Atvinnumál

30. nóvember 2008 | Rita ummæli

Til að eftir styrkir stöndum
störfum okkar flestra gröndum.
Fækka hér og fækka þar,
fækka næstum allstaðar.
Allir sitji auðum höndum.

Brostu með hjartanu

27. nóvember 2008 | Rita ummæli

Þó að kreppan þjaki geð
og þyngi dapurt sinni,
best er að ég brosi með
blóðdælunni minni.

Heilræði

23. nóvember 2008 | 2 ummæli

Ef maður hefur eitthvað gert,
sem ekki frá má segja,
mjög er það þá mikilsvert
að maður kunni að þegja.

Að móast

23. nóvember 2008 | Rita ummæli

Það er ljóst á þessu hausti
að þjóðin engan veitir grið.
En ríkisstjórnin rúin trausti
reynir þó að skirrast við.

31,6% stuðningur við stjórnina

Hættur og farinn

17. nóvember 2008 | 4 ummæli

 Sleginn yfir ákvörðun Guðna - Formannsframboð ekki á dagskrá Guðni karlinn fær nú frið
fyrir vá þeirri arna.
Núna tekur Valgerður við
(vinkona hans Bjarna).

Spurt er:

16. nóvember 2008 | Rita ummæli

Hvar var fjármálaeftirlitið?
Það hélt að Davíð hefði lagt það niður um leið og Þjóðhagsstofnun!

Er það ekki?

16. nóvember 2008 | 1 ummæli

 Ingibjörg: „Ásættanleg niðurstaða“ Hafðu hvorki háð né spott.
Heiður endurreistist (??).
Óskaplega er nú gott
að Icesavedeilan leystist.

Láglendi

14. nóvember 2008 | Rita ummæli

Nú stefnir hagur minn niður á við.
Nýtur hann lítilla styrkja.
Skuldirnar gefa ekki skáldinu frið.
Skyldi ég hættur að yrkja?

Lengi getur…

9. nóvember 2008 | Rita ummæli

Mammon gamli margoft hefur dæmt
menn og konur. Allir heimta borgun.
Það sem virðist verulega slæmt
verra getur orðið strax á morgun.

Hvíld…

8. nóvember 2008 | Rita ummæli

…frá rími og stuðlum. Eftirfarandi ljóð er svo sem ekki nýtt af nálinni.
Ég er allur einn magi
og ég sit inní sjálfum mér.
Umhverfis mig er grautur sem ég át í gær.
Yfir mig dembist kaffi
sem ég er að drekka
úr bolla
sem er stærri en ég sjálfur.
Hægt og hægt meltist ég;
leysist upp
uns ég hverf út úr sjálfum mér.
Spurningin er:
Skyldi [...]

Þú hreina….

8. nóvember 2008 | Rita ummæli

Einhverju sinni reyndi ég að heyra hvernig textinn var sem karlakórinn söng. Mér heyrðist hann vera einhvernveginn svona:
Þú hreina svarta bindið mitt.
við hörmum spilltra vanda.
Fram laðar kvartett trosið sitt,
þá er hér naumast andað.
Ég finn mér innst í hálsi hrjá
- svo marga þynnri hendir-
þar sneið af pylsu er föst á ská,
svo nú kom verri endir.
En nú [...]

Herhvöt

6. nóvember 2008 | Rita ummæli

http://olinathorv.blog.is
Burt með spillingarliðið úr landi
sem labbar nú þvert yfir sviðið.
Best að sem víðast í blogginu standi:
Burt með spillingarliðið!

Tapaður leikur

4. nóvember 2008 | Rita ummæli

Spilin oft tapast og spilling af hlýst
ef spáð er í ranga teninga.
Augljóst má vera að umræðan snýst
almennt um fyrrum peninga.

Björgun

3. nóvember 2008 | Rita ummæli

Maður þarf nú meir að yrkja.
Mun því eftir sóst;
Þjóðarhaginn þarf að styrkja.
Það er alveg ljóst

Kreppupepp

2. nóvember 2008 | Rita ummæli

Kominn tími til að peppa sig aðeins upp!
Ennþá vaxa afrek mín,
og með hverjum vetri
eins og gamalt eðalvín
alltaf verða betri!

Klessuverk

1. nóvember 2008 | 2 ummæli

Þegar þetta klessuverk er komið í hvítan ramma er það bara fjári listrænt og afar eigulegt.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning