júl
27
Gallery Box
27. júlí 2008 | Rita ummæli
Í tilefni þess að Myndlistarfélagið hefur tekið við rekstri Gallery Box varð til eftirfarandi vísa:
Dagsins skímu lítur loks
listin eina og sanna
þegar nýtt og betra Box
bætir stöðu manna.
júl
17
Flug
17. júlí 2008 | Rita ummæli
Ég flaug til Færeyja í fyrri viku ásamt dansfélaginu Vefaranum.
Að okkur lentum á Vogaflugvelli eftir stutt og snaggaralegt flug
orti ég:
Vefararnir ungu og öldnu
ósköp hljóta fegnir því
að vera lentir heilu og höldnu
hérna Færeyjunum í.
júl
1
Ljósuleysi
1. júlí 2008 | 2 ummæli
Eflaust er bara best að
búa sig undar það
að fyrst um sinn verði frestað
að fæðing eigi sér stað.
(Ekki svo að skilja að ég sé að fara að fæða)
Margar uppsagnir hjá ljósmæðrum
Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður.