Gylfi

Meðlæti í mótlætinu.

  • Dagatal

    júní 2009
    S M Þ M F F L
    « maí   júl »
     123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    282930  
  • Heimsóknir

    Í dag: 151 Alls: 205225

  • Flettingar

    Í dag: 421 Alls: 867415

  • Vísa vikunnar

    Nú er liðið nokkurt fár......... níddri þjóð til ama.............. nú er komið annað ár.......... og allt er við það sama.......
  • Geðorðin 10

    ● 1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara ● 2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um ● 3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir ● 4. Lærðu af mistökum þínum ● 5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina ● 6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu ● 7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig ● 8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup ● 9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína ● 10. Setttu þér markmið og láttu drauma þína rætast
  • Gullmolar

    ● Þér líður eins og þú hugsar. ● Ánægja gerir fátækan mann ríkan, óánægja gerir ríkan mann fátækan. ● Það er engin leið að hamingjunni - hamingjan er leiðin. ● Taktu það með þér úr fortíðinni sem þú getur lært af. Gerðu hitt upp og skildu það eftir. ● Þú getur ekki bætt árum við líf þitt. Þú getur hins vegar bætt lífi við árin þín. ● Betri er kona í rúmi en köttur úti á túni. ● Bekkur án kvenna er eins og höfuð án verkja. ● Of mikið af húsverkum geta valdið heilaskaða. ● Auðvelt er að komast hjá gagnrýni með því að segja ekkert, gera ekkert og vera ekkert.

Færslur júní, 2009

Í réttarsalnum.

Fært af Gylfi þann 30. júní 2009

Læknirinn var kallaður til vitnis og lögmaðurinn sem talinn var einn af þeim hörðustu í stéttinni, sá um yfirheyrsluna.

 

Lögmaðurinn: “ Læknir, gáðuð þér að hjartslætti áður en þér hófuð krufninguna?”

 

Læknirinn: “ Nei.”

 

Lögmaðurinn: “ Gáðuð þér að öndun eða blóðþrýstingi?”

 

Læknirinn: “ Nei.”

 

Lögmaðurinn: “ Jæja, þá er hugsanlegt að sjúklingurinn hafi verið lifandi þegar þér hófuð að kryfja hann?”

 

Læknirinn: “ Nei, heilinn úr honum var í stórri krukku á borðinu hjá mér.”

 

Lögmaðurinn: “ En gæti sjúklingurinn ekki hafa verið á lífi engu að síður?”

 

Læknirinn: “ Nei, en bíddu nú annars við. Það er ekki útilokað, ef um lögfræðing hefur verið að ræða !”

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Timburmenn.

Fært af Gylfi þann 29. júní 2009

Maður nokkur var á heimleið með slæma timburmenn á sunnudagsmorgni og fann að hann hafði týnt hattinum sínum.

 

Honum kom í hug að auðveldasta leiðin til að bæta sér upp missinn væri að fara í kirkju og stela hatti í anddyrinu.

 

Hann kom inn í kirkjuna og heyrði ræðu, byggða á boðorðunum tíu.

 

Hann beið til loka messunnar og hitti prestinn að máli.

“Þú forðaðir mér frá því að drýgja glæp,” sagði maðurinn. “Ég kom hingað til að stela hatti en hætti við það eftir að hafa hlustað á þig.”

 

“Dásamlegt,” sagði prestur. “Var það kaflinn um að ekki mætti stela sem breytti hugarfari þínu?”

 

“Nei,” sagði maðurinn. “Það var þegar þú komst að boðorðinu – Þú skalt ekki drýgja hór – sem ég mundi hvar ég hafði skilið hattinn eftir.”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Golfraunir.

Fært af Gylfi þann 26. júní 2009

Prestur nokkur var gramur yfir því að einn vina hans sigraði hann alltaf í golfi.

 

Þessi vinur hans sem var töluvert eldri en hann, reyndi að hugga hann og sagði:

“Taktu þetta ekki svona nærri þér. Þú sigrar að lokum. Það líður ekki á löngu þangað til þú jarðar mig.”

 

“Vera má,” andvarpaði presturinn. “en það verður samt þín hola!”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Prestur í fleirtölu.

Fært af Gylfi þann 25. júní 2009

Gamall skoskur prestur var að húsvitja með djákna sínum.

 

Það var kalt í veðri og í hverju húsi fengu þeir eitthvað til að ylja sér á.

 

Eftir áttunda húsið fór prestur ögn að vantreysta sér og sagði:

“Tammas minn, gakktu ögn á eftir mér og gættu að hvort ég gangi sæmilega beint.”

 

Tammas staðnæmdist þegar í stað og þegar hann hafði horft á eftir presti ganga nokkur skref, kallaði hann:

“Allt í lagi prestur minn, þú gengur þráðbeint. En hver er þarna með þér?”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »

Presturinn.

Fært af Gylfi þann 23. júní 2009

Prestur dó og fór til himna.

Næstur á undan honum í röðinni við Gullna hliðið var ungur maður með sólgleraugu, klæddur í gallabuxur og skræpótta skyrtu undir leðurjakka.

 

Sankti Pétur spurði hann:

“Hver ert þú, svo ég megi veita þér aðgang að dýrð himnanna?”

“Ég er Joe Cohen leigubílstjóri frá New York.”

Sankti Pétur leitaði að honum á listanum hjá sér, fann hann, brosti og sagði:

“Taktu þennan silkikufl og silfurslegna staf og gakktu inn í fögnuð herra þíns.”

Leigubílstjórinn tók fúslega við því sem að honum var rétt og gerði það sem fyrir hann var lagt.

 

Þá var röðin komin að prestinum sem sagði borginmannlegur:

“Ég er Joseph Snow og var prestur hjá söfnuði heilagrar Maríu í 43 ár.”

Sankti Pétur leitaði í kladdanum, fann hann og sagði:

“Rétt er nú það. Taktu þessa bómullarskikkju og eikarstaf og gakktu inn í fögnuð herra þíns.”

“Heyrðu góði,” sagði presturinn. “Hér á undan mér var leigubílstjóri frá New York sem fékk silkikufl og silfursleginn staf en ég fæ bara bómull og eikarprik. Hvað er eiginlega að gerast hér?”

“Vinur minn,” sagði Sankti Pétur. “Í himins bók er spurt um hverju menn hafi áorkað. Í 43 ár prédikaðir þú yfir sofandi söfnuði.

Maðurinn á undan þér var aðeins fá ár leigubílstjóri í New York en í hverri ferð hans lágu farþegar á bæn.”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Hreyfing er holl.

Fært af Gylfi þann 22. júní 2009

 

Foreldrafræðslan var í gangi. Salurinn var fullur af ófrískum konum og mökum þeirra.

 

Leiðbeinandinn náði vel eyrum fólksins og sagði:

“Dömur mínar, æfingar eru góðar fyrir ykkur. Ég mæli sérstaklega með því að þið fáið ykkur göngutúra.

 

Og herrar mínir, það myndi alls ekki skaða ykkur að fara út að ganga með konunum ykkar.”

 

Enginn sagði neitt í smástund en svo rétti einn verðandi faðir upp höndina og spurði:

“Er allt í lagi að hún dragi golfkerru á eftir sér á göngunni?”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

P-pilla fyrir ömmu.

Fært af Gylfi þann 19. júní 2009

 

Eldri kona kom til læknis og bað hann um lyfseðil fyrir getnaðarvarnarpillum handa sér.

Læknirinn varð vægast sagt undrandi.

 

“Fyrirgefðu frú mín góð en ertu ekki orðin áttatíu ára gömul? Hvað ættir þú svo sem að gera við getnaðarvarnarpillur?”

 

“Ég reikna með að ég muni sofa betur ef ég fengi þær,” svaraði konan.

 

Læknirinn hélt að konan væri orðin elliær.

“Hvernig í ósköpunum dettur þér í hug að þú munir sofa betur af svona pillum?”

 

“Ég ætla að blanda þeim saman við ávaxtasafann sem ég gef dótturdóttur minni á hverjum morgni og þá er ég viss um að ég sef betur á nóttunni,” svaraði konan.

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Á barnum.

Fært af Gylfi þann 12. júní 2009

Stór og mikill kvenmaður, í ermalausum sumarkjól gekk inn á bar.

 

Hún lyfti hægri handleggnum hátt upp, svo kafloðinn handarkrikinn blasti við,

- benti yfir þéttsetinn barinn og spurði:  “Er hér einhver karlmaður sem vill bjóða konu í glas?”

 

Það sló þögn á mannskapinn, sem reyndi að leiða brussuganginn í henni hjá sér.

 

Lítill sjóari, kófdrukkin og glaseygður sem sat við enda barborðsins, sló í borðið og hrópaði: “Gefðu ballerínunni í glas”

 

Barþjónninn hellti í glasið og skessan þambaði úr því.

 

Hún sneri sér aftur að gestunum og með sama gassaganginum glennti hún loðinn handarkrikann framan í þá og spurði:

 

“Er hér einhver karlmaður sem vill bjóða konu í glas?”

 

Aftur var það litli, fulli sjóarinn sem skellti peningum á barborðið og sagði “Gefðu ballerínunni aftur í glas”

 

Barþjónninn gekk til hans og sagði:  Heyrðu kallinn minn - það er þitt mál ef þú vilt borga vínið fyrir kjellinguna,

- en af hverju kallarðu hana alltaf ballerínu ?

 

“Ég fullyrði”, svaraði fulli sjóarinn - “að kona sem getur lyft fætinum svona hátt, hljóti að vera ballerína” 

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Í miðju Góðærinu.

Fært af Gylfi þann 11. júní 2009

Í miðju Góðærinu:
Ég á minnsta húsið í götunni,
Það er húsið sem stendur hjá Lödunni.
Þegar granninn lætur renna í pottinn hjá sér-
Kólna allir ofnar hjá mér.
Eftir að granninn dubbaði upp garðinn hjá sér
Skín ekki sólin inn í garðinn hjá mér.
Granninn fær ráðherra í grill til sín
og bræluna leggur svo yfir til mín.
Granninn á jeppa af flottustu sort,
En ég á bara ljóta Lödu Sport.
Ég fer í vinuna með rútunni,
en hann fer með einka þyrlunni.
Konan hans eldist ekki hætings hót,
en mín er alltaf bæði feit og ljót.
Granninn er stæltur og með hárið ljóst,
En ég er bæði með ístru og lafandi brjóst.
Aumingja ég.
Þegar graninn er með veizlu hjá sér,
býður hann öllum nema mér.
Elton Jhon skemmti í afmælinu,
en ég hafði bara efni á Breiðbandinu.
Óþolandi er oft granninn minn,
Það trúa því fáir, að þetta sé hann
sonur minn.

 

Kreppan skellur á:
Nú er hann kominn á heimilið mitt,
og fluttur í gamla herbergið sitt.
Í kreppunni hann missti allt sitt fé.
Og nú á hann minni pening en ég.
Það kviknaði í báðum jeppunum,
og konan er farin frá honum.
Nú hangir hann heima rosa down,
og bölvar og ragnar Gordon Brown.
 

 

Fært undir Brandarar, Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Við dauðans dyr.

Fært af Gylfi þann 9. júní 2009

Hjartalínuritið gaf til kynna að hjartað væri hætt að slá og gamli maðurinn missti meðvitund.

 

Eftir endurlífgun í u.þ.b.tuttugu sekúndur fór hjartað í gang aftur og nokkru síðar komst maðurinn til meðvitundar á ný.

 

Þegar sá gamli var orðinn málhress greindi læknirinn honum frá því að hjartað hefði stoppað og spurði, hvort hann gæti munað eftir einhverju sérstöku þá stund.

 

“Ég sá skært ljós og fyrir framan mig stóð hvítklæddur maður,” svaraði sá gamli.

 

Læknirinn var mjög forvitinn að heyra af reynslu mannsins sem staðið hafði við dauðans dyr og spurði:

“Gætir þú nokkuð lýst þessum manni nánar sem þú sást fyrir framan þig?”

 

“Alveg sjálfsagt. Það varst þú!” svaraði gamli maðurinn.

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Magnyl og Viagra fyrir svefninn.

Fært af Gylfi þann 8. júní 2009

Það var með trega sem unga konan fékk inni fyrir föður sinn á hjúkrunarheimilinu.

 

Þegar hún heimsótti hann í fyrsta sinn kom það henni á óvart hversu hress hann var. Hann þreyttist ekki á að bera staðnum  vel söguna og endurtók hvað eftir annað hversu vel hann svæfi.

 

Þegar dóttirin spurði hverju það sætti að hann væri svona ánægður, svaraði gamli maðurinn að læknirinn hefði ákveðið að hann fengi Magnyl og Viagra fyrir nóttina.

 

Dóttirin var handviss um að sá gamli væri eitthvað að misskilja hlutina svo hún spurði læknirinn nánar út í þetta.

 

“Jú, þetta er alveg rétt hjá pabba þínum. Magnylið tekur verkina og bætir þannig svefninn en Viagra kemur í veg fyrir að hann velti fram úr rúminu.”

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Hreyfingarleysi á miðjum aldri.

Fært af Gylfi þann 6. júní 2009

Halldór og Guðrún voru miðaldra hjón sem leituðu til Símonar heimilislæknis, vegna þreytu og óyndis.

 

Eftir að hafa talað við þau og skoðað þau bæði samviskusamlega, sagði læknirinn:

“Það er ekkert annað ykkur en hreyfingarleysi og leti. Það er best að þið takið ykkur tak og farið að hreyfa ykkur úti í guðs grænni náttúrunni. Þið ættuð að finna það fljótlega hvað það kemur til með að hafa góð áhrif á ykkur.”

 

Mánuði seinna kom Halldór aftur á stofuna til Símonar.

 

“Ég fór að ráði þínu, keypti mér golfsett og hef ekki slegið slöku við síðan við hittumst síðast. Mér líður alveg stórkostlega vel.”

 

“Það er ánægjulegt að heyra en hvernig gengur hjá Guðrúnu?” spurði læknirinn.

 

“Æ, því miður hefur ekkert breyst hjá henni. Hún neitar að hreyfa sig.”

 

“Það var leitt að heyra. Ætli sé ekki vænlegast að ég tali við hana aftur,” sagði Símon.

 

“Mikið yrði ég þakklátur fyrir það,” svaraði Halldór.

“Það er náttúrlega mikil sóun að láta sláttuvélina sem ég keypti um daginn fyrir fimmtíu þúsund kall, standa ónotaða í bílskúrnum!”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Hitamælingin.

Fært af Gylfi þann 5. júní 2009

Læknir var gripinn í bólinu hjá húsfreyju í sveitinni.

 

“Ég get útskýrt þetta allt saman,” sagði læknirinn titrandi röddu. “Ég var bara að mæla hitann hjá konunni.”

 

Bóndinn greip til byssunnar.

 

“Ég reikna með að þú vitir hvað þú ert að gera læknir,” sagði hann og tók varlega í gikkinn.

“En þegar þú tekur hitamælirinn út er eins gott að hann sé úr málmi og gleri!”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Lækning við hiksta.

Fært af Gylfi þann 4. júní 2009

Maður nokkur kom hlaupandi inn á bráðamóttökuna.

 

Hann var mjög áhyggjufullur á svip og gekk að fyrsta lækninum sem hann sá og spurði:

“Hver er besta leiðin til að stöðva hiksta?”

 

Eins og hendi væri veifað löðrungaði læknirinn manninn.

 

Maðurinn var að vonum mjög undrandi og greinilega brugðið.

“Hvað á svona háttarlag að þýða?” spurði hann og var hinn argasti.

 

“Eins og þú veist ert þú ekki með hiksta núna,” svaraði læknirinn og reyndi að vera hinn blíðasti.

 

“Það er svo sem rétt,” sagði maðurinn.”Það er hins vegar konan mín sem bíður í bílnum hér fyrir utan sem er með hiksta.”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Karlmenn!!!

Fært af Gylfi þann 3. júní 2009

Ryksugur geta verið hættulegar.

 

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Tveir á typpinu.

Fært af Gylfi þann 3. júní 2009

Rúmlega þrítugur karlmaður kom á heilsugæslustöð og bar sig illa út af inngróinni nögl á hægri stórutá.

 

Hann var ekki fyrr kominn inn en stór og stæðileg hjúkka skipaði honum valdsmannleg á svip að fara inn í skoðunarherbergið og klæða sig úr fötunum.

 

“En mér er bara illt í tánni,” sagði maðurinn.

“Gerðu eins og ég segi,” sagði hjúkkan ákveðin og maðurinn þorði ekki annað en gegna.

 

Í skoðunarherberginu var annar karlmaður hálfstrípaður.

“Þetta er alveg fáránlegt,” sagði maðurinn með tána. “Ég kem hingað með inngróna nögl og er látinn hátta mig.”

 

“Ég skil nú ekki hvað þú ert að fárast yfir því,” sagði hinn maðurinn. “Ég kom bara til að gera við símann.”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | 8 ummæli »

Læknir fær sér gleðikonu.

Fært af Gylfi þann 2. júní 2009

Símon læknir var kominn til ára sinna og var þekktur fyrir að vera bæði glöggur og stundum viðutan. Hann þótti reffilegur karl og geislaði af kyntöfrum.

 

Kvöld eitt eftir langan vinnudag kom hann við á barnum, til að fá sér drykk.

Næst honum sat ákaflega fönguleg og leitandi ung kona.

 

Hún bað Símon að bjóða sér eitthvað að drekka honum til samlætis. Símon bauð í glas.

“Ertu kvæntur?”

“Nei,” svaraði Símon.

“Áttu heima hér nálægt?”

“Já,” svarar Símon.

“Gætir þú hugsað þér að ég kæmi heim með þér?”

“Hvað kostar það?” spyr Símon.

“Fimm þúsund fyrir klukkutímann. Átta þúsund fyrir tvo tíma. Tuttugu þúsund fyrir allt kvöldið.”

“Gott og vel, ætli sé þá ekki best að drífa sig af stað,” segir Símon.

 

Þegar heim var komið til Símonar, segir konan undurblítt:

“Hvar viltu að ég byrji?”

Símon leit á konuna og sagði:

“Ætli það sé ekki best að þú byrjir á að þrífa gluggana.”

 

 

Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning