Uppfærsla
Jæja, skilst að það sé kominn tími á öpdate. Reyndar íhugaði ég í dag að hætta að blogga. Heyrði nefnilega símleiðis í góðri vinkonu og áttaði mig þá á því að nánast allir vinir mínir eru hættir að hringja í mig. Held að tvær vinkonur mínar hafi hringt í mig hingað síðan ég flutti hingað fyrir átta mánuðum, það er slakt, en ég get sjálfum mér um kennt þar sem fólk bara les sér til um mig á blogginu og finnst það nóg. Óheppið það reyndar því ég hef frá svo mörgu skemmtilegu að segja;) Ætla samt að biðja fólk ekkert að fara að hringja nema það vilji heheh.
Nú ég er komin heim frá New York. Ferðin var algerlega geggjuð í alla staði. Naut meira að segja ferðarinnar í Heathrow express slík var stemningin. Ég held ég hafi labbað og étið yfir mig, við bjuggum í Greenwich Village í all svaðalegri íbúð, þökk sé James Bond og tökum á þeirri mynd í Panama vorum við þarna tvö;). Ég hefði persónulega látið mér duga baðherbergið og gufubaðs -sturtan, en íbúin var með svona sex metra lofthæð, arinn í stofunni, geggjuðu eldhúsi og ég get haldið áfram. Á horninu á götunni er svo vel þekkur amerískur diner, þar sem maður gat troðið sig út af eggjum, beikoni, kartöflum og ýmsu góðgæti á morgnana, svona fyrir göngur dagsins.
Við skoðuðum Empire state bygginguna og stóðum þar úti á 86. hæð í frekar miklum kulda, samt mjög gaman, Museum of modern art, National history museum (þar sem maður sá Ben Stiller alveg fyrir sér á næturvaktinni), Metropolitan listasafnið var líka skoðað, þar sem ég átti mjög eftirminnilegt múv með innkaupapoka sem ég gleymdi alveg óvart á einhverju skrifborði, eðlileg eða? Guggeheim listasafnið var með geggjaða sýningu með úlfum sem ég stóð alveg dolfallin og horfði heillengi.
Á afmælisdaginn fékk ég sérsdeilis flotta köku í rúmið take away coffee og 3 seríu af Greys Anatomy - Er að verða búin að spænast í gegnum allar seríurnar síðan á nýársdag, well done Hadda;) Eftir kaffið, kökuna og nokkra þætti af Greys, var stormað á sýninguna “Bodies” sem ég hef viljað sjá í mörg ár. Með hökuna lafandi niður á bringu skoðaði ég liði, líffæri, æðar, heila, krabbameinsútötuð líffæri, fóstur og ýmislegt MJÖG áhugavert. Eftir það var það hádegisverður, stormað í nokkrar verslanir þar sem nokkrir dollarar fengu að fjúka. Núbb Í Brooklyn fórum við í mjög eftirminnilegt kaffiboð til vina okkar, kem að því seinna jafnvel. Kvöldið endaði svo í leikhúsi þar sem ég sá minn uppáhaldssöngleik “Rent” það vildi hinsvegar svo illa til að þetta er ein versta uppfærsla sem ég hef séð í leikhúsi svo ég gat ekki á mér setið eftir að hafa kvalist í þóokkurn tíma að ég skipaði Adam að standa upp og fara út, nokkuð fyrir hlé. Ef það er eitthvað sem ég á erfitt með, þá er það að hlusta á vonda músik og þarna var sko nóg af henni. Úff ég fæ bara hrollinn. Fínn afmælisdagur, eiginlega fullkominn. Ég fór hinsvegar á annan stórkostlegan söngleik sem var verið að frumsýna á Broadway “Spring awakening” og hann var hinn fullkomna andstæða við Rent. Stórkostlegt stykki, um nekt, kynlíf, samkynhneigð og fleira gott. Mæli með því að fólk sjái það stykki ef það á leið um New York city. Þar stigu á stokk þekkt andlit úr Boston public, One tree hill, Judging Amy, mamma Meredith úr Greys og fleiri þekkt andlit…
Annars var þetta mjög basic, rölt, kaffi, kakó, muffins, sushi, meira rölt, matur, barir og einstaka búðir, ég kom amk heim með fern skópör;)
Núbb annars er valentínusardagurinn í dag og ég fékk ótrúlega sætt valentínusarkort. Þar sem ég er svo sérlega rómantísk var ég ekki með neitt…. en dróg út mitt tromp um kveldmatarleytið og eldaði himneskt rautt karrý fyrir sambýlismanninn, nú svo er nú ekki öll nótt úti enn með að maður geti gert eitthvað gott hérna á heimilinu.
Svo á Raggi minn besti vinur auðvitað afmæli í dag. 30 ára, unglambið og sjálfsagt í fullu fjöri á vínbarnum *snökt að missa af því*
Sendi ást og frið útí heim……og koss á kinn…..
h
Barnaverndaryfirvöld
Aðstoðarmaður skilur Britney eftir grátandi á gangstétt er ekki næsta skref að koma þessari píu í eitthvað verndað læst umhverfi. Maður spyr sig hvað þetta á að ganga lengi áfram…
Reykjavík ó Reykjavík
Jæja þá er ég búin að fá mér sushi, tærnar nánast farnar af vegna kulda og ég hætti snarlega við að smella mér í bíó. Í miðbænum, n.t.t í Iðu er starfsfólk greinilega ekki að gera meira en það þarf. Þar er jólaskrautið enn að taka mesta plássið í búðinni, nákvæmlega eins og fyrir mánuði síðan. Þá gat ég ekki séð að væri á lækkuðu verði eða neitt slíkt. Bara jólatré og kransar í glugganum og afgreiðslustúlkan mjög upptekin við að senda sms. Frekar slakt.
Eins sá ég að í Eymundsson er hægt að fá trixin hans Einars Bárða á 990 krónur - Stórlækkað verð úr tæpum 5000 kalli.
Svo það er greinilega allt að gerast í Reykjavík.
Djöfulli misheppnuð
Jámm átti gott múv í gær á flugvellinum í Osló. Var mætt stuttu fyrir brottför. Bara með handfarangur og því tók mig það svona 4 mínútur að innrita mig og fara í gegnum security. Gott mál. Ég var afar þreytt og rugluð í hausnum, fór þetta svona án mikilla vangaveltna. Þegar ég var búin að líta svona átján sinnum á skjáinn til að finna út hvaða hlið flogið væri til London var mér ekki farið að standa á sama. Hlið 52, 52, 52, semsagt alltaf sama hliðið og ég alltaf að tékka eins og fífl. Svo lít ég í svona 19 skipið á skjáinn og sé þá að þar blikkar “boarding” ég sem var á hægri göngu að hliðinu hraða mér af stað í stutta röð. Ég rankaði við mér í röðinni, við hlið nr 40 umkringd farþegum á leið til Reykjavíkur. Ég stóð semsagt við innritunarborðið með flugmiða til annars lands svona amk 40 mínútum á undan áætlun… úff hvað mig langaði að leggjast í gólfið bara þarna… fór semsagt úr röðinni og að hliði 52 þar sem ég ákvað að sitja bara og bíða svo ég myndi ekki missa af vélinni heim.
Annars bara allt fínt, búin að sofa í allan dag, mikil þreyta í gangi. Ætla að bregða mér á kaffihús, partý í næstu íbúð í nótt svo það verður sjálfsagt ekki mikið sofið…..
Kem til Íslands á miðvikudag ef einhver vill leika…
Kyssss
Lélegt maður…
Sonur minn varð fyrir því að fá Söngvaborg 4 í jólagjöf… Já ég segi varð fyrir því, einfaldlega því þetta er hreinasti hryllingur. Þetta er svo gerfilegt allt saman, samtölin svo rosalega tilbúin og ekkert spes að sjá Maríu Björk “mæma” þessi barnalög í einu sinki við upptökuna. Svo er hljóðið alveg rosalegt. Hækkar og lækkar og eins og þetta sé tekið upp í gám.
Sjitt nú er Masi kominn á skjáinn, best að huga að sunnudagslambinu…
Skúruð útí horn…
Eins gott að ég fór ekki í verkfræði maður, búin að skúra mig inní stofu að tölvunni og hvað er þá annað að gera en að sulla í eins og eitt blogg meðan gólfin þorna. Ætli þetta sé merki um elli? Ég meina það er LAUGARdagskveld.
Lífið í London er gott fyrir ykkur sem eruð að spá í það. Mæli með að fólk búi í útlöndum. Veðrið hefur verið frábært, nema í dag dálítið kallt. Við fórum í Regent’s park í dag og skutum upp plasteldflaugum sem maður þarf að hoppa á til að skjótist, mínar fóru auðvitað lengst enda stærst, feitust og sætust;)
Einnig fór ég á markaðinn minn með hjólakerruna og birgði mig upp af grænmeti og ýmsu góðgæti og smellti mér svo á einn blómavasa sem ég er búin að hafa augastað á lengi… Usss flókið líf?
Annars hefur netverslun mín farið vel á stað þessa 12 daga ársins 2008. Uppþvottavél, ísskápur, sófasett og svona ýmislegt smálegt er á leiðinni hingað. Bara snilld. Reyndar kemur ísskápurinn og uppþvottavélin ekki fyrr en á miðvikudaginn og sófasettið eftir 10 vikur, maður er kominn með svo dýrann smekk að það dugar ekkert en sérsaumað frá Ítalíu hér inn.
Skólinn fór vel af stað hjá Nóa litla, hann var svoleiðis gvuðððslifandifeginn að komast tilbaka í rútínu og leika sér við vinina. Fékk verðlaun á föstudaginn - eða viðurkenningu fyrir að vera alltaf kurteis og hjálpsamur í tímum. Gott að hann er kurteis þar, því hann er alveg hreint mjög misjafn í skapinu hér heima. Vill vera töffari og vera með stæla og vesen en samt á hann í einhverri baráttu við þessa hegðun svo þetta er ansi hreint mikið stapp oft á tíðum.
Hver sagði svosum að það væri auðvelt að ala upp barn???
Það er oft erfitt að vera samkvæmur sjálfum sér í uppeldinu við þessi grey, skilaboðin verða að vera skýr, reglur fáar en góðar, rútína hentar þessum dreng voða vel en mikið djefill tekur þetta á.
Koddahjalið á kveldin snýst semsagt um uppeldisaðferðir þessi kvöldin….
Núbb annars er lítið að frétta, ég er að hugsa um að halda innflutnings/30 afmæli fyrir alla vini mína… Og þar sem ég á enga vini hér í UK þá verðið þið að koma frá Íslandi… Hvað með föstudaginn langa??? Ég býð gistingu, sushi og ótakmarkaðmagn af hvítvíni og sódavatni??? Hmmm? tékkit át.
Hef verið nær dauða en lífi af þreytu síðan ég kom frá Íslandi, malandi hausverkur og illt í fótunum, já já svona er aldurinn. Gæti skýrst af losun á kaffi og sykru og ýmsum aukaefnum. EN þetta er allt að koma og orkan á uppleið, held samt að það sé réttast að skríða framhjá skúringarfötunni, undir sturtuna og þaðan undir sæng með eina af jólabókunum, Þúsund bjarta sólir. Promising I have to say.
Segi laugardagspistlinum lokið. Lifið heil.
Er ekki best að vera eins og hinir og blogga um Bubba
Já já maður er svo inn að maður fór auðvitað í höllina og sjá Bubba í hvítum smókingnum. Hafði bara gaman af, þrátt fyrir að hann hafi verið smástund í gang og svona.. Drengurinn er bara svo helvíti músikalskur og mikið swing í gangi að maður gat ekki annað en hrifist af. Reyndar fannst mér Raggi Bjarna bera af - eruði að grínast með flottheitin á þessum manni! Röddin, lúkkið svo eitthvað áreynslulítið allt og flott. Reyndar bar bandið líka af. Toppeintak í hverjum stól svo að það gat ekki klikkað;)
Annars er komið árið 2008 - til hamingju með það þið öll. Árið sem ég kemst á fertugsaldurinn *gúlp* Áramótin voru með rólegra móti, tókum fagnandi nýju ári sem mun án efa verða fullt af skemmtilegheitum og dásemdum af öllum toga.
Árið 2007 var líka ágætt. Það byrjaði í London, þar áttum við góða fyrstu viku ársins hjá afa og ömmu, þegar heim kom fór ég svo á eftirminnilega ristilkúrinn þar sem ég bjóst við að skíta sniglum - ehhh það var eftirminnilegt sei sei já - Í janúar fékk ég líka ljótustu klippingu sem ég hef fengið, fór á árshátið 365 og flaug til Akureyrar til að kippa rörum úr eyrum sonarins ásamt nefkirtlum. Í febrúar átti ég afmæli;) veltist um í íbúðarholunni á Bergþórugötunni, milli þess sem ég stundaði vinnu og skóf rúðurnar á reunó-inum mínum;). Í mars fór ég á Þorrablót, seldi íbúðina mína á Akureyri þar sem ég sat fundahrynu í Bláa lóninu. Skrifaði undir tilboðið á rannsóknarstofu Bláa lónsins - Ekkert normallt sem mér viðkemur. Í mars fór ég líka til tannlæknis í fyrsta skipti í 18 ár, með tannpínu. Ojbarastaman…
Apríl var mánuður ýmissa breytinga í lífi mínu, afhenti íbúðina mína á Akureyri eftir að hafa flutt leigjandann út og þrifið eftir hann. Smellti mér í yndislega páskaferð til London og ákvað að flytja þangað, seldi bílinn, sagði upp íbúðinni, fór að taka strætó og hætti að borða hveiti og sykur (hmmm ekki entist þetta lengi með strætóinn og sykurinn hehe). Maí var mánuður dauðans -yfir mér héngu flutningar og þar sem það er það leiðinlegasta sem ég geri - að pakka, var ég að því kominn að æla á klukkutíma fresti. Í maí kaus ég líka nýja ríkisstjórn, fór í tonlist.is partý, horfði á evrovision og yljaði mér við tilhugsunina að brátt myndi ég flytjast úr landi.
Í júní var ég heimilislaus þannig séð… Byrjaði að á að vera hjá Hrafnhildi í Hafnarfirðinum í viku eða svona (takk, takk mín kæra) eftir það hertók ég efri hæðina á K13 og valsaði um eins og einstaklingur með víðáttubrjálæði. Hreiðar Nói varð 4 ára og hélt fína veislu hjá Möggu frænku, tengdaforeldrarnir komu í heimsókn og við rússuðum um nágrenni höfuðborgarinnar og gerðum góða ferð á Snæfellsnesið. Í lok mánaðar pakkaði ég svo niður 50 kg af dóti og drógst á flugvöllinn með einkasoninn, tveimur dögum á eftir bresku familíunni. Komst mjög eftirminnilega hjá því að borga yfirvigt þar sem ég stóð kósveitt, fimm að morgni með fráhneppta skyrtuna yfir brjóstin þar sem ég laug því blákallt að við hefðum átt að vera þrjú, einn hefði forfallast og því stæði ég hér með farangur fyrir þrjá og meira til. - Össs. Júlí var viðburðarríkur einnig;) Fengum íbúðina við Orchardson Street afhenta og eyddi ég meirihluta sumarfrísins í að mála og bera drasl fram og tilbaka, einnig eyddi ég peningunum mínum í nýja búslóð og gólteppi. Útkoman var góð fallegt heimili leit þarna dagsins ljós og okkur leið þar vel frá fyrstu stundu. Hreiðar Nói skoðaði leikskóla sem hann vildi ekki sjá - enda þar ekki að sjá svart barn;) Rigningarúrhelli hrelldi íbúa Bretlandseyja en við létum það ekki á okkur fá og smelltum okkur bara í stígvél. Ágúst var skemmtilegur mánuður, mamma kom og heimsótti okkur um versló, ég brá mér til Íslands um miðjan mánuðinn, við skönnuðum nýja hverfið okkar, smelltum okkur til Tyrklands í sólarlandarferð og lágum þar í hitamóki og fórum í tyrkneskt bað og nudd milli þess sem við átum sish kebab;) Í september gerðist margt skemmtilegt, stóri strákurinn okkar hóf námsferilinn með stæl í King Solomon Academy - Raggi kom í heimsókn, ég fór til Íslands þar sem ég vann og til Noregs þar sem ég var að því komin að snappa. Mæli ekki með Osló og Linux forritun í septemberkuldanum;(,. Í október fékk ég tvær góðar vinkonur mínar í heimsókn Selmu og Sibbu við skoðuðum London og svo þaðan stukkum við Selma til Barcelona og áttum frábæra daga með Jónu og Dögg. Þegar ég kom heim þaðan var svo stokkið í flug, beint til Íslands og beint í icelandairskinkuna, gott ef það var ekki bara tvisvar. Í nóvember fór ég mikla ákvarðanareið í lífinu, fór til Íslands og tók við framkvæmdastjórastöðu D3 og leigði mér íbúð á Bárugötunni (þetta vita ekki margir;)) eftir viku sá ég að ég var ekki alveg á þeirri leið í lífinu sem ég vildi svo ég sagði upp starfinu og íbúðinni. Þetta settlaðist allt ágætlega en við tóku vikuleg flug til Íslands til að sinna því sem sinna þurfti í vinnunni og svonaaaa. Einnig naut ég jólastemningarinnar í London og aðventunnar í bland við tíðar flugferðir á klakann;). Í desember braut ég aðeins útaf vananum í flugleggnum LON-KEF og flaug aftur til Barcelona með Adam. Gerðist ofurrómantísk og bauð sambýlismanninu í rómantíska helgarferð þangað. Kærkominn hvíld fyrir hann frá “einstakur ábyrgur faðir” hlutverkinu og gott fyrir okkur að endurnýja kynni okkar - eftir allt flakkið á kerlingunni:). Eftir Barcelona rauk ég beint til Íslands, þaðan til London og þaðan aftur til Íslands og alla leið norður í land. Þar lá ég svo veik og lauk árinu með glæsibrag.
Í heildina var árið gott. Viðburðarríkt, mikið stuð og mikil læti, öllum líður vel, Hreiðar Nói dafnar vel í skólanum, altalandi í ensku, hraustur og fallegur. Við foreldranir fáum oft sting í magann þegar við horfum á þennan unga dreng og þökkum gvuði fyrir gott eintak.
Við stefnum á gott ár 2008 - aðeins minna um flugferðir og þá er þetta fullkomið. Annars ætla ég að vinna áfram til Íslands og Adam heldur áfram ótrauður á sinni braut sem besti ljósmyndari Bretlands. Lífið er gott - skál fyrir því.
Annars ætti ég að hundskast í beddan, hvað getur verið handan við hornið? Ekkert annað en flugferð í Lundúna…..
Maður fitnar amk ekki þessi jólin
enda matarlystin engin og það sem komist hefur niður fór ALLT til sjávar í gegnum klósettið í gærkveldi. Nú sit ég semsagt upprétt til að æla ekki. Og um leið og ég horfi á sjónvarpið með öðru auga blogga ég með hinu.
Heilsufarslega hafa þessi jól verð fáránleg. Við Adam erum búin að skiptast á að vera misveik, hann náði hápunkti á þorláksmessu en ég um miðja nótt í nótt. Ojbarasta…
Annars slapp aðfangadagskvöldið þannig séð, ég amk gat haldið mér vakandi frá 14-22, Hreiðar Nói fór hamförum í pakkaafhendingu og afhenti helst bara pakka með sínu nafni. Við fengum margt góðra gjafa, margar bækur, ýmislegt tæknidót, ullarvesti og vettlinga ásamt ýmsu sniðugu..
Þurrausin öllu skemmtilegu, blogga betur næst…
Gleðileg jól og allt það;) Njótið síðustu metranna af jólunum…
Í húmi nætur…
Magnað, ákvað að vakna klukkan 5;30 í morgun til að vinna, ég vinn svo vel á nóttunni að ég vildi tékka hvort það virkaði eins ef ég hreinlega færi á fætur að nóttu til. Sýnist þetta virka, amk búin að vinna vel sl. klukkustund, gæti samt verið að þetta sé líka tímapressa, annars held ég að íslands sé svona um það bil að komast í jólafrí, amk er fólk seinna til að svara email og svona…..
Annars datt mér til hugar að setja hérna inn fyrirspurn, þrátt fyrir fjölda gesta á síðunni hvern dag veit ég ekki hvort margir þekki sig um á norðurlandinu, en ég var að spá í hvort einhver vissi um yfirgefin hús sem ég gæti troðið mér inní á jólanótt;) Þá er ég að tala um hús eins og hér að ofan.
Smá mission hér í gangi en sú mynd er semsagt afrakstur síðustu jólanóttar, hús gegnt Akureyri, staðsett í Vaðlaheiði.
Veit einhver um svona hús, má endilega vera stærra, en yfirgefið, á Eyjafjarðarsvæðinu?? Anyone?
Jæja, best að hella kaffi í bollann og halda áfram að vinna…
Bráðum koma blessuð jólin, þá ætla ég skoða sofa út, sofa út, sofa út, þá ætla ég að soooooooooooooooofa út.
Hilsen…
P.s, ég eignaðist litla frænku í gær, get ekki ímyndað mér hvað hún er sæt
P.p.s Geðþekkur gítarleikari á afmæli í dag, hann fær öflugar afmæliskveðjur frá mér;)
P.p.p.s Smellið á myndina til að sjá hana stærri…
hmmmm já, hér er ég og nenni ekki að skrifa um neitt merkilegt hvað þá málefnalegt. Látum aðra bloggvissera gera það;)