Æ,æ!

22. febrúar 2012 kl. 20.29 | Rita ummæli

Æ,æ. Ósköp eru þessi ljós, sem sett voru upp nú í vikunni, ósmekkleg á þessum stað!

.

.

.

.

.

Nokkrir bílar

22. febrúar 2012 kl. 19.40 | Rita ummæli

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

Fyrrum ráðuneytisstjóri

17. febrúar 2012 kl. 19.28 | 1 ummæli

Nú er orðinn brautryðjandi Baldur,
þótt batni ekki staða hans í dag.
Með gerðum sínum varð hann sjálfur valdur
að verulega breyttum eigin hag.

“Dislike”

4. febrúar 2012 kl. 15.10 | 10 ummæli

Okkar veraldar auður mun
ennþá til fjandans renna.
Ofaná bætist Brjóstahrun
blóma íslenskra kvenna.

Vatn

30. janúar 2012 kl. 12.09 | 4 ummæli

Það er gott að sækja vatnið yfir lækinn. Þá gerir ekkert til þótt skvettist niður!

Jafnrétti

28. janúar 2012 kl. 20.12 | 9 ummæli

Fullkomið jafnrétti næst aldrei á meðan horft er kynjagleraugum á heiminn. Sífelldur samanburður eyðileggur jafnréttisgrundvöllinn og byggir jafnóðum ofaná þann þröskuld sem reynt er að eyða.

Brandur og Leifur

4. janúar 2012 kl. 21.03 | 9 ummæli

Bræðurnir Brandur Ari og Leifur Arnar eru báðir í íþróttum á sama tíma, en ekki á sama stað. Einhvertíma var faðirinn að skipuleggja ferðir þeirra og sagði við móðurina: “Ég fer með Brand Ara, þú tekur Leif Arnar.”

Gleðileg jól!

23. desember 2011 kl. 21.04 | 6 ummæli

Um helga tíð er hækka fer
á himni blessuð sólin
gæfustjarnan gefi þér
sem gleðilegust jólin!

Með undanþágum skal land byggja

28. nóvember 2011 kl. 19.45 | 7 ummæli

Á Íslandi er mjög takmörkuð virðing borin fyrir gildandi lögum.  Því þykir tilhlýðilegt að höfða skaðabótamál á hendur stjórnvöldum, sem ekki veita undanþágu frá þeim!

Í boði ellinnar

29. október 2011 kl. 16.31 | 14 ummæli

Meiriháttar minnistöp
- má nú um það rita -
eru kölluð elliglöp
eins og flestir vita!

Móðurmálið

29. október 2011 kl. 13.50 | 5 ummæli

Íslenska er góð fyrir grúskara
og gagnast við allskonar blekkingar.
Heillar jafnt fagmenn og fúskara
sem fýsir að afla sér þekkingar.

Fátæktarlimra

23. október 2011 kl. 22.55 | 9 ummæli

Menn framvísa böggluðum bleðli
og borga með ónýtum seðli.
Og lítið menn fá
ef laun eru smá.
Það liggur í hlutarins eðli.

Skjálftavirkni

15. október 2011 kl. 21.13 | 6 ummæli

Á oss dynur vá og voði
sem vissulega engan svíkur.
Af skelfingu menn skjálfa í boði
Skjálftaveitu Reykjavíkur.

Gjá

4. október 2011 kl. 21.51 | 8 ummæli

Er gjáin á milli þings og þjóðar? Þings og forseta? Forseta og þjóðar?
Eða þingmanna?

Mér finnst ei skrýtið að myndist gjá
og marga hún töluvert hræði;
þannig er málið að Alþing er á
alþekktu sprungusvæði!

Egg

2. október 2011 kl. 17.26 | 9 ummæli

Send voru egg til seggja fast,
sem þeir ei vildu hafa samt.
Alltaf þykir mér eggjakast
eitthvað svolítið vafasamt!

Til góðra verka

2. október 2011 kl. 10.09 | 7 ummæli

Menn eru rjúkandi Alþingi á
upp til handa og fóta
þótt aðeins sé verið að eggja þá
til einhvers sem væri til bóta.

Eggjun

1. október 2011 kl. 20.25 | 9 ummæli

Alþingismennirnir eru að fást
við áritun sögunnar spjalda.
Hverfular vinsældir hvarvetna sjást,
en hvers eiga eggin að gjalda?

Hvað er menning?

29. september 2011 kl. 23.47 | 7 ummæli

Þeirri spurningu er oft varpað fram. Svarið er einfalt.
Menning felst í því að gera einfalda hluti flókna.

Staðarbyggðarfjall

23. september 2011 kl. 23.45 | 12 ummæli

Staðarbyggðarfjall 2009 akrýl á striga 50×40cm verð kr.75000

sta_arbygg.jpg

Kaldbakur

22. september 2011 kl. 12.41 | 5 ummæli

kaldbakur_ii.jpg

Kaldbakur 2009. Akryl á striga. 50×60cm. kr.85.000.

10% jafnrétti

22. september 2011 kl. 8.22 | 4 ummæli

Þess eru allmörg dæmi á meðal hjóna og sambýlisfólks að konan sé tekjuhærri en karlinn.

Konan fer út að versla og fær 10% afslátt í nafni jafnréttis.

Já,já.

Fleiri málverk

20. september 2011 kl. 18.40 | 8 ummæli

thrju.jpg

,

,

,

,

,

Þrjú 2009. Akryl á krossvið. 20×30cm. kr.35.000

,

Hvernig væri

19. september 2011 kl. 20.16 | 2 ummæli

Já, hvernig væri að blogga málverkin sín?

Eyjafjarðará

Eyjafjarðará

Eitthvað til að skoða

19. september 2011 kl. 15.16 | 6 ummæli

http://www.facebook.com/pages/Vinnustofa-Hallmundar/104740426237990

Fegurst

18. september 2011 kl. 8.16 | 7 ummæli

Eru ekki fjöllin oftast fegurst séð frá bernskuslóðum?

.

.

.

.

.

.

Nýyrði?

15. september 2011 kl. 20.17 | 9 ummæli

Það er víst búið að troða nýju orði inn í íslenskuna. Kaffihús hefur verið nefnt Kaffi Kú. Í bændablaðinu er svo mynd frá opnun KAFFI KÚAR !!

Meira

6. september 2011 kl. 21.20 | 8 ummæli

Kínverjinn reikna kann sitt dæmi.
Kannski hefur hann gróða eygt.
Ef hann þarf ekki allt þetta flæmi
afgangnum getur hann bara fleygt.

Sprengihætta

6. september 2011 kl. 20.12 | 6 ummæli

Það er þetta með kínverjann:

Að vara manninn við mér þætti rétt,
svo veslingurinn gæti spyrnt við fótum
er hann hefði af því nokkra frétt
hvað íslendingar gera á áramótum!

Hnignandi ásýnd Akureyrar

12. júlí 2011 kl. 19.50 | 5 ummæli

img_6392.jpg

img_6390.jpg img_6387.jpg

Fyrir utan þá stefnu að ruslatunnur skuli vera í forgrunni  er annað sem veldur miklu lýti á ásýnd bæjarins, en það eru háar trégirðingar, skjólveggir og sólpallar, oftast tekkbrúnir að lit, sem breiðast út um bæinn eins og eldur í sinu.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir teknar af handahófi. Nema einþeirra, sem sýnir hve miklu má bjarga með því að velja þessu tréverki lit í samræmi við húsið sem það stendur við. img_6388.jpg img_6383.jpg

Ok

25. júní 2011 kl. 17.09 | 8 ummæli

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

Bjartsýni er góð - en allt er best í hófi ;-)

Ok er mörgum illa drægt.
Ýmsir bera hlekki.
Góðir hlutir gerast hægt
og gerast stundum ekki.

Hver hefur sinn djöful….

30. maí 2011 kl. 14.33 | 8 ummæli

Gott er að eiga mikinn mátt
sem magnar dug í sinni.
Fyrir ýmsan djöfuldrátt
dugar enginn tvinni!

Hvar er sumarið?

30. maí 2011 kl. 10.03 | 8 ummæli

Vakandi yfir vetrinum
veðurguðirnir stumra.
Maður fer nú að óttast um
andlega heilsu sumra!

Orðin tóm

28. apríl 2011 kl. 11.49 | 11 ummæli

Kannski má nefna það menningarmorð
að mata hin saklausu blóm.
En skyldi það gerlegt að afskrifa orð
og eftir það séu þau tóm?

Gleðilegt sumar!

21. apríl 2011 kl. 9.04 | 13 ummæli

Að sumarhiti og sólarglóð
sé að koma betur inn;
þess ég óska, þjóð mín góð,
og þakka fyrir veturinn!

Öldrun

18. apríl 2011 kl. 21.23 | 4 ummæli


P4180443

Tíminn engum gefur grið.
Gamlir hrörnun flíka.
Ellin kemur víða við.
Vélar eldast líka.

.

.


Hvað slær klukkan?

2. apríl 2011 kl. 14.15 | 4 ummæli

P4020441

Eitt pirrar mig. Við Drottningarbraut, hjá Leirunesti, er klukka. Hún er ekki rétt nema í mesta lagi tvisvar á hverjum sólarhring. Fylgir því engin ábyrgð að hafa klukku á almannafæri? Nú hefur hún verið þarna í fjöldamörg ár án þess að ganga rétt, þannig að Akureyringar og nærsveitamenn ættu varla á hættu að taka mark á henni. En hvað um ferðamenn? Ferðamannabærinn Akureyri. Hver á þessa klukku?
Af hverju er ekki fyrir löngu búið að taka hana niður?

Þessi margumrædda?

1. apríl 2011 kl. 0.09 | 10 ummæli

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/03/31/ny_sprunga_i_almannagja/

Áður fyrr hetjurnar gengu góðar
með glæsibrag Lögberg á.
Núna á milli þings og þjóðar
þar hefur myndast gjá.

Þröskuldur

29. mars 2011 kl. 19.10 | 10 ummæli

Það er spurnig hvenær menn verða nógu jafnréttislega þroskaðir til að hætta að einblína sífellt á kynferði. Með því að rýna sífellt í gegn um kynjagleraugu er þeim þröskuldi við haldið sem ætlunin var að eyða.

Sjónræn umhverfismengun

28. mars 2011 kl. 15.50 | 5 ummæli

Það verð ég að segja að mér hugnast lítt sú nýja ásýnd Akureyrarbæjar að ruslatunnur séu sem víðast í forgrunni. Sjö metra reglan er EKKI umhverfisvæn.

Þriðja myndin

27. mars 2011 kl. 20.26 | 5 ummæli

. p3260434.jpgÞessi er tekin ekki langt frá hinum tveimur.

.

.

.

.

.

.

.


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning