jún
30
Undirleik vantar
30. júní 2007 | Rita ummæli
Með vísan til nýlegrar færslu Péturs:
blogg.visir.is/peturstef/2007/06/30/undirspilari-oskast/
Allir tónar eru í steik.
Yrkjum sparlega.
Enda vantar undirleik
afar snarlega.
jún
30
Virkjunarkostur
30. júní 2007 | Rita ummæli
Það er hreint með ólíkindum hvað vellur uppúr honum Pétri. Þetta er stórkostlegt. Mér dettur nokkuð í hug:
Næstum á við Þjórsá þætti.
Það fer mig að gruna
að vísnastrauminn virkja mætti
og vernda náttúruna.
jún
30
Gott veður
30. júní 2007 | Rita ummæli
Maður veit varla hvað maður á að segja í svona góðu veðri. Raunar var það ekki ég sem lagði inn pöntunina, en það hefur örugglega einhver gert.
Himnafeðganna heilagt plott
heppnast dável núna.
Vegna þess er veðrið gott.
Það virkar að hafa trúna!
jún
29
3.sálmur.
29. júní 2007 | Rita ummæli
Jæja, ætli það sé ekki kominn tími á síðasta sálminn. Þeir eru nú svo sem börn síns tíma, en standa að mér finnst nokk fyrir sínu.
3.sálmur.
Um baráttu kvenna.
Ýmislegt konan getur gert.
Gagn er að henni mikið.
Þjónustustarfið þakkarvert,
þurrkar hún frá oss rykið.
Ýmsar þó telja opinbert
oftast sé kaupið svikið.
Mörg hefur konan svoddan sið:
sífellt er hún að mala.
Það [...]
jún
26
2.sálmur
26. júní 2007 | Rita ummæli
Hér er framhald af fyrri færslu minni - hinir 32ára gömlu kvennaárssálmar:
2. sálmur.
Um eiginleika konunnar og ýmsa aðskiljanlega kosti hennar.
Konan sem íþróttagrein. Leikir karla og kvenna.
Konunni vil ég syngja sætt
sérdeilisgóðan brag.
Meiður er hún af Evu ætt
með allt hennar sköpulag.
Haldreipi lífsins holdi klætt
hún er oss enn í dag.
Því er nú konan þannig gjörð
að það megi [...]
jún
25
1975
25. júní 2007 | Rita ummæli
Þeir sem þokkalega fullorðnir eru og með nokkurt langtímaminni muna ef til vill að árið 1975 var á Íslandi helgað konum. Á því ári og af því tilefni setti ég saman sálma, sem ég kallaði kvennaárssálma. Sálmarnir voru þrír talsins og flokkaðir eftir innihaldi. Hér á eftir birtist sá fyrsti þeirra.
1.sálmur.
Um komu konunnar í [...]
jún
25
Réttlæting
25. júní 2007 | Rita ummæli
Sem ég lít yfir kveðskap minn hér á blogginu tek ég eftir því að ekki hafa allar vísurnar verið sérlega innihaldsríkar.
Varla þessu verður breytt.
Víst eru skáldin góð,
sem yrkja helst um ekki neitt
sín allra bestu ljóð.
jún
25
Vandræðagangur
25. júní 2007 | Rita ummæli
Mér þykir verst að ég veit ekki um neina
vísu til þess að setja hér.
En nú er ég búinn að upphugsa eina
ansi góða sem betur fer!
jún
24
Hvað finnst ykkur?
24. júní 2007 | Rita ummæli
Ef ég sæi einhvern fara
út á hlað
ætti ég þá ekki bara
að yrkja um það?
jún
24
Slagur í uppsiglingu?
24. júní 2007 | 1 ummæli
Ég sé ekki betur en Pétur Leirgoði sæki nú á sömu mið og Ellý Ármanns hefur fiskað svo vel á í sínu bloggi.
Leirgoðinn tekur nú brögðum að beita
búinn púðrinu nægu.
Óvægna samkeppni ætlar að veita
Ellýjarpistlunum frægu!
jún
24
Sunnanátt fyrir norðan
24. júní 2007 | 1 ummæli
Sveimandi hugana getur oft glatt
góða veðrið - og staka.
Hamingjuríkur ég segi það satt;
sólin er komin til baka.
jún
23
Norðlenskar staðreyndir
23. júní 2007 | Rita ummæli
Til að viðhalda ævafornum og meinhollum hrepparíg væri ekki úr vegi að dusta rykið af vísum sem ég setti saman fyrir fáum árum. Þær eru að sjálfsögðu sígildar og aldrei of oft kveðnar.
Hjá Skagfirðingum leynast fáir lestir,
því ljósir margir eru þeirra grönnum.
Og Húnvetningar hafa sjálfsagt flestir
hæfileika til að líkjast mönnum.
Að Þingeyingar séu manna mestir,
meining [...]
jún
23
Af gefnu tilefni
23. júní 2007 | Rita ummæli
Bráðsnjallar vísur ég bragðmiklar gerði
og bloggin mín eru virk.
Ég býð mig þó ekki á afsláttarverði
en ætla að þiggja styrk.
Þetta mættu fjársterkir aðilar taka til athugunar!
jún
23
Sjálfskaparlýti
23. júní 2007 | Rita ummæli
Það er þetta með lýtaaðgerðirnar. Ég held að það gæti nokkurs misskilnings varðandi þær. Að þær séu til að bæta úr lýtum. Þær verða nefnilega eins oft til að bæta við lýtum. Á ég þar ekki síst við hinar vinsælu brjóstastækkanir. Sem eru ekki aðeins stækkanir, heldur um leið formbreytingar. Breyta fallega löguðum brjóstum í [...]
jún
23
Lítillæti
23. júní 2007 | Rita ummæli
Þessa vísu orti ég upphaflega um sjálfan mig, en breytti henni snarlega til almennrar skýrskotunar vegna eðlislægs lítillætis.
Ekki eru dáðir dánumenn
dauðir úr öllum æðum.
Vísurnar margar yrkja enn
ótrúlegar að gæðum.
jún
23
Norðanátt fyrir norðan
23. júní 2007 | 3 ummæli
Þótt vindurinn blási á móti mér
ég missi ekki á sumarið trúna.
Sannarlega mér sýnist hér
sunnanviðhúsveður núna.
jún
22
Kona góð
22. júní 2007 | Rita ummæli
Um ákveðna konu.
Yndi býður af sér mest,
auga leið það gefur
að hún er í bóli best
og blíðust þegar hún sefur.
jún
22
Ekki makalaust
22. júní 2007 | Rita ummæli
Þessi varð til við lestur á færslu Péturs leirgoða hér á blogginu.
Þeir sem hafa út á lífið lagt
og langað að hafa mök
hafa nú eflaust sumir sagt:
Sjaldan er mótbáran rök.
jún
22
Félagi minn einn sem hefur meiri reynslu en ég í vísnabloggi benti mér á að það yki á innlit að yrkja undir rós. Ég ætla að fara að ráðum hans.
Yrkja tók ég undir rós
út í garði.
Fyrir þetta fékk ég hrós
fyrr en varði.
jún
21
T.d.við Pétur!
21. júní 2007 | 3 ummæli
Eins og bjarmi af ástarbáli
eykur losta friðilsins
þeir sem blogga í bundnu máli
bæta ímynd miðilsins.
jún
21
Fríríki
21. júní 2007 | Rita ummæli
Ég held að bæjarstjórann í Hafnarfirði langi til að stofna fríríki fyrir Alcan á uppfyllingu út
frá Sraumsvík.
jún
20
Upphaf
20. júní 2007 | Rita ummæli
Sem upphaf á bloggi mínu hér á Vísi set ég mína nýjustu vísu.
Oft má nýta andans ruður.
Er það margra siður
að yrkja bæði út og suður
en allramest þó niður.
Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður.