Jöklar sem bráðna

27. janúar 2009 kl. 0.10 eftir Halldór

Í haust gaf bandaríska jarðvísindastofnunin (USGS) út bókina Geographic Names of Iceland’s Glaciers: Historic and Modern sem inniheldur nafnaskrá íslenskra jökla og myndir af þeim. Höfundar bókarinnar eru Oddur Sigurðsson sem er jöklafræðingur á Veðurstofu Íslands og Richard Williams sem starfar hjá USGS. Þessi bók er mikill fjársjóður upplýsinga og merkt framlag til náttúrufræði á Íslandi. Það gerir bókina mikilvægari að miklar breytingar eru að verða á Íslenskum jöklum og þessi bók því líkleg til að verða sagnfræðileg heimild um “veröld sem var”. Bókinni má hlaða niður hjá USGS og einnig má hlaða niður einstökum myndum.

Meðal íslenskra jökla sem fjallað er um í bókinni er jökullinn OK.

Jökullinn Ok.(heimild Oddur Sigurðsson og Richard Williams 2008)

Jökullinn Ok. Smellið á myndina til að stækka hana. (heimild Oddur Sigurðsson og Richard Williams 2008)

. Þessi jökull er staðsettur suðvestan við Langjökul, eins og sjá má á
þessu google korti. (sjá lítinn jökul vestan við syðsta hluta Langjökuls). Þessi jökull lætur ekki mikið yfir sér, mörgum kann að finnast að það eftirminnilegasta við hann sé nafnið. Þessi jökull hefur minkað verulega á undanförnum árum. Þetta má sjá á myndum sem birtar eru á heimasíðu loftmynda. Þessar myndir sýna greinilega að jökullinn hefur látið stórlega á sjá.


Ok jökull árið 1999 (Heimild: Loftmyndir).

Ok jökull árið 2008.

Ok jökull árið 2008. (Heimild: Loftmyndir)

Hop þessa jökuls er ekkert einsdæmi, þó hann standi tæpar en flestir aðrir jöklar. Langflestir jöklar á Íslandi eru að hopa. Meira um það síðar.




Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning