sep
30
Fjárhagur
30. september 2008 | Rita ummæli
Bráðum mun ég leggja upp laupa,
linur eins og smér.
Einhver banki ætti að kaupa
eignarhlut í mér.
sep
29
Getsakir (illar)
29. september 2008 | 1 ummæli
Svalur í Svörtuloftum
sveiflar nú brandi illum
bænheitur bað hann oft um
að Baugur lenti í villum.
sep
29
Spá
29. september 2008 | Rita ummæli
Kristinn íhugar stöðu sína Þeir sem línurnar leggja
læra um þessar mundir
að hún er sleip þessi sleggja
og slæg ef að svo ber undir.
sep
29
Þótt hitni
29. september 2008 | 3 ummæli
Saka Seðlabankann um eignaupptöku Illt er að verða vitni
að verðfalli bréfa í Glitni.
Á hverjum ætli það bitni?
Ekki laust við þeir svitni.
sep
27
Miðaldra
27. september 2008 | Rita ummæli
Eftirfarandi er saman sett í orðastað fagurrar konu sem orðin er miðaldra:
Eitt sinn var ég ung og fögur,
ekki feit en varla mögur.
Af mér voru sagðar sögur
sannar eða lognar.
Ekki eru allar fjaðrir af mér flognar.
sep
27
Langt gengin
27. september 2008 | Rita ummæli
Skáldið heyrði sagt eftir gamalli konu að hún væri nú “langt gengin í lífinu”. Varð það því að vísu:
Langt gengin í lífinu.
Linnir bráðum kífinu.
Hálfnuð út úr heiminum
hoppa ég nú dreymin um.
sep
24
Það kólnar
24. september 2008 | Rita ummæli
Lögreglumenn á Suðurnesjum ósáttir með duttlunga Björns Nú er að koma hrímkalt haust.
Hélar á mörgum Esjum.
Svo er að verða löggulaust
liðið á Suðurnesjum.
sep
23
Vísa um sjálfa sig
23. september 2008 | 2 ummæli
Áðan ég hendingu eina gerði.
Er nú farinn að vona
að endi stakan og hún verði
einhvernveginn svona.
sep
22
Hvað gerði ég nú?
22. september 2008 | Rita ummæli
Karl einn var á sjó á litlum mótorbát. Skyndilega drapst á mótornum og vildi hann ekki í gang aftur. Karlinum leist nú ekki alskostar á blikuna, þar sem hann hafði litla vélfræði á valdi sínu. Heldur en að sitja með hendur í skauti tók hann nú að sísla eitthvað við mótorinn, alveg út í bláinn. Af [...]
sep
21
Ég horfði á dagvaktina. Verð að segja að fyrir minn smekk voru þeir nú komnir yfir strikið með Georg. Öllu má nú ofgera.
sep
21
Skiljanlega
21. september 2008 | Rita ummæli
.
.
.
Fáir eru sem það sjá.
Sumt fer títt á loft.
Einn það sjaldan muna má
að margt er stundum oft.
sep
21
Tregi
21. september 2008 | Rita ummæli
Til skýringar á annari vísuhendingu get ég sagt frá því að í gær hugðist ég sigla með Húna II út á Hjalteyri,en þegar ég kom á bryggjuna var mér tjáð að of hvasst væri fyrir bátinn. Aðrar hendingar skýra sig sjálfar og tengjast fréttinni beint.
Eigi hlátur upp skal hefja.
Ekki bátur rær.
Ein er látin andarnefja;
ég er [...]
sep
20
Enn í skáldlegheitunum
20. september 2008 | Rita ummæli
Ég var á ferð um lífsins láð.
Lítið gerði annað
en að verða vísna bráð.
Varla er það bannað!
sep
19
Fátækt
19. september 2008 | Rita ummæli
Enga vísu ég orti í gær
og ekki heldur í dag,
af því að nú er andinn fjær
og ekkert sem bætir hag.
sep
14
Kveðja frá Akureyri
14. september 2008 | 1 ummæli
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
sep
12
Skáldlegt enn
12. september 2008 | Rita ummæli
Nú skal gripi á griffli ná.
Greitt ég hripa stökur.
Baka lipurlega þá
lífsins piparkökur.
sep
12
Önnur skáldleg
12. september 2008 | Rita ummæli
Ef við ljúfar föðmum frúr,
fáum vín og skálum,
líkast til mun leysast úr
lífsins vandamálum.
sep
12
Skáldleg vísa
12. september 2008 | Rita ummæli
Einhverju sinni bjó ég mér til þá kenningu að hvaða orð sem væri yrði skáldlegt ef bætt væri lífsins fyrir framan. Lífsins lind, lífsins boðaföll, lífsins vatn. Ein af þeim vísum sem ég hef notað þetta snjallræði í hljóðar svo:
Lek er stundum lífsins tunna.
Lekinn mörgum sálum háir.
Þeir eiga list er lifa kunna,
en líklega eru það [...]
sep
12
Enginn veit sína ævina…..
12. september 2008 | Rita ummæli
Mælt var svo í minni sveit:
margur er lífsins auður.
Ævi sína enginn veit
áður en hann er dauður.
sep
11
Snilli
11. september 2008 | Rita ummæli
Eftirfarandi vísa er ekki um eigin snilli, heldur er hún ort fyrir langa löngu, þegar Sveinn Ásgeirsson var með útvarpsþátt, þar sem fram komu snillingarnir sem hann kallaði svo. Ég man ekki almennilega hverjir þeir voru, en minnir að það hafi verið Helgi Sæm., Thorolf Smith, Hendrik Ottóson og Guðmundur Sigurðsson. Endilega leiðréttið ef þetta [...]
sep
6
Yrking III
6. september 2008 | 4 ummæli
Ekki hef ég alltaf verið svo viss um vinsældir yrkinga minna. Eftirfarandi hendingar eru áratuga gamlar:
Þegar loks héðan af foldu ég fer
og fjörið er storknað í æðum,
þá verður enginn sem man eftir mér
og mínum ágætu kvæðum.
Þá minnist mín enginn af íslenskri þjóð,
og enginn mun kvæði mín þylja,
því þegar ég yrki þá yrki ég ljóð,
sem [...]
sep
6
Yrking II
6. september 2008 | Rita ummæli
Auðga kynni andans sjóð
og ugglaust gera hann betri
ef ég mundi yrkja ljóð
eitthvað frameftir vetri.
sep
5
Yrking
5. september 2008 | Rita ummæli
Ef til vill ég ætti að fara
að yrkja hérna ljóð.
Þessi vísa virðist bara
vera nokkuð góð!
sep
3
Allt í þessu fína
3. september 2008 | Rita ummæli
Þrautir mig ei þjakað fá.
Það er blíðan.
Gott er að tína berin blá
og borða síðan.
Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður.