Kuldakast

23. júlí 2009 | Rita ummæli

Í þingsölum er vélað og þrasað endalaust.
Þjóðarbúið stendur fæti höllum.
Það bendir líka til þess að bráðum komi haust
hve bætir mjög í snjóinn uppi á fjöllum.

Smiðurinn

22. júlí 2009 | Rita ummæli

Smiðurinn góði frá Grýtubakka
gerði sér forláta pítubakka.
Hann nokkuð var hreinn
uns náungi einn
notaði hann fyrir spýtubakka.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning