mar
31
Grænt bannað
31. mars 2009 | Rita ummæli
Ekki svo að skilja að ég sé hlynntur framleiðslu eiturlyfja. Þetta datt mér samt í hug:
Okkar mestu undrum
að með valdi sækjum;
splittum upp og splundrum
sprotafyrirtækjum.
mar
16
Höskuldur vann - ekki
16. mars 2009 | Rita ummæli
Fréttir bárust af miklum töfum á talningu atkæða prófkjörs á kjördæmisþingi framsóknarmanna, en jafnframt að Höskuldur væri örruggur í fyrsta sætinu. Síðar kom annað á daginn. Fer þetta nú ekki að nálgast einelti?
Fyrst menn ekki vildu velja
veslings Höskuld enn
fengu þeir sér til að telja
töluglögga menn.
mar
9
Fallin spýta
9. mars 2009 | Rita ummæli
Sína æru sérhver metur.
sum eru ótrygg veð.
Fellur allt sem fallið getur,
fjárhagslega séð.
mar
5
Ávallt reiðubúin
5. mars 2009 | Rita ummæli
Tilbúin er að færa fórn
Framsókn með lipurð nægri;
vilji menn ekki vinstri stjórn
verður hún bara til hægri.
Vill vera í vinstri stjórn
Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður.