Útilokar ekki kynjakvóta Allt nú skal með öðru móti.
Ýmsu þarf að fórna.
Nú skal settur kynjakvóti
svo konur fái að stjórna.

Mennt er máttur

30. desember 2007 | Rita ummæli

Þegar vindur blæs ákaflega svo sem nú um mundir kemur upp í hugann vísa sem mér datt í hug eitt sinn um sumar er hvasst var í Eyjafirði svo moldrok sunnan af hálendi byrgði nánast sýn á milli fjalla.
Æðri menntun engan svíkur.
Ýsan kennir hrogninu.
Í miklum vindi moldin rýkur
meira en í logninu.

Það hefur oft komið til umræðu hvort telja beri guð karl eða kvenkyns. Ég rakst á tvær vísur um þetta efni þegar ég var að rósna í nokkurra ára kveðskap mínum.
Upp á himni ríkir guð minn góður.
Á gjörðum hans er sjaldan nokkur ljóður.
Þótt kallist ég um kyn hans varla fróður
sem kona er hann undarlega hljóður.
Skrattinn [...]

Aumingja kreppan

27. desember 2007 | Rita ummæli

 Tekur hálft ár fyrir kreppuna að jafna sig Stundum er  tíminn svo lengi að líða
og leiði hjá sjúkum og þjáðum.
Kreppan á eitthvað við krankleika að stríða
en kannski hún jafni sig bráðum.

Eftirvænting

25. desember 2007 | Rita ummæli

Eitthvað er það sem huga minn heftir.
Heldur dregur úr raupinu.
Nú bíð ég bara í ofvæni eftir
auglýsingunni í skaupinu.

Í tilefni jólanna

23. desember 2007 | 2 ummæli

Kæri blogglesandi!
Óskina fróma ég handa þér hefi
með hækkandi sól,
sem er að almættið góða þér gefi
gleðileg jól.
Takk fyrir heimsóknir hingað.

Játning

23. desember 2007 | 1 ummæli

Ég þarf að gera játningu. Ég ók bílnum mínum fyrir stuttu inn í stofu hjá Bensa bloggara. Hann var að vísu ekki heima.
Reyndar er hann ekki fluttur í húsið. Það er heldur ekki búið að byggja það. En ég sem sagt var að sniglast í Naustahverfinu og þá datt mér í hug að líta við [...]

Ja sussu

23. desember 2007 | Rita ummæli

 Skallaði dyravörð og réðist á lögreglumann Ég botna næstum ekkert í
hvað ólmur maður gerði;
skiljanlega er skömm að því
að skalla dyraverði.

Starf í jólagjöf

22. desember 2007 | Rita ummæli

 „Vona að ég standi undir því trausti sem mér er sýnt“ Deilt er um manninn ákaft enn,
umdeildan fékk hann stólinn.
Gott er að ráða góða menn
og gera það fyrir jólin.

Vagg og velta

21. desember 2007 | Rita ummæli

 Jólasalan í ár slær öll met Mannalegur mundað get
margvíslegu tólin.
Virðist stefna í veltumet
verslunar um jólin.

Skoðun ráðherra

20. desember 2007 | Rita ummæli

 Segist ósammála mati nefndar á hæfi Þorsteins Hvernig ber að leysa lög
og læðast þau í kringum?
Hæfur er betri en hæfur mjög
handa norðlendingum.
http://visir.is/article/20071220/FRETTIR01/71220093

Gróðavon

19. desember 2007 | Rita ummæli

 Líst vel á bílaútflutning frá Íslandi Ráðið komst að raun um díl,
sem rétt er að við könnum:
Það má selja Baunum bíl
og Bandaríkjamönnum.

Feministar hvað?

18. desember 2007 | Rita ummæli

 Engin kona í yfirstjórn Byrs Konur mega grípa gæs
sem gefst þó kannski varla.
Haganlega byrinn blæs
bara fyrir karla.

Hól

17. desember 2007 | Rita ummæli

Stundum þarf maður á hóli að halda. Ef svo stendur á, og enginn hælir manni, þá verður maður auðvitað að sjá um það sjálfur:
Viskan er stórfelld og vart hægt að mæl´ana.
Verðleikar minna á forystuærnar.
Þar sem ég stend nú og þvæ á mér hælana
þangað kemst enginn með skítugar tærnar.

Ekki dóni

16. desember 2007 | Rita ummæli

 Ekki dónalegur heldur of seinn á fund Vinstri grænn með ljúfa lund
labbar götu þvera.
Ef hann þarf á annan fund
ætti svo að vera.

Vísur uppfærðar

16. desember 2007 | Rita ummæli

Það er með vísur eins og tölvuforrit, það getur þurft að uppfæra þær þegar tíminn líður. Þannig er með vísu sem ég gerði seint á síðustu öld og hljóðaði svo:
Illa get ég aldrinum leynt.
Ekki verða hrukkurnar faldar.
Ég fæddist í rauninni frekar seint
á fyrri helmingi þessarar aldar.
Auðvelt er að sjá að eftir að ný öld gekk [...]

Sex í Reykjavík

14. desember 2007 | Rita ummæli

Fyrir fáum árum var sýndur í sjónvarpi þáttur með þessu nafni. Ekki man ég hvernig efni hans var, en hins vegar man ég vísuna, sem ég orti eftir að hafa séð hann:
Áður fyrr var helgidómur hofið.
Það hefur breytt um svip með tímans flæði.
Nú glæstar meyjar glenna í sundur klofið
og gera það að áhorfendasvæði.

Þingfréttir

13. desember 2007 | Rita ummæli

Nú vilja þingmenn fara að skipta sköpum
og skerða ræðutíma hjá angurgöpum.
En vinstri grænir malda sífellt í móinn
og munu kannski fá þessvegna kartöflu í skóinn.

http://blogg.visir.is/henry/?vi=1160#post-1160 
Ég vil byrja á að taka það fram að eftirfarandi vísa byggir ekki á neinum raunveruleika öðrum en fyrirsögn 24 stunda  og bloggi Henrys Birgis þar um. Hún er lýsandi dæmi um það þegar hagmælskan tekur völdin og gerir viðkomandi að viljalausum ritara sem skrifar hvað sem er rímsins vegna. Eftir þennan nauðsynlega formála kemur [...]

Gamli draugurinn

12. desember 2007 | Rita ummæli

 Vaxandi verðbólga torveldar kjarasamningsgerð Það getur kostað þras og pex
þetta ef á að semja.
Eftir því sem verðbólgan vex
vandinn er meiri að hemja.

Naflaskoðun

11. desember 2007 | Rita ummæli

Stundum ég fyllist af réttlátri reiði;
reynist við suma á öndverðum meiði.
Hógvær þó ávallt hjá illindum sneiði,
enda kominn af léttasta skeiði.

Ég rakst á gamlan kveðskap. Það var einn lítill jólasöngtexti sem ég setti saman einhverntíma á síðustu öld. Hann var ortur við lag Böðvars Guðmundssonar, sem heitir Lofsöngur ;
lagboðinn: Á Íslandi þurfa menn aldrei að kvíða”.
Einn lítill jólasöngtexti.
 
 
Það illt er í heiminum ástand um jólin.
Já, allir í fríi og lokaður skólinn.
Þótt uppi á himninum hækki [...]

Halló, er þetta Bush?

8. desember 2007 | 2 ummæli

 Prakkarinn Vífill vekur athygli í Ameríku Mistökin sem drengurinn gerði voru náttúrulega að villa á sér heimildir.
Að ná í karlangann víst er von
þótt virðist það dálítið stúss.
Ég heiti Vífill Atlason;
ætla að tala við Bush.
Þá hefði það gengið.

Vandræðabakstur

7. desember 2007 | Rita ummæli

Eftirfarandi orti ég sem athugasemd við færslu bloggvinar: http://natturbarn.blog.is
Það er sjálfsagt bölvað basl 
að baka ef velflest tólin 
eru eintómt djöfuls drasl   
dagana fyrir jólin! 

Nú fór í verra!

5. desember 2007 | Rita ummæli

Þegar ég ætlaði að blogga á frétt sem ég las á Vísi.is uppúr hádeginu, þá var hún horfin. Hún var um það að Hannes Smárason hefði tíu daga frest til að fjármagna kaupin á Geysigríninu. En ég blogga nú samt.
Tíu daga Hannes hefur,
hress og til í flest.
Aurasafnið arðinn gefur
eflaust fyrir rest.

Á háum hestum

3. desember 2007 | Rita ummæli

 Langar ræður tæki til að reyna að laga valdajafnvægi Nú þyrfti að taka þá til bæna;
þusa yfir knöpunum,
sem valta yfir vinstri græna
og vilja hræra í sköpunum.

Í eyrunum

2. desember 2007 | Rita ummæli

Fyrir um það bil mánuði síðan setti ég hér inn vísu um það þegar hagkaupsmenn voru dregnir á asnaeyrunum. Þar rímaði ég eyrunum -  Leirunum.   En það var ekki í fyrsta skipti sem ég nota þessi rímorð. Fyrir afar mörgum árum  tók ég þátt í leiksýningu hjá Leikfélagi Akureyrar á Munkunum á Möðruvöllum. Gerði ég mér [...]

Jólafasta?

1. desember 2007 | Rita ummæli

Þegar Jörundur Friðbergsson á Húsatóftum í Vestari-Miðfirði kom
á heilsugæsluna á Rauðasandi til skoðunar og var spurður hvort
hann væri ekki fastandi, svo sem fyrir hann hefði verið lagt,
svaraði hann með þessari vísu:
Fæðið skerða fráleitt vil;
Frjálslegt er það orðið.
Matnum gerði makleg skil
við morgunverðarborðið.
Var þetta í fyrsta og eina skiptið sem hann heyrðist
mæla stöku af munni fram og [...]

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning