Kæru-bréfið

Reykjavík 10 Maí 2007

Formleg kvörtun á hendur Xxxxx Xxxxx leikskólastjóra á Heiðarborg

Ég skrifa þetta bréf fyrst og fremst vegna símtals sem ég átti við xxxxx xxxxx í dag 10. Maí 2007 þótt saga samskipta minna við hana sé miklu lengri og hafi ég áður haft huga á að skrifa til ykkar kvörtun. En það er nú bara einu sinni þannig að þegar barnið þitt er annars vegar og undir þeirra þaki sem þér finnst hafa brotið á þér og þínum þá lætur maður í minni pokann og vonast til að barátta þín dugi til að gera það besta mögulega fyrir þitt barn. En nú hefur konan ofboðið mér á þann hátt að ég er tilneydd til að láta mál mitt heyrast og það hátt. Ég lýsi hér með yfir þeirri skoðun minni aðxxxxx xxxxx sé algjörlega óhæf til að vera yfirmaður leikskóla sem og nokkurrar annarrar stofnunar sem hefur með börn, fjölskyldu eða þar sem fólki er falin ábyrgð á framtíð annarra einstaklinga. Ég er ekki eingöngu að skrifa þetta bréf fyrir son minn heldur öll þau börn sem hugsanlega leita til Heiðarborgar í framtíðinni og þurfa á séraðstoð að halda.

Sonur minn Ívan Victor var greindur með ódæmigerða einhverfu árið 2005. Í framhaldi af því kom til að hann fengi Atferlisþjálfun og að hún færi fram í leikskóla hans Heiðarborg. Þá þegar kom fram einn starfsmaður þeirra sem sýndi mikinn áhuga á að taka að sér að gerast þjálfi fyrir Ívan og varð það úr. Xxxxx Xxxxx sýndi þessu lítinn áhuga og voru mér og manni mínum öll samskipti við hana mjög erfið. Við fundum þarna strax fyrir andúð og vorum mjög óörugg þegar við mættum henni og vissum lítið hvernig við ættum að halda áfram með mál okkar. Stærsta málið í þessu öllu var þegar sú sem hafði tekið að sér að verða þjálfi Ívans ætlaði að fara á námskeið til að læra fyrstu stig Atferlisþjálfunnar og hvað einhverfa væri mótmælti Xxxxx Xxxxx að hún færi á námsskeiðið. Hún sagði að það væri alveg nóg að deildarstjóri færi á námsskeiðið jafnvel þótt hún mundi lítið koma nálægt þjálfuninni. Ég bæði talaði við xxxxx xxxxx símleiðis og fór til hennar til að fá hana til að skipta um skoðun og reyna að fá hana til að skilja að þjálfarinn yrði að fara á þetta námskeið en allt kom fyrir ekki. Afsökun hennar var að hún gæti ekki misst hana úr vinnu af deildinni og þetta allt saman gæti bara ekki lent á öðrum börnum og foreldrum í leikskólanum. Ég meira að segja gekk svo langt að bjóða manneskju sem unnið hafi í mörg ár á leikskóla til að vera á leiksskólanum á meðan á námskeiðinu stóð en allt kom fyrir ekki. Þessi hegðun hennar var í meira lagi undarleg og get ég bara ekki skilið af hverju hún vildi ekki að þjálfinn kæmist á þetta mikilvæga námskeið og gat ekki tekið því öðruvísi en að það væri persónulegt. Ég veit það hins vegar í dag að hún bara vildi ekki „svona“ börn inn á sinn leikskóla og að henni fannst þetta bara all hið mesta óþarfi. Á endanum talaði ég við Greiningu og urðu starfsmenn þar að skikka Emelíu til að hleypa þjálfanum á þetta námsskeið og lét hún þá undan. Þjálfinn fór á námsskeiðið og náði svo miklum árangri með Ívan sem við verðum henni ævinlega þakklát fyrir. Seinna sagði þessi þjálfi upp störfum á Heiðarborg vegna langvarandi samskiptaörðuleika við xxxxx xxxxx. xxxxx xxxxx talaði einnig mikið um að hún hefði ekkert pláss eða aðstöðu fyrir þetta. Við buðumst til að kaupa lausa veggi, stóla og borð til að búa til góða aðstöðu en hún þáði það ekki. Hann fékk svo lítið herbergi inn af kaffistofu starfsfólks eftir mikið strögl. Á leikskólalóðinni er hús sem áður hýsti róló og var það seinna fengið og var aðstæða þar mjög góð. Því ætti Leikskólinn Heiðarborg í dag að hafa eina bestu aðstöðu fyrir þjálfun ef þetta hús væri fengið að láni.

Það ár sem Ívan var í þjálfuninni í Heiðarborg sagði xxxxx xxxxx ekki við okkur eitt orð. Hún mjög greinilega forðaðist mig, heilsaði mér ekki þegar hún mætti mér nema þá helst rétt að hneigja höfuðið til mín ef ég heilsaði henni. þetta þótti mér einkar óþægilegt þar sem ég þurfti að mæta þarna á vikulega fundi með þjálfa og stuðningsmönnum frá Greiningu og Þjónustumiðstöð Árbæjar. Aldei nokkurn tímann spurði hún frétta af því hvernig gengi með Ívan né var ég nokkurn tímann vör við að hún talaði við stuðningsmenn hans. Í einu orði þá hreinlega skipti hún sér ekkert af þessu og var öllum augljóst hvað þetta fór allt í taugarnar á henni og hversu óvelkomin við öll vorum. Var það orðið svo að ég var með kvíða í hvert skipti er ég þurfi að ganga inn á leikskólann og vonaði ég í hvert skipti að ég mundi ekki rekast á hana.

Það er í eðli mínu að trúa öllu besta um fólk og taldi mér trú um að þegar xxxxx xxxxx hafði séð hversu mikill árangur fékkst af Atferlisþjálfuninni þá mundi hún uppgötva hversu rangt hún hafði við og að fordómar hennar og fáfræði hafi verið röng. Með það í huga sótti ég aftur um leikskólavist fyrir Ívan og yngri son minn Arnberg en við höfum nú búið í eitt ár erlendis.

Ég hafði samband við xxxxx xxxxx í síðustu viku og sagði hún mér þá að hún gæti ekki tekið Ívan inn því hann þyrfti stuðning en það væri möguleiki með yngri son minn. Hún sagðist bara hreinlega ekki fá neitt starfsfólk í sérstuðning og því gæti hún ekki tekið inn þannig börn. Hún sagði mér líka að hún væri búin að leita eftir þjálfa/stuðningsmanneskju fyrir annan einhverfan dreng sem væri á deildinni í hálft ár og að það gengi ekki neitt svo lítil von væri að Ívan kæmist nokkurn tímann inn á leiksskólann Heiðarborg en ég gæti auðvitað reynt annars staðar, að það væri örugglega best fyrir mig. En hún sagðist hins vegar athuga hvað hún gæti gert fyrir mig varðandi yngri son minn. Kannski gæti hún tekið hann inn og ég skildi hringja aftur í næstu viku. Mér krossbrá þetta viðmót varðandi Ívan en neitaði að gefast upp. Ég vildi að Ívan gæti farið á sama leikskóla og hann var á fyrir ári. Þannig að ég fór sjálf að leita að starfsmanni sem gæti veitt syni mínum þann stuðning sem hann þarf á halda. Á nokkrum dögum fann ég manneskju sem til er að vinna með Ívan eins mikið og þarf og tilbúin að læra Atferlismeðferð. Þessi stúlka hefur unnið með Ívan áður og hefur umgengist hann frá fæðingu. Hún kann vel á hann og hann þekkir hana.

Í einfeldni minni trúði ég að þessar fréttir mundu gleðja xxxxx xxxxx eins og þetta gladdi alla sem þykir vænt um Ívan en það var sko aldeilis ekki. Í dag 10. Apríl 2007 átti ég eitt mest truflandi samtal við manneskju sem ég hef haft á ævi minni. Í byrjun samtalsins bað ég um að fá fund með henni í dag eða á morgun vegna sona minna en varð hún þá strax mjög æst og sagði það hafa engan tilgang, hún gæti ekkert gert fyrir mig. Ég ákvað þá að segja henni frá stúlkunni sem ég væri búin að finna til að þjálfa Ívan en þegar ég sagði xxxxx xxxxx fréttirnar brást hún ókvæða við. Hún talaði mjög hátt og hvast til mín og sagði meðal annars að hún gæti hvorki lagt á starfsfólk sitt eða starfsumhverfi sitt að taka annað „svona“ barn inn á leikskólann og lagði áherslu á „svona“ barn. Hún sagði líka að hún ætti nóg með að vera með eitt „svona“ barn inni hjá sér og hún gæti bara alls ekki tekið annað svona barn inn. Hún hafði einnig orð á þvi að hún vildi eingöngu ráða fagmenn í það að vera þjálfi og ef þeir fengjust ekki þá mundi hún halda áfram að reyna þar til einhver fyndist. (taka skal fram að hún er búin að vera að leita 5 mánuði fyrir annan dreng og ekki fengin eina umsókn og meðan situr sá drengur með ófullnægjandi aðstoð) Loka orðin voru, “svona er þetta bara í þjófélaginu í dag og vertu sæl”.

Fordómar gagnvart fötluðum hélt ég að væru liðin tíð á Íslandi og hvað þá að maður verði var við það hjá fagfólki á uppeldisstofnun. Því það er nákvæmlega það sem þetta er FORDÓMAR. xxxxx xxxxx vill ekki fatlaða inn á sinn leikskóla, hún vill velja inn og það er það sem hún gerir. Ég veit að það hefur verið mikil óánægja meðal starfsfólks vegna þessa. Heiðarborg er almennur leiksskóli og samkvæmt lögum eiga allir sama rétt á að vera í þeim leiksskóla og fatlaðir og illa félagslega stödd börn eiga forgang. xxxxx xxxxx hefur ekki aðeins brotið lög heldur hefur hún brotið alvarlega á mannréttindum sonar míns sem og hans fjölskyldu. Nógu sorglegt og erfitt er að eiga fatlað barn svo maður þurfi ekki líka að upplifa fordóma og dónaskap frá þeim sem eiga samkvæmt lögum að vera manni innan handar og aðstoða mann í þeim erfiðu aðstöðu sem maður er í.

Ég fer hér fram á að staða xxxxx xxxxx sem leikskólastjóra verði grandlega skoðuð og ég fer fram á að sonur minn Ívan Victor Agnarsson fái inn á leikskóla með þeirri aðstöðu og stuðning sem hann á rétt á þegar hann kemur til Íslands í byrjun Júní 2007. Ég neita að sætta mig við þá meðferð sem ég og fjölskyldan mín hefur fengið síðustu ár frá starfsmanni ykkar og ég mun ekki sitja hljóð fyrr en ég hef fengið fullnægjandi viðbrögð við kvörtunum mínum.

Ég vil taka fram að allt starfsfólk Greiningar í Kópavogi og það starfsfólk sem ég hef talað við í gegnum tíðina hjá Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts hefur sýnt okkur öllum mikinn skilning og hlýju og hefur lagt sig alla fram við að aðstoða okkur við að gera líf sonar míns og framtíð eins góða og á verður kosið og erum við þeim þakklát. Nú þegar þetta mál hefur komið uppá hefur mér fundist engin vilja taka ábyrgina og fólk hefur beint hvort á annað. Ég hef verið látin fara í hringi á milli fólks og stofnanna. Ég vona innilega að þessi kæra verði tekin alvarlega. Ég vona innilega að Reykjavíkurborg lýði ekki fordóma.

______________________________________ Ívan Victor

Halla Rut Bjarnadóttir

E-mail: hallaiceland@yahoo.com

Sími: 8965027

http://blogg.visir.is/hallarut

Fært undir Óflokkað þann 20. maí 2007 af Halla Rut |

25 ummæli við ' Kæru-bréfið '

Fylgjast með ummælum með RSS eða senda bakvísun á ' Kæru-bréfið '.

  1. Þórunn Alda Gylfadóttir ritaði,

    þann 20. maí 2007 kl. 20.57

    Þetta eru ótrúlegir fordómar af læðri manneskju og það árið 2007, ef ég hefði lesið þetta fyrir 20 árum síðan þá hefði ég skilið það. En í dag búum við í mjög upplýstu þjóðfélagi og svona manneskja á ekki að vera í forsvari fyrir börn eða bara fyrir fólki, ég skora á þig að láta hana ekki komast upp með þessa fáfræði. Upplýst þjóðfélag og umburðalyndi er það sem við eigum að stunda. Gangi þér sem allra best.

  2. Ásdís Ýr ritaði,

    þann 20. maí 2007 kl. 21.39

    Sæl Halla Rut

    Gott hjá þér að vekja máls á þessu. Enn eymir af viðhorfum gamalla tíma sem gera ráð fyrir aðgreiningu fatlaðra frá hinum ófötluðum í samfélaginu, að sjálfsögðu á slíkt ekki að líðast.

    Gangi þér vel í baráttunni.

  3. Sandra ritaði,

    þann 20. maí 2007 kl. 22.24

    Ég vona innilega að þessi kæra beri árangur fyrir þig. Ég sjálf er með barn sem er “svona” barn, reyndar ekki einhverf en samt í miklum erfiðleikum. Hún er núna komin í skóla og ég er að berjast eins og reiður köttur við kerfið til þess að hún fái það sem hún á rétt á.

    Gangi þér sem allra allra best.

  4. Heiða Hrönn ritaði,

    þann 21. maí 2007 kl. 0.34

    Þessi meðferð sem þú og sonur þinn hafa gengið í gegnum er hreint út sagt viðbjóðsleg. Ég hef fullan samhug til ykkar og vonast til að allt gangi ykkur í haginn.

    Vona innilega að fordómum hérlendis minnki gagnvart börnum sem og fullorðnum sem fengu ekkert val um hvernig þau þroskuðust.

  5. Ellý ritaði,

    þann 21. maí 2007 kl. 10.33

    Það er með ólíkindum að heyra að manneskja í þessari stöðu sé með svona fornaldarleg sjónarmið, finnst ekki spurning að það eigi að víkja henni úr starfi, hún er greinilega ekki starfi sínu vaxin. Ég á sjálf barn sem hefur fengið sinn skammt af erfiðleikum í þessu vanþróaða kerfi okkar þegar kemur að veikindum barna á þessu sviði. Við erum til dæmis búin að bíða í heilt ár eftir greiningu hjá Greiningastöð ríkisins, og ég hef ekki hugmynd um hversu lengi enn við þurfum að bíða. En sem betur fer höfum við fengið góðan skilning bæði í skóla og leikskóla sem hann hefur sótt.
    Ég óska þér alls hins besta í þessari baráttu þinni, það var nauðsynlegt að kæra þetta og fá þetta mál upp á yfirborðið. Vona að útkoman verði eitthvað sem þú og strákurinn þinn verði sátt við.
    Bestu baráttukveðjur,
    Ellý

  6. Ellý ritaði,

    þann 21. maí 2007 kl. 11.04

    Ég meinti auðvitað þú og þín fjölskylda, því þetta er alls ekki bara þið tvö, heldur öll fjölskyldan sem standið í þessu. :)
    kv.Ellý

  7. Ásta ritaði,

    þann 21. maí 2007 kl. 11.48

    Flott og greinagott bréf hjá þér :) Vonandi fer þetta eitthvað að þjakast í áttin að leikskólaplássi fyrir Ívan (ekkert smá sætur strákur btw!)

    Áframhaldandi baráttukveðjur til ykkar

  8. Birna ritaði,

    þann 21. maí 2007 kl. 15.33

    Sláandi lestur þetta!!! Hversu mikið vald á að leggja í hendur leikskólastjóra? Þetta er aldeilis óþolandi og verður að brjóta niður hið snarasta! Í okkar þjóðfélagi í dag ætti slíkt ekki að geta átt sér stað… Vonandi færðu meðbyr í þessu máli.
    Þetta er ekki bara spurning um réttlæti, heldur mannréttindi sem öll vestræn þjóðfélög eiga að fylgja!

    kv

    Birna

  9. Halla Rut ritaði,

    þann 21. maí 2007 kl. 18.55

    Ég vil bara þakka öllum þeim sem taka sér tíma og skrifa til mín hér að ofan. Það gefur manni kraft til að halda áfram. Mér finst þetta ekki bara spurning um mitt barn þá hefði ég bara beðið um annan leikskóla. Þetta skiptir okkur öll máli. Allir geta eignast fötluð börn og öll getum við orðið fyrir óhöppum í lífinu þar sem hoggið getur verið á heilsu okkar eða barna okkar. Sami réttur fyrir alla sem búa á Íslandi TAKK.

  10. Margrét ritaði,

    þann 21. maí 2007 kl. 19.59

    ja hérna ég skil þetta ekki lærð fóstra að haga sér svona að neita dregnum um inngöngu, því hann þarf sér þjálfun. Hún er bara orðin þreytt í starfi ætti að fara fá sér aðra vinnu. Ég sendi ykkur bara baráttukveðjur.

  11. María ritaði,

    þann 23. maí 2007 kl. 0.35

    Sæl Halla Rut.
    Þú átt þakkir skildar fyrir hugrekkið,ég ímynda mér að þetta sé mjög erfitt en þú ert að vekja athygli á máli sem allir þurfa að vita af.Bréfið finnst mér mjög gott hjá þér og vonandi að þetta leysist farsællega fyrir ykkur sem fyrst.Gangi ykkur vel.


  12. þann 15. júlí 2007 kl. 10.46

    Elsku Halla Rut ég dáist hugrekki þínu þetta er mjög sorglegt að heyra þetta gangi ykkur vel í baráttunni vonandi gengur allt vel hjá ykkur ég veit þetta er mjög erfitt.

  13. Eydís ritaði,

    þann 19. júlí 2007 kl. 20.40

    Sæl Halla
    Gangi ykkur fjölskyldunni vel í baráttu ykkar. Samfélagið verður að taka sig á gagnvart fötluðum einstaklingum, það dugar ekki að hafa lög og reglur sem eru ekki virtar á þeim stöðum þar sem fagmenn barna vinna. Ég vona að þessi barátta ykkar verði til þess að fagfólk sjái um þessi mál og vinni sína vinnu faglega, kurteisi er ókeypis og hún er afar mikilvægt í návist fatlaðra barna og aðstandenda þeirra.
    báráttukveðja Eydís

  14. Ásgeir Vísir ritaði,

    þann 19. ágúst 2007 kl. 23.12

    Sæl Halla Rut, ég rakst inná síðuna þína fyrir tilstilli mbl.is..

    Þegar ég las bréfið þitt fann ég mig knúinn til að leita leiða fyrir þig og þína fjölskyldu.

    Í 6. grein laga um leikskóla sem tekin voru fyrst í gildi árið 1994 kemur eftirfarandi fram:

    6. gr. Menntamálaráðherra skal, að fengnum tillögum starfshóps menntamálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga, setja reglugerð um starfsemi leikskóla.1) Í reglugerðinni skal m.a. kveðið á um gæðaeftirlit menntamálaráðuneytisins með starfsemi leikskóla, gerð áætlana um uppbyggingu leikskóla, samstarf leikskóla við foreldra og grunnskóla, um heilsugæslu, um öryggi barna, um lágmarkskröfur til húsnæðis og aðbúnaðar barna og starfsfólks í leikskólum að svo miklu leyti sem kjarasamningar taka ekki til þeirra atriða, um lengd daglegs dvalartíma barna í leikskólum, um aðstoð og þjálfun barna skv. 16. gr., um ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu leikskóla og starfssvið hennar og um starfsemi, húsnæði og starfsmannahald í leikskólum með sérstöku tilliti til fatlaðra barna sem þar dvelja.

    í þessari grein segir einfaldlega, að sá sem yfirvald hefur í þessum málum, sonar þíns og annara fatlaðra barna, er menntamálaráðherra ásamt fengnum starfshópi.(sem eflaust hefur verið skikkaður saman úr hinum ýmsu stofnunum, það væri eðlilegast)

    Ef þú hefur verið áður send inná menntamálastofnun, sem er ekki ólíklegt, ekki hætta fyrr en þú hefur fengið þínu framgengt. Menntamálaráðherra hefur yfirvald hvað varðar allt þetta mál. FÁÐU fund með ráðherranum og láttu vita af máli sonar þíns og hversu ósæmilega leikskólastýran (Emelía/Emilía) hefur komið fram…

    Gangi þér vel,
    Ásgeir Vísir

    ps.
    mæli með að þú skoðir http://www.rvk.is og reglugerðir og annað… Lög og reglugerðir munu eflaust bjarga þér… Þau allavega standa við bakið á þér, greinilega…

  15. Eva Lind ritaði,

    þann 20. ágúst 2007 kl. 21.30

    Þrátt fyrir að hafa oft lent í kerfinu sjálf með mig og mín börn en við erum öll með dyslexíu eða sértæka námsörðoleika. Þá á ég bara ekki til orð núna!!! það skal alltaf vera til fólk sem getur sýnt af sér svona ótrúlega grimmd og skilningsleysi og það gagnvart litlu barni haltu áfram að berjast og rífa kjaft stundum er eins og ekkert annað virki á kerfið.

    Kkv Eva Lind

  16. kýrhausinn ritaði,

    þann 23. ágúst 2007 kl. 21.17

    Hefurðu fengið einhverja lausn? Það er september handan við hornið. Þó einn leikskólastjóri sé eins og snúið roð í hundskjafti á Borgin að sjá til þess að barnið fá þjálfun við hæfi, þó ekki sé annað.

  17. Sigrún ritaði,

    þann 2. október 2007 kl. 9.17

    Sæl Halla.
    Rambaði inn á þetta gegnum moggabloggið þitt.
    Ég er gapandi! Ég vann á leikskóla í Rvk 1990-1995 þar sem voru 2-3 fötluð börn á öllum deildum, m.a. einhverfur drengur á “minni” deild og annar með litningagalla með einhverfueinkennum. Á “minni” deild fór ég og deildarstjórinn á námskeið þar sem við vorum stuðningsaðildar þessara drengja.
    Mér þykir ófyrirsvaranlegt að hafa þessa xxxxxx í forsvari leikskóla og ég vona innilega að það eitthvað hafi komið út úr þessu máli.
    Baráttukveðjur,
    Sigrún.


  18. þann 9. október 2007 kl. 7.38

    Þetta er leitt að heyra. Ég sakna samt dýpri málefnalegri umfjöllunar í grein þinni. Kannski er það ekki hægt vegna viðkvæmni málsins en það er nauðsynlegt að heyra full rök beggja aðila áður en maður gerir upp hug sinn varðandi hvað er rétt eða rangt eða það sem oftast er “illskásti kosturinn” í slæmri stöðu. Það er því miður þannig að stundum eru ekki neinir góðir kostir í boði og það eru ýmsir hagsmunaárekstrar sem þarf að taka tillit til. Hins vegar er ekki hægt að réttlæta slæma framkomu og tillitsleysi. Okkur ber öllum skylda til að reyna að gera það besta úr því sem við höfum. Gangi þér vel - Svanur

  19. Kristín ritaði,

    þann 11. október 2007 kl. 7.16

    Sæl Halla.

    Ég á ekki til orð yfir þessari xxxxxx leikskólastjóra. Þessi kona á að heita fagmannseskja en hagar sér greinilega ekki þannig. Ég sem leikskólakennaranemi á 3. ári er hreinlega ofboðið að svona leikskólakennarar séu til ennþá. Þetta á ekki að líðast og ég er stolt og ánægð með að þú ætlir með málið lengra. Spurning er hvort þú ættir ekki að hafa samband við Félag leikskólakennara og tilkynna um þessa manneskju??
    Vil ég benda þér á að í Aðalnámskrá leikskóla sem gefin er út af menntamálaráðuneytinu segir:
    Foreldrar bera frumábyrgð á uppeldi barna sinna en leikskólastarfið
    er viðbót við það uppeldi sem börnin fá á
    heimilum sínum. Leikskólinn er fyrir öll börn, óháð
    andlegu og líkamlegu atgervi, menningu eða trú.
    Þú getur nálgast Aðalnámskrá leikskóla á þessari slóð:

    http://bella.stjr.is/utgafur/ALalmennurhluti.pdf

    Í lögum um leikskóla segir þetta:
    VI. kafli. Réttur leikskólabarna til sérstakrar aðstoðar og þjálfunar. Ráðgjafarþjónusta.
    15. gr. Börn á leikskólaaldri, sem vegna fötlunar, tilfinningalegra eða félagslegra erfiðleika þurfa sérstaka aðstoð og þjálfun, eiga rétt á henni innan leikskólans undir handleiðslu sérfræðinga.
    16. gr. Ráðgjafar- og sálfræðiþjónusta fyrir leikskóla skal veita foreldrum barna og starfsfólki leikskóla nauðsynlega ráðgjöf og þjónustu sem nánar verður kveðið á um í reglugerð um starfssvið þjónustunnar. Ráðgjafar- og sálfræðiþjónusta fyrir leikskóla getur verið rekin sameiginlega með ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu grunnskóla.
    17. gr. Leikskólar skulu þannig byggðir og reknir að þeir geti sinnt fötluðum börnum.

    Kveðja Kristín


  20. þann 11. október 2007 kl. 18.50

    Hæ Halla. Ég sé að við eigum meira sameiginlegt en að eiga börn með svipaðar greiningar :) Þekki vel þessa tilfinningu þú talar um varðandi leikskólann. ‘Eg þurfti sjálf að senda rosalega ljótt bréf til heilbrigðisráðherra á sínum tíma til að koma málunum í gang fyrir son minn. Þú baðst mig á blogginu að skrifa um aðstöðu okkar hér í Noregi, (sem er góð, miðað við Ísland) En það er enn svo mikil reiði og sárindi í mér yfir meðferðini á okkur á Íslandi að ég hreinlega treisti mér ekki til að skrifa um það strax ( flutti út 2001 :O )
    Mér fynst þú rosalega dugleg að hafa tekið þetta skref, ég veit hvað það tekur á !!!
    Gangi ykkur sem allra best !!
    Baráttukveðjur frá Noregi.


  21. þann 14. júní 2009 kl. 20.25

    synthroid…

    side effects of thyroid drug synthroid. dosage for synthroid. synthroid without a prescription. armour thyroid vs synthroid. synthroid litigation. synthroid vs levothyroxine. endocrinology synthroid versus thyroxine. …


  22. þann 16. júní 2009 kl. 23.03

    no prescription tramadol…

    tramadol free shipping. tramadol addiction. buy tramadol. tramadol worse. tramadol canine. …


  23. þann 27. júní 2009 kl. 23.21

    tamiflu in dogs…

    tamiflu cost. tamiflu insert. cost of tamiflu. tamiflu and effectiveness and safety. tamiflu donald rumsfeld. is tamiflu dangerous. tamiflu 75. …

  24. Buy Tamiflu ritaði,

    þann 24. ágúst 2009 kl. 2.45

    Buy Tamiflu…


  25. þann 2. september 2009 kl. 2.26

    soma silk…

    aura soma. drug test soma. soma discount codes. effects of soma. discount soma. …

Skrifa ummæli

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning