mig og kærustuna.
Hún var algjör draumur!
Það var aðeins eitt sem var að bögga mig og þessi eini hlutur var yngri systir hennar.
Mín tilvonandi mágkona var 20 ára og var oftast í míní-pilsi og stuttri blússu.
Hún beygði sig yfirleitt þegar hún var nálægt mér svo ég fékk oft mjög ánægjulega yfirsýn yfir nærfötin hennar. Þetta hafði verið úthugsað!
Hún gerði þetta aldrei þegar hún var nálægt einhverjum öðrum.
Einn daginn hringdi litla systirin og spurði hvort ég vildi ekki koma og kíkja á giftingaboðskortin með sér. Hún var alein heima þegar ég kom. Hún hvíslaði að mér að fljótlega yrði ég giftur en hún hefði tilfinningar og löngun til mín. Hún sagði mér að hana langaði til að hafa mök við mig, bara einu sinni, áður en ég giftist systur hennar.
Ég var í algjöru sjokki, kom ekki upp neinu orði. Hún sagði: ”Ég ætla upp í rúm og ef þig langar að halda áfram komdu þá og náðu í mig”. Þegar hún var komin efst upp í stigann fór hún úr nærbuxunum og henti þeim niður til mín.
Ég var agndofa, ég var frosinn, ég var í sjokki.
Ég stóð þarna í smátíma. Síðan snéri ég til dyra og fór út úr húsinu. Ég gekk í átt að bílnum mínum.
Tengdapabbi minn tilvonandi stóð þarna með augun full af tárum, gekk til mín, faðmaði mig og sagði: “Við erum svo ánægð með að þú stóðst þetta litla próf. Og getum ekki beðið um betri mann fyrir dóttur okkar. Velkominn í fjölskylduna!”
Boðskapurinn með þessari sögu er:
ALLTAF GEYMA SMOKKANA Í BÍLNUM!
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 2. apríl 2009

Það var í Fákshúsunum.
Þrír gæðingar voru að rabba saman og hafði hver um sig eitthvað til síns ágætis svo þeir höfðu frá ýmsu að segja.
Graði Gráni setti upp talsverðan hrokasvip, þegar honum sagðist svo frá:
“Það var þegar ég var að fylja merarnar og tók kannski tíu á dag – mikið fjári gat ég stundum verið aumur í “honum” daginn eftir.”
Glettingur hafði frá ýmsu að segja:
“Sko, þegar ég hafði unnið skeiðið á Vindheimamelunum, veitti mér ekki af hvíldinni.”
Blakkur gamli sagði:
“Ég hef nú sjaldan komist í hann krappari, heldur en þegar ég vann stökkið í fyrra.
Kemur þá ekki hundur skokkandi inn í hús en hann hafði verið með eiganda sínum í útreiðatúr upp í Mosfellsbæ.
Hann hendir sér niður með lafandi tungu og stynur:
“Alveg er maður eins og lappalaus eftir að hafa skokkað svona allan daginn.”
Hestarnir litu steinhissa hvor á annan og Graði Gráni segir:
“Detta mér ekki allar dauðar lýs úr höfði. Talandi hundur!”
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »