okt
26
Þeir eru fáir sem þrífast
á þingi án þess að rífast.
Margir þar sannleikann sveigja;
sumir um hann raunar þegja.
okt
21
Nostralgia
21. október 2009 | Rita ummæli
Af gefnu tilefni reikar hugurinn aftur til heitra sumra í sveitinni uppúr miðri síðustu öld.
Vinsælar frásagnir verða ekki hraktar
um veðrið í Eyfirskri sveit,
heimasæturnar næstum því naktar
og nautgripahjörð á beit.
okt
20
Í kreppu
20. október 2009 | Rita ummæli
Ljóst er að mörgum líkar miður
lækkun tekna manna.
Þá væri skárra að skera niður
skuldir heimilanna.
okt
17
Innlegg
17. október 2009 | Rita ummæli
Svo hláturvakinn og húmorinn
haldi nú sinni vöku
langar mig til að lauma inn
léttri og góðri stöku!
okt
16
Ósköp sem leiðist mér endalaust tal
um Icesave og gróðabrellur.
Mig langar að taka upp léttara hjal
líklega um gamlar - dráttarvélar.
okt
14
Hraðsuða
14. október 2009 | Rita ummæli
Eitt er næstum alveg satt:
Ótrauður ég stefni
upp í rúm að yrkja hratt
eina vísu - í svefni..
Eflaust mun á endanum
í andans pottum krauma
þegar ég fer að yrkja um
alla mína drauma.
Og það verður ekkert bull
sem ykkur verður fært
enda skín mitt andans gull
ákaflega skært.
.
okt
6
Tíkin
6. október 2009 | Rita ummæli
Tekið skal fram að hér er ekki fjallað um neitt einstakt mál, heldur er þetta almenns eðlis.
Ennþá tíðkast mannorðsmorðin.
Margt er lítið breytt.
Pólitíkin er víst orðin
ákaflega þreytt.
Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður.