Færslur í flokknum 'Efnahagur' Category
Fært af Gylfi þann 11. júní 2009

Í miðju Góðærinu:
Ég á minnsta húsið í götunni,
Það er húsið sem stendur hjá Lödunni.
Þegar granninn lætur renna í pottinn hjá sér-
Kólna allir ofnar hjá mér.
Eftir að granninn dubbaði upp garðinn hjá sér
Skín ekki sólin inn í garðinn hjá mér.
Granninn fær ráðherra í grill til sín
og bræluna leggur svo yfir til mín.
Granninn á jeppa af flottustu sort,
En ég á bara ljóta Lödu Sport.
Ég fer í vinuna með rútunni,
en hann fer með einka þyrlunni.
Konan hans eldist ekki hætings hót,
en mín er alltaf bæði feit og ljót.
Granninn er stæltur og með hárið ljóst,
En ég er bæði með ístru og lafandi brjóst.
Aumingja ég.
Þegar graninn er með veizlu hjá sér,
býður hann öllum nema mér.
Elton Jhon skemmti í afmælinu,
en ég hafði bara efni á Breiðbandinu.
Óþolandi er oft granninn minn,
Það trúa því fáir, að þetta sé hann
sonur minn.
Kreppan skellur á:
Nú er hann kominn á heimilið mitt,
og fluttur í gamla herbergið sitt.
Í kreppunni hann missti allt sitt fé.
Og nú á hann minni pening en ég.
Það kviknaði í báðum jeppunum,
og konan er farin frá honum.
Nú hangir hann heima rosa down,
og bölvar og ragnar Gordon Brown.
Fært undir Brandarar, Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 7. febrúar 2009
Jóhanna Sigurðardóttir og Vogarmerkið
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er auðvitað fædd í Voginni, merki sem setur jöfnuð og réttlæti ofar öðrum dyggðum. Fæðingardagurinn er 4. október 1942.

Myndin hér fyrir ofan er eilítið skökk, nokkuð sem ekki ætti að vera þar sem Vogin leggur áherslu á jafnvægi, það að vega og meta hlutina og gæta þess að jafnt sé á báðum vogarskálunum.
Ég ákvað að leyfa myndinni að vera skakkri.
Í fyrsta lagi vegna þess að ég er Hrútur í hugsun og því eðlislægt að láta það fyrsta sem ég geri nægja. Við sem höfum sterkan Hrút í persónuleika okkar erum lítið fyrir að horfa afturábak og endurtaka hlutina. “Ég iðrast einskis” gæti verið mottó Hrútsins.
Í öðru lagi og það sem skiptir máli í vogarferlinu er barátta á milli jafnvægis og ójafnvægis.
Vogin sveiflast til á meðan verið er að setja á skálarnar og leitað er niðurstöðu. Á ég að gera þetta? Eða á ég að gera hitt? Hvað er rétt? Hvað er rangt?
Fyrir vikið eiga Vogir til að vera svolítið brokkgengar, a.m.k. á meðan jafnvægis er leitað.
Ef þú skoðar myndina betur þá sérðu að fyrir neðan aðra skálina stendur ‘ég og mínar þarfir’ og fyrir neðan hina ‘hinir/aðrir og þeirra þarfir’. Í miðjunni er síðan orðið Við. Þetta er kjarni málsins.
Dans Vogarmerkisins er að gæta jafnvægis á milli eigin þarfa og þarfa annarra. Ef of mikil vigt er sett á ‘Ég skálina’ þá fáum við freku Vogina sem valtar yfir aðra. Ef of mikill þungi er á ‘Hinir/aðrir skálinni’ þá fáum við Vogina sem kaupir frið og fórnar eigin þörfum vegna annarra. Þetta er Vogin sem kaupir alltaf í matinn það sem hinir í fjölskyldunni vilja borða.
Jafnvægið er fólgið í því að horfa hvorki of mikið á ‘Ég’ eða of mikið á ‘Hina’. Jafnvægið liggur í ‘við’. Hvað er gott fyrir okkur öll? Hvað er réttlátt fyrir mig og þig?
Með öðrum orðum: Þegar fjórir eru að borða köku þá á hver að fá 25% af kökunni. Það á að skipta henni jafnt. Ég á ekki að fá 75%. Hinir eiga ekki að fá 99%. Ef þessu er snúið á þjóðfélagið þá á ekki að borga einum 200.000 kr. í laun og öðrum 20 milljónir. Ef einhver er veikur þá á þjóðfélagið að gæta hans.Það er þessi jafnvægisleit sem leiðir til þess að Vogin hatar óréttlæti.
Jóhanna Sigurðardóttir, John Lennon og Gandhi, Vogir sem setja og/eða settu réttlætið ofar öðru.
Í sambandi við Jóhönnu þá veit ég ekki klukkan hvað hún er fædd. Einhvern tímann sá ég tíma nálægt hádegi og þar með Sporðdreka Rísandi. Mér finnst það ekki ólíklegt.
Jóhanna er með Tungl í Ljóni sem þýðir að hún er svolítil prímadonna og dramatíker í sér, en um leið logar sterkur hugsjónaeldur í brjósti hennar. Hún er einlæg, en jafnframt því er hún dul, einræn og einbeitt (Tungl/Plútó samstaða / Sporðdreki Rísandi).
Og að lokum: Frábært fyrir heimilin og fólkið í landinu að tími Jóhönnu sé kominn! Húrra!
Birt með leyfi höfundar: Gunnlaugs Guðmundssonar, Stjörnuspekistöðin ehf.
Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 2. janúar 2009

Kl. 8:15 Mæting - Það gerist aldrei neitt fyrsta korterið.
Kl. 8:16 Vatn sett á kaffikönnuna.
Kl. 8:25 Morgunsopinn.
Kl. 8:45 Farið á salerni með blað meðferðis.
Kl. 9:00 Gáð til veðurs.
Kl. 9:10 Nokkur persónuleg símtöl.
Kl. 9:20 Morgunskreppur.
Kl. 10:00 Farið á Facebook og nýjustu bloggin lesin.
Kl. 10:30 Farið yfir nýlegar slúðursögur með vinnufélögunum.
Kl. 11:00 Dagdraumar.
Kl. 11:35 Hádegisverður.
Kl. 13:30 Mæting - Rætt um launa- og kjaramál við yfirmanninn.
Kl. 13:50 Nokkur símtöl.
Kl. 14:15 Eftirmiðdagsskreppur.
Kl. 15:20 Kaffi - Dagblöðin lesin.
Kl. 16:10 Síðdegisskreppur.
Kl. 17:30 Mikilvægum störfum safnað saman og þeim frestað til morguns.
Kl. 18:10 Sjónvarpsdagskrá kvöldsins könnuð.
Kl. 18:45 Farið snemma úr vinnu til að hugsa um matinn.

Fært undir Brandarar, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Nám, Tækni og vísindi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 23. desember 2008

Þessi saga gerðist fyrir mörgum árum.
Maður nokkur refsaði 3ja ára gamalli dóttur sinni fyrir það að eyða heilli rúllu af gylltum pappír. Ekki var mikið til af peningum og reiddist hann þegar barnið reyndi að skreyta lítið box til að setja undir jólatréð.
Engu að síður færði litla stúlkan föður sínum boxið á jóladagsmorgun og sagði: “þetta er handa þér pabbi”.
Við þetta skammaðist faðir stúlkunnar sín fyrir viðbrögð sín daginn áður. En reiði hans gaus upp aftur þegar hann áttaði sig á því að boxið var tómt. Hann kallaði til dóttur sinnar, “veistu ekki að þegar þú gefur einhverjum gjöf, þá á eitthvað að vera í henni?”
Litla stúlkan leit upp til pabba síns með tárin í augunum og sagði: “En, pabbi boxið er ekki tómt. Ég blés fullt af kossum í það. Bara fyrir þig pabbi.”
Faðirinn varð miður sín. Hann tók utan um litlu stúlkuna sína og bað hana að fyrirgefa sér.
Það er sagt að mörgum árum seinna, þegar faðir stúlkunnar lést, og hún fór í gegnum eigur hans hafi hún fundið gyllta boxið frá því á jólunum forðum við rúmstokkinn hans, þar hafði hann haft það alla tíð; þegar honum leið ekki vel gat hann tekið upp ímyndaðan koss og minnst allrar ástarinnar sem barnið hans hafði gefið honum og sett í boxið.
Í vissum skilningi höfum við allar lifandi mannverur tekið á móti gylltum boxum frá börnunum okkar, fjölskyldum og vinum, fullum af skilyrðislausri ást og kossum. Það getur enginn gefið dýrmætari gjöf.
Í dag skaltu gefa þér augnablik og njóta stórrar handfylli af minningum. Og mundu að þær verma hjarta þitt og bráðna þar, en ekki í höndum þínum.

Gleðileg jól
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 19. desember 2008

Heyrst hefur að Björgólfsfeðgar séu að stofna nýjan banka, hann mun bera nafnið: I’m Save.
Góða helgi.
Fært undir Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 2. desember 2008

Nú ætla allir að gefa íslenskt handverk í jólagjöf, þessi er tilvalin handa bóndanum !!
Fært undir Brandarar, Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 20. nóvember 2008
Birtist Fréttablaðinu í dag, 20. nóvember 2008

Fært undir Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 20. nóvember 2008
Íslenskur lýtalæknir var staddur á ráðstefnu erlendis með kollegum sínum.
Eftir langa og stranga dagskrá ráðstefnunnar héldu ráðstefnugestir á öldurhús og gerðu sér glaðan dag. Eftir því sem líða fór á kvöldið og nóttina þynntist hópurinn og lokst sátu einungis þeir þaulsetnustu eftir.
Þegar þeir höfðu ekkert meira að tala um fóru þeir að segja hetjusögur af þeim afrekum sem þeir höfðu unnið á skurðborðinu.
Einn Bretinn sagði sögu af því að hann ásamt teymi sínu hafi tekið á móti sjúklingi sem missti hendina í prentsmiðju. Á sjúklinginn græddu þeir nýjan handlegg, lófa og fingur og eftir að hann kom til starfa aftur varð hann svo góður og öflugur verkmaður að hann vann á við 4 og því fóru þrír á atvinnuleysisskrá sem áður störfuðu hjá fyrirtækinu.
Rússnenskum lækni fannst ekki mikið til þess koma og sagði frá manni sem lent hafði inní kjarnaofni. Þeir fengu ekkert annað en hárið inná skurðborðið til sín, græddu á það höfuð, búk og útlimi. Þessi maður varð svo góður verkmaður þegar hann snéri aftur til starfa að hægt var að segja upp heilli vakt í kjarnorkuverinu, 9 manns fóru á atvinnuleysisskrá.
Íslenski læknirinn sagði “iss” við þessari sögu. “Ég var einu sinni staddur niðrí Austurstræti og fann rosalega vonda prumpulykt. Ég veiddi hana í poka og brunaði með hana uppá Borgarspítala og skellti henni á skurðborðið. Við græddum á þetta búk, höfuð, útlimi og enduðum með að setja krullur ofaná þetta allt saman. Úr þessu varð Davíð Oddsson og hann er á góðri leið með að setja alla þjóðina á atvinnuleysisskrá”.
Fært undir Brandarar, Efnahagur, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »
Fært af Gylfi þann 16. nóvember 2008
Birtist Fréttablaðinu í dag, 16. nóvember 2008

Fært undir Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 10. nóvember 2008
Birtist Fréttablaðinu laugardaginn 8. nóvember 2008

Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 7. nóvember 2008

Í dag er ég glaður — í dag vil ég syngja, og dansa til morguns við hverja sem er.
Við flakkarann allt eins og kóng vil ég klingja — ég kæri mig ekkert um nafnið á þér.
Þú ert vinur minn víst
eins og veröldin snýst —
á víxla ég skrifa nú eins og þér líst.
Í dag er ég ríkur - í dag vil ég gefa
demanta, perlur og skínandi gull.
Gakk þú í sjóðinn og sæktu þér hnefa,
uns sál þín er mettuð og barmafull.
Það er ókeypis allt
og með ánægju falt -
og ekkert að þakka, því gullið er valt!
Í dag er ég reiður - í dag vil ég brjóta,
drepa og brenna hér allt nið’r í svörð;
hengja og skjóta’ alla helvítis þrjóta.
Hræki nú skýin á sökkvandi jörð!
Farðu’ í heitasta hel!
Skaki hörmungarél
hnöttinn af brautinni’, og þá er vel!
Í dag er ég snauður og á ekki eyri,
ölmusumaður á beiningaferð.
Einasta vonin að himnarnir heyri —
þó hanga’ um mig tötrarnir, eins og þú sérð.
Gef mér aflóa fat
eða fleygðu í mig mat!
Því forðastu’ að tylla þér þar sem ég sat.
Góða helgi.
Fært undir Brandarar, Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 6. nóvember 2008
Birtist Fréttablaðinu í dag, 6. nóvember 2008

Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 5. nóvember 2008

Einu sinni var gömul kona að ganga niður götu með tvo troðfulla ruslapoka.
Lögreglumaður stóð þarna rétt hjá og tók eftir því að það var gat á öðrum pokanum og 10000 kr seðlar flugu úr pokanum endrum og eins.
Eitthvað fannst honum þetta dularfullt og gekk upp að konunni
“góðan daginn væna mín” sagði hann “hefur þú tekið eftir því að það eru 10000 kr seðlar fjúkandi úr pokanum þínum?”
konan stoppar og lítur bak við sig og sér seðlana á víð og dreif um götuna
“Æ þakka þér fyrir væni minn” stundi í konunni “Ég ætti nú að drífa mig í að taka þá upp”
En þegar hún ætlar að leggja af stað að týna upp seðlana stöðvar lögregluþjónninn hana “Engan asa væna mín, hvernig stendur eiginlega á því að þú ert með fullann ruslapoka af tíu þúsund köllum? varstu að ræna banka?”
Gamla konan brosti “Nei það gerði ég nú ekki en það vill svo til að bak við garðinn minn er stór fótboltavöllur og alltaf þegar mikilvæg mót eru í gangi að þá koma oft ungir menn og míga í blómabeðin hjá mér svo ég tók upp á því að standa þarna með garðklippurnar og segja 10000 kr. eða ég klippi hann af”
“Jahá.. þetta er áhugaverð hugmynd! sagði lögregluþjóninn hugsi !..en hvað ertu með í hinum pokanum?”
“Það eru ekki allir sem borga…”

Fært undir Brandarar, Efnahagur, Slúður, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 31. október 2008

Hugarvíl og harmur dvín,
er horfi ég á frúna.
Hún er eina eignin mín
sem ekki rýrnar núna.
Góða helgi.
Fært undir Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 29. október 2008

Par nokkurt á sjötugsaldri fór til læknis.
Læknirinn spurði hvað hann gæti gert fyrir parið.
Maðurinn svaraði “Viltu horfa á okkur stunda kynlíf?”
Lækninum brá í brún en samykkti.
Þegar parið hafði lokið sér af sagði læknirinn “Það er ekkert að kynlífinu ykkar.”
Og rukkaði um 4000 krónur.
Þetta gerðist margar vikur í röð. Parið pantaði tíma, stundaði kynlíf, borgaði lækninum og fór.
Eftir nokkur skipti spurði læknirinn “Hverju eruð þið reyna að komast að?”
Þá svaraði gamli maðurinn “Engu, Hún er gift og við getum ekki farið heim til hennar. Ég er kvæntur og við getum ekki farið heim til mín.
Það kostar 8000 krónur að gista á hóteli. Við gerum þetta hér fyrir 4000 krónur og fáum 3500 til baka frá sjúkrasamlaginu.”
Fært undir Brandarar, Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 22. október 2008
Einn bankastjóri Landsbankans var spurður að því hvernig hann svæfi þessa dagana.
“Alveg eins og ungabarn” svaraði hann.
Þegar hann var spurður hvað hann meinti með því svaraði hann:
“Ég vakna svona á klukkutímafresti, grátandi og búinn að pissa í rúmið!”
Fært undir Brandarar, Efnahagur, Slúður, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 22. október 2008


SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.
KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.
FASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.
NASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar…og skýtur þig svo.
SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri
mjólkinni.
HEFÐBUNDINN KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú
hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein
SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.
BANDARÍSKA FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar
kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt
niður dauð.
ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR - Íslendingar
Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki
mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig
að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til
viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í
Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn
að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með
eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast
ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur
almenningi í hlutafjárútboði.
FRANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð…vegna þess að þú
vilt eiga þrjár kýr.
JAPANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða
tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju,
„Kúmann“, sem nær miklum vinsældum um allan heim.
ÞÝSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og
mjólka sig sjálfar.
ÍTALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða.
RÚSSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.
Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.
Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr.
Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.
SVISSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun.
Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.
KÍNVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og
blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni
eins og hún er í raun og veru.
INDVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.
BRESKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með gin-og klaufaveiki
ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Bissnessinn gengur vel.
Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.
NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er asskoti löguleg.
ÍRASKT FYRIRTÆKI
Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga.
Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið.
Þú átt enn engar kýr

Fært undir Brandarar, Efnahagur, Nám, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 8. október 2008

An American said:
“We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope, and Johnny Cash.”
And an Icelander replied:
“We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope, and no Cash”.
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 3 ummæli »
Fært af Gylfi þann 5. október 2008

Hjónin Jói og Gunna fóru árlega á flugsýningu sem haldin var nálægt heimabæ þeirra.
Í hvert skipti sagði Jói: “Mig langar til að fljúga í þessari flottu opnu flugvél”. Og á hverju ári svaraði kona hans því sama. “Ég veit það Jói minn, en það kostar tíu þúsund að fara í útsýnisflugið með henni og tíu þúsund er jú tíu þúsund”.
Eitt árið þegar hjónin voru enn og aftur mætt á flugsýninguna sagði Jói: “Ég er orðin 71 árs gamall ef ég fer ekki í flugferð núna þá er ekkert víst að ég fái annað tækifæri til þess framar”. “Útsýnisflugið kostar tíu þúsund og tíu þúsund er tíu þúsund” endurtók konan hans.
Flugmaðurinn heyrði til þeirra og sagði: “Ég skal gera ykkur tilboð. Ég býð ykkur báðum í flugferð og ef ykkur tekst að þegja alla flugferðina þurfið þið ekkert að borga. En þið munið ef þið segjið eitt einasta orð þá þurfið þið að borga tíu þúsund”.
Jói og konan hans samþykktu þetta og innan skamms voru þau komin í loftið.
Flugmaðurinn flaug í alls kyns hringi og snúninga og slaufur um hríð og ekki heyrðist eitt einasta orð frá Jóa og Gunnu. Þegar flugvélin lenti loks snéri flugmaðurinn sér að Jóa og sagði: “Ég gerði allt sem mér hugkvæmdist til að fá ykkur til að hrópa eða segja eitthvað en þið steinþögðuð allan tímann”.
“Ég var nú reyndar að hugsa um að segja eitthvað þegar Gunna datt úr vélinni en tíu þúsundl er jú tíu þúsund” sagði Jói og dæsti.
Fært undir Brandarar, Efnahagur, Flug, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 2. október 2008

Smá innlegg í fjármálaumræðuna. Eru ekki allir að gera það gott, annars ?
LAUSAFÉ:
REIÐUFÉ:

BUNDIÐ FÉ:

FJÁRSTÝRING:

FJÁRSKORTUR:

FJÁRMÁLARÁÐGJÖF:
FJÁRDRÁTTUR:

FJÁRMÁLAEFTIRLIT:
FJÁRVANA:
Og loks AUÐKÝFINGUR ÁRSINS 2008:
——-
Þegar ég var að millifæra nokkrar millur í Netbankanum í dag, komst ég inn á póst sem Lárus Welding sendi starfsmönnum Glitnis eftir síðustu helgi. Hluti hans er svohljóðandi:
Hlýði fólk á mína melding:
Það laust hér niður elding.
Okkar býður ógn og gelding.
Undirritað: Lárus Welding.
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Bull og vitleysa, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 5 ummæli »
Fært af Gylfi þann 25. júní 2008

Nú ætlar undirritaður að skella sér norður til Agureyriss og kanna hvað er hæft í sögum um þessa alræmdu sundlaug þar.
Annars skal það viðurkennt það er bara yfirskin vegna þess að ég er að fara að heimsækja vinkonur mínar Brussulínu og Minnu.
Það getur samt verið að ég skelli mér í laugina þar sem ég hef verið í sundkennslu hjá einkaþjálfara, núna í tvo mánuði. Brussulína hefur einnig lofað mér því að vera með björgunarhringinn tilbúinn og Minna ætlar að vera með krókstjakann, þannig að öllu ætti að vera óhætt.
Nú ef ekki verður búið að hreinsa laugina má alltaf skála við stelpurnar.


Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Matur og drykkur, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 6 ummæli »
Fært af Gylfi þann 24. júní 2008

Afgreiðslumenn gera það umbúðalaust.
Augnlæknar gera það sýnilega.
Einstein gerði það afstætt.
Einstæðir gera það að skilnaði.
Fjallgöngumenn gera það hátt uppi.
Flugmenn gera það í loftinu.
Fréttamenn gera það stuttlega.
Galdramenn gera það óskiljanlega.
Grínistar gera það með glöðu geði.
Gullsmiðir gera það fínlega.
Göngugarpar gera það rösklega.
Hárgreiðslufólk gerir það snyrtilega.
Heimspekingar gera það spyrjandi.
Hermenn gera það í takt.
Kennarar gera það af kunnáttu.
Kóngar gera það höfðinglega.
Íhaldsmenn gera það reglufast.
Ívan gerði það grimmilega.
Lauslátir gera það frjálslega.
Ljósmyndarar gera það í myrkri.
Málfræðingar gera það - að sögn.
Popparar gera það taktfast.
Prentarar gera það hástöfum.
Róttækir gera það fram á rauðan dag.
Sérfræðingar gera það ítarlega.
Sóldýrkendur gera það berlega.
Stærðfræðingar gera það hnitmiðað.
Svæfingarlæknar gera það ómeðvitað.
Tortryggnir gera það grunsamlega.
Verkfræðingar gera það vélrænt.
Þjóðverjar gera það að einhverju marki.
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 2 ummæli »
Fært af Gylfi þann 11. júní 2008

Eitt sinn ákváðu Jói og Siggi að fara á skíði saman. Þeir lögðu af stað frá
heimili Jóa á litla sendiferðabílnum hans og héldu norður í land.
Eftir að hafa keyrt í nokkra tíma gerði alveg heiftarlegan skafrenning og
þeir festu bílinn. Þeir brutust gegnum hríðina heim að bóndabæ sem var rétt
hjá og spurðu mjög aðlaðandi konu sem kom til dyra þegar þeir bönkuðu hvort
þeir mættu gista.
“Ég veit að það er alveg hræðilegt veður og ég hef nægt húsaskjól, en ég er
nýlega orðin ekkja” útskýrði hún , “og ég er hrædd um að nágrannarnir færu
að krunka eitthvað ef ég leyfði ykkur að gista. Og það er ég ekki tilbúin í.”
“Ekki hafa áhyggjur,” sagði Jói, “við yrðum mjög ánægðir ef við fengjum að
gista í hlöðunni, og ef veðrinu slotar þá förum við strax.
“Kona samþykkti þetta og Jói og Siggi héldu til hlöðunnar og sofnuðu vært.
Um morguninn var veðrið gengið niður og þeir losuðu bílinn og héldu til
skíða. Þetta varð hin besta skíðhelgi.
U.þ.b. 9 mánuðum seinna fékk Jói óvænt bréf í pósti frá lögfræðiskrifstofu.
Það tók Jóa smá stund að átta sig á bréfinu, en sá þó fyrir rest að það var
frá lögfræðingi ekkjunnar aðlaðandi sem þeir höfðu hitt skíðahelgina góðu.
Jói heimsótti vin sinn Sigga og spurði hann: “Siggi, Þú manst eftir fallegu
ekkjunni á bóndabænum sem við gistum á skíðahelgina góðu fyrir norðan.” ” Já”
sagði Siggi. “Ég man eftir henni.”
“Getur verið” hélt Jói áfram “að þú hafir vaknað upp um nóttina og farið inn
í hús og laumast upp í rúm til hennar.”
“Já” sagði Siggi vandræðalegur yfir því að Jói væri búinn að komast að öllu
saman, “ég verð að viðurkenna það að ég gerði það.”
“Og notaðir þú mitt nafn þegar þú sagðir henni hvað þú hétir?”
Siggi eldroðnaði, “Já, fyrirgefðu vinur, ég gerði það víst.
En af hverju spyrðu?”
“Það er óþarfi að afsaka elsku kallinn minn. Hún var nefnilega að gefa upp
öndina og arfleiddi mig að öllu sínu.”
Og þú hélst að þessi saga endaði öðruvísi. Var það ekki?
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 8. júní 2008
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 28. maí 2008

Svo er bara að passa upp á sólarvörnina.
Mig langaði bara að kveðja vegna þess að ég ætla að skella mér til Portúgals í viku.
Ákvörðunarstaðurinn heitir Albufeira en Plúsferðir var með tilboð (Lokaútkall) þangað, sem ekki var hægt að hafna.
Þar ætla ég að sleikja sólina og reyndar allt sem hægt er að sleikja með góðu móti og gott bragð er af.
Semsagt að haga mér eins og sleiki- og gleðipinni.
Fyrirhugað er að læra portúgölsku á þessari viku þannig að ég geti síðan bloggað fyrir mínu ástkæru lesendur á portúgölsku, ég efast ekki um að það mun auka vinsældir mínar, umtalsvert.
Ef ég hef einhvern tíma og kemst í tölvu gæti svo farið að ég sendi frá mér einhver blogg en ég vona að það verði ekkert af því, ykkar vegna :-))
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 3 ummæli »
Fært af Gylfi þann 27. maí 2008

Hafnfirðingur tók sér far með leigubíl frá Reykjavík til Hafnarfjarðar. Leigubílstjórinn reyndi að koma á vitrænum samræðum og spurði: ,,Veistu hver er ekki bróðir minn, ekki systir mín en samt barn foreldra minna?”
Hafnfirðingurinn hugsaði sig lengi um en svaraði síðan neitandi.
,,Nú, auðvitað ég sjálfur!” skríkti leigubílstjórinn og Hafnfirðingurinn kinkaði kolli og klóraði sér.
Þegar hann kom heim í Hafnarfjörð spurði hann konuna sína sömu spurningar:
,,Heyrðu, Dúna mín, veistu hver er ekki bróðir minn, ekki systir mín en samt barn foreldra minna?”
,,Nei, Siddi, vinur. Það veit ég ekki, hver er það?” svaraði eiginkonan áhugasöm.
,,Það er einhver leigubílstjóri í Reykjavík,” sagði þá Hafnfirðingurinn, kinkaði kolli og klóraði sér!
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 26. maí 2008
Eins og allir vita þá var meðalaldur íslendinga mjög lengi um það bil 35 ár eða eiginlega frá 950 til 1900. Á sama tíma var innflutningur á tóbaki mjög lítill eða nokkrir tugir kílóa á ári og þeir sem höfðu hærri meðalaldur voru hástéttarmenn sem reyktu allt það sem var flutt inn til landsins.
Sé litið til þróunnar á innflutning tóbaks þá byrjar hann að vaxa upp úr aldamótunum 1900, og það er mjög nákvæm fylgni milli kúrfunnar á aukningu innflutnings tóbaks og hækkun meðalaldurs íslendinga. Báðar kúrfurnar nákvæmlega jafnbrattar og meðaldur hækkað úr 35 árum í um 75 ár. Það er svo upp úr 1980 sem vöxtur á innflutningi tóbaks minnkar og kúrfan verur flatari og viti menn, hæknun meðalaldurs hætti einnig að vaxa jafnhratt og hefur síðan þá einungis hækkað úr 75 árum í 78 ár.
Semsagt ef drukkið er rösklega og reykt með þá drepur þú samkvæmt lögmálum Darvins (Survival of the fittest) slöppustu sellurnar, maður finnur það greinilega að morgni dags á eftir þar sem góðu sellurnar fá nánast víðáttubrjálæði og þeysast um í kollinum að við lausn óleystra vandamála
Fært undir Alþjóðamál, Bull og vitleysa, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 25. maí 2008

Ég veit að þið hafið öll heyrt eða lesið um þessi fræði áður, en ég hef ekki séð neinn útskýra þetta eins vel og hinn alvísa Cliff Calvin í Staupasteini.
Cliff Calvin var að útskýra Buffala-kenninguna fyrir vini sínum Norm og það gekk svona fyrir sig:
“Sjáðu nú til Norm, þetta virkar svona….
Buffalahjörð getur aðeins farið jafn hratt og hægasti buffalinn í hjörðinni.Og þegar veitt er úr hjörðinni eru það hinir hægustu og veikustu aftast í hjörðinni sem eru drepnir fyrst.
Þetta náttúrulega val er mjög gott fyrir hjörðina í heild sinni því að með reglulegum drápum á veikustu og hægustu einstaklingunum batnar heilsufar hjarðarinnar og hraði hennar.
Á sama hátt má segja að mannsheilinn geti aðeins unnið eins hratt og hægustu heilasellurnar leyfa.
Eins og við öll vitum þá drepur alkohól heilasellur en eðlilega drepur það hægustu og veikustu sellurnar fyrst.
Á þennan hátt veldur regluleg inntaka áfengis því að veikari sellurnar drepast og þar með því að heilinn verður hraðvirkari og skilvirkari.
Þetta er ástæðan fyrir því að maður verður svona klár eftir nokkra bjóra!!!”
(Tengt efni í næsta bloggi…)
Fært undir Alþjóðamál, Bull og vitleysa, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 24. maí 2008
Tvær vinkonur, Sossa og Systa, voru saman í golfi þegar önnur varð fyrir því óhappi að hitta kúluna illa í upphafshöggi og horfði með skelfingu á eftir kúlunni sem stefndi á hóp karlmanna.
Kúlan lenti inni í miðjum hópnum og einn maðurinn hné til jarðar haldandi báðum höndum á milli fótanna, greinilega sárþjáður.
Vinkonurnar hlupu til mannanna og þegar þær komu að hópnum hélt maðurinn enn höndunum á milli fótanna. Sú sem hafði slegið kúlunni baðst afsökunar og bauð fram aðstoð.
Maðurinn vildi ekki að svo stöddu þiggja aðstoð og sagðist jafna sig eftir smá stund.
Konan þráaðist við, sagðist vera sjúkraþjálfari og vildi fá að þreifa aðeins á
manninum.
Maðurinn lét tilleiðast og fékk hún hann til að leggjast á bakið, tók hendur hans frá, renndi buxnaklaufinni niður og byrjaði að nudda hann rólega.
Eftir smástund spurði hún manninn hvernig honum þætti þetta.
Maðurinn svarar “þetta er mjög gott, en ég er ennþá að drepast í þumalputtanum!”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 23. maí 2008

Ella var á golfæfingu dag einn er hún hitti illa við átjándu holu og golfkúlan lenti beint inni í runna.
Þegar hún ætlaði að fara að skríða eftir henni sá hún hvar lítill sætur froskur var fastur í gildru, um leið og hún losaði hann sagði froskurinn: “Nú færð þú þrjár óskir uppfylltar en ég verð að segja þér frá því að það sem þú óskar þér fær maðurinn þinn tífalt meira af.” Ella sem var mjög glöð og hugsaði með sér að það yrði allt í lagi.
Fyrsta ósk hennar var að hún yrði fallegasta kona heims. Froskurinn varaði hana við og sagði henni að þá yrði maðurinn hennar einning fallegasi maður heims. Ella hugsaði með sér að það yrði fínt, hún væri hvort sem er fallegasta konan og að maðurinn hennar hefði ekki augun af henni. KAZAM!!!… og hún varð að fallegustu konu heims.
Annari ósk sinni varði hún í að biðja um að verða ríkasta kona heims. Þá sagði froskurinn: “Þá mun maðurinn þinn verða 10 sinnum ríkari en þú.” Ella svaraði: “ það er allt í lagi, allt hans er mitt og allt mitt er hans.” KAZAM!!!… og hún varð ríkasta kona heims.
Þá sagði froskurinn: “Jæja þá áttu aðeins eina ósk eftir, hver er hún?”
Ella svaraði: “Ég vil fá vægt hjartaáfall.”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 3 ummæli »
Fært af Gylfi þann 22. maí 2008

Það var einu sinni maður sem fór til að kaupa sér skó. Hann gekk niður Laugaveginn og fann þar skóbúð sem hann hafði aldrei séð áður. Þegar inn var komið tók á móti honum Indverji, klæddur í típíska indverska múnderingu, kuflinn og allt.
Lesist með indverskum hreim (”búrríbúrrí”)
Indverjinn segir: “Góður dagur”.
“Góðan dag” svarar maðurinn, “ég er kominn til að kaupa kuldaskó”.
“Nei, nei, þú kaupa sandalur” sagði Indverjinn.
“Nei, hva, það er að koma vetur, ég hef ekkert við sandala að gera, mig vantar kuldaskó” endurtekur maðurinn. “Þú vantar sandalur, sandalur gera þig graður” segir Indverjinn og hneigir sig.
“Gera sandalar mig graðan?” hváir maðurinn.
“Já” segir Indverjinn og réttir honum sandala.
Maðurinn hugsar með sér að hann geti nú alveg prófað þetta og tekur við þeim. Eitthvað gekk honum nú illa að koma sér í skóna, enda aldrei áður farið í sandala, en um leið og þeir voru komnir á fætur hans finnur hann þessa líka svakalegu greddu koma yfir sig og hann bara ræður ekki við þörfina.
Hann rýkur á Indverjann, kippir kuflinum upp og ætlar að fá sér einn stuttan.
Þá argar Indverjinn upp yfir sig: “Nei, nei, nei, þú vera í krummafótur!”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. maí 2008

Maður sem hafði fíflað eiginkonu Kínverja nokkurs var einn góðan veðurdag svo óheppinn að fá Kínverjann í heimsókn. Hann vildi aðeins vara flagarann við. Léti hann ekki af fíflun sinni ætlaði Kínverjinn að lýsa þrefaldri kínverskri bölvun yfir honum. Flagarinn hló og hélt uppteknum hætti þegar er kvöldaði.
Daginn eftir vaknaði hann í svefnherbergi sínu á þriðju hæð með mikla verki fyrir brjósti. Hann opnaði augun og sá stærðar steinhnullung liggja ofan á brjóstkassanum. Á steininum stóð: “Fyrsta kínverska bölvunin.”
Hann hló og þar sem þetta var sterkur maður stóð hann einfaldlega upp með steininn og kastaði honum út um gluggann. En um leið og steinninn sveif út um gluggann sá maðurinn að hinum megin á hann var letrað: “Önnur kínverska bölvunin. Steinninn er bundinn við hægra eistað.”
Maðurinn hugsaði sig ekki lengi um, ekki vildi hann hljóta svo mikinn skaða niður um sig, svo hann stökk út um gluggann á eftir steininum. En um leið og hann hoppaði niður úr gluggakistunni sá hann þriðju skilaboðin letruð á húsvegginn: “Þriðja kínverska bölvunin. Vinstra eistað er bundið við rúmfótinn.”
Ekki þarf að taka það fram að flagarinn var maður hraðlæs.
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 21. maí 2008

Nýgift hjón voru að sýna vinum sínum íbúðina.
Hún var mjög þægileg og rúmgóð og höfðu hjónin sitt hvort svefnherbergið.
“En hvað gerið þið,” spurði einhver, “ef ykkur langar að vera saman?”
“Þá flautar hann,” sagði unga konan, “og ég fer til hans.”
“En leiðist þér ekki, ef hann flautar ekki?” var þá spurt aftur.
“Þá fer ég í dyrnar,” sagði hún og spyr: “Varstu að flauta elskan?”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 20. maí 2008

Hvað sagði gleðikonan þegar hún settist á nefið á Gosa?
Ljúgðu, Gosi, ljúgðu!!!
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 20. maí 2008

Tveggja manna svefnpoki,
notaður einu sinni,
fæst í skiptum fyrir barnavagn.
Upplýsingar í síma: 8467583
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 20. maí 2008
Fíll og mús fóru einu sinni í bíó og fíllinn settist fyrir framan músina… og músin varð geðveikt pirruð því hún sá ekkert fyrir fílnum og settist fyrir framan hann og öskraði:
Nú veistu hvernig þetta er!!!
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 19. maí 2008
Fangi sleppur úr fangelsi þar sem hann hefur verið í 15 ár. Á flóttanum finnur hann hús og brýst inn í það til að leita af peningum og byssum, en finnur bara ungt par í rúmi.
Hann skipar stráknum að fara úr rúminu, og bindur hann fastann á stól. Síðan fer að hann að stelpunni til að binda hana. Á meðan hann er að binda stelpuna upp í rúmi fer hann uppá hana, kyssir hana á hálsinn og fer svo inná baðherbergi.
Á meðan hann er þar segir strákurinn við stelpuna: Hey þessi gaur er fangi sem hefur flúið, sjáðu bara fötin hans! hann hefur örugglega verið lengi í fangelsi og hefur ekki séð konu í mörg ár. Ég sá hvernig hann kyssti á hálsinn á þér. Ef hann vill kynlíf ekki segja nei og gerðu bara það sem hann segir þér að gera, veittu honum fullnægingu. Þessi gaur hlýtur að vera hættulegur og ef hann verður reiður drepur hann örugglega okkur bæði.
Verstu sterk elskan, ég elska þig!
Konan svarar “Hann var ekki að kyssa á mér hálsinn, hann var að hvísla að mér og sagði að hann væri hommi og fannst þú vera mjög sexy og spurði hvort við ættum eitthvað vaselín inná klósetti.
Vertu sterkur ég elska þig líka!!
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 18. maí 2008

Eins og venjulega fór Eddi snemma í háttinn, kyssti konuna góða nótt og steinsofnaði.
Seinna um nóttina vaknar hann og sér gamlan mann inni í svefnherberginu, klæddan í hvítan kufl.
“Hvað í andskotanum ertu að gera í svefnherberginu mínu ?” segir Eddi reiður.
“Þetta er ekki svefnherbergið þitt,” segir maðurinn, “þú ert kominn til himna og ég er Lykla-Pétur.”
“HVAÐ? Ertu að segja að ég sé dauður ? Ég vil ekki deyja… ég er allt of ungur og á eftir að gera svo margt,” segir Eddi. ” Ef ég er dauður þá vil ég að þú sendir mig til baka á stundinni!”
“Það er nú ekki svo einfalt,” Svarar Pétur. Þú getur aðeins snúið til baka sem hestur eða hæna.
Eða haldið áfram að vera dauður auðvitað.
Eddi hugsaði þetta í nokkrar mínútur og komst að því að það er örugglega ekkert auðvelt líf að vera hestur, úti að hlaupa allan daginn með einhvern á bakinu, svo af tvennu illu þá væri líklegra betra að snúa aftur sem hæna.
Það væri ábyggilega letilíf.
“Ég vil snúa aftur sem hæna…”
Samstundis var Eddi kominn í hænsnakofa með fallegar fjaðrir og allar græjur.
En almáttugur hvað honum var illt í afturendanum.
Það var eins og hann væri að springa!
Þá kemur haninn….
“Hæ þú hlýtur að vera ný hérna.
Hvernig hefurðu það?
“Allt í lagi býst ég við” Svarar Eddi en mér finnst eins og rassinn á mér sé að springa!
“Þú ert bara að fara að verpa. Hefurðu aldrei verpt áður?
Nei hvernig geri ég það?
“Gaggaðu tvisvar og þrýstu svo af öllu afli” Svarar haninn.
Og Eddi gaggar tvisvar og rembist svo eins og hann eigi lífið að leysa.
Skömmu síðar liggur hans fyrsta egg á gólfinu.
“Vá segir Eddi þetta er meiriháttar svo gaggar hann aftur tvisvar og byrjaði að rembast og eitt egg í viðbót liggur á gólfinu.
Þegar hann gaggar í þriðja sinn heyrir hann konuna sína öskra:
“Vaknaðu Eddi, í öllum bænum. Þú ert búin að skíta út um allt rúm!
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 17. maí 2008

Í grendinni veit ég um vin sem ég á
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir líða mér óðfluga frá
og árin án vitundar minnar.
Og yfir til vinarins aldrei ég fer
enda í kappi við tímann.
Sjálfsagt þó veit að ég vinur hans er
því viðtöl við áttum í símann.
En yngri vorum við vinirnir þá
af vinnunni þreyttir við erum.
Hégómans takmarki hugðumst við ná
og hóflausan lífróður rérum.
Ég hringi á morgun ég hugsaði þá
svo hug minn fái hann skilið.
En morgundagurinn endaði á
að ennþá jókst milli okkar bilið.
Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess er að gröf hans ég gékk
að í grendinni ennþá hann væri.
Sjálfur ef þú átt vin góðan í grennd
þá gleymdu ekki hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum send
er sannur og einlægur vinur.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 17. maí 2008

Þau höfðu gift sig fyrir tveimur vikum og manninn klæjaði í að fara á barinn til að hitta félagana.
“Elskan, ég verð enga stund,” segir hann. “Hvert ertu að fara ástin ?” spyr hún að bragði. “Ég fer á barinn krúttið mitt og fæ mér einn bjór”.“Langar þig í bjór ?” spyr hún og opnar ísskápinn og sýnir honum úrval af bjórtegundum, allt frá Hollandi til Japans. (þetta hjónalíf …)
Eiginmaðurinn veit ekki hvað hann á til bragðs að taka og það eina sem honum dettur í hug að segja er; “já elskan… en á barnum er þú veist… bjórinn borinn fram í frosnum glösum…”. Konan greip fram í fyrir honum áður en hann náði að klára setninguna og sagði: “Langar þig í frosið glas krúttímolinn minn ?” Og hún tekur risakönnu beint úr frystinum alsett kristalsmolum af frostinu og hún réttir honum.
Eiginmaðurinn er orðinn hálf fölur og segir; “Já krúsadúlludúkkan mín, uhmm en þeir eru með svo girnilega smárétti… en ég verð ekki lengi. Lofa því. Allt í lagi ?” “Langar þig í smárétti krúsídúllan mín ?” Og hún opnar ofninn og tekur út fimmtán tegundir girnilegra smárétta; kjúklingavængi, sveppahatti, svínakjöt…
“Já, en mín ljúfasta… á barnum… er þú veist… allt þetta dónatal og allt það…” “Oh, þú vilt dónatal, sætasti… HÉRNA, DREKKTU HELVÍTIS BJÓRINN ÚR ANDSKOTANS KRUKKUNNI OG ÉTTU ANDSKOTANS NASLIÐ ÞITT ! ÞÚ FERÐ EKKI FET ! SKILURÐU ÞAÐ ÓFÉTIÐ ÞITT ?!!!
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »
Fært af Gylfi þann 16. maí 2008
45 ára gömul kona fékk hjartaáfall og var flutt á sjúkrahús.
Þegar hún var á skurðarborðinu sá hún “ljósið” Þegar hún sá Guð, spurði hún: ” Er minn tími kominn?”
Guð svaraði: “Nei, þú átt ennþá eftir 43 ár, 2 mánuði og 8 daga ólifaða”
Þegar konan vaknaði eftir aðgerðina ákvað hún að vera lengur á sjúkrahúsinu og láta gera á sér andlitslyftingu, fitusog, brjóstastækkun og svuntuaðgerð. Hún meira að segja lét kalla eftir fólki til að lita á sér hárið og hvíta tennurnar.
Fyrst hún átti svona langt eftir ólifað var alveg eins gott að gera sem mest úr því.
Eftir síðustu aðgerðina var hún útskrifuð og mátti fara heim. Þegar hún var að fara yfir götuna á leið heim, verður hún fyrir sjúkrabíl og deyr.
Þegar hún hitti Guð aftur varð hún fojj og hnussaði: “Ég hélt þú hefðir sagt að ég ætti rúmlega 43 ár eftir ólifuð…..af hverju vísaðiru mér ekki veginn frá sjúkrabílnum?!”
Guð svaraði: “Já en ég þekkti þig ekki…
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 15. maí 2008

Skurðlæknir var vakinn upp með símanum um miðja nótt: “Getið þér komið undir eins?” spurði rödd sem hann kannaðist við. “Konan mín er með svo voðalegt botnlangakast!”
“Það er ómögulegt! Ég sem tók botnlangann úr henni í fyrra! Hafið þér einhvern tíma vitað til þess að ein manneskja hefði tvo botnlanga?”
“Nei, en hafið þér aldrei heyrt, að maður hafi fengið sér nýja konu?”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 14. maí 2008

Tveir gaurar frá Íslandi dóu og vöknuðu síðan upp í helvíti. Daginn eftir tékkar Djöfullinn sjálfur á þeim og sér að þeir sitja í mestu makindum í úlpunum sínum, með vettlinga og húfur og orna sér við eldinn.
“Hvað eruð þið eiginlega að gera?” spyr Djöfullinn, “Er ekki nógu heitt í helvíti fyrir ykkur?”
Gaurarnir svara: “Sko, þú veist, við erum frá Íslandi, landi snjós,íss og kulda. Við erum bara ánægðir að fá smá yl í kroppinn.” Djöfullinn ákveður að þeir séu nú ekki að þjást nóg svo hann skrúfar upp hitann.
Morguninn eftir kíkir hann aftur á gaurana tvo og þarna sitja þeir enn í úlpunum og með húfurnar og vettlingana. “Það er nú ferlega heitt hérna, finnst ykkur það ekki?”
Aftur svara gaurarnir því til að þeir komi jú frá Íslandi, landi snjóa, íss og kulda, við erum bara fegnir að fá smá yl í kroppinn!
Það fór nú að fjúka nett í Kölska og hann ákveður að jafna örlítið um þessa tvo gaura. Hann fer og setur hitann á “Fáránlegt”
Fólk fer að veina og væla út um allt helvíti. Hann fer svo og kíkir á gaurana tvo frá Íslandi og sér að þeir eru komnir á skyrtuna með upprúllaðar ermar og eru að grilla pylsur og þamba bjór. Djöfsi verður steinhissa og segir: “Allir hérna inni þjást og veina, en þið virðist bara njóta ykkar?”
“Já sko, það er svo hrikalega sjaldan að við fáum svona gott veður heima á Íslandi, að við urðum bara að grípa tækifærið og grilla aðeins og súpa á öli.”
Alveg óður af bræði strunsar Djöfsi í burtu og hugsar málið. Að lokum kemst hann að þeirri niðurstöðu að þessir gaurar hafi verið að krókna allt sitt auma líf á Íslandi, þess vegna séu þeir svona kátir yfir öllum hitanum. Djöfullinn ákveður að skrúfa fyrir allan hitann í öllu Helvíti.
Daginn eftir er orðið ískalt í Helvíti og héla og grýlukerti allsstaðar. Fólki orðið svo kalt að það getur vart annað en veinað og aumkað sér yfir kuldanum. Tannaglamur yfirgnæfði samt að mestu veinin.
Djöfullinn glotti með sjálfum sér og fór að kíkja á gaurana frá Íslandi. Þar eru þeir komnir í úlpuna, húfuna og með vettlingana á sér en Djöfsa til mikillar furðu, eru þeir að hoppa og öskra Ole Ole af mikilli gleði.
“Ég skil ekki”, sagði Djöfsi, “ég skrúfaði hitann upp úr öllu valdi og þið voruð bara ánægðir og núna er bullandi frost hérna og þið bara öskrandi af gleði”, ”Hvað í fjáranum er að ykkur tveimur?”
Íslendingarnir líta á Djöfsa með spurn í augum: “Ha, veistu það ekki? Ef það frýs í helvíti, þýðir það bara að Íslendingar hafa unnið Dani loksins á Parken!”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 13. maí 2008

Jónas var staddur á veitingahúsi í Borginni og var að fá sér að borða þar.
Hann fór að ræða við þjóninn sem þjónaði honum og trúði honum fyrir því að hann væri með alveg ótrúlegt lyktarskyn. Hann gæti þekkt hvaða lykt sem væri, hversu lítið sem væri af henni.
Þjónninn dró þessa staðhæfingu í efa, svo Jónas bauð honum að prófa sig.
Þjónninn fór þá inn í eldhús, tók hreinan disk og veifaði honum í góða stund yfir einum pottinum. Síðan fór hann með hann inn og rétti Jónasi. Jónas þefaði vel af diskinum og sagði svo “Lambakjöt með dilli og örlítilli mintu!” Þjónninn varð forviða, en vildi prófa aftur.
Nú veifaði hann diskinum yfir öðrum potti og rétti síðan Jónasi. “Blandað grænmeti!” sagði Jónas.
Nú ákvað þjónninn að gera eitthvað verulega erfitt, svo hann brá diski undir pils stúlkunnar sem var að vaska upp og fór svo með hann til Jónasar.
Jónas þefaði af diskinum, hleypti brúnum af undrun og þefaði aftur.
Í þriðja sinn þefaði hann vel og lengi en sagði svo “Er Magnfríður Jónatansdóttir frá Merkigili að vinna hérna?”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Tækni og vísindi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 12. maí 2008

Sóknarpresturinn var að heimsækja eitt sóknarbarnið, háaldraða konu. Hann tekur eftir skál fullri af girnilegum hnetum á stofuborðinu.
“Mætti ég fá mér mokkrar?” spyr hann.
“Gjörðu svo vel” svarar gamla konan.
Eftir klukkustundarspjall stendur presturinn loks upp til að fara.
Hann tekur þá eftir því að hann hafði klárað allar hneturnar úr skálinni!
“Ég biðst forláts á því að hafa klárað allar hneturnar úr skálinni, ég ætlaði bara að fá mér nokkrar” segir presturinn hálfvandræðalegur.
“Æ, það er allt í lagi “svarar gamla konan. “það eina sem ég get gert eftir að ég missti allar tennurnar er að sjúga súkkulaðið utan af þeim.”
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 10. maí 2008
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Menning og listir, Nám, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af Gylfi þann 9. maí 2008

Eldri hjón voru að horfa á sjónvarpsþátt með predikara kvöld eitt. Predikarinn horfir beint í myndavélina og segir. ,,Kæru vinir, ég vil deila lækningamætti mínum með öllum þeim sem eru að horfa á þáttinn. Setjið aðra höndina ofan á sjónvarpið og hina höndina á þann stað á líkamanum sem ykkur verkjar og ég mun lækna ykkur”.
Konan aldna hafði verið illt í maganum og setti aðra hönd á sjónvarpið og hina á magann á sér. Á sama tíma nálgast maðurinn gamli sjónvarpið og setur aðra höndina á sjónvarpið og hina í klofið á sér.
Konan ygglir sig og segir: ,,Siggi minn, hann er að tala um að lækna sjúka, ekki reisa þá upp frá dauðum”.
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Gylfi þann 6. maí 2008

Ég átti þrjár vinkonur, en ég var ekki viss um hverri þeirra ég ætti að giftast. Til að auðvelda mér valið gaf ég þeim 500 þús. hvorri til að sjá í hvað þær eyddu þeim.
Sú fyrsta fór út og fór í algera yfirhalningu. Keypti sér ný föt, fór á hárgreiðslustofu, handsnyrtingu og fótsnyrtingu semsagt allann pakkann.
Þegar hún kom aftur sagði hún: “Ég eyddi öllum peningunum í mig þannig að þú yrðir ánægður með mig af því að ég elska þig svo heitt.”
Ég varð mjög hrifinn og æstur og við áttum saman yndislegt kynlíf alla nóttina.
Næsta fór út og keypti golfsett, DVD geislaspilara, flatsjónvarp og heimabíó.
Þessi yndislega kona horfði í augun á mér og sagði: “Ég keypti þetta fyrir þig af því að ég elska þig svo mikið.”
Við áttum síðan saman yndislegt kvöld og horðum á nýju græjurnar.
Sú þriðja fór út og keypti hlutabréf fyrir alla peningana og tvöfaldaði verðgildi þeirra. endurgreiddi mér og fjárfesti aftur fyrir afganginn.
Hún sagði: “Ég fjárfesti aftur af því að ég elska þig og vil tryggja okkur örugga framtíð.”
Hún er vel efnuð og hún getur gefið mér lystisnekkju.
Ég velti því fyrir mér vel og vandlega hvernig þær hefðu varið peningunum og ákvað síðan að giftast þeirri sem hafði stærstu brjóstin.
Fært undir Alþjóðamál, Brandarar, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 2 ummæli »