Hraðsuða

14. október 2009 kl. 0.24 |

Eitt er næstum alveg satt:
Ótrauður ég stefni
upp í rúm að yrkja hratt
eina vísu - í svefni..

Eflaust mun á endanum
í andans pottum krauma
þegar ég fer að yrkja um
alla mína drauma.

Og það verður ekkert bull
sem ykkur verður fært
enda skín mitt andans gull
ákaflega skært.

.

Ummæli

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning