Það læddist að mér er ég leit meyjarhönd
löngun að reyra í heitmeyjarbönd
konuna þá
er komin var frá
kotbænum lága Geiteyjarströnd.

Æfing

31. janúar 2008 | Rita ummæli

 Mér er í barnsminni hve elsti bróðir minn varð skrýtinn í framan þegar hann var að æfa sig á píanóið og ég spurði hvort hann væri að spila lag eða hvort þetta væri bara æfing.
Sem sagt; þetta er bara æfing:
Það var ei gaman á Grenivík.
Þar geysaði umgangspest sleni lík,
uns doktorsins skrif
gáfu dásamleg lyf
þá prófaði Guðmundur [...]

Limra um Huldu

30. janúar 2008 | Rita ummæli

Sko, Hulda var ættuð frá Hawaii.
Hýjalínsnáttfötum svaf æ í.
Hún fílaði fjör,
á fé var ei spör,
og góðgerðarsafnanir gaf æ í.

Hinsegin vísa

30. janúar 2008 | Rita ummæli

Konur þrá hvor aðra og karlar vininn sinn.
Kynin eru bæði að stunda drag.
Kannski mætti segja að kynhverfan sé inn.
Komdu útúr skápnum strax í dag!

Jamm og jæja

28. janúar 2008 | 13 ummæli

 Sigurjón með 13,6 milljónir á mánuði Landsbankinn kann greinilega vel að meta dugnað sinna manna……
Dável virðast dugnað meta.
Dýrtíð ennþá vex.
Það myndu fleiri þegið geta
13,6.

Erótík

27. janúar 2008 | Rita ummæli

 Hér er ekki ort um neina tiltekna persónu.  Þetta er bara  hugleiðing út í  bláinn með erótísku ívafi.
Gott er vill hún gera sér
og gera sér,
vill hún gjarnan vera ber
sem vera ber.

Stóll

26. janúar 2008 | 2 ummæli

 Vilhjálmur árið 2006: Eðlilegast að stærsti flokkurinn fái borgarstjórastólinn Ósköp var gott að Óli skyldi
aftur komast á ról,
enda þótt hann Villi vildi
vera í þessum stól.
-Vera í þessum stól, vera í þessum stól,
enda þótt hann Villi vildi
vera í þessum stól.

Hús á Laugavegi

25. janúar 2008 | Rita ummæli

 Borgin kaupir Laugaveg 4 og 6 á 580 milljónir Óli og Villi voru snöggir að bjarga götumynd Laugavegar. Það er kannski ekki algjörlega rétt með farið í vísunni að
þeir hafi keypt höll. En þið hafið auðvitað heyrt talað um skáldaleyfi! 
Á vandamálunum vinna þeir bug.
Veglega kaupa  höll.
Ég dáist að þessu, en dettur í hug:
Dýr myndi borgin öll.

Ekki bara káf

24. janúar 2008 | Rita ummæli

 Alvöru þreifingar milli Sjálfstæðismanna og Vg Oft munu í pólitík allskonar hreyfingar,
og ástæða til að grunda þær,
Þótt auðvitað séu alvöru þreifingar
einkamál þeirra sem stunda þær!

Betri í fötum

23. janúar 2008 | 9 ummæli

 Skiptir ekki máli í hvað kosningasjóðir fara - Svo lengi sem það sé í þágu flokksins Verðugur fulltrúi valdarokksins
varla dylgjunum þarf að svara.
Það er að sjálfsögðu í þágu flokksins
að þokkalegur hann sé til fara.

 Björn Ingi og Óskar brutu gegn skattalögum Nú virðist Björn Ingi nokkuð svo hress,
af nýlegum fötunum hreykinn.
En bólginn um hvarmana bíður hann þess
að bjóði menn honum í leikinn.

 „Eitthvað segir mér að kannski snúi ég aftur í Ráðhúsið fljótlega Þótt gráti menn liðið og gengið sé valt,
þá gott er til þess að vita;
þótt ávallt sé úti í kuldanum kalt,
menn klætt geta í sig hita.

Til öryggis

21. janúar 2008 | Rita ummæli

 Farsakenndur dagur Stundum hvessir í Reykjavík…….
Ólafur lék með geði glöðu.
Það gerist margt afar fljótt.
Almannavarnir í viðbragðsstöðu
verða í alla nótt.

Rasshass

21. janúar 2008 | 1 ummæli

 Með hass milli rasskinnanna Ef ég vildi höndla hass
ég held ég mundi ei velja
það sem einhver rak í rass
og reynir næst að selja.

Blóð

20. janúar 2008 | 3 ummæli

 Blóðið fossar í Framsókn Sumum hamingjan hossar,
þótt hún sé ei öllum góð.
Úr framsóknarmönnum fossar
fagurrautt saklaust blóð.

Mitti fjallkonunnar

20. janúar 2008 | 2 ummæli

 Miðja Íslands merkt í dag Uppi á fjöllum er nú lag.
Ýmsir hlutir skýrðir.
Miðja Íslands merkt í dag.
Mikið er um dýrðir.

 Augljóst að kosningasjóður borgaði fötin segir fyrrverandi formaður SUF Ekki veit ég hvort þessi vísa á við rök að styðjast, en sögusagnir eru á kreiki:
Allir borða á sig göt
eins og helst þeir torga.
Eftir þetta fá sér föt
sem framsókn þarf að borga.

Auminginn litli

19. janúar 2008 | 2 ummæli

 Björn Ingi að gefast upp á Framsókn Framsókn er í huga hrein
þótt hana kjósi fáir.
Einhverskonar innanmein
afgang hennar þjáir.

Landið mitt.

19. janúar 2008 | 4 ummæli

 Miðja Íslands vígð á morgun Það hafa svo margir ort um landið mitt að tími var til kominn að finna það!
Eflaust hverjum sýnist sitt
um suman gjörning nýjan;
að leggja stein á landið mitt
og láta síðan vígj´ann.

Laus sæti

18. janúar 2008 | Rita ummæli

 Svandís flutt til Reykjavíkur með sjúkraflugi Tíðkast ekki hjá flugfélögum að auglýsa laus sæti?
Ennþá er flogið. Áhöfn er gætin.
Ókyrrð í lofti er daglegt brauð.
En líklega verða lausu sætin
lítið setin og jafnvel auð.

Afmælisvísa

17. janúar 2008 | Rita ummæli

Ég hef verið spurður hvort ég ætli ekki að gera Davíð afmælisvísu. Þó það nú væri!
Mikið er í manninn spunnið.
Mörgum beitir stjórnargaldri.
Hann því til þess hefur unnið
að hafna nú á sjötugsaldri.

Það er leiðinlegt að jafnágætur maður og Þorsteinn Davíðsson ábyggilega er skuli verða fyrir barðinu á óvönduðum málflutningi bloggara. Það er sá sem settur var dómsmálaráðherra til þess að skipa hann í embætti sem á skilið allann aurinn. Ég lýsi vanþóknun minni á að eftirfarandi vísa sé sett í þetta samhengi. En hún orti sig [...]

Velkominn

17. janúar 2008 | 2 ummæli

 Myndir frá sextugsafmæli Davíðs Oddssonar Ég vil bjóða Davíð Oddson velkominn á sjötugsaldurinn. Hann er vel að honum kominn.

Dýralæknirinn

16. janúar 2008 | Rita ummæli

 Segir dómaraskipan ólöglega Skáldfákinn skal ég nú járna.
Skyldi hér einhverjum sárna?
Ég halda vil frið
og hætti því við
að yrkja vísu um Árna.

Það sem kemur norður

14. janúar 2008 | 2 ummæli

Þessa vísu verður að lesa í hljóði. Það má ekki lesa hana upphátt vegna þess að þá fer rímið til andskotans.
Sigldi norður Sæfari,
þótt suma heppnin flýji.
Hann er sko varla hæfari
en héraðsdómarinn nýji.

 
Sæfari lagstur við bryggju

-

Laugavegur 4-6

13. janúar 2008 | Rita ummæli

Það var víst Áshildur Haraldsdóttir sem hitti svo rækilega naglann á höfuðið: “Eins og að draga tönn úr fallegu brosi”. Stundum er kannski nauðsynlegt að draga úr tönn, en er þá ekki reynt að smíða svipaða tönn í staðinn?

 
Að draga tönn úr fallegu brosi

-

Hæf orð

12. janúar 2008 | 3 ummæli

 Svona skipun mun alltaf vekja upp efasemdaraddir Breytt og betrumbætt útgáfa eftir ábendingu í ummælum: 
Eigi  það veit ég svo afspyrnu gerla
hvort embættin rétt eru veitt.
En augljóst að styrkja þarf faglega ferla
frekar en ekki neitt.

Drottningarleikur

12. janúar 2008 | 3 ummæli

Eiginlega er það bara eitt sem fer í taugarnar á mér í bloggheimum. Ekki bullið, sem nóg er svo sem af.  Maður getur svo vel sleppt því. Heldur eru það nafnlausu bloggararnir, sem oft blogga af viti og ættu þess vegna að geta hætt á að tekið sé mark á þeim. En það er dálítið [...]

Hvítt ævintýri

11. janúar 2008 | Rita ummæli

Þetta litla hvíta ævintýri hefur lifað með mjög litlum hluta þjóðarinnar frá því það var skrifað fyrir nokkrum áratugum. Nú finnst mér tími til kominn að það lifni meðal stærri hluta hennar.
Einu sinni var hvítur ormur. Hvíta orminn elti hvítur ungi. Og hvíta ungan elti hvít rotta. Og hvítu rottuna elti hvítur köttur. Og hvíta [...]

Viðskipti dagsins

10. janúar 2008 | Rita ummæli

Fons var að kaupa Groupbréf Gnúps
á genginu 12,1.
Þá stækkar hlutur atkvæða. Úbbs,
- einhver kemst vonandi í feitt.

 
Fons keypti bréf Gnúps í FL Group

-

Fyrirtæki/eigandi

9. janúar 2008 | 1 ummæli

 Banki vill fyrirtæki varaþingmanns vegna 320 milljóna króna skuldar Býst ég við að banka hjá
bærist hvatir duldar.
Varaþingmann vill nú fá
vegna risaskuldar.

 Laugavegshúsin verði friðuð Húsanefnd biður nú hreysunum griða.
Heilmikið kostar það pex.
Ljóst er að einhverja langar að friða
Laugaveg 4-6.

Góðvinaveisluna gjöra nú skal
og gróða okkar að vana.
Framtíðin er okkar verkefnaval;
við munum útbúa hana.

 
Samfylkingin efnir til fundaherferðar

Bónbjörg

7. janúar 2008 | Rita ummæli

 Von á reglum um gjafir til ráðamanna Það er með þetta um að gefa ráðamönnum gjafir. Hvað er hægt að gefa þeim sem þeir hafa ekki efni á að útvega sér sjálfir?
Ríkisstjórnin er raunar fjáð
og ráðherrar efnum búnir,
en upplagt að gefa þeim einföld ráð
og orlof, séu þeir lúnir.

Góða ferð

6. janúar 2008 | 2 ummæli

 Ingibjörg til Egyptalands Treysta skal hnúta bræðrabands.
Byggð er í margri sveit.
Ingibjörg fer til Egyptalands;
ætlar að hitta Gheit.

Bubbbbi

6. janúar 2008 | 1 ummæli

Ég tala hvorki um stóra stubba
né stælta menn með vöðva lina.
Ég ætla ekkert að blogga um Bubba.
Bara lesa eftir hina.

Dável sína dóma grundar;
- dæmt skal vera satt -
þar sem margir hæfir hundar
hafa kappi att.

 
Hæfileikakeppni hunda

-

Grimmd?

4. janúar 2008 | Rita ummæli

Á vísunnar ályktun verð ég nú spar.
Ég veit ekki á því sanninn
hversvegna ólukkans vélmennið var
svo vont við aumingja manninn.

Vélmenni slasaði starfsmann

-

Össur bloggar

3. janúar 2008 | 3 ummæli

 Konur í verkfræðingastétt senda Össuri opið bréf Ég ætla að kíkja á næturbloggið hans Össurar í fyrramálið og gá að því  hvort það verður ekki svohljóðandi: 
Málum klúðrað mjög ég hef,
mér finnst því að vonum
að ég fái opið bréf
frá öskureiðum konum.

Skaup?

1. janúar 2008 | 4 ummæli

Jú, jú, víst var skaup. Kannski ekki það skemmtilegasta í áraraðir. Ég hló nú eiginlega ekki neitt, en fannst þó ýmislegt  sæmilega sniðugt. Mér þótti hugmyndin um flugslysið ekki smekkleg. En ekki dettur mér í hug að úthúða skaupinu og aðstandendum þess. Það er erfitt að gera svo öllum líki og mörgum  þótti bara gaman. [...]

leita áfram »
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning