Hún Gunna

21. júní 2009 | Rita ummæli

Morgun einn Gunna í Gröf
gekk út á ystu nöf.
Hennar um geim
fór hugur á sveim.
Á heimkomu nokkur varð töf.

Borð fyrir Báru

21. júní 2009 | Rita ummæli

Hún búttaða Bára frá Hvammi
borðaði töluvert nammi.
Þótt tæki hún sig á
var tæpast að sjá
að tapaði hún einasta grammi.

Af gefnu tilefni

7. júní 2009 | Rita ummæli

Hvernig getur ein þjóð orðið ábyrg fyrir fjármálavafstri banka sem ekki einu sinni eru í þjóðareigu?
Ríkisábyrgð? Hver veitir hana? Varla er það eitthvað sem gerist bara sjálfkrafa. Einhver eða einhverjir hljóta að hafa gert það. Óvart kannski? Menn eru nú dregnir til ábyrgðar fyrir verk sem þeir vinna, þótt ekki hafi verið gert með vilja.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning