Gylfi

Meðlæti í mótlætinu.

  • Dagatal

    mars 2010
    S M Þ M F F L
    « júl    
     123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    28293031  
  • Heimsóknir

    Í dag: 43 Alls: 206176

  • Flettingar

    Í dag: 114 Alls: 869990

  • Vísa vikunnar

    Nú er liðið nokkurt fár......... níddri þjóð til ama.............. nú er komið annað ár.......... og allt er við það sama.......
  • Geðorðin 10

    ● 1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara ● 2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um ● 3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir ● 4. Lærðu af mistökum þínum ● 5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina ● 6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu ● 7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig ● 8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup ● 9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína ● 10. Setttu þér markmið og láttu drauma þína rætast
  • Gullmolar

    ● Þér líður eins og þú hugsar. ● Ánægja gerir fátækan mann ríkan, óánægja gerir ríkan mann fátækan. ● Það er engin leið að hamingjunni - hamingjan er leiðin. ● Taktu það með þér úr fortíðinni sem þú getur lært af. Gerðu hitt upp og skildu það eftir. ● Þú getur ekki bætt árum við líf þitt. Þú getur hins vegar bætt lífi við árin þín. ● Betri er kona í rúmi en köttur úti á túni. ● Bekkur án kvenna er eins og höfuð án verkja. ● Of mikið af húsverkum geta valdið heilaskaða. ● Auðvelt er að komast hjá gagnrýni með því að segja ekkert, gera ekkert og vera ekkert.

Hefurðu heyrt um…

  • skósmiðinn sem hringsólaði?
  • fjallgöngumanninn sem brá í brún?
  • kafarann sem var svo djúpt sokkinn?
  • trommuleikarann sem sló í gegn?
  • saumakonuna sem tók sporið?
  • sauðaþjófinn kindarlega?
  • köttinn sem fór í hundana?
  • gangastúlkuna sem gekk of langt?
  • kennarann sem kenndi sér meins?
  • smiðinn sem rak við í lófann á sér?
  • húsgagnasmiðinn sem allir stóluðu á ?
  • málarann sem fékk málverk?
  • timburmennina sem naglhreinsuðu sjálfir?
  • kyndarann sem gufaði upp?
  • skókaupmanninn sem sleit barnsskónum?
  • bakarann sem bakaði vandræði?
  • veðurfræðinginn sem þaut eins og elding um allt?
  • gullsmiðinn sem lenti í hringavitleysunni?
  • prestinn sem fékk andann yfir sig?
  • léttadrenginn sem var of þungur?
  • sköllóttu mennina sem fóru í hár saman?
  • slökkviliðsmanninn sem slökkti þorstann?
  • reykingamanninn sem fuðraði upp?
  • sjoppueigandann sem sagði allt gott?
  • blómasalann sem dansaði á rósum?
  • rafvirkjann sem komst í stuð?
  • rafeindavirkjann (sjónvarpsvirkjann) sem truflaðist?
  • hestamanninn sem söðlaði um?
  • grænmetissalann sem átti ekki baun?
  • tannlausa manninn sem beit á jaxlinn?
  • gullsmiðina sem elduðu grátt silfur saman?
  • rakarann sem rakaði saman fé?
  • knattspyrnuþjálfarann sem fékk sparkið?
  • sálfræðinginn sem missti þolinmæðina?
  • kvensjúkdómalæknirinn sem lifði sig inn í starfið?
  • sölumanninn sem seldi upp?
  • slátrarann sem hafði tvær í sigtinu?
  • brúarsmiðinn sem brúaði bilið?
  • fuglafræðinginn sem hóf sig til flugs?
  • tungumálakennarann sem talaði tungum tveim?
  • ljósameistarann sem kveikti á perunni?
  • dýralækninn sem apaði eftir?
  • gleraugnasalann sem var augljós?
  • lyfsalann sem leið kvalir?
  • kokkinn sem var á glóðum?
  • saumakonuna sem var á nálum?
  • múrarana sem létu pússa sig saman?
  • smalann sem fór út um þúfur?
  • biskupinn sem var hrókur alls fagnaðar?
  • nuddarinn sem rétti hjálparhönd?
  • píanóleikarann sem var alveg með á nótunum?
  • ánamaðkinn sem var alger ormur?
  • klæðskerann sem fór í saumana á öllu?
  • langhlauparann sem hljóp á sig?
  • bensínafgreiðslumanninn sem lét dæluna ganga?
  • kokkinn sem varð að éta allt ofan í sig aftur?
  • fasteignasalann sem var ekki í húsum hæfur?
  • spretthlauparann sem allir voru að hæla?
  • boxarann sem sló víxil?
  • þvottakonuna sem var á suðupunkti?
  • smiðinn sem átti undir högg að sækja?
  • skautadrottninguna sem var á hálum ís?
  • veðurfræðinginn sem geispaði golunni?
  • fuglafræðinginn sem hreiðraði um sig?
  • kynlífsfræðinginn sem sagði sex?
  • kafarann sem ekkert bólaði á?
  • blómasalann sem bar ávöxt?
  • bankastjórann sem átti barnaláni að fagna?
  • fangelsisstýruna sem var svo föngulög?
  • lögfræðinginn sem dó ráðalaus?
  • sápugerðarmanninn sem froðufelldi?
  • skurðlækninn sem átti hug og hjörtu allra?
  • skurðlækninn sem datt í skurðinn?
  • bakarann sem pipraði?
  • spilamanninn sem óx ásmegin?
  • sundmanninn sem klóraði í bakkann

Ef þið getið bætt einhverju við þetta safn, þá væri það vel þegið.

4 ummæli um “Hefurðu heyrt um…”

  1. skagen ritaði:

    Hefurðu heyrt um….

    Rafyrkjan sem fékk raflost.
    Skuðlækninn sem datt í skurðinn.
    Hlauparann sem hljóp yfir sig.

  2. skagen ritaði:

    Ohhh. ég átti við
    “Hlauparinn sem hljóp á sig”

  3. skagen ritaði:

    Já og einn til:

    Stangastökkvarann, sem hoppaði yfir slánna.

  4. gumminn ritaði:

    Gleðikonuna sem hætti af því viðskiptavinirnir fóru svo í hana

Rita ummæli

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning