Áramót

31. desember 2009 | Rita ummæli

Elfur tímans ódauðleg
áfram niðar.
Öllum vinum óska ég
árs og friðar.

Jól

24. desember 2009 | Rita ummæli

Liggur oft um langan veg
leiðin yfir hóla.
Öllum vinum óska ég
allra bestu jóla.

Árvisst

3. desember 2009 | 3 ummæli

Frá því ég man fyrst eftir mér hefur það verið árviss viðburður að ég hef átt afmæli í byrjun desember. Það brást ekki í ár fremur venju. Í ár orti ég þessa afmælisvísu:
Ég læt nú gjarnan lítið á því bera
hver læðist að og um mig hefur spurt;
Ellin hefur ekkert hér að gera,
enda hef ég rekið [...]

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning