nóv
30
Morgunvísa
30. nóvember 2007 | Rita ummæli
(Vinsamlegast lesið þetta ekki fyrr en í fyrramálið. Þetta er nefnilega morgunvísa. Ég set hana bara inn núna vegna þess að hugsanlega get ég kúrt eitthvað fram eftir morgni .) Núna er þetta er auðvitað löngu úrelt athugasemd!
Morguninn er mættur nýr.
Mér er glatt í sinni,
þar sem vonin bjarta býr
í blóðdælunni minni.
nóv
28
Saga úr sveitinni
28. nóvember 2007 | 1 ummæli
Kristinn fyrrum góðbóndi á Arnarhóli í Kaupangssveit var þekktur fyrir að gera vel við kýr sínar, enda launuðu þær honum það með miklum afurðum. Einhverju sinni fékk hann tunnu af dökku sýrópi, sem hann notaði til að bæta þeim í munni og maga. Það var krani á tunnunni og var hún höfð utandyra og sýrópið [...]
nóv
28
Aðstoðarþingmenn - frh.
28. nóvember 2007 | Rita ummæli
Hvort sem í rauninni á þessu er þörf
og þjóðin sé fjármunum tapandi,
þá komast fleiri í þjónustustörf;
þetta er atvinnuskapandi!
nóv
28
Aðstoðarþingmenn
28. nóvember 2007 | Rita ummæli
Ég sá það einhversstaðar að þingmenn eru að tala um að fá aðstoðarmenn. Það eru nú svosem margar stéttir sem
hafa aðstoðarmenn. Aðstoðarskólastjóri, aðstoðarlæknir, aðstoðarflugmaður, aðstoðarökumaður í rally og svo mætti lengi telja.
Þeir sem eru á þingi enn
þurfa mörgu að sinna.
Auðvitað þurfa þeir aðstoðarmenn
eins og flestir hinna.
nóv
28
Á Glerártorgi
28. nóvember 2007 | Rita ummæli
Ég var nú bara rétt svona að hugsa um að ekki muni byggingaverktaka á Glerártorgi vera sérlega skemmt.
Að vera á fullu með her manns þegar framkvæmdir eru skyndilega stöðvaðar.
Eftir jaml og mikið múður
málið virðist algert klúður.
Hverjir ætli bætur borgi
byggingamönnum á Glerártorgi?
nóv
27
Út og suður
27. nóvember 2007 | Rita ummæli
Kristján Þór neitar að hafa lofað Hagkaupum verslun á Akureyrarvelli Gjarnan á það minna má
að margir hljóta skelli
verði að lokum ekkert á
Akureyrarvelli.
nóv
25
Sveitasæla
25. nóvember 2007 | Rita ummæli
Vilja leyfa beljum að viðra sig Ennþá er fagurt í íslenskri sveit.
Uppá þar margt við bjóðum.
Þó sjást varla lengur beljur á beit
og bændunum fækkar óðum.
Það þótti nú reyndar fegurra í mínu ungdæmi að tala um kýr. Belja var hálfgert skammaryrði og eins var með rollu.
En þeim virðist fækka blaðamönnunum sem þekkja orðin kýr og kindur. [...]
nóv
21
Fréttir þegnar fegins hendi
21. nóvember 2007 | Rita ummæli
Britney missti meydóminn fjórtán ára Hvort skautið hafi Britney bert
í blöðin um skal rita.
Og mjög er þetta mikilsvert
um meydóminn að vita.
nóv
20
Forsætisráðslagari
20. nóvember 2007 | Rita ummæli
Kona getur ekki verið herra og karl ekki frú Ugglaust Steinunn Valdís er að vona
að væna stöðu geti hún seinna fengið,
en þar sem herra er karl en ekki kona,
kannski að ráðslagari gæti gengið?
nóv
20
Í borginni
20. nóvember 2007 | Rita ummæli
Svifryk yfir heilsuverndarmörkum um helgina Við deildum því saman í dag og í gær.
Það drottnar í vetrarins hörkum.
Það sveipar oss líkt og hinn svalandi blær;
svifryk er yfir mörkum.
nóv
18
Áfangi
18. nóvember 2007 | Rita ummæli
Ég ætlaði að koma hér með snilldarvísu sem fjalla átti um veðurfræði. En þegar ég opnaði bloggið mitt rak ég augun í fallega tölu. Þá varð vísan svona:
Þoka er vegna þéttingar,
þá er loftið vott.
Fimmtíu þúsund flettingar
finnst mér nokkuð gott!
nóv
17
Kemur í ljós
17. nóvember 2007 | Rita ummæli
Óvíst um framtíð Bjarna Óvissa blasir við Bjarna
og bústangi hans í REI.
Á dalnum fer heldur að harðna.
Heldur ‘ann sjó eður ei?
nóv
16
Enn eru víða beljur á beit, en bráðlega fer að snjóa.
16. nóvember 2007 | 2 ummæli
Eldur logar um alla sveit og andstaðan hörð í Flóa
nóv
16
Dagur íslenskrar tungu
16. nóvember 2007 | 1 ummæli
Auðvitað verður hver einasti bloggari að rita pistil um íslenskt mál í tilefni dagsins í dag. Ég fletti Mogganum áðan og þar voru meðal annars myndir af nokkrum mönnum og konum að sýna íslenskar tungur, sjálfsagt misliprar en ábyggilega allar í góðu lagi. Sömu menn og konur voru beðin að upplýsa hvert væri þeirra uppáhaldsorð [...]
nóv
15
Á milli svefns og vöku
15. nóvember 2007 | Rita ummæli
Mjög á stundum mjótt er bil
milli svefns og vöku.
Um það nú ég yrkja vil
ofurlitla stöku.
nóv
13
Allt er í góðu lagi
13. nóvember 2007 | Rita ummæli
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1302647
Að þessu öllu gáðu:
Ástandið er, sko sjáðu,
alls ekki slæmt,
og eineltið dæmt
af örsmárri stærðargráðu.
nóv
13
Gott er nú blessað veðrið
13. nóvember 2007 | Rita ummæli
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1302647
Engri konu ýtt skal brott
þótt illa séu haldnar.
Veðrið oft er voða gott,
en veðurstofan sjaldnar.
nóv
13
Leikur einn
13. nóvember 2007 | Rita ummæli
Ég kíkti áðan á vinsæla bloggara. Sé að efstur á blaði er einhver leikur sem ekki er hægt að sjá hver er. Það finnst mér mjög miður og hryggilegt að nafnlaus blogg fái svo miklar vinsældir. Það er líka undarlegt að einn sem ekki hefur bloggað síðan í júlí skuli enn vera á topp 10 [...]
nóv
12
Allt upp á grínið
12. nóvember 2007 | 1 ummæli
Er þetta nokkuð verra en vísurnar??
nóv
11
Meira grjót
11. nóvember 2007 | Rita ummæli
Bóndi selur Bandaríkjamönnum grjót Menn auðgast með ýmsu móti
og allt í lagi með það.
Einum varð gull af grjóti.
Gaman er þessu að.
nóv
10
Kjarnahylli og kvenorka
10. nóvember 2007 | Rita ummæli
Styrkurinn liggur meðal annars í kvenorkunni Eflaust dável út mun renna
Ingibjargar spenna
er hún virkjar orku kvenna.
Eigi má sköpum renna.
nóv
10
Kannski það?
10. nóvember 2007 | Rita ummæli
Áróðursbragð hjá Landsvirkjun
Býsna oft má finna flagð
fögru skinni undir.
Þetta er sjálfsagt bara bragð
og brella nú um stundir.
nóv
9
Hól
9. nóvember 2007 | Rita ummæli
Þegar hagyrðingum er ekki klappað nægilegt lof í lófa taka þeir sig oft til og yrkja sjálfshólsvísur. Ég á töluvert safn slíkra. Ein varð til á unglingsárum mínum þegar ég var í kartöflugeymslunni á Arnarhóli að flokka kartöflur:
Það er gaman að þessu verki.
Þetta er ágætur staður.
Öll ber vísan og þess merki
að ég er sniðugur maður.
nóv
8
Þeir sem rata rétta slóð
rýna hér.
Þessi vísa er þrusugóð.
Það finnst mér.
nóv
6
Gemsinn minn
6. nóvember 2007 | Rita ummæli
Þetta er hann.
Fullorðinn og með reynslu.
Meira að segja dulræna reynslu!
nóv
6
Dularfull skilaboð
6. nóvember 2007 | 2 ummæli
Í dag kl 13.55 sendi ég konu minni svohljóðandi sms: Btbtm. Þrem mínútum síðar sendi ég syni mínum samhljóða skilaboð. Ég vissi hins vegar ekkert af þessu fyrr en sonur minn hringdi í mig og spurði hvað ég væri að meina. Síminn minn hafði verið ósnertur í hulstri sínu við beltisstað og með takkalæsingu á. Þetta er [...]
nóv
5
Stungið út
5. nóvember 2007 | Rita ummæli
Björgólfsfeðgar vilja Fáfnismenn úr sínum húsum Þegar ég var að alast upp um miðbik síðustu aldar var algengur frasi á mínu heimili: “Burt með alla peysur og poka”.
Gaman væri að heyra hvort einhverjir kannist við þetta orðatiltæki. Mér hefur ekki komið þetta upp í huga í lengri tíma, en datt það skyndilega í hug þegar [...]
nóv
5
Ekki boðið?
5. nóvember 2007 | Rita ummæli
Segir fleiri löggur en gesti hafa mætt í afmæli Fáfnis Margur hópur uppvís er
að ýmiskonar neyslu.
Löggan vildi leika sér
og langaði í veislu.
nóv
4
Flott hjá honum
4. nóvember 2007 | Rita ummæli
Bjarni Ármanns hefur lokið NY maraþoni Mig furðar ekki á þessu þarna
þeytispjaldi, honum Bjarna,
þótt á nokkrum hraða hlaupi;
hann er á svo góðu kaupi.
nóv
4
4. nóvember 2007 | Rita ummæli
Ég tók þessa mynd hér um daginn þegar logn var og gott veður.
Nú er ég bara að sjá hvernig hún tekur sig út á bloggsíðu. Það er líka tími til kominn
að hvíla lesendur á þessu eilífa vísnaflóði!
nóv
4
Verðleikar
4. nóvember 2007 | Rita ummæli
Með ýmsum hætti við hörkuðum
hérna áður og fyrrum.
Núna á matvörumörkuðum.
Mörgum það veldur pirrum.
nóv
3
Baráttan um verðið
3. nóvember 2007 | Rita ummæli
Ugglaust geta allir séð
að ekki er grín á ferðum
þegar búðir berjast með
beittum tilboðs(s)verðum!
nóv
3
Algjörir englar
3. nóvember 2007 | 1 ummæli
Vítisenglar sendir heim í fylgd lögreglumanna Okkar þjóð má ekki brengla.
Ötult liðið fer á stjá;
Vill hér enga Vítisengla.
En vopnagerðin funda má.
nóv
2
Samráð og svindl
2. nóvember 2007 | Rita ummæli
Í verslunum oft eru vörurnar sviknar.
Verðið er bara feik.
Litlum af neistanum loginn oft kviknar.
Lúkas er kominn á kreik.
Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður.