apr
25
Kosningahrollur
25. apríl 2009 | Rita ummæli
Staðreynd tel ég löngu ljósa,
lítt ég held að stoði,
þó að maður þurfi að kjósa
það sem er í boði.
apr
12
Það kostaði….
12. apríl 2009 | Rita ummæli
Oft hef ég tilhneigingu til að snúast á sveif með þeim sem eiga undir högg að sækja…..
Með sögum af illa fengnu fé
er fólkið í landinu dáleitt,
en að í þeim einhver sannleiki sé
að sjálfsögðu er alveg fráleitt!
apr
10
Basl er búskapur
10. apríl 2009 | Rita ummæli
Maður sem átti leið framhjá Valhöll heyrði einhvern þar innandyra tauta fyrir munni sér:
Svo atkvæði falli oss í vil
og ekkert fari úr hömlu
mun víst þurfa meira til
en milljónirnar gömlu.
apr
10
Titringur
10. apríl 2009 | Rita ummæli
Fínt er gengið flokkum hjá.
Fylgið leynist víða,
þó hjá sumum örli á
ofurlitlum kvíða.
apr
8
Talandi um krossfestingar…
8. apríl 2009 | Rita ummæli
Um föstudaginn fékk ég grun;
fráleitt er hann rangur:
Vegna Davíðs virðast mun
verða extra langur.
apr
7
Ræðukeppni
7. apríl 2009 | Rita ummæli
Þusað er um þjóðarhag.
Þó er eitt á hreinu:
Orðin þennan eldhúsdag
ekki skila neinu.
apr
6
Annir
6. apríl 2009 | Rita ummæli
Á Alþingi nýtist hver einasta stund.
Öllum kemur vel saman.
En komist menn ekki á framboðsfund
fer nú að kárna gaman.
Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður.